Dagur


Dagur - 04.08.1932, Qupperneq 2

Dagur - 04.08.1932, Qupperneq 2
122 DAGUR 31. tbl. Hversvegna þykir „Flöra" smjörhki bezt? Vegna þess, að það er búið til úr beztu efnum, sem fáanleg eru og vegna þess, að það er búið til í ný- tízku vélum í vönduðustu smjðrlíkisgerð landsins. „Flóra“ smjörííki gengur næst ÍSLENZKU SMJÖRI. Kaupfélag Eyfirðinga. Smjörlíkisgerðin. Biiiiiiiiiiiimiiiiiiiw Eftir því sem sögumar herma, hefir sundlistin verið íslendingnm sérlega töm á söguöldinni, og sennilega lengi fram eftir öldum, en svo fer að hún týnist að miklu leyti og ér ekki endurvakin fyrr en eftir 1800 og þá ekki nema að nokkru leyti. Nokkra menn mætti nefna sem að vísu sköruðu fram úr í þessari íþrótt, en þó ekki svo að verulegt orð væri á gerandi og þannig líð- ur 19. öldin til enda; en strax eft- ir aldamótin síðustu hefst ný alda. Árblær nýrrar tíðar og nýrra hugsjóna, — að nokkru leyti að- fluttur, og að öðrum þræði heima- alinn — tekur að blása um byggð og bæi landsins, og menn fara að vakna til meðvitundar um, að þeir muni vera gæddir svipuðu þreki, andlegu og líkamlegu, sem forfeð- ur þeirra, og þeir fara að reyna á mátt sinn og megin og sjá! Þeim opnast ný útsýn, og trú þeirra og áræði vex. í janúar 1907 héldu ungmeftna- félagar á Akureyri árshátíð sína. Þeir voru glaðir og gunnreifir, stigu á stokk og strengdu heit að fornum sið. Sá sem átti hugmynd- ina að heitstrengingunum var sund- og íþróttakennari Lárus J. Rist. Hann strengdi þess heit að synda yfir Eyjafjörð og kasta af sér á sundinu öllum vosklæðum og sýna og sanna á þann hátt að enn væri til leikni og hreysti í ríkum mæli ef menn vildu kosta kajpps um að þjálfa sig til sóknar og af- reka. Blaðið Norðurland, 9. ágúst 1907, segir frá: »Sund. Lárus J. Rist, sundkenn- ari, synti á þriðjudagsmorguninn var yfir Oddeyrarál, samkvæmt heitstrengingu sinni í vetur. Varp- aði hann sér alklæddur í sjóinn, og tíndi þar af sér fötin: Vatns- stígvél, olíustakk, olíubuxur, jakka, vesti, buxur og nærskyrtu. Tók þetta 3—4 mínútur, en 34 mínútur liðu, frá því hann kast- aði sér í sjóinn, og þangað til hann hafði þurt land undir fótum. Fremur var kalt í sjónum, 8° R. við bryggjurnar, en víst tölu- vert kaldara í álnum«. Það er merkilegt við frá- sögn »Norðurlands« hversu fáorð hún er, og þó það vitanlega sé einn höfuðkostur hverrar frásagn- ar að týna ekki efninu í tilgangs- lítið orðaglamur, þá verður mér að hugsa, að í þessari frásögn séu oi'ðin spöruð meira en góðu hófi gegnir, og mér er næst að halda að ástæðan sé sú, að almennt hafi menn ekki gert sér ljóst þá, hvaða þýðingu afrek L. J. R. hafði og ég ásaka þá heldur engann um það skilningsleysi, því við sem nú lif- um virðumst ekki vera búnir að átta okkur á hvaða þýðingu for- dæmi L. J. R. hafði, og hefir enn, ef rétt er stýrt og starfað. Hvað skyldu þeir verða margir sjómenniniir hér á Akureyri, sem skiluðu sér heilum á húfi til lands, ef þeir féllu í sjóinn í miðjum Oddeyrarál í öllum vosklæðum? Því er miður, að þeir mundu verða fleiri sem tækju botn í áln- um og entu þannig líf sitt. Við fjösum um þá hörmung, þegar mönnum berst á svo að segja í landsteinunum, og við tök- um okkur í munn orðtak liðinna kynslóða, sem