Dagur - 08.10.1931, Side 4

Dagur - 08.10.1931, Side 4
188 DAGUR 48. tb. Fréttir. Kaupfélag Pingeyinga hefir lokið við byggingu sláturhúss og frystihúss á Húsa- vík og var hvorttveggja tekið til notkunar í haust. Byggingin er sögð hin myndarleg- asta á ailan hátt. Landlæknir er skipaður frá 1. þ. m. Vil- mundur Jónsson héraðslæknir á ísafirði. Sláturfélag Suðurlands siátrar \ haust so þús. fjár í sláturhúsi sínu i Reykjavík. Par að auki starfrækir félagið sláturhús á Akra- nesi og annað í Vík í Mýrdal; Á öllum þessum stöðum slátrar félagið samtals um 70 þús. sauðfjár. Háskólinn í Reykjavík var settur 3. þ. m. Háskólarektor næsta ár er Ólafur Lárusson prófessor. Menntaskólinn á Akureyri var settur á laugardaginn var. Skólameistari flutti ræðu og kvaddi meðal annars Lárus J. Rist leikfimikennara, sem liverfur nú frá skól- anum eftir aldarfjórðungs prýðilegt starf. Einnig bauð skólameistari velkomna til starfs að skólanura nýju kennarana, Her- mann Stefánsson leikfiraikennara, Björgvin Ouðmundsson tónskáld og J. A. Tompson enskukennara. Barnaskólinn verður settur á laugardag- inn keraur, 10. þ. m., kl. 2 e. h. Sigvaldi Porsteinsson kaupm. kom heim með íslandi í síðustu viku, Fríeðslumálastjórar eru settir, þar til öðru- vísi verður ákveðið, Freysteinn Gunnarsson Kennaraskólastjóri og Helgi Elíasson skrif- stofustjóri á fræðslumálaskrifstofunni. Á Freysteinn að hafa umsjón með æðri skól- unum, en Helgi með barnaskólunum. Tuttugu bændur á Fijótsdalshéraði hafa myndað með sér ræktunarfélag á samvinnu- grundvelli. Ætla þeir að rækta í félagi stórt svæði á Vallanesslandi og losna á þann hátt við heyskap á lélegum engjum, Carl Nielsen, danskatónskáldið,erlátinn. Fjárhagur Brasilíu er svo bágborinn, að stjórnin hefir lýst yfir, að hún geti ekki greitt vexti af skuldum. Kemur Bretum þetta illa, því þeir eru aðallánardrottnar Brasilfu. Skráning atvinnulausra. í fundargerð at- vinnubótanefndar í bæjarstjórn Akureyrar frá 1. þ. m. er meðal annars skýrt svo frá: Skráning atvinnulausra hefir farið fram 6 undanfarna daga, og hafa 80 komið til skráningar. Meiri hluti þessara manna hefir haft at- vinnu undanfarna viku, en þeir búast við atvinnuleysi, Af þessum 80 eiga 47 ómaga fram að færa, þar af 22, sem ekki eiga sveitfesti hér. Einhleypir menn skráðir 28, þar af sveit- fastir hér 20. Loks eru skráðir 5 kvæntir menn barnlausir og vinnufærir, þar af 4, sem ekki eiga sveitfesti hér. Af hinum skráðu eru 11 þurfalingar, þar af 6 á stöðugu framfæri og 5 óvinnufærir eða lítt verkfærir. — Nokkrir hinna skráðu reka búskap eða aðra sjálfstæða atvinnu, og einstöku hafa við góð efni að styðjast. Ráó VÍð kreppunni. Þjóðkunn kvenfrels- iskona í Bandaríkjunum hefir borið fram þá tillögu að fresta öllum barnsfæðingum þar til kreppunni létti af. Út af þessu varð einum að orði: >Hamingjunni sé lof fyrlr að eg er fæddur og er ekki Ijósmóðir*. held eg undirrituð, ■ í vetur, sem byrjar 20. október. Peir, sem vilja taka pdtt i p.vl, tali við mig sem jyrst. Brynhildur Ingvars. Gránufélagsgötu 7. BrÚaríOSS kom hingað í iyrradag að vestan og tekur fryst kjöt til útflutnings á frystistöðvunum. Gengi sterlingspunds í New York var í skeytum í síðasta blaði sagt vera 2,83—2,87 dollarar. Átti auðvitað að vera 3,83—3,87. ——o------- Frá barnaskólanum. Til þess að reyna að létta að mestu lesbókaskattinum af foreldr- um og aðstandendum barnanna, en fryggja Þó skólanum jafnframt tölu- vert lesefni þegar i stað og raikið f framtiðinni, verður það nýmæli tekið upp í vetur, að hvert barn borgi aðeins eina krónu i lesbóka- sjóð og bærinn aðra krónu á móti. Fyrir þetta fé verða keyptar lesbæk- ur, sem börnin fá að nota meðan þau eru í skólanum, en skólinn á og varðveitir. Verði þessari tilhög- un haldið áfram, sem eg vona, eignast skólinn smámsaman mikið lesbókasafn, og þessi litli skattur einstaklings og heildar, sem nú er 1 króna, mun þó jafnframt fara lækkandi. — Vænti eg að menn sjái þá »praktisku« hlið á þessu máli, og skilji hvérnig á þvi stendur, er börnin biðja um krónuna, og fagni því að losna svo við lesbókakaupin. Snorri Siglússon. --- 0 S ims key ti. Rvík 7. okt. London: Eftir tveggja stunda ráðuneytisfund í gærkveldi, sem lauk á miðnætti, var ákveðið að allsherjarkosningar i Bretlandi fari fram 27. þ, m. að undangengnu þingrofi. Hefir þetta verið tilkynnt opinberlega. MacDonald birtir ávarp til þjóð- arinnar og skorar á hana að styðja þjóðstjórnina. Samkvæmt síðustu erlendum skeytum eru sósfalistar i Bretlandi, sem fráhverfðust MacDonald eftir myndun þjóðstjórnarinnar, að snú- ast til fylgis við hann aftur. Washington: Hooverstjórnin er að íhuga, hvort ekki sé rétt að framlengja skuldagreiðslufrestinn í 2 ár. Berlin: Curtis hefir sagt af sér. Á Norðfirði voru skrásettir 98 atvinnulausir, af þeim voru 57 heim- ilisfeður með samtals 132 bðrn innan fermingar. Atvinnurekendur á Norðfirði hafa sagt upp samn- ingi við verklýðsfélögin þar frá áramótum og vilja knýja fram launa- lækkun. .... o ■ »Eg er hreykin af léreptunum mínum« segir húsmóðirin. Þvottur þveginn með Rinso verður hvítari Pessvegna þvæ eg aldrei hin viðkvæmu lök og dúka mína í öðru en R I N S O. R I N S O fer svo vel með þvottinn, það nær öllum óhreinindum úr án nokkurs núnings og gerir þvottinn hvítan sem mjöll án þess að bleikja hann. Síðan eg fór að nota RIN S O I hvítan þvott verður hann enn hvítari og endingarbetri, svo það er sparnaður við það lfka. og endingarbetri. LIVIR intTHIM LIMITSO RORT •UNUOHT) IH*LANB Er aöeins selt i pökkina — aldrci umbúöalaust Lftill pakki—30 aura Stór pakki—55 aura W-R 25*047 A Gagnfrœðaskoli Akureyrar verður settur laugardaginn 17. okt. kl. 2 síðdegis. Enn komast nokkrir nemendur í fyrsta bekk gagnfræðadeildar, með því að snúa sér til mín. Umsóknarskírteina fyrir iðndeildarnemendur skal vitjað, sem allra fyrst, til Jóhanns Frímanns kennara eða til mín. Sigfús Halldórs frá Höfnum skólastjóri. Oddeyrargötu 38. Foto for og cfler af Hebe Haaressens. — Dcnne Herrc. ■kaldct i over 10 Aar, men en kort Kur ham nyt, tæt Haar, uden »graa St*nk«. — Attesteret vidnefast af Myndighederna. — Hebevxdskcn er en Fond af lægekraftice Urteessen* scr. som ved relativ Samvirke gcr Haarbunden sund, fjcmer Haarfedt og Skæl. standser Haartab og bevlrkw ny. kraftig V*kst. Skaldede benyttcr den forste Hebe Haaressens, 3*dobbelt stxrk, Kr. 6,00 Hebe do., plus S0 pCt. Anrtgra«t. » 5.00 Hebe Antigraat, mod graa Hsar, » 4,00 Hebe Quccn, Damemes Yndling. • 4,00 Hebe Haartinktur. tín Special.. » V00 Hebe Normal, Bornehaarvaud, » 2.00 Hebe Chamooo. antisentisk. pr. Pk. • 0.25 Alle I store Flasker. Faas overalt. Skriv tíl HEBE FABRIKKER. Kabenhavn N. Góðan daginn l Reykirðu Gigaretfur? SlyddUVeOur á norðaustan hefir verið undanfarna daga, pgns oi drekka allir góöir * Islendingar. Fæst alstaðar þar sem öl er selt. Ritstjóri: Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6. Prentsmiðja Odds Bjömssonar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.