Dagur - 09.06.1931, Side 4
116
DAGUR
30. tbl.
9. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi:
Ný kvæði.
10. Rökkurskraf.
11. Boccaccio: Tídægra I.
12. Paul Heyse: Andrea Delfin (fram-
haldssaga).
13. Hvað hefðir þú gert í þessum spor-
um? (Sönn saga) .
14. Útsýn kristins nútímamanns yfir
samtíð sína I.
15. 1 gamla daga. Endurminningar
Mýrdælings (Eyjólfur á Hvoli).
16. Læknisdómur náttúrunnar. Berklar
láta undan síga I.
17. Matur er mannsins megin. Efna-
gerðin innra með þér.
18. Fyrsta hjálp við slysum (Snorri
Halldórsson).
Um 15 myndir, sumar heilsíðu og lit-
prentaðar, væntanlega.
»J ö R Ы, 2. hefti.
Efnisyfirlit:
1. Kvæði.
2. Indland og Indverjar (6 myndir).
3. Stanley Jones: Kristur á vegum
Inálands I. (upphaf íslenzkrar út-
gáfu; þýðandi sr. Halld. Kolbeins).
4. 1 gamla daga III—V (Erl. Filipp-
usson, ritstj., Sigurður á Maríu-
bakka).
5. Samlíf ■ þjóðar við náttúru lands
síns II.
6. Útigöngur.
7. Leitið Guðs í einveru náttúrunnar!
(Ræða eftir sr. Halldór Kolbeins).
8. Fegurð náttúrunnar. (Litprentað-
ar heilsíðumyndir).
9. Læknisdómur náttúrunnar. Berklar
láta undan síga II.
10. Alhæfing mataræðis á íslandi.
11. Líkamsrækt II—III.
12. Boccaccio: Tídægra II.
13. Paul Heyse: Andrea Delfin (fram-
haldssaga).
14. Myndir (1 sérprentuð heilsíðumynd
fylgir greininni).
15. Fræðslukerfi Islands.
16. Útsýn kristins nútímamanns yfir
samtíð sína II.
17. Fæðingarréttur hennar (Irsk saga,
þýdd af Snorra Halldórssyni).
18. Rökkurskraf II—III (með mynd
sérprentaðri).
19. Trúin á verðleika Krists.
«■
Pétur Sigurðsspn.
Það hefir verið brennheit ósk
mín og þrá síðustu árin að geta
hafið sérstaka starfsemi hér á
landi. Það er að ferðast um og
með fyrirlestrum og öðrum áhrif-
um leitast við að glæða trúarlíf
þjóðarinnar og andlegt líf hennar,
án þess að þurfa að berjast fyrir
nokkru sérstöku útvortis fyrir-
komulagi eða flokkseinkenni. Eg
gat þess í blöðunum hér strax, er
eg kom heim frá Ameríku síðast-
liðið sumar, að út í slíkt myndi eg
leggja og það þótt eg yrði að stíga
það spor algerlega í trú og án
þess að hafa stuðning af nokkru
sérstöku félagi eða kirkjudeild.
Frá þeim tíma hefi eg ferðast um
mikið af Vestfjörðum, flutt
nokkra fyrirlestra á ísafirði, einn
í Hnífsdal og Bolungarvík, einn í
Önundarfirði og tvo í Súganda-
firði. Ennfremur hefi eg flutt
einn fyrirlestur á Eyrarbakka,
annan á Akranesi, fjóra i Vest-
mannaeyjum og sjö á Akureyri.
Á þessum stöðum: isafjarðar-
kaupstað, Hnífsdal, Bolungarvík,
Suðureyri, Súgandafirði, Eyrar-
bakka, Keflavík, Garði, Akranesi,
Vestmannaeyjum og Akureyri,
hefi eg heimsótt mikið til hvert
einasta heimili og kynnst mönnum
allmikið og haft gott tækifæri til
að kynnast hugsanagangi fólksins,
er lýtur að starfssviði mínu. Þar
að auki hefi eg flutt um eða yfir
þrjátíu fyrirl§stra í Reykjavík,
#-#
heimsótt mörg hundruð heimili
þar og kynnst fólki í höfuðstaðn-
um töluvert, skrifað noklcrar
blaðagreinar, sem einnig hafa
fengið þær viðtökur hjá mörgum,
að vott ber um trúaráhuga. Á
þessum 10 mánuðum hefi eg gefið
út tvö þúsund af bókinni: »Takið
steininn burt«, og selt þegar meiri
hlutann af henni, gefið út 15
hundruð af fyrirlestrinum: »Stór-
glæpir þjóðanna« og selt hann
allan, eitt þúsund af fyrirlestrin-
um: »Auðæfum blásið burt« og
einnig selt hann allan. Eftir þenn-
an stutta tíma og þessi kynni mín
af mönnum víðsvegar, er eg þeg-
ar sannfærður um að trúaráhugi
íslenzku þjóðarinnar hefir í raun
og veru, ef vel er að gáð, aldrei
verið meiri. Munurinn er aðeins
þessi, að menn hafa gefið frá sér
mikið af hjátrú og fátæklegum
skilningi á trúmálum, en nálgast
mikið sannari trú og fullkomnari
skilning á lífinu. Þótt smá skriðu-
hlaup kunni að eiga sér stað í
andlegum leysingum og orsaka ef
til vill smáskemmdir, má enginn
kippa sér upp við. Nýtt líf fæðist
sjaldan þjáningalaust, og frjór
verður ekki sá akur til lengdar,
sem aldrei er plægður.
