Dagur


Dagur - 31.12.1931, Qupperneq 1

Dagur - 31.12.1931, Qupperneq 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XIV ár. ^ Akureyri, 31. desember 1931. 60. tbl. Hér með tilkynnist, að Kristján Jóhannesson bóndi á Jódísar- stöðum andaðist að heimili sínu annan dag jóla. Jarðarförin verð- ur tilkynnt síðar. Aóstandendurnir. Jólaljóð. Ó, faðir heiði himinn og hjartkær móðir jörð, enn hjúpar ykkur dýrðih, enn Ijómar þakkargjörð: við fögnum okkar meistara, mannsins blíða syni, hvert minnsta barn er gerði um eilífð sér að vini. Kom, góði jarðar gestur, með guðdóms himinljós að græða undir lífsins, að verma hjartans rós. Kom, draumur kærleiks, ennþá að deyfa eggjar bitrar, kom, dagur Guðs, að verma hvert strá, er berst og titrar. Á jörðu er ennþá myrkur og heift og hjartasorg. Kom, helgur englaskari úr Drottins föðurborg. Um duft og tóm er barist, á duft og tómleik trúað og traustið eitt á kærleikann fær þann helveg brúað. Á kærleik Drottins eilífan, er oss réttir hönd frá ódauðleikans ríki að baráttunnar strönd; sem kallar oss og laðar til ljóssins gegn um aldir, þess ljóss, er sigrar myrkrið, þó tímar séu kaldir. Kom enn með kærleiks boðskap, þú æðsti jarðarson, kom enn til þjáðra bræðra, með kærleik, trú og von. Pín einföld hjartans boðorð er allt, sem þarf að halda. svo Eden sé á jörðu og kraftþrot myrkurvalda. — ó, mannleg sál! Pú mæðist og leitar langt um skammt, þín lausn er friður hjartans, ei heljaraflið rammt. * Hann skildi frið sinn eftir, að allir mætti finna um eilífð ró og blessun og stríði jarðar linna. Og milljónir hann fundu — og finna enn í dag. Þótt fjarri virðist sigur, var skift um mannsins hag frá þeirri stund, er guðdómsins geisli skein á foldu, því gatan var þá sýnd, er til himins lá úr moldu. Frá dögun lífs á jörðu mörg dýrðleg stjarna skein, margt dásamlegt var hugsað, mörg trú og ást var hrein. En Kristur, þú ert sólin, ert króna lífs á meiði. Pinn kraftur oss til ljóssins frá skugga duftsins leiði. Hulda. Fréttir. □ RÚN 5932167 - htf.\ Frl.\ Ko.\ MannSlát. Hinn 26. þ. m. andaðist að heimili sínu, Jódísarstöðum í Öngulsstaða- hreppi, Kristján Jóhannesson bóndi þar og fyrverandi austanpóstur. Kristján var 68 ára gamall- Hann andaðist úr lungna- bólgu. Kristján sál. var í fremri bænda röð í Eyjafirði, röskleikamaður og vel kynntur. Eftirlifandi ekkja hans er Elín Aradóttir frá Pverá. Eiga þau uppkomin börn. Lík Björns Ltndals kom með varðskip' inu Ægir fyrra mánudagsmorgun. Jarðar- förin fór fram að heimili hins látna, Sval- barði, á þriðjudaginn var* Dettifoss kom hingað frá Reykjavík á mánudaginn var. Héðan fór skipið til Siglufjarðar og þaðan á leið til útlanda. Hjónaband : Ungfrú Margrét Sigurðar- dóttir hárgreiðslukona og Karl Runólfsson hljómsveitarstjóri; ÚtíbÚ Landsbankans er flutt í hið nýja hús Axels Kristjánssonar við Ráðhústorg. Hríðarveður með nokkru frosti hefir verið þessa síðustu daga ársins. Áður urðu menn vetrarins lítið varir, þótt tíðin hafi verið óstillt og umhleypingasöm. MeSSUr. Qamlársdag kl. 6 Akureyri. Nýjársdag kl. 12 Lögmannshlíð og kl. 4 Akureyrl. Við jarðarför Erlendar Tómassonar frá Olaumbæ 21. desember 1931. Af fjöllum stígur röðull seinna og seinna og sólargeislar færri á himinboga; — en jafnframt nætur-heiðið dýpra og hreinna. O, hvílík dýrð, er norðurljósin loga og leiftrar stjarna