Dagur - 15.06.1933, Side 1

Dagur - 15.06.1933, Side 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Ámi Jóhanns- boh í Kaupfél. Eyfiröinga XVI Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þ6r, Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. Norðurgötu 3. Talslmi 112. Akureyri 15. júní 1933. 24. tbl. Jarðarför konunnar minnar, Margrétar Pórðardóttur á Hlöðum, sem andaðist 7. þ. m., er ákveðin föstudaginn 23. þ. m. í heimilisgrafreitnum, og hefst kl. 1 e. h. Stefdn Stefdnsson. ki.9 Nvia-Bío -• - Pað er nú orðin þjóðkunn stað- reynd, að peningastofnanirnar f landinu hafa tapað af útlánafé sínu upp undir 40 miljónum króna af fé almennings. Pessi geisilega upphæð hefir nær eingöngu tapazt hjá mönnum úr kaupsýslu- og út- vegsmannastéttum landsins. Pessar 40 miljónir hafa horfið til eftir- gjafa tiltðlulega fárra manna úr áð- ur nefndum atvinnustéttum. Bænd- ur og félagsskapur þeirra, kaupfé- lögin, áttu engan þátt í miljóna- fjártöpum bankanna. Nærri má geta, að þessi 40 miljón kr. g j ö f til fárra manna kom afar hart nið- ur á almenningi, sem alltaf hafði staðið í skilum þrátt fyrir erfiða aðstöðu margra. Bankarnir urðu að fá hið tapaða té endurgreitt með einhverjum ráðum. Og það ráð var tekið, að láta skilamennina, sem aidrei höfðu til neinna fjár- tapa stofnað, greiða upphæðina í okurvöxtum fyrir þá einstaklinga, sem sóað höfðu iljónunum. Fyrir nokkrum árum datt bænda- stéttinni í hug að fara að lifa meira menningarlífi, en hún hafði áður gert. Atvinnuhættir á öðrum svið- um höfðu tekið stórfelldum fram- förum. í stað opinna róðrarbáta við fiskiveiðar voru komnir vélbátar og gufuskip. Hversvegna mátti ekki breyta um til batnaðar með atvinnu- hættina f sveitunum eins og til sjáv- arins? Pannig spurðu bændur, og mikili umbótahugur greip þá. Ali- staðar blöstu verkefnin við. í stað reytingsheyskapar á graslitlum og þýtðum útengjum, varð að koma vel ræktað véltækt land. 1 stað mold- arkofa til íbúðar heimilisfólkinu, varð að reisa byggingar við hæfi siðaðra manna. Bændur réðust f framkvæmdirnar af mikilli bjartsýni og djörfung og umsköpuðu jarðir sínar og húsakynni. En þessar um- bætur kostuðu mikið fé og það varð að fá að láni. Við það sköp- uðust bændaskuldirnar, sem nú hefir orðið svo tiörætt um. íhaldsmenn liggja bændum mjög á bálsi fyrir þessa skuldasöfnun, og blöð þeirra eru með sifeldar árásir og álasanir á hendur þeim út af þvf, að þeir skuli hafa steypt sér i skuldir vegna framkvæmda á jörðum sínum. Pað er sama og að ráðast á fram- kvæmdirnar sjáifar. Að þeim hafa- fhaldsblððin löngum gert hið napr- asta háð, kallað þær i skopi >brynju< bændanna, sem þeir hafi verið ginntir til að klæðast, en sem nú sé að ríða þeim að fullu. Yfir höfuð má seeja að ö!l framfaravið- leitni í sveitunum, sem kostað hef ir peninga, hafi orðið íhaidsmönn- um til mikils hugarangurs. Aftur á móti virðast þeir sömu íhaldsmenn láta sér vel líka miljónatöp bank- anna, sem farið hafa i súginn á öðrum stððum og jafnvel slegið skjaldborg um þá óreiðu alla, eins og hún væri einhver helgidómur þjóðarinnar. Tvennt er það, sem veldur þvf, hversu bændum gengur erfiðlega að standa við fjárhagslegar skuld- bindingar sínar, annað eru okur- vextirnir af því fé, er þeir hafa tekið að láni til umbótanna á jörð- um sínum, hitt er hið geigvænlega verðfall búsafurðanna. Et bændur hefðu búið við hagkvæm vaxta- kjör, og framleiðsla þeirra haldist f þvi verði, sem hún var i, þegar þeir stofnuðu til skuldanna.þá héfði engin kreppuhjálp þurft að koma þeim til handa. En þar sem hvorugu þessu hefir verið til að dreifa, hafa afleiðingarnar orðið þær, að búrekst- urinn hefir ekki borið sig siðustu árin, þrátt fyrir hinn ýtrasta sparn- að. Pað var þvi ekki um nema tvennt að gera, annaöhvort að láta bændur hrönnum saman flosna upp af jörðum sínum og fiytjast að yfirfulium vinnumarkaðmum við sjóinn, ellegar að þjóðfélagið i heild rétti þeim hjálparhönd, til þess að geta haldið áfram búrekstr- inum f sveitinni. Eins og sjálfsagt var, hefir síðari leiðin verið farin fyrir ötula baráttu Framsóknarm. á Alþ. og öflugar hvatningar frá flokksþ.Framsóknarm. Aiþingi ráðstafaði þessum málum þannig, að ætlaðar eru 11—12 milj. kr. til stuðnings búrekstri bænda. Meginhluta þess fjár á að afla með útgáfu og sölu skulda- bréfa sem ríkið ábyrgist. Skulu