Dagur - 17.09.1931, Blaðsíða 3

Dagur - 17.09.1931, Blaðsíða 3
45. tbl. DAGTJR 175 Undirsængurdúkar þeir beztu, sem hægt er að fá; eru til í jfk þrem breiddum 105 — 115 og 140 cm. VBRÐIÐ LÆKKAÐ! ©æ® BRAUNSVERZLUN. PÁLIi SIGURGEIRSSON. Pað er óhœtt að þvo mýkstu. ullarföt úr LUX. En hvað hin viðkvæmustu úllarföt vérða mjúk teygianleg þegar þau jþorna' eftir L u x þvottinn. — Upprunalegi liturinn helzt skær og skínandi,þau láta eins vel til, eru jafn hlý^og fara ávalt eins vel og ný væru. — Þar sera núningur með óvalinni þvottasápu gerir ullarfötin hörð og eyðileggur þau, þá má þvo þau aftur og aftur úr L u x án þess að unt sé að verða þess var að þau hlaupi.eða skemmist á nokkurn hátt. Hinir gegnsæu L u x sáputíglar eru hreinasta þvotta- sápa sem nokkurntíma hefir verið framleidd. Reynið I.ux á vönduðustu ullarfiíkunum yðar, og sjá, eftir margra mánaða notkun líta þauútsemný væru. 1 LUX W.LX 2*3-1* feBVER BROTHERS LIMITED. ORT SUNLIGHT.ENGLAND. Pað sem þolir vatn þolir L U X. M.s. „HVITING“ verður við flutninga í ;haust og vetur um Eyjafjörð og lengra ef óskað er og nægur flutningur fæst. Upplýsingar í síma 229 og 36. Akureyri 16. september 1931. Virðingarfyllsh Hjörtur Lárusson. B/'örgvin Guðmundsson kominn heim. Meðal farþega á Dettifoss, er hingað kom í fyrradag, var Björg- vin Guðmundsson tónskáld, kona hans og dóttir. Hefir hann dvalið um 20 ára skeið vestan hafs, en er nú ráðinn söngkennari hér við skól- ana og sezt því að hér í bænum. B. G. er lærður tónlistamaður, lauk námi við hinn konunglega tónlista- háskóla í London fyrir nokkrum árum og hlaut að nafnbót A. R. C. M. Áður hafði hann um mörg ár stundað sjálfsnám af miklu kappi og komizt ótrúlega langt áleiðis, þrátt fyrir erfiða aðstöðu á margan hátt. Er Björgvin mörgum kunnur hér heima vegna tónsmíða sinna, er hlotið hafa almennings hylli, svo sem lag hans við sálminn: >Nú legg eg augun afturc. Vill Dagur bjóða þenna listfenga Ianda velkominn heim til ættjarðar- innar úr hinni löngu útivist og jafnframt óska honum þeirrar ham- ingju, sem hann að líkindum þráir mest: að sönglíf þessa bæjar megi lengi bera minjar starfs hans hér á Akureyri. -----o----- fón Jónatanssen póstur, andaðist i fyrramorgun á heimili sonar síns, Kristjáns bakarameistara, hér í bænum. jón mun hafa verið rúmlega átt- ræður að aldri, hélt sér vel likam- lega og andlega fram á æfikvöld. Hann gekk veg sinn skrumlaust, þessvegna rétt að hafa hljótt um minningu hans látins. Pessa skal þó minnst: Sem opinber starfsmaður, póstur, hefi eg heyrt, að hann hafi þótt með eindæmum ábyggilegur og öt- ull — átti þó ekki létta póstleið. Rosknir menn á Akureyri vita hvern- ig hann reyndist samtíðarmönnum sínum; þeir, er kynntust honum nokkuð nánar.muna hann sem grand- varan og gegnan. Gamalt kunalngi. ■.... O---- Simskeyti. (Frá FB). Rvík 16. sept. London: Æfingum Atlantshafs- flotans breska hefir verið frestað, vegna óánægju og mótmæla háseta og skyttna útaf launalækkunaráformi þjóðstjórnannnar. Öii iandleyfi eru bönnuð. Er þetta talin alvariegasta mótspyrna gegn áformi þjóðstjórn- arinnar og afleiðingarnar ófyrirsjá- anlegar. Vinarborg: Heimwehrmenn gerðu misheppnaða byltingartilraun i Stor- ia-héraði á sunnudaginn. 300 bylt- ingarmenn voru handteknir og þar á meðal leiðtogarnir. A fjölmennum góðtemplarafundi í Reykjavik var mótmælt breytmgum á vínveitingatímanum i Hótel Borg. Vínveitingatíminn er styttur fyrri part dags, en lengdur á kvöldin. Ætla temparar, að þetta muni leiða til aukinnar drykkju í bænum. Dánarfregn. Dáinn er 23. f. m. SIGURÐUR HELGASON, bóndi í Torfagarði í Seyluhreppi, eftir langa og stranga legu, fyrst heima og síðan á sjúkra- húsinu á Sauðárkrók. Krabbamein varð honum að bana. — Sigurður sál. var fæddur 22. júli 1872, kvænt- ur eftirlifandi konu sinni, Helgu Magnúsdóttur, árið 1903. Byrjaði hann búskap sama ár á Brenniborg, en lengstum bjó hann i Torfagarði eða 26 ár samfleytt. Peim hjónum varð þriggja barna auðið og lifa þau öll: Margrét, 25 ára, Magnús, 23 ára og Helgi 17 ára, mannvæn- leg börn og efnileg. Sígurður var vandaður maður í orðsins fyllsta skilningi og hinn mesti dugnaðarmaður, skrumlaus og greindur vel. Prautir sínar bar hann með fágætu jafnaðargeði, mælti aldrei æðruorð í sinni löngu legu. Sýndi hann þá bezt kail- mennsku sína og hetjulund. Foreldrar hans voru hjónin Mar- grét Jónsdóttir og Helgi Jónsson, búandi á Syðra Skörðugili, alkunn sæmdarhjón. Voru þeir Helgi og dr. Jón Porkelsson rektor, systra- synir. Mæður þeirra voru dætur bændaöldungsins Árna Heigasonar á Fjalli i Sæmundarhlið. Móðir Mar- grétar, konu Helga, var Ingriður Benediktsdóttir frá Hróarsdal, systir Jóns, er þar bjó, föður Jónasar, sama staðar, alkunns gáfu- og at- gervismanns. Var Sigurður þannig af góðu fólki, vel gefnu og vönduðu, kom- inn í báðar ættir. Hann var einn meðal hinna kyrrlátu i landinu, sem gera garðinn frægan með verkum sínum. Friður sé með þérl L. I. o— ■ ■■ Fréttir. Mannfjöldi i Kanada. í júní síðastiiðnum var tekið allsherjarmanntal í Kanada, og reyndist mannfjöldinn þar um lOmiljónir. Kaúpíélag er í ráði að setja á fót í Reykjavík. Er undirbúningsfundur um það mál afstaðinn og undirbúningsnefnd kosin. Nefndina skipa Hermann Jónasson lög- reglustjóri, Jón Árnason framkvæmdastjóri, Pálmi Hannesson rektor, Hannes Jónsson dýralæknir, Eysteinn Jónsson skattstjóri, Helgi Bergs framkvæmdastjóri og Thódór Lindal lögfræðingur. Skip rekast á, Eyrra miðvikudag sigldf Víkingur úr Reykjavik á vélbát frá ísafirði, er nefnist >Frægur«. Áreksturinn varð á Hnífsdalsvík, Vélbáturinn sökk þegar, og með bátnum fórst skipstjórinn, Jón Frið- geir Jónsson frá Bolungavík. Aðrir bát- verjar björguðust. Skólanefnd Akureyrar, eða meid hiuti hennar, hefir mælt með því að Helga Ólafssyni kennara á Sauðárkróki verði veitt kennarastaða við barnaskólann hér. Kenn- arastaða þessi er til viðbótar þeim, sem fyrir eru. Eriing Krogh, norski söngvarinn, kom ekki hingað með Dettifoss eins og ráð- gert hafði verið. Hann kemur ekki fyr en með »Drottningunnu og ætlar að syngja hér i kvöld og annað kvöld, Settur skólastjóri við gagnfræðaskólann í Neskaupstað er sira Jakob Jónsson sókn- arprestur í Norðfirði. Dánardægur. Á þriðjudagsnóttina andað- ist að heimili sínu hér i bæ )ón jónatans- son, faðir Kristjáns bakara. Hann var orðinn háaldraður maður. Göngum verður frestað nálægt elnni viku hér um sveitir, svo að menn geti sinnt heyskap lengur en ella, Verzlunarféiag rússneskt-íslenzkt er ný- búið að setja á stofn hér á landi. í stjórn þess eru Einar Olgeirsson, Þórður Eyjólfs- son lögfræðingur, Ouðbrandur Magnússon forstjóri, allir í Rvík, og hér á Akureyri Böðvar Bjarkan lögmaður og Vilhjálmur Þór framkvæmdastjóri. GlíöVÍðríStÍð er nú á degi hverjum, Hæg aunnanátt og hlýviðri; rignir sama og ekkert hér um sveitir. -------o—«—— Til sölu 2 góðar kýr. Ef um ábyggilegan kaupanda er að ræða, geta komið til mála góðir borgunarskilmálar. Upplýsingar í skóverzlun M. H. LyngdalsáAkureyri. Hinir margeftirspurðu ódýru niðursoðnu ávextir eru komnir aftur. Nýlenduvörudeildin. 1 fæst keypt á hentugum stað | i bænum. Sömuleiðis fæst 1 þar leigt eitt herbergi. Árni Jóhannsson í K. C. A. vísar á. Dezt að auglysa í D E G L

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.