her í biáum geimi — þá gefur sýn um himins víða voga. Pá hvíslast friðarorð frá huldum heimi, og hjartað nemur fjarst úr dular-veldi sem jólasöng með djúpum dýrðar-hreimi. Vér hrffumst nær því hátíðlega kveldi, er heiiagleikans kennir bezt til jarðar og sálin vermist trúar arineldi. ---------En sorg er vakin milli fjalls og fjarðar, því fifiil sá er brosti i vor við sunnu sitt höfuð byrgir nndir svelli svarðar. í víði-kinn þá vorsins Iækir runnu og vængjaþytur fyllti dalinn græna, á brám hans hlýir himingeislar brunnu. Og lífsins árdís lokka sveinsins væna með Ijúfum blævi strauk frá enni björtu i sveitar-kyrrð und himni hljóðra bæna. Þá slógu ört hans vina viðkvæm hjörtu og viðnáms honum báðu af föstum huga við heljar kuli og haustsins myrkri svörtu, Þau pabbi og mamma vildu drengnum duga, og dulið vissu mein í ungum barmi, er æsku ljós og líf vill slökkva og buga. Þau áttu þrek og leyndu höfgum harmi og hófu vörn und björtu kærleiks merki með föður ást og móður mildi á hvarmi. Þau treystu á Quð, sem er hinn eini sterki, og ungum sveini komu í hlýrra hæli, þar sem þau hugðu vit og snilld að verki og læknis vilja og getu í meira mæli. En Quð vill annað, einn hann veginn sér, — hann ungan teinung greip frá kaldri moldu og gróðursetti í frjórri og fegri lund. Það, hrelldi faðir, harminn Iétti þér, og hrygga móðir, Drottins úrskurð þoldu, sem eigið von og vissu um endurfund. Og sjálfur hann, sem burt i bláinn hvarf og birti aldrei þjáning sína neinum um langt og örðugt kvala og kviða skeið, nú tekur við þeim ávaxtaða arf, sem elska Drottins geymir sálum hreinum, og pabba og mömmu bjarta sveinsins beið: K. V. ---- 0 Æfiminning. Mánudaginn þann 9. nóv. s. 1. andaðist að heimili sínu Melgerði í Eyjafirði húsfrú Jóhanna Mar- grét Jónsdóttir. Hún var fædd 15. sept. 1869 að Hólakoti í Eyjafirðl og ólst upp hjá foreldrum sínum, Jóni Magnússyni og Jóhönnu Jó- hannesdóttur til fullorðinsára. Vandist hún í æsku hinum al- kunna, íslenzka sveitabúskap, þó í fremur smáum stíl væri. Árið 1893, 21. dag desembermánaðar giftist hún eftirlifandi manni sín- um, Stefáni Jóhannessyni. Vorið eftir reistu þau bú á jörð- inni Halldórsstöðum við mjög lítil efni; hann var þá nýbúinn að kosta sig til trésmíðanáms. Næsta vor fluttu þau hjónin að Mikla- garði og voru þar eitt ár í hús- mennsku, þaðan fluttu þau vorið 1896 að Stóradal og bjuggu þar til vorsins 1930, að þau fluttu sig að Melgerði í sömu sveit. öll þessi 34 ár, sem þau bjuggu í Stóradal, bættu þau jörðina mikið að hús- um og jarðabótum. Þau byggðu vandað íbúðarhús úr steinsteypu 13x9 metra að stærð með kvisti og kjallara. Ennfremur lögðu þau vatnsleiðslu í íbúðarhús og pen- ingshús. Fimmþætta gaddavírs- girðingu lQgðu þau kringum tún og engjar jarðarinnar, einhverja hina mestu og vönduðustu girð- ingu þar um slóðir. Þau sléttuðu og ræktuðu allmikið af útengi og gerðu að túni. Öll þessi stórvirki kostuðu mikið fé, þegar litið er til þess að þetta var framkvæmt á dýrum og erfiðum tímum. Konan átti sinn hluta af þessari miklu starfsemi. Hún var hugsunarsöm og búkona meira en almennt ger- ist. Hún hafði efnahagslega yfir litlu pundi að ráða í fyrstu, en það margfaldaðist svo í meðferð henn- ar, að það var orðið stórt að síð- ustu, er hún féll frá. Má segja að

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.