Dagur - 13.04.1933, Blaðsíða 2
58
DAGUR
15. tbl.
BlflSffSllillllflfSfilllS
af ýmsum gerðum — allar venjulegar þykktir, —
komu nú með síðustu skipaferðum. Verðlækkun!
Kaupfélag Eyfirðinga.
Byggingavörudeiid.
BiliiiftiiiiiiiiiiiiiiiiiB
My ndastof an
Oránufélagsgðtu 21 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Ouðr. Funch-Rasmussen.
Jslands þúsund ár!“
Hátíðar-Kantata
Björgvins Ouðmundssonar við
þúsund dra Alþingis-afmœlisljóð
Davíðs Stefánssonar
frd Fagraskógi.
Eg get ekki stillt mig um, að
stinga niður penna f sambandi við
þann merkilega viðburð f menning-
ar- og sðnglifi þessa bæjar, er eg
tel að átt hafi sér stað með flutn-
ingi á Hátíðar-kantötu Bjðrgvins
Guðmundssonar, við 1000 ára Al-
þingis afmælisljóð Davfðs skálds
Stefánssonar frá Fagraskógi.
Margra hluta vegna tel eg þetta
merkilegan viðburð. Kantata þessi
er hið stærsta tónverk, sem farið
hefir verið með, samfelt, hér á landi.
Hátiðarljóð Davfðs eru með því,
f fyrsta skifti hér á landi, flutt f
þvi formi, sem höfundurinn hefir
ætlast til, þvi tæplega verður hægt
að halda þvf fram, að svo hafi ver-
ið á Alþingishátiðinni sjálfri. Er
með þessu á engan hátt hnýtt f
verk Páls ísólfssonar við Ijóð þessi.
En það er vitan.’egt, að ýmislegar
ástæður voru þess valdandi, að úr
verki Páls varð að fella nokkra
kafla við flutning hátiðarljóðanna
á Pingvelli 1930. Eins og eðlilegt
er rýrði það verkið, sem varð á
þennan hátt sundurslitið hingað og
þangað.
Pað er og f mesta máta ánægju-
legt, ekki sfst fyrir höfundinn sjálf-
an, að geta gefið mðnnum færi á
að hlýða á verk þetta, sem menn,
er teljast munu meira vita hér um
en allur almenningur, eða ættu að
hafa skilyrði til þess, útskúfuðu
með stuttum órökstuddum dómi.
sem þegar af þeirri ástæðu, hve
órökstuddur hann var, gaf grun um
að þar væri á ferðinni almennur
sleggjudómur. Og eg héld að éng-
um, sem með óbrjáluðum eyrum
hlýddi á þetta verk Björgvins, geti
blandast hugur um það. í rauninni
virðist mér, sem þeir menn, er þar
eiga hlut að máli, hefðu áttaðtelja
sér Ijúít að biðja Björgvin, og enda
Ifka aðra þá, sem dæmdir voru
sama dómi af kantötudómendunum,
afsðkunar þar á, —
Eg get verið fáorður um með-
ferð sðngflokksins á kantötunni.
Að ætlast til þess, að jafn stórt
verk, eftir jafn stuttan æfingartíma
með jafn sundurleitum og enda ó-
vönum söngkröftum, sé flutt á allan
hátt lýtalaust, tel eg það sama og
að ganga út frá þvi að Björgvin
Ouðmundssyni sé gefið allt vald á
himni og jörðu. En enda þótt með-
ferðinni á kantötunni væri að ýmsu
ábótavant, þá virðist mér svo, sem
Björgvin hafi þó fært allríkar sönn-
ur á, að honum sé allverulegt vald
gefið f þessu efni, yfir þeim, sem
sameina vilja sig undir sprota hans.
Pað liggur meira verk en margan
grunar á bak við það, að samræma
á þessu sviði um 60 manneskjur
til samfeldra átaka við þetta stór-
verk, Pað er bæði likamlegt erfiði
og andleg raun, og óhætt að telja
það hið mesta þrekvirki að koma
þessu mikia verki upp, í jafn fá-
mennum bæ, með ekki meiri né meir
áberandi ágöllum en raun var á.
Mig iangar til að segja örfá orð
um verkið sjálft. Eg skal strax
játa það, að eg tel mig ekkert
»áutoritet« á þessum sviðum, en
þykist á hinn bóginn ekki ofgóður
til að skýra frá áhrifum þeim, sem
verk þetta hefir haft á mig, og láta
uppi persónulegt á!it mitt um það.
Kantatan hefst á forleik fðgrum
og ramlega byggðum. Naut hann
sfn einna sfzt, eins og eðlilegt er,
þar sem hann var leikinn aðeins á
þrjú hljóðfæri, tvö flygel og eitt
lítið stofuharmonium. Par hefði
þurft öfluga hljómsveit með góð-
um kröftum. Pá hefst lofsðngur
í kór ósamkynja radda, bjartur og
giæsilegur. Er inn í hann ofið
undurfagurri tenór-só!ó og dúett.
Pá rekur hvað af öðru, eftir þvf
sem textinn tilvísar, og skiftast á
einsöngvar, karlakórar og kórar
ósamkynja radda.
Enda þó eg hafi hina mestu
löngun til að staldra við, við hvern
hluta kantötunnar, verð eg að láta
mér nægja að benda aðeins á
nokkra.
Kaflinn »Sjá liðnar aldir líða
hjá« er fagur og stórfenglegur.
Óneitanlega er það smekklegt að
taka kristnitöku-textanum í þeim
kafla með hinum merkilega og sf-
gilda »fugu«-stíl. Ef til vill kemst
Bjðrgvin f þessum kafia einna lengst
f merkilegri og »kunst-ferðugri«
raddsetningu.
Pá eru einsöngvarnir >Sjá dagar
koma« og »Fyrr var landið* frá-
bærilega fallegir, og ekki sá seinni
síðri, sem og lítið karlakórlag, sem
tekur við af honum. Er það hið
prýðilegasta, og skörulegt framhald
af hinum gullfagra einsöng.
»Vér erum þjóð« er einkar yndis-
legur partur. Mun hann hafa tekist
einna slzt hjá kórnum, enda vara-
samur og viðkvæmur í meðferð.
»Vakið! Vakiðl Tímans kröfur
katla* hefst með yndislegri tenór-
sóló. Tekur þá við karlakór, en síðan
kór ósamkynja radda. Er sá kafli
allur hinn tíguiégasti.
Pá er kórinn »Vér börn þín ís-
land blessum þig i dag«. Sá kór
er heilagt listaverk. Eg held þvf
hiklaust fram, að ekki muni fslenzkt
tónverk til, svipaðs eðiis, er jafn-
ast geti á við þann kór. Kemur
þar fram f undirspilinu »motivið< úr
forleik kantötunnar, þungt, ramgert
og alvarlegt. Er yfir þvi verki há-
tlðlegur blær og heiður svipur
hreinnar snilldar.
Pá er síðasti kórinn, »Ris isiands
fáni«, kraftmikið, hressandi og
skörulegt lag, og skilur höfundurinn
við þetta stórverk með hinni mestu
rausn, svo sem vera ber.
Kantatan er heilsteypt verk.
Hún er raddsett af mikilli snilli
og kunnáttu. Hún ber sérstaklega
vott um næman skilning hðfundar-
ins á texta skáldsins. Hún er eng-
inn nýtízku samanbarningur. Ytir
henni er bjartur heildarsvipur. Hún
grípur sál manns góðum tökum og
gerir manni hlýtt um hjartarætur.
Hefir það mikið að segja um stór-
verk, sem maður hefir ekki tæki-
færi til að heyra nema tiltölulega
sjaldan, þvi
þá nær til jarðar himnaeldsins ylur
er andinn finnur til — og hjartað skilun
Sv. B.
•----O-----
Akvegirnir.
(Niðurlag).
Þótt slitlagið sé af hinu ákjós-
anlegasta efni gert mylur þungi
farartækjanna mölina smærra og
smærra, unz að dusti verður.
Þekkja víst flestir af eigin sjón
og reynd, hve rýkur af vegunum,
þegar bifreiðar bruna um þá á
lygnum og þurrum sumardegi.
Vindur og vatn eru mikilvirk öfl,
sem sístarfandi eru að því að bera
burt af veginum leir og steindust,
sem mannshöndin hefir þangað
fiutt. Þetta gerist jafnt og þétt,
dag eftir dag, allt sumarið, og
safnast þegar saman kemur, þó
hvergi sé merki eyðileggingarinn-
ar eins ljós og á vorin, þegar
klaka er að leysa úr jörðu.
Enda þótt umsjónarmönnum sé
heimilt að banna bifreiðaumferð
þegar verst gegnir, og því valdi sé
beitt þegar ástæða þykir til, verð-
ur aldrei hjá því komist að veg-
irnir vaðist upp, því alla umferð
er ekki hægt að banna, meðan
klaka leysir og jörð er að þorna,
Hér með tilkynnist, að konan
mín Stefanía Sigtryggsdóttir, and-
aðist á sjúkrahúsinu á Akureyri 10.
þessa mánaðar.
jarðarfðrin er ákveðin miðvikud.
19. april n.k. og hefst kl. 1 e.h. frá
heimilinu, Oddeyrargötu 24.
Pétur Tómasson.
það tekur oft svo langan tíma.
Djúpir pyttir, og háir hryggir
milli hjólfaranna eru engin sjald-
gæf sýn þeim, sem um brautirnar
ferðast að vordegi, og því miður
dregst víða helzt til lengi að möl
sé ekið og viðgerðir fari fram, en
það þarf helzt að gerast meðan
þær eru að þorna. Svo fullkomið
þarf viðhaldið að vera, að regn-
vatn eigi staðnæmist, heldur renni
út af veginum jafnótt og það fell-
ur. Þar sem pollar standa, grafast
holur og gjótur í veginn, og ófær-
ir vatnspyttir eru stundum mein-
leg farartálmun á miðjum vegi, í
þurrviðri. Þá er enn einn ljóður á
ráði aðgerðaeftirlitsins, og hajm
er sá, að rennur og ræsi, sem
liggja í gegnum vegina, eru þrá-
falt viðsjárverð.
Það er hið algenga, að þegar
vegurinn sígur, situr ræsið eftir
og myndar háan hrygg þvert um
veginn, og sá hryggur verður tvö-
falt meinlegri, þegar holur eru á
báða vegu hans, eins og oftast
mun vera. Þekkja víst allir bif-
reiðastjórar, að um eitt af tvennu
er að gera, annaðhvort að skifta
um til lægri gangstiga, auka ben-
zinnotkun, en tefja þó förina, eða
hleypa óhikað á ræsin og stofna
til bilana og flýta eyðileggingu
ökutækjanna. Fyrrnefnda kostinn
— eða öllu heldur ókostinn —
velja allir góðir ökumenn, en leitt
er að þurfa honum að sæta, og
mörgum sinnum verður hann dýr-
ari en sú vinna, sem þarf til þess
að sjá um, að ræsin séu jöfn við
veginn, og hvorki hærri eða lægri.
IX.
Ég hefi í framanskráðum þátt-
um drepið á ýms af þeim atriðum,
sem mér virðist menn verða að
gera sér betri grein fyrir í sam-
bandi við vegagerðir hér eftir en
hingað til. Er álit mitt að nokkru
leyti byggt á reynslu, og að öðru
leyti á athugunum, frá fleiri sjón-
armiðum skoðað.
Ég hefi gengið að mestu frarn
hjá þeim atriðum, sem mér virðist
mega vera óáreitt, þeim hirði ég
heldur ekki lofsöng að kveða. En
það er svo margt, sem betur má
fara en nú er, og hefi ég ekki hik-
að við að drepa á þau atriði, enda
þótt einhverjum kunni að finnast
orð mín ádeilukennd. En það er
ekki tilgangurinn að segja mönn-
um að hlaupa þær götur, sem ég
hefi hér upp dregið, ég vildi bara
að almenningur athugaði þessi
efni, og sendi tillögur sínar áleiðis
til þeirra, er málum stýra.
Að svo miklu leyti sem megn
leyfir, er okkur skylt að búa í
haginn fyrir komandi tíma, eða
að minnsta kosti gæta þess að
vinna ekki framtíðinni ógagn.