bréf þau vera fullgildur gjaldeyrir með fuiiu nafnverði til greiðslu á akuldum, sem eldri eru en frá 1. jan. 1933. Öll lán úr Kreppulána- sjóði skulu veitt með 4% vöxtum, og lánstíminn allt að 42 ár. Á þenna hátt er séð fyrir að bænd- um verði bærar lausu skuldirnar. Ennfremur á að létta þeim að stórum mun vaxtabyrði af föstum lánum. En til þéssa þarf ríkið að leggja nokkuð fram af reiðupen- ingum, Að öðru leyti eiga land- bændur að greiða lán þau, sem þeim verða veitt. Peir eiga ekki að þiggja gjafir. Hjálpin þeim til handa er f þvf fólgin að hagræða svo skuldum þeirra, að þær verði bær- ar og leggi ekki atvinnuveg þeirra 1 rústir. Sumir vilja telja þessa hjálp ölm- usu til bænda, en slfkt er fjarri öll- um sanni. Sézt það ijósast, þegar kjarni málsins, sém rakið hefir ver- ið lítillega hér að framan, er at- hugaður, en hann er í fám orðum þessi: Bændur áttu engan þátt í fjár- töpum bankanna, sem ollu hinum óbærilegu vaxtakjörum, er þeir bafa átt við að búa. Með háu vöxtunum af lánum sfnum hafa því bændur á undanfðrnum árum verið að greiöa skuldir fyrir aðra en sjálfa Sig. Pegar þeir svo voru komnir í þrot með atvinnurekstur sinn, var það skylda ríkisheildarinn- ar að endurgreiða þeim aftur það fé, er ranglega hafði verið af þeim tekið á þenna hátt. Pað er einung- is þetta, sem ráðstöfun hefir verið gerð um. Hér er því um enga ölmu8u eða gjöf að ræða, heldur sjálfsagða endurgreiðslu, sem þjóð- félagínu var skylt að láta í té. Pað er og aðgætandi, að upphæð sú, sem ætluð er til stuðnings allri bændastéttinni, og sem hún á að greiða að mestu ieyti aftur, er ekki nema sem svarar íæpum priðjungi þeirrar upphæðar, er varið hefir verið til gjafa nokkrum mönnum I öðrum stéttum. Prátt fyrir kreppu- hjálpina eiga bændur þvf að geta verið fullt svo upplitsdjarfir eins og þessir menn. Að lokum má og benda á það að með gengishækkun Jóns Por- lákssonar, sem þrengt var upp á bændur, eins og alla aðra fram- leiðendur, voru skuldir þeirra hækk- aðar um 50 — 60%. Ýmsir aðrir græddu á þessari gengisbækkun, Ekki væri það ósanngjarnt, þó að bændum væri að einhverju ieyti bætt upp það þunga áfall, sem af- komumöguleikar þeirra urðu að þola við gengishækkun Jóns Por- lákssonar, Og kæmi það lika vel heim við þá kenningu hans sjálfs, að þeir, sem orsökuðu skuldaþung- ann ættu að taka hann á sig og standa undir honum. Enginh mað- ur hérlendis hefir orsakað annan eins skuldaþunga og J. P. Fjölskylda Sigfúsar Einarssonar tónskáids úr Rvík, er væntanleg ( næstu viku og mun halda hljómleika hér á fimtudags- kvöld 22. þ. m. Sýnir föstudaginn 16. júní kl. 9 BEN HÚR Sýnd vegna stórkostlegrar aðsóknar og til þess að gefa enn fieiri tækifæri til þess að sjá þessa heimsfrægu mynd fyrir lágt verð. Alpýðusýning. Niöurselt verð. Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9. K áat u r p i 11 u r. Norsk tal- og hljómmynd í 8 þáttum. Tekin eftir hinni^ frægu sögu Björn- stjerne Björnson. — Aðalhiutv. leika: Tore Foss, Görrel Egede Níssen og Harald Stormoen. A./S. National Tonefilm í Oslo hefir í tilefni af minningarhátíðarhöldum um BJÖRNSON í fyrra tekið á kvikmynd eina af vinsælustu sögum skáldsins. Er ekkert sparað til að gera myndina sem bezt úr garði, enda^hæla erlend blöð henni mikið. Pau /segja meðal annars: >Kátur piltur Björnsons er hér orðinn að dýrmætri kvikmynd. Viku eftir viku hefir hún verið sýnd í Oslo við stórkostlega hrifningu. Fjöldi feg- urstu landslagsmynda prýða hana. Á undraverðan hátt hefir tekist að ná hinum þýðlega blæ á myndina. Pað er sveitalíf og bændur Björnsons, sem maður kynnist og verða manni ó- gleymanlegir.« — Sunnudaginn kl.5. Alþýðusýning. Niðursett verð. B e n H ú r í allra síðasta sinn. Árásirnar á samvinnufélögin. Pegar íslendingar á ofanverðri siðustu öld hófust handa um að hrinda af sér gamalli verzlunarkúg- un með félagssamtökum sínum, ætlaði kaupmannavaldið f landinu viðstððulaust og af fyllstu alvöru að kyrkja þær tilraunir i fæðingunni. Kaupmenn fengu ekki vilja sínum framgengt í þessu efni. Félagssamtök bænda urðu vísirinn að þeim sam- vinnumeið, er nú breiðir limar sín- ar um nálega ailar byggðir landsins. Eftir því sem samvinnuhreyfing- unni óx meir og meir fiskur um brygg og sýnt varað æ fleiri bætt- ust í hópinn með ári hverju, annað-

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.