Dagur


Dagur - 18.08.1932, Qupperneq 4

Dagur - 18.08.1932, Qupperneq 4
132 DAGUR 33. tbl. J. P. Morgan & Co. New-York, og Iætur að veði hlutabréf í síma- félagi; en upphæð þá er hann fékk af Morgan, notar hann til að greiða vexti, sem sagðir eru að hafa verið 30%, og sem greiddir voru 1. júlí 1931. Tiðindamaður Times í Stock- holmi — sem tölur þær er hér hafa verið nefndar eru hafðar eftir — á- lítur, að hefði kreppunni létt 1931, þá hefði Kreuger flotið yfirflúðina, og að hann muni hafa reiknað með því að hápunktur kreppunnar yrði 1931, en að þá færi að létta til i lófti fjármálanna. Hefði svo orðið, mundi Kreuger hafa getað dutið fjárglæfrar sínar; t. d. ítölsku skulda- bréfin og margt fleira, en þau féliu í gjalddaga 1. nóv. 1931. Kreuger hafði náin kynni við alla fjármálamenn, og stjórnir flestra landa. Sá orðrómur hefir breiðst út að Kreuger hafi þakkað sér, að Hoover forseti kom fram með skulda- frestunartillðgur sínar s. I. ár. Ef það er rétt, er það auðskilið, að með þvi fyrirkomulagi hefir hann séð sér leik á borði, tii að bjarga sér úr vandræðunum ef unt væri. Og þvi er spáð, að þegar alvar- iega verði farið að starfa að næstu forsetakosnfngu f Ameriku, þá muni nafn Kreugers verða nefnt f sam- bandi við núverandi forseta Herbert Hoover. Fram til þess sfðasta trúði fjöldi manna, að Kreuger væri hinn ein- stakasti eljumaður, sem aldrei gæfi sér tóm til nokkurra skemtana. En almennt hafa menn sannfærst um að svo var ekki. Sannað er að hann var mjög gefinn fyrir >þessa heims gæði<, sem svo eru nefnd, að hann átti hallir víðsvegar um lönd og gaf sér tima til að njóta alls þess er lifið hafði að bjóða, en lengi vel höfðu fjármálamenn og þjóðstjórnir enga hugmynd um slíkt. Af þeim sem voru f nánu sam- bandi við Ivar Kreuger, virðist fé- lagi hans, Paul Sekvens Esias Toll, vera sá er fer með hreinastar hend- ur frá 'þeim leik er Kreuger var for- sprakkinn i. Toll hefir aidrei verið tekinn fast- ur eða grunaður um pretti, eins og ýmsir aðrir samverkamenn Kreugers, en þrátt fyrir það er hann beygður maður, sem orðið hefir fyrir miklum vonbrigðum í sambandi við félaga sinn, Kreuger. Pegar Kreuger vas- aðist f fjármálum Pjóðverja og ann- ara Mið-Evrópuþjóða, og fléttaði sér snöru áð hálsi, þá starfaði Toll óaflátanlega að byggingum og öðr- um mannvirkjum og það er jafnvel talið liklegt að hann hafi ekki þekkt öll þau félög og atofnanir, sem gengu undir nöfnum Kreuger & Toll. Tiðindamaður Times, sem áður er nefndur, álitur að Svfþjóð lfði minna fjártap á Kreuger, en við hefði mátt búast. En sjálfsvirðing Svfanna hefir orðið fyrir áfalli, þegar maður sá er hafinn hafði verið til skýjanna sem einn af mestu fjár- afla og dugnaðarmönnum nútíðar- innar, reynist hversdagslegur fjár- glæframaður og lögbrjótur. En hefði ekki stjórnin sænska skipað fyrir Ógreidd þinggjöld í Akureyrarkaupstað frá árinu 1931, og gjaldfallnar uppboðs- skuldir, er bæjarfógetinn á Akureyri hefir innheimtu á, verða teknar lögtaki á kostnað skuldara, ef þær eigi eru greiddar inn- an 8 daga frá birtingu þessarar auglýsingar. Athygli skal vakin á því, að sökum hraðvaxandi greiðsluvanskila opinberra gjalda og uppboðsskulda, verður eigi komist hjá því að ganga skipulagsbundnar (og um leið óvægi- Iegar) að innheimtu þeirra á þessu ári, en verið hefir, og allir lögteknir munir verða seldir gegn greiðslu við hamarshögg. Skrifstofa Eyjafjarðarsýslu og Akureyrarkaupstaðar 12. ágúst 1932, GUÐBR. ÍSBERGf settur. um skuldagreiðslufrest — Morator- ium — mundi þó hafa farið illa í Sviþjóð. Oremja þjóðarinnar yfir fjárglæfr- um Kreugers hefir birzt á ýmsan hátt. Einna mesta athygli hefir vakið, einskonar minjagripur um Kreuger, sem einn fjármálamaður i Stockholmi lét gera. Pað er eld- spítnastokkur f kolsvörtum lit, og eldspiturnar allar svartar. Pað er saknaðarmerki Stockholms- borgar eftir manninn sem einusinni var átrúnaðargoð. F. H. B. o—— Fréttir. Lík Guðmundar Skarphéðinssonar fundið- Á sunnudaginn var fannst lik Ouðmund- ar Skarphéðinssonar skólastjóra fljótandi á hðfninni á Siglufirði, skammt undan ríkisverksmiðjunni. Er þar með skorinn niður allur orðasveimur um það, að mað- urinn'hafi strokið af landi burt. Um Grundarping í Eyjafirði sækja Ounn- ar Jóhannesson cand. theol. og síra Jón Óiafsson, prestur að Holti í Önundarfirði* Á orði er, að síra Benjamín Kristjánsson frá Ytri-Tjörnum muni og sækja, en ekki veit blaðið sönnur á því. Hjónaband. Anna Borg ieikkona og danski leikarinn Póul Reumert voru gefin saman í hjónaband í Rvik 5. þ. m. Fóru þau áleiðis til Danmerkur næsta dag. Verðmæti útflutnings frá íslandi fyrri helming þessa árs hefir numið alls 17,6 milj. kr. og er það 0,3 milj. kr. meira en á sama tíma í fyrra. Innflutningurinn hcf- ir verið 2,7 milj. kr. lægri en útfiutningi urinn frara til júniloka, og hefir innfiutn- ingurinn verið 30 prc. minni en fyrr helming ársins í fyrra. Samninganefndin norsk-íslenzka hefir lok- ið störfum sínum í Reykjavík. Framhalds- fundur verður síðar í Oslo. Ekman forsætisráðherra Svía heiir orðið að fara frá völdum, af því að uppvíst hef- ir orðið að hann hefir þegið 100 þús. kr. slyrk frá Kreuger til flokks sins. Felix Hampin fjármálaráðherra hefir verið skip- aður forsætisráðherra. DÓmUf er fallinn t máli því, er Bryn- leyfur Tobiasson kennari höfðaði á síðastl. vetri gegn Ounniaugi Tryggva Jónssyni, ritstjóra >íslendings«, fyrir meiðandi um- mæli í blaðinu. Er ritstjórinn dæmdur til að greiða sekt og málskostnað og um- mæiin, sem stefnt var fyrir, dæmd dauð og ómerk. Björn Magnússon simasjóri á ísafirði andaðist 11. þ. m. eftir langa vanheilsu og þunga legu. Ferðamannaíélag er í ráði að stofna hér á Akureyri. Er lítilsháttar undirbúningur þegur hafinn i þessa átt, og hafa for- göngumenn þessarar hugmyndar valið þriggja manna nefnd til þess að athuga málið og koma fram með tiliögur í því. Nefndina skipa Friðgeir H. Berg form. U, M. F. A., Sigfús Halldórs frá Höfnum skólastjóri og Svanbjörn Frímannsson bankamaður. Tiigangur félagsins mun fyrst og fremst verða sá að taka á móti útlendu ferða- fólki, er heimsækja viil Akureyri og ná- grenni hennar, og leiðbeina því og að- stoða það eftir þörfum gegn hæfilegri greiðslu og án þess að okur lcomi þar til. — Hugmyndin er góð og vel þess verð að henni sé gaumur gefinn. Verður að líkindum vikið nánar að þessu máli hér í blaðinu innan skamms. ---------------0---- Hraunsvatn. Pú spegill stjarna hömrum grfðar greyptur er gulli sólar slær á flötinn þinn, f djúpi þinu björtust loga Ieiftur, því lotning ber þér sjálfur himininn. Hjá þér er þðgnin helg um hljóðar nætur, er bjúfrar Ijósið sig f bergsins arm, og blómin sofa vært við fjalla fætur, þvf fannír vetrar geymdu’ hinn dýrsta baðm. Hér er.svo Ijúft f hæðir hug að senda, því hljóðar raddir syngur náttúran, og huliðsverur björtum örmum benda, er bljúgum rómi lofa skaparann. Siglús Elíasson. Ekki lengur milióna- eigandi. Pegar Hoover varð forseti, var haldið að eigur hans væru tvær til fimm miljónir. Eitthvað hlýtur krepp- an líka að hafa komið við hann, þvf nú fullyrða vinir hans, að hann sé ekki lengur miljóna eigandi. Sam- kvæmt bans eigin ráðstöfun hafa nú líka laun hans verið lækkuð um 15.000 doll., eða ofan í 60 000 doll. á ári. En auk þeirra launa hefir hann þó 25.000 doll. á ári, til veizlu- halda og ferðalaga. Arið 1789 voru laun George Washington forseta ákveðin ,25.000 doll. á ári. Árið 1875 voru forsetalaunin tvöfölduð, eða hækkuð upp f 50.000 dollara. Pá var Grant forseti. Enn voru for- setalaunin hækkuð 1909, þegar Taft var forseti, og þá upp í 75.000 dollara og það hafa þau verið sið- an, þangað til nú, að þau eru lækk- uð um 15.000 dollara. Portjera- stengurnar margeftirspurðu, eru nú komnar aftur. Járn- og glervörudeildin. AKUREYRI. Sími 258 (RIIFrJEKJAVERZLUN). Sími 258. Annast: Rafmagnslagningar. Selur: Allskonar rafmagns- vörur og vélar. VÖNDUÐ VINNAI SANNGJARNT VERÐ! Á SYÐRA-HÓLI í Öngulstaða- hreppi er í óskilum grákolótt hryssa, ómörkuð, aljárnuð, viljug, klárgeng. Réttur eigandi vitji hennar hiðallra fyrsta og gjreiði áfallinn kostnað og auglýsingu þessa. Sigurður Sigurgeirsson. TAPAST hefir á Akureyri, hund- ur gulur að lit sem gegnir nafninu Kópur. Hver sem verður var við hund þennan, er vinsamlega beð- in að gera undirrituðum aðvart. ingólfur Krisfjánsson Jódísarstöðum. Ritstjóri: Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 5. Prentsmiðja Odds Björnsaonar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.