Dagur - 26.05.1932, Blaðsíða 3

Dagur - 26.05.1932, Blaðsíða 3
21. tbl, D AGTJR • • #-#-#■# # # • ###-#-## » #< RÓStUr allmikiar taafa að undanförnu verið í Bombay á Vestur-Indlandi milli Hindúa og Múhameðstrúarmanna. Hafa margir særzt og sumir verið drepnir í þessum skærum. Snorri Sigtússon skólastjóri hélt áfram til útlanda með Oullfossi og dvelur þar nokkrar vikur, til þess að kynna sér skóla- mál. Sveinn Pórorinsson listmáiari og frú hans, sem einnig er listmáiari, komu hingað tii bæjarins með Lagarfossi á sunnudaginn og ætla að opna hér málverkasýningu i vikulokin (sjá augl. á öðrum stað hér í blaðinu). Sveinn hafði málverkasýningu i Reykjavík í fyrra, og hlaut sýningin mjög góða blaðadóma* Hann hefir og haft hér sýningu áður og er því Akureyringum að góðu kunnur. Meðal þeirra mynda, er þarna verða tii sýnis, má nefna: >Heim úr kaupstað — lestaferð* (stærsta myndin), myndir frá Öskju og viðar að. Stærsta mynd frúarinnar nefnist >Amma mín<. Auk þess eru andlitsmyndir, altaristafla (María með barnið), >Konur svíða svið<, vatns- litamyndir af ýmsum stöðum úr Jökuldal og frá Jökulsá, hugmyndir o. fl. o. fl. Bæjarbúar ættu að nota tækifærið og heimsækja málverkasýningu þeirra hjóna. Þeir munu ekki iðrast þess. Maður hrapaði í Herjólfsdal í Vest- mannaeyjum á sunnudaginn var og beið bana af. Hann hét Björgvin og var ógiftur maður um tvitugt. firuni. Húsið Haugasund á Sigiufirði brann til kaldra kola á föstudaginn var. Gunnar Bohmann, sænskur Bellman-söng- vari, kom hingað með >Drottningunni< og hélt hér tvær söngskemmtanir. Hjónabönd: Ungfrú Ásta S. Valentins og Pétur Jónsson læknir. — Ungfrú Sigríður Pálsdóttir, Halldórssonar erindreka og Kristinn Stefánsson skólastjóri Reykholts- skóla. — Ungfrú Sigriður Jónsdóttir og Steindór Jóhannsson fiskimatsmaður. HjÓnaeinL Ungfrú Sveinbjörg Pálsdóttir og Magnús Alberts húsgagnasmiður. Forsætisráöherra Tryggvi Þórhallsson veiktist af þarmablæðing í fyrrinótt. Or- sök sjúkdómsins talin ofþreyta. Ekki er hann talinn þungt haldinn, en verður þó að hafa algeröa hvíld og næði um hríð. Alpíngi hefir nú haft setu rúmlega 100 daga, enda talið að nú líöi mjög að þing- slitum. Nokkurra tíðinda geta menn þó vænzt áður. Fjárlögin eru enn ekki sam- þykkt í efri deild. Meðal þeirra mála, er afgreidd hafa verið síðustu daga, eru lög um útfiutning á nýjum fiski og að gera Olafsfjörð að sérstöku læknishéraði. í gær var fundur í sam. þingi. Fór þar fram kosning á milliþingaforseta. Kosningu hlant Bjarni Ásgeirsson með 20 atkv, Aðrir fengu ekki atkvæði. í orðunefnd voru kosnir Magnús Sigurðsson bankastjóri og Sigurður Briem yfirpóstmeiatari, í stað Guðmundar Björnsonar fyrv. landlæknis og Aðalsteins Kristinssonar framkvæmdastjóra, er gengu úr nefndinni. Rauði Krossínn. Á sunnudaginn kemur (29. maf) gefst bæjarbúum gott tækifæri að styrkja líknarstarfsemi Rauða Kross Deildar bæjarins. — Rauða Kross merki verða þá til sölu í götunum, en um kvöldið verður haldinn dapsleikur i Samkomu- fadiinu. Félagið Draupnir heldur fund í barna- skólanum kl. 10 f. h. á sunnudaginn kemur, Dánardægur. í fyrradag lézt á Kristnes- hæli, Jenný Valdemarsdóttir, Porkelssonar frá Kambi í Eyjafirði, eftir eins árs legu á hælinu. Efnis- og myndarstúlka. Forsætisráðherra Japana var myrtur á hvitasunnudag á heimili sínu. Stúdentspróf við Menntaskólann hér hefst 2, júní. Prófið er opinbert og öllum heimilt að hlusta á. Félagið ”Y0rÖld« heldur fund f Skjald- borg föstudaginn 27. þ. m. kl. 8V2 e. h. Hinn góðkunni fyririesari Pétur Sigurðs- son flytur erindi á fundinum. Allir, sem kynnast vilja fyrirlesaranum eða félaginu eru veikomnir. Fagurt veður er nú á degi hverjum, lengstaf sólskin og Iéttskýjað, en þörf á rigningu tii að hressa upp á gróðurinn4 Næturþokur hafa þó bætt dálitið úr. Sextugur varð Bjarni Jónsson banka- stjóri 24. þ. m. Barst honum þá fjöldi heillaóskaskeyta, sem bera vott um vin- sældir hans. -----0----- Frá Tengchow. Um sama leyti og íslenzk blöð fluttu stríðsfréttir frá Sbanghai, stóðu miklir og mannskæðir bardagar f nærsveitunum hér í Tengchow. Er það ekki i fyrsta skifti að stórvið- burðir gerast inni i landinu, án þess að nokkur fréttastofnun hafi hug- mynd um það. Að þvi leyti er Kina ennþá eins og ónumið land, heim- ur útaf fyrir sig. Að visu er mik- ill fjöldi fréttastofnana og blaða- manna i hafnarbæjunum. En mað- ur sér ekki Surtshelli úr hellismunn- anum. Rikisstjórnin kinverska flutti snemma f þessum mánuði til Lo- yang, er ákveðið að þar verði höfuðstaður landsins, þangað til baráttan gegn japönum er til lykta leidd. En Loyang er i okkar héraði, Honan, sem verið hefir eitt af verstu ræningjabælumþessa lands. Nauðsyn krafði nú að hér yrði hreinsað til, f kringum höfuðstaðinn nýja a.m.k. En' af þvi að kínverskum hermönn- um er ekki gefið um að berjast í návigi, taka þeir æfinlega þann kost- inn fremur, að reka ræningja og kommúnistahersveitirnar á undan sér til þeirra staða i landinu, sem þeir ekki telja til sins umdæmis. Alveg eins og þegar fé er rekið á afrétt. Petta afréttarfé stjórnarinnar hrökkl- aðist nú hingað. Síðustu dagana hafa 10 — 20 þúsundir ræningja far- ið um þorpin og nærsveitirnar hér, eins og eyðandi eldur. Munaði litlu að þeir hefðu tekið þenna bæ og þrjá aðra, sem kristniboðar okkar eru búsettir f. í tvær vikur hafa þúsundir manna haldið vörð daga og nætur á virkis- garðinum, sem er 15 km. langur, og hringar sig kring um allan bæ- inn eins og ormur. Við heyrum skotdrunur í fjarska, en rauðum bjarma Blær á himininn yfir víg- stöðvunum. Varðsveit bæjarins hafði aðeins 800 byssur og skotfæri af 83 verður í kvöld hjá Bjama Björnssyni í Samkomuhúsinu kl. 9. Aðgöngumiðar' seldir f Sðlu- turninum og við innganginn. Mál verkasýning. f Sveinn Þórarinsson og frú hafa málverkasýningu opna í Skjaldborg á laugard. og sunnud. n. k. kl. 10 f. h. til 9. e. m. Aðgangur 1 króna. ,, i-ux nanasapuna nota jeg ávalt; því hún heldur hörundinu svo ein- kar mjúku," segir HiS dýrólegasta kvennlegs yndispokka er, mjúkt og '!iÉII:l blæfagurt hörund — um það 'Wá eru allir karlmenn samdóma. '':ll Og til þess að halda hörundi sínu skínandi, fögru og mjúku )’á nota pær aðeins eitt fegurðar- meðal og það er Lux handsápan Þjer sem ekki pekki'ð á'ður, pessa unaðslegu ilmandi sápu, viljið þjer ekki reyna hana. LUX HANDSÁPAN o/so aura M-LTS 20 8*50 I C LEVER BROIEERS LIMITED, PORT SUNLIGHT, ENGLAND og kaupið: Strau- sykur á 48 aura kg.t Melis á 58 aura kg., Haframjðl á 41 eyr. kg., Hveiti, rússn., á 32 aur. kg. og Sætsaft á kr. 1.35 Iftrann hjá JÓNI GUÐMANN. Eg er iluttur í Apótekið - miðhæðin. Viðtalstími minn eins og að undanförnu kl. 11—12 og 5—6. — mjög skornum skammti. Ræningj- arnir hefðu þvi getað tekið bæinn i einu vetfangi, og var ekki annað fyrirsjáanlegt en að þeir myndu gera það. í miðbænum er ramm- gert vfgi. Flóttamenn og bæjarbúar hópuðustþangað. Verzlanirnar sendu allar vörur sínar þangað og var búðum lokað. Við gátum ekki yfir- gefið stöðina, en sendum bó alit okkar dót inn í vígið. — Bænda- herinn veitti viðnám; féllu mörg hundruð manna af hvorumtveggja hernum. Ræningjarnir báru bændur ofurliði og fóru sinu fram. Lðgðu bæi og þorp í eyði, sópuðu saman fjármunum og tóku fanga svo skifti þúsundum. Þar á meðal var einn af okkar samverkamönnum, kfnv. trúboði og hefir ekkert spurzt til hans sfðan. Lá þá nærri að ræn- ingjarnir hefðu tekið Tengchow. (Framh.), Pétur Jónsson lœknir. Gefins kaffi. Á kaffihúsinu »Herðubreið* verð- ur f kvöld og annað kvöld veitt gefins kaffi við þrjú borð i salnum, sem verða leynilega merkt, þangað til sezt er við þau. Freistið gæfunnar. Epli, Sítrónur, Blóðapp- elsínur á 10 aura stk. hjá JÓNI GUÐMANN. ykkur vantar góðar hrffur, þá lítið inn til mfn. Sofonias Daviðsson Brekkugötu 7 A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.