Dagur - 22.06.1933, Qupperneq 2
98
DAGUR
25 tbl.
• • ♦- #- # # • • ♦ ♦ i
-♦ • ♦• • •••>• ♦ ##H
*« Kaupfélag Eyfirðinga.
Byggingavörudeildin.
_______
•s
|!iun!inmmnnni|
g TimburogCement
Nýr verðlisti með 15 prc. verðlækkun. Að auki
tf&a gefin 5 prc. gegn peningagreiðslu og meiri af-
ÍÉ# siáttur ef um staerri kaup er að ræða.
— Pantanir afgreiddar um land allt. —
BUlMlillliKlHHtUll
Framsóknarfélag Akureyrar
heldur fund í »Skjaldborg« sunnudaginn 25. júní n. k. Fundur-
inn hefst kl. 3 e. h. Á fundinum mætir Jónas Jónsson alþingism.
Allir Framsóknarmenn af Akureyri og úr héraðinu eru vel-
komnir á fundinn.
S t j ó r n i n.
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alli
daga frá kl. 10-6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
á liðnu ári. Hafði stjórnin, i fé-
lagi við K. E. A. keypt 3 frysti-
hús sitt á hverjum stað á landinu
til þess að tryggja aðstöðu til
frystingar á kjöti og beitusíld'.
III. Skýrsla framkvæmdastjóra
útflutningsdeildar:
Jón Árnason hóf þá flutning
mjög rækilegrar og fróðlegrar
skýrslu um afurðasöluna s. 1. ár.
En kl. 7 var fundi frestað til
næsta dags og um leið framhaldi
af skýrslu framkvæmdastjórans.
Var kvöldfundur ekki haldinn, af
því að Ræktunarfél. Norðurlands
hafði boðið fundarmönnum að
skoða tilraunastöð sína þetta
kvöld.
Föstudaginn 16. júní kl. 9 ár-
degis var fundur settur að nýju
á sama stað og áður. Var þá
mættur fulltrúi frá Kf. Húnv.,
Jón Jónsson í Stóradal.
Flutti nú Jón Árnason framh.
skýrslu sinnar um sölu ísl. vara
og gerði grein fyrir hinum marg-
háttuðu örðugleikum, er við hafði
verið að stríða í þessum efnum
s. 1. ár. Jafnframt skýrði hann
fyrir fundinum viðhorf til vöru-
sölunnar nú. Taldi hann ekki
miklar líkur til að kreppunni
mundi létta fyrst um sinn, þó
hinsvegar væri ekki vonlaust um,
að verð ísl. landbúnaðarafurða,
einkum ullar og kjöts, kynni eitt-
hvað að hækka á þessu ári frá
því, sem verið hefði á síðasta ári.
í sambandi við þetta sagði hann
ýtarlega frá gildandi viðskifta-
samningum íslendinga við Norð-
menn og Breta, en við þá samn-
ingsgjörð hafði hann verið fyrir
hönd íslenzka ríkisins. Taldist
fiamkv.stj. svo til, að ef notuö
væru fyllilega þau kjötinnflutn-
ingsleyfi til þessara þjóða, er nú
oru fyrir hendi, mætti flytja til
Noregs í næstu kauptíð um 100
þús. skrokka og til Bretlands um
60 þús. skrokka, en út þyrfti að
flytja, ef að venju léti, um 200
þús. skrokka. Líkur væru tíl þess
eftir reynslu undanfarinna ára að
stlja mætti til Danmerkur og
Svíþjóðar svo mikið kjöt, að á-
stæða væri til að ætla að hægt
yrði að verzla utanlands á næsta
liausti því kjötmagni, er nauðsyn
krefði.
Árið 1932 hafði S. í. S. alls selt
innlendar vörur fyrir 4,4 miljónir
ki óna.
öll var skýrsla framkvæmda-
stjórans hin ýtarlegasta, enda
þökkuðu fundarmenn hana með
lófataki.
Þegar hér var kornið, mætti
fulltrúi Kf. Hallgeirseyjar, Ágúst
Einarsson frá Miðey.
IV. Umræöur um skýrslu
framkvæmdastj óra.
Þá hófust umræður og fyrir-
spurnir út af skýi’slu framkv.stj.
útflutningsdeildar og tóku marg-
ir til máls. Eftir tillögu Jóns
Árnasonar var skipuð 9 manna
nefnd, til þess að semja álit og
tillögur um kjötsölu Sambands-
ins eftirieiðis og leggja síðar fyr-
ir fundinn.
Þessir menn voru skipaðir í
nefndina:
Þorsteinn Jónsson; Reyðarfirði.
Þórhallur Björnsson, Kópaskeri,
Karl Kristjánsson, Eyvík, Sigurð-
ur Þórðarson, Nautabúi, Vilhj.
Þór, Akureyri, Hannes Pálsson,
Undirfelli, Jón ólafsson, Króks-
fjarðarnesi, Sigurður Steinþórs-
son, Stykkishólmi, Ágúst Einars-
son, Miðey.
Með nefndarskipuninni lauk
umræðum um kjötverzlunina í
bili.
öllum fyrirspurnum, er beint
var til framkvæmdastjórans út af
skýrslu hans og starfi, svaraði
hann rækilega og greiðlega.
V. Klæöaverksmiðjan Gefjun.
Verksmiðjustjóri Jónas Þór
hóf umræður um rekstur verk-
smiðjunnar. Minntist hann þess
tjóns, er verksmiðjan hefði beð-
