Dagur - 31.12.1931, Síða 2
234
DAGUR
60. tbl.
þar færi saman á heimilinu, hug-
ulsemi og dugnaður húsfreyjunn-
ar, og snyrtimennska og vand-
virkni húsbóndans. Það bar marg-
an manninn að garði þeirra, allir
voru velkomnir, þar var margt að
sjá og skoða, fallega gripi og
snyrtilega og vel gerða muni. Þá
fundu menn hið góða viðmót hús-
freyjunnar og hlýja hönd hús-
bóndans, sem gjörði það að verk-
um að allir vildu þar vera lengri
eða skemmri tíma eftir því sem
ástæður leyfðu. —
Daginn eftir að þau Stefán og
Margrét sáluga fluttu burt frá
Stóradal, kom maður þar í land-
areignina, snemma morguns, af
vissum ástæðum. Hann gekk heim
að bænum, allt var þar kyrrt og
hljótt, ekkert sá hann kvikt á
ferli nema tvo skógarþresti, sem
hoppuðu uppi á húsþakinu og
tíndu eitthvað upp í sig. Sólin var
komin upp og vermdi fjöllin háu
og tignarlegu og dalina djúpu og
fríðu, hún þurkaði silfurskærar
daggarperlurnar, er skapast höfðu
á blómunum í næturkyrrðinni.
Manninum virtist þetta allt sakna
einhvers. Hann saknaði líka; það
fór fyrir honum líkt og Kolskeggi
forðum; hann sneri við og starði
út á eyjasund.
Stefán og Margrét sál. bjuggu
saman í ástríku hjónabandi í 38
ár og eignuðust fjórar dætur.
Tvær af þeim þóknaðist góðum
guði að taka til sín, aðra á ungum
aldri, en hin andaðist fyrir ári
síðan. Tvær lifa heima hjá föður
sínum, fullvaxnar, myndarlegar
og góðar stúlkur. Margrét sál. var
vinsæl og vel metin kona af öllum,
er kynni höfðu af henni. Hún var
ástrík eiginkona og góð móðir.
Síðari hluta æfi sinnar var Mar-
grét sál. heilsutæp og ágerðist það
meira eftir því sem aldur færðist
yfir hana. Á síðastliðnu sumri
tóku veikindin hana heljartökum
og leiddu hana til bana, sem áður
er getið. Hún var jarðsungin að
Saurbæ þ. 24. f. m. að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Guð blessi minningu hennar.
1. des. 1931.
J. G.
•----0-----
Simskeyti»
(Frá FB).
Rvík 23' des.
Innflutt I nóvembér fyrir 2,702,449
kr.; þar af tii Reykjavikur fyrir
2,111,979 kr.
Washington: Öldungadeiiilin hef-
ir samþykkt skuldagreiðslufrest
Hoovers frá í sumar með 63 atkv.
gegn 15 eftir feikna harðar um-
ræður.
Beriin: Tala atvinnuleysingja í
landinu var 15. des. 5,349,000;
aukning 290 þús. frá 1. des.
Khðfn: Hinn nafnkunni stjórn-
málamaður og rithöfundur dr. Ed-
vard Brandes andaðist á sunnu-
daginni
Melbourne: Pingkosningar f Ástr-
aliu fóru þannig, að sambands-
flokkurinn hlaut 37 þingsæti, verka-
menn 16, bændur 14, óháðirverka-
menn 7, utanflokka 1. Sambands-
flokkurinn og bændur mynda sam-
steypustjórn undir forustu Lyons.
Rvík 30. des.
Hinn 22. desember komst á sam-
komulag milli íslands og Pýzka-
lands um ísfiskssöiu. Samkomulagið
gildir til marzloka. Andvirði aflans,
sem seldur er i Þýzkalandi, á að
verja til greiðslu á opinberum
gjöldum og kostnaði i Pýzkalandi
til kaupa á skipsnauðsynjum og
greiðslu á þýzkum vörum, er flutt-
ar verða til íslands. Heildarupphæðin
fyrir þessi viðskifti gengur aó hálfu
til hvors rikis, 800 þús. mörk eða
liðlega ein miljón króna. Vonast er
eftir, að bráðlega náist samkomulag
um að látnar verði lausar innstæður
íslendinga i Pýzkalandi,
Frá Madrid er símað, að spánska
stjórnin hafi gert ráðstafanir til að
takmarka fiskinnflutning til landsins,
en þessum takmörkunum virðist
aðallega beint gegn Frakklandi og
Bandaríkjunum. íslenzka stjórnm og
utanrikismálanefndin hafa haldið
fundi um málið og ráðstafanir gerð-
ar til að gæta hagsmuna íslands, ef
í Ijós kemur að takmðrkunum þess-
um beint gegn íslendingum.
Ráðstefnu er ráðgert að halda í
Haag um hernaðarskaðabætur Pjóð-
verja. Bandarikin vilja, að verksvið
ráðstefnunnar nái yfir fjárhagsvanda-
málin yfirleitt, ella taka þau senni-
lega ekki þátt i henni.
Aðfaranótt sunnudagsins brann
bærinn Vatnshamar í Andakíli;
kviknaði út frá ijósi, sem logaðt
yfir liki. Innanstokksmunum varð
bjargað og likið flutt í kirkju. Bær-
inn var vátryggður.
-----o-----
DAGSKRA
útvarpsins í Reykjavík.
Fastir liðir á hverjum degi:
Kl. 10.15 — 16.10 — 19.30 veðurfregnir.
20.30 fréttir,
FIMMTUDAGUR 31. des.