Þetta starf mitt, sem eg í veik-
leika hefi reynt að vinna síðustu
10 mánuðina, hefir verið mjög á-
nægjulegt. Viðtökur hafa allstað-
ar verið hinar beztu og eg hefi
farið mikið uppörvaður frá hverj-
um stað. Það hefir einnig verið
mér ánægjuefni að kynnast prest-
um landsins á þessum stöðum,
sem allir hafa tekið mér mætavel
og greitt götu mína, ásamt mörg-
um öðrum góðum mönnum. Sjálf-
ur er eg fullur þakklætis til Guðs
og góðra manna, hefi mikla trú á
starfinu, þörfinni og tækifærun-
um og þrái það eitt að geta haft
holl áhrif á andlegt líf þjóðar
minnar í framtíðinni og vænti
styrks og stuðnings allra góðra
manna í þeim efnum.
-----o-----
Fr éttir.
Dánardxgur: 1. þ. m. lézt á sjúkra-
húsi í Reykjavík Kristján Magnússon,
Oddssonar skipstjóra hér í bæ. Fór
hann nýlega. suður til að leita læknis-
hjálpar, en dó af hjartabilun strax eft-
ir komu sína þangað. — Þá er og ný-
lega látinn hér á sjúkrahúsinu Guð-
mundur Ámason frá Knarareyri á
Flateyjardal, hálfþrítugur að aldri.
Druklcnun. Maður féll út úr bát frá
Siglufirði í síðustu viku og drukknaði.
Hét hann Hannibal og var frá Selvogi.
Slys. Nýlega drukknaði fjögra. ára
gamalt barn í læk hjá Kasthvammi í
Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu.
Sira Siariley Melax hefir fengið veit-
ing-u fyrir Breiðabólstað í Vesturhópi.
Kuldatíðin heldur áfram og óslitin
þurviðri þar til í gær að rigndi lítils-
háttar. Útlit með grassprettu slæmt, ef
ekki skiftir um hið bráðasta, og jörð
víða kalin til skemmda.
\
nJegstæri mig af léreptunum mínum“
segir húsmóðirin
Þvottar
þvegnir með
RINSO
veróa hvítari
og endast
lengur
LIVER BROTHER8 LIMITSO
PORT SUNUGHT, ENOLAND
W-R 25-047A
„ Þessvegna þvæ j'eg aldrei hin fínu lök og
dúka mína í öðru en Rinso. Rinso fer
svo vel með þvottana, það naer út
öllum óhreinindum án harðrar núningar
og gerir þvottana hvíta án þess að
bleikja j>á. Siöan jeg fór aÖ brúka
Rinso i hvíta þvotta, veröa þeir hvítari
og endast lengur, svo þaÖ er sparnaöur
viÖ þaö líka.“
Er aöeins selt i pökkum
— aldrei umbúöalaust
Lítill pakki—30 aura
Stór pakki—55 aura
ALFA LAVAL
mjólkursigti og sigtisbotnar (vattbotnar) eru ó-
missandi til þess aö framleiða hreina og heil-
nœma mjólk.
Samband isl. samvinnufélaga.
róliiísl óperrispoka.
Dalalæða sunnan yfir sanda,
syrju menguð, fast hjá bæjum krýpur.
Fram til sveita, út við yztu granda,
Ópverrinn úr skotti hennar drýpur.
Grómi sínu að sletta á allt og aiia,
er hann gjarn, sá fúli þokukúfur.
Laða sig um lægstu mýrahjalla,
lyppa sig um flokks síns hundapúfur.
— Hjúfra sig að hreiðrum band-
ormanna.
— Hún er andstyggð guðs og
flestra manna:
Dalalæðan sunnan yfir sanda.
Glúmur.
Stúdentsprófi við Menntaskólann hér
lauk á Föstudaginn var. 15 nemendur
útskrifuðust. Skólauppsögn fór fram
kl. 2 á laugardaginn.
Settur til að þjóna Grundarþingum
fyrst um sinn eða þar til öðruvísi verð-
ur ákveðið, er sr. Friðrik Rafnar sókn-
arprestur á Akureyri. Næstkomandi
sunnudag kl. 12 á hádegi messar hann
á Hólrnn og f Saurbæ kl. 3 e. h. sama
datg.
EFS4AGERÐAR-V0RUR-
eru þekktar um allt land, vörugæði og
verðlag viðurkennt af öllum sem reynt hafa.
íslendingar! Kaupið islenzkar vörur.
Umboðsmaður vor á Akureyri er
Eggert Stefánsson
Brekkugötu 12. — Sími 270.
H|f Efnagerð Reykjavíkur.
Myndasíofan
Oránuféiagsgötu 21 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funcfi-Rasmussen.
Hljómsveit Bernburgs hélt hljómleik
í Nýja Bíó á sunnudaginn var við dá-
góða aðsókn og mikihn fögnuð áheyr-
enda. Er Bernburg viðurkenndur snill-
ingur í þeim sökum.
Fimmlembd ser. 1 vor eignaðist ær
ein á Steinsstöðum í Öxnadal 5 lömb,
3 gimbrar og 2 hrúta. Lömbin lifðu öll.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkavag 5.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.