er þó með öllu vafa- samt: »Ekki verður feigum forð- að«, og við sættum okkur furðu vel við þá uppgjöf, sem í orðun- um er falin. Miklu fremur ættum við að festa oss í minni annan málshátt: »Svo deyr margur að enginn bjargar«, og láta þann sannleik vekja okkur til umhugs- unar á þeirri brennandi nauðsyn, sem hvei'jum sjómanni og yfir höfuð öllum mönnum er á því, að kunna að synda. Því undir þeirri kunnáttu getur líf hvers sjómanns verið komið, þegar eitthvað ber út af. Annars er athugandi að stað- hátta vegna, er sjómönnum mörg- um sem búsettir eru hér á Akui'- eyri, erfiðari leið til sundnáms en hinum, er á landi starfa. Sund- kennsla fer hér fram eingöngu á sumrurn, og þá eru flestir sjó- menn á veiðum, og hafa námsins ekki not. Ráðið til að bæta úr þessu, er að leiða heita vatnið úr Glerárgili sem allra fyrst niður í sundstæði bæjaríns svo að sund- kennsla geti farið þar fram jafnt vetur sem sumar. Þá mun það sýna sig að sjómenn verða ekki eftirbátar annara um sundkunn- áttu, enda má það ekki vera svo; og ekki þætti mér ótrúlegt, að þeir tímar séu í nánd, þegar vaskir menn leggja það kapp á sundnám, að því aðeins þykist þeir færir í flestan sjó, að þeir hafi leikið þá list, er Lárus J. Rist lék hér fyrst- ur manna: Að synda yfir Oddeyi'- arál, og kasta af sér vosklæðum á sundinu. Það afrek er við hæfi ungra og vaskra manna. Láx'us J. Rist hefir jafnan ver- ið einn hinn áhugasamasti ung- memxafélagi og átt frumkvæði að ýmsum þeim hlutum er til þroska og áhrifa hafa mátt verða, eins og fjallgöixgur og yfir höfuð öllum í- þróttum. Sá er þetta ritar minnist þess, að hann heyrði L. J. R. fyrst get- ið haustið 1898. L. J, R. var þá við nám á Gagnfræðaskólanum á Möði'uvöllum. Þá um haustið, rétt eftir að skólinn var settur, syntl hann yfir Hörgá á Staðarhyl, þar senx nú er brúin. Það þótti frá- sagnai'vert á þeim dögum, en ekki mundi það langt sund þykja nú; en köld er Hörgá á haustin, og sundnxenn vilja lxliðra sér hjá að kasta sér til sunds í ár á haust- degi. En ekki aftraði það Lárusi. Var hann þá sti’ax á orði og í á- liti sem hinn efnilegasti sundmað- ur. Og það er einróma álit þeirra er kunnugir eru, að með sundi sínu yfir Eyjafjörð 6. ágúst 1907, hafi L. J. R. endui'vakið þá ágætu íþi'ótt, sem Grettir Ásmundsson, Helga Haraldsdóttir j'arls, og flein'fox'nir íslendingar urðu fræg- ir fyrir. Fynr það afrek á hann skilið þjóðar þökk. F. H. Berg. Fréttir. Nýlega hefir sýslumaður Árnesinga, Magnús Torfason, dæmt hinn nafn- kunna mann, Höskuld Eyjólfsson í Saurbæ í 1200 króna sekt fyrir brugg- un og ólöglega sölu áfengis. Sagt er að dóminum hafi verið áfrýjað til hæsta- réttar. Nokkrir ne-mendur Gagnfræðaskóla Alcureyrar fóru á laugardagsmorgun- inn var út í Svarfaðardal, og með þeim skólastjórinn, Sigfús Halldórs frá Höfnum, og Hermann Stefánsson íþróttakennari Menntaskólans, er und- anfarna tvo vetur hefir einnig kennt leikfimi við hinn nýja gag-nfræðaskóla. Iíom allur hópurinn aftur á sunnudags- kvöld og lét hið bezta yfir ferðinni, feg- urð dalsins og alúð sveitarbúa. Veður var hið fegursta báða dagana. Kristján Kristjánsson, söngvari, söng hér á Akureyri á föstudagskvöldið var og lék sjálfur undir. Var söng hans tekið afar vel af áheyrendum, sem þó hefðu mátt fleiri vera. Væri þess vert að getið yrði söngs hans eitthvað nán- ar, og mun það verða gert hér í blaðinu, ef föng verða á. Kristján fór austur að Breiðumýri héðan, en ráðgerði að koma hingað aftur síðari hluta þessar- ar viku. Ef hann syngi hér aftur, mættu fleiri fara og hlýða á. Ríkisslcattanefrul sú, er síðasta al- þingi ákvað að stofna skyldi, er nú sagt að hafi verið skipuð og eigi sæti í henni Hermann Jónasson, lögreglustjóri (for- maður), Páll Zophoníasson, ráðunautur og Gunnar Viðar, hagfræðingur. (Framhald á 1. dálKi á 4. slðu). Að utan. Skaðabótakröfurnar. Lausamie-fundui'inn fór miklu betur en vonir stóðu til, eða á hoi*fðist í fyi-stu. Sést það bezt, er saga skaðabótakröfunnar er rakin í örfáum dráttum. í fyrstu heimtuðu sigurvegai'- arnir 125.000.000.000 dollara i skaðabætur af Þjóðverjum. Auð- vitað var hin mesta fjarstæða að ímynda sér að Þjóðverjar gætu nokkunxtíma greitt slíka regin- fúlgu, þótt allir hefðu þeir verið af vilja gerðir. Næst lögðu full- trúar sigurvegaranna það til, á fundi í Boulogne, 1920, að krefj- ast 64.000.000.000 dollara í skaða- bætur. Brátt sáu þó jafnvel þeir, að það náði heldur engri átt að Þjóðverjar gætu risið undir slík- um drápsklyfjum, og ákvað þá skaðabótanefndin svokallaða, í apríl 1921, að Þjóðvei'jar skyldu sleppa með að greiða 31.800.000.- 000 dali. Enn kom fljótlega í ljós, að Þjóðverjar myndu heldur eigi færir að greiða þessa upphæð, og konxu sigurvegararnir sér þá sam- an um að samþykkja til bráða- birgða a. m. k., áætlun þá er kennd er við ameríska fjármála- manninn Dawes, en samkvæmt henni áttu Þjóðvei'jar að greiða árlega fúlgu (sem vexti og af- borgun) án þess að til væri þó tekið fyrst um sinn hve mikið þeir ættu að greiða alls um það er lyki. Þetta var náttúrlega óviðunandi, og því var ný áætlun gerð, kennd við ameríska fjármála- og stjóni- málamanninn Owen D. Young. Samkvæmt henni skyldu Þjóð- vei'jar greiða alls 8.800.000.000 dollara. Við það sat um hríð og átti að sitja, þótt skjótt sæju flestir fram á það, að Þjóðverjar myndu sligast undir þessari byrði. En jafnan, er ymprað var á veru- legri lækkun, hvað þá heldur af- námi alli'a stríðsskulda, risu Frakkar örðugir á móti öllum slíkum tilhugsunum. Jafnvel fyrir ári síðan, eftir að samþykktur hafði verið gjaldfrestur Hoovers (um eitt ár) hefði víst fæstum dottið í hug að Frakkar myndu uokkui'ntíma fáanlegir til þess að lækka um helming skaðabótakröf- una, hvað þá heldur meira. Nú hefir þó -skipast svo, að í Lau- sanne um daginn var samþykkt tíföld lækkun á skaðabótunum, frá því sem ákveðið var í Young- áætluninni. Var endanlega sam- þykkt skuldabréfagi'eiðsla, alls 750.000.000 dollarar, og er það minna en tvær ái'sgreiðslur sam- kvæmt Young-áætluninni (vextir og afborgun). Þurfa Þjóðverjar nú aðeins að greiða sem svarar 45.000.000 árlega í vexti og af- borganir unz skuldinni er lokið. Er engin hætta á að þeim verði skotaskuld úr því, ef allt fer að- eins skaplega heima fyrir. Að svona tókst, er aðallega þakk- að tveimur mönnum: Ramsay MacDonald, forsætisráðherra Breta, er óþreytandi var við að

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.