Kl. 18 aftansöngur úr Fríkirkjunni (sira
Árni Sigurðsson). 23,50 sáimasöngur.
FÖSTUDAGUR 1. jan. 1932.
Kl. 11 messa i Dómkirkjunnf (síra Frið-
rik Hallgrímsson). 17 messa í Dómkirkj-
unni (síra Bjarni Jónsson)). 20 fréttir. 20,30
ræða (forsætisráðherra). 21 hljóml. (Karla-
kór Reykjavíkur o, fl.).
LAUGARDAGUR 2 jan.
Kl. 18,40 barnatími, 19,05 og 19,35 fyrirl.
Búnaðarfél. ísl. 20 leikrit. 21 hljóml.
SUNNUDAOUR 3. jan.
Kl. 14 messa I Fríkirkjunni (síra Arni
Sigurðsson). 18,40 batnatími. .19,15 hljóml.
19,35 erindi (Emil Thoroddsen). 20 erindi
(Sigurður Skúlason). 21 hljóml.
MÁNUDAGUR 4. jan.
Kl. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 erindi
(Pálmi Hannesson). 21 hljóml.
PRIÐJUDAGUR 5, jan.
Kl. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 erindi
(Bjarni Snæbjörnsson). 21 hljóml, 21,15
upplestur. 21,35 hljóml.
MIÐVIKUDAQUR 6. jan.
Kl. 18,40 barnatími. 19,05 þýzka. 19,35
entka. 20 erindi (Vilhj. P. Gíslason). 21
hljórnl,
FIMMTUDAGUR 7. jan.
Kl. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 erindi
(Guðmundur Hannesson) 21 hljóml. 21,15
upple8tur. 21,35 hljóml.
Jörð laus til ábúðar.
Jörðin Litla-Brekka f Arnarneshreppi er laus til ábúðar á komandi vori
að mestu leyti. Tún, sem er afgirt, gefur af sér í meðalári frá 100—120
hesta af töðu, og engjar frá 150 — 200 hesta útheyskap. Hlöður eru^bæði
fyrir töðu og úthey. Peir, sem kynnu að vilja fá ofannefnda jörð til
ábúðar, semji við undirritaðan umráðamann og ábúanda, sem gefur allar
nánari upplýsingar.
Litlu-Brekku 23. desember 1931.
Guðmundur Jónsson,
Sökum hinna sívaxandi örðugleika við öll milli-
landa viðskifti, verður innflutningur tilbúins áburðar
fyrir komandi vor, algerlega miðaður við pantanir.
Búnaðarfélög, hreppsfélög, kaupfélög og kaup-
menn, sem viija fá keyptan áburð, verða því að
senda oss ákveðnar pantanir fyrir 1. febrúar
næstkomandi.
A T H. Tilgreinið glögglega nafn, heimilisfang
og hafnarstað.
pr. Áburdarsala rikisins.
Samband isl. Samvinnufélaga.
vörukönnunar verða sölubúðir K. E.
A. lokaðar frá l. til 8. jan. n. k. að
báðum dögum meðtöldum, en vegna
reikningsskila fara þó engin útlán fram fyr en 25. jan.
Akureyri 30. desember 1931.
*
Sorg,
Þeir voru ekkert skyldir og
þekktu víst lítið hvor til annars,
Steinberg í Skriðu og Friðrik í
Höfða, en þeir dóu báðir á sama
sólarhring og fráfall beggja var
sorglegur atburður.
Dauðinn hafði undanfarin ár
verið stórhöggur í garð Steinunn-
ar í Skriðu, og þegar ég frétti um
veikindin þar, vonaði ég, að hann
mundi ekki enn á ný -vega í þann
knérunn. En sú von brást. Stein-
berg, ungi bóndinn í Skriðu, féll
fyrir sigð hins »slynga ' sláttu-
manns«. Gömul, margsærð móðir
varð ennþá einu sinni að ganga
erfiðu sporin að gröfinni, þar sem
jarðneskar leifar látins sonar
voru orpnar moldu. Ung kona
syrgir og veikur bróðir. Heimilið
er lamað af sjúkdómi og sorg og
missinum, sem aldrei verður
hættur. Steinberg var »meðfædd
prúðmennska og heilindi í allri
framkomu« eins og presturinn
komst að orði í fallegri ræðu og
huggunarríkri, sem hann flutti
við útför hans. Að slíkum mönn-
um er mikil eftirsjá.
Dauðinn hjó og í opnar undir
ungrar konu, aldraðrar móður og
STJÓRNIN.
fleiri venslamanna við fráfall
Friðriks frá Höfða, þessa unga,
vaska manns. Hann leggur frá
landi einn á bát í fögru veðri.
Sjórinn er spegilsléttur. Engum
dettur hætta í hug. En úr þeirri
sjóferð kom hann ekki aftur.
Enginn veit, hvernig slysið vildi
til. Sorgin er þung.
Á beztu augnablikunl lífs míns
sé ég himnana opna. Mér hverfa
sýnum allir einskisverðir hlutir.
Þá skilst mér, að ég er ekki kom-
in í þennan heim til þess að
dekra við mig og hagræða mér
sem bezt. Mitt hlutverk er að
þjóna öðrum. Þá finn ég glöggt,
að allir þeir, sem syrgja og þjást,
eru mér nátengdir, hvar sem þeir
búa á hveli jarðar.
Guörún Jóhannsdóttir
frá Ásláksstöðum.
Hjónaefni. Ungfrú Ásta Valentins hár-
greiðslukona og Pétur Jónsson læknir.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6.
Prentsmiðja Odds Bjömsaonar.