Dagur


Dagur - 03.12.1931, Qupperneq 3

Dagur - 03.12.1931, Qupperneq 3
56. tbl. DAGUR 219 Fréttir. Fáheyrt slys. Um tvöleytið á mánu- dagsnóttina var vildi það slys til hér í bænum, að fólksflutningabifreið var keyrð norður af Torfunefsbryggjunni og' í sjóinn. Mun á þessum stað vera um 5 metra dýpi. Menn á útlendu skipi, er var þarna í nálægð, urðu varir við slys- ið, en engri björgun varð komið við. Næsta- morgun varð festum komið und- ir bifreiðina og' náðist hún þannig upp. í bifreiðinni voru lík þeirra, er drukkn- að höfðu, ósködduð. Tvær manneskjur höfðu látið þárna líf sitt: Sigurður Þorsteinsson bifreiðarstjórinn, uppalinn hér í bæ, og Sigríður Jóhannesdóttir, ættuð frá Húsavík, en til heimilis hér í bænum; bæði ung að a.ldri og ógift. Um nánari atvik að slysi þessu er enginn til frásagna. Vinsmyglun. Björn Björnsson bakara- meistari í Reykjavík, sá er nýlega tók við stjórn á Hótel Borg, hefir orðið uppvís að stórfeldri vínsmyglun. Hefir hann játað að hafa fengið 47 kassa af sterku áfengi, er hann hafði pantað undir því yfirskini, að það ætti að not- ast á frönsku herskipi. Brot þetta skeði löngu áður en hann tók við stjórn á Hótel Borg. Þá hefir ísleifur Briem einnig orðið uppvís að samskonar broti; hafði hann eitthvað verið í þjónustu franska ræðis- mannsins. ísleifur er nú farinn til út- landa. Dómsmálaráðuneytið hefir svift Björn Björnsson vínveitingaleyfinu og lögregl- an hefir sett vínkjallara hótelsins undir innsigli. SÖngskemmtun. Söngfélagið »Geysir<t, undir stjórn Ingimundar Árnasonar, skemmti bæjarbúum, í Nýja Bíó, síðastl. sunnudag. Var þetta í fyrsta sinn, er Geysir syngur á þessum vetri. Aðsókn var miður en skyldi, því söngurinn tókst prýðilega. Varð flokkurinn að endur- taka meira en helminginn af söng- skránni, þar á meðal »Vögg'uvísu« eftir Brahms, »Þey, þey og^ ró, ró«, eftir Björgvin Guðmundsson, »Hymn« eftir Wennerberg og »Sænska þjóðvísu« eftir Svedblom. Ennfremur varð söngflokk- urinn að gefa aukalag. Næstkomandi laugardagskvöld (þ. 5. þ. m.) ætlar »Geysir« að endurtaka söngskemmtun sína og þá í Samkomuhúsi bæjarins. t Unglingastúka var stofnuð hér í bæn- um á sunnudaginn að tilhlutun Hann- esar J. Magnússonar kennara og Snorra Sigfússonar skólastjóra. Stofnendur voru 39 að tölu. Umdæmisstúkuþing var haldið hér í bænum um fyrri helgi. Sátu það 22 full- trúar, þar af 4 aðkomandi. Regluboði, Pétur Sigurðsson, flutti þar erindi á opnum fundi. Fulhieldisfagnaöuir. Stúdentafélagið hér í bænum gekkst fyrir samkomu í Samkomuhúsi bæjarins 1. des. sl. Hófst samkoman með því, að lúðrasveitin spil- aði undir stjórn Karls Runólfssonar. Erindi fluttu dr. Kristinn Guðmundsson og Brynleifur Tobiasson kennari. Minnt- ust þeir báðir fullveldisins og var gerð- ur hinn bezti rómur að máli þeirra. Ennfremur söng Geysir nokkur lög, og> er söngur hans jafnan vel þeginn. Hús- fyllir var, enda aðgangur ókeypis. I þuce/i b&bu/y. A S T M A, brjóstveiki, lungnakvef, nef-, háls- og kverkasjúkdóm, einnig svefn- leysi og taugaveiklun læknar Dr. Hassencamps »Medicatus«. Verð 10 kr. Upplýsingar, notkunarreglurog með- mæli sent yður að kostnaðarlausu. M. Bro, kem. tekn. Fabrik, Danasvej 82, Köbenhavn V. ÁOÆTT HERBERGI, með mið- stöðvarhiía og Ijósi, er til leigu nú þegar á bezta stað í bænum. Ritstj. vísar á. Standmynd af Hannesi Hafstein, eftir Einar Jónsson myndhöggvara, var af- hjúpuð í Reykjavík á fullveldisdaginn, 1. desember. í sambandi við þá athöfn var sungið kvæði, er orkt hafði Þor- steinn Gíslason ritstjóri. Ræður um Hannes Hafstein fluttu þenna sama dag þeir Einar Kvaran rithöfundur og Þorsteinn Gíslason og var báðum þeim ræðum útvarpað. Mynd Hannesar Hafsteins stendur fram undan stjórnarráðshúsinu, þar sem áður var líkneski Jóns Sigurðsson- ar, sem nú er flutt á Austurvöll og stendur fram undan Alþingishúsinu. o ■■ DAGSKRÁ útvarpsins í Reykjavík. Fastir liflir á hverjum degi: Kl. 10.15 — 16.10 — 19.30 veðurfregnir. 20.30 fréttlr, FÖSTUDAGUR 4. des. Kl. 19.05 þýzka. 19.35 enska. 20 er- endi: Þorbjörg Árnadóttir. 21 grammó- fónhljómleikar. LAUGARDÁGUR 5. des. Kl. 18.40 barnatími. 19.15 og 19.35 fyrirlestur Búnaðarfél. Isl. 20 leikrit: Soffía Guðlaugsdóttir. 21 grammófón- hljómleikar. SUNNUDAGUR 6. des. Kl. 17 messa £ dómkirkjunni.: síra Bjarni Jónsson. 18.40 barnatími. 19.15 grammófónhljóml. 19.35 upplestur. 20 erindi. 21 grammófónhljóml. MÁNUDAGUR 7. des. K. 19.05 þýzka. 19.35 enska. 20 bók- menntafyrirlestur. 21 hljóml. ÞRIÐJUDAGUR 8. des. Kl. 19.05 þýzka. 19.35 enska. 20 er- indi: Árni Friðriksson. 21. hljóml. 21.15 upplestur. 21.35 grammófónhljóml. MIÐVIKUDAGUR 9. des. Kl. 18.40 barnatími. 19.16 þýzka. 19.35 enska. 20 Frá útlöndum: Vilhj. Þ. Gíslason. 21 hljóml. FIMMTUDAGUR 10. des. Kl. 19.05 þýzka. 19.35 enska. 20 er- indi: Gunnlaugur Briem. 21 hljóml. 21.15 upplestur. 21.35 grammófónhlj. »Eg er hreykin af léreptunum mínum« segir húsmóðirin. Pvottur þveginn með Rinso verður hvítari Pessvegna þvæ eg aldrei hin viðkvæmu lök og dúka mina í öðru en R I N S O. R I N S O fer svo vel með þvottinn, það nær öllum óhreinindum úr án nokkurs núnings og gerir þvottinn hvítan sem mjöll án þess að bleikja hann. Síðan eg fór að nota RIN S O í hvítan þvott verður hann enn hvítari og endingarbetri, svo það er sparnaður við það lika. og endingarbetri. Lfvin ■noTHBna limitbo POHT •UNUOHTi INaLANt Er aðeins selt i pökkum — aldrei umbúðalaust Lítill pakki—30 aura Stór pakki—55 aura W-R 25-047A —h k e a mmsmm I Nýreykt I w hangikjöt, magálar, lax, m af þingeysku fé, reykt við skógvið, er til sölu á Norðurgötu 16. (Inn- gangur að austan). Skepnuföður. Ágæt söltuð síld fæst hjá OTTO TUIiINIUS. drekka allir góðir Islendingar. Fæst alstaðar þar sem öl er selt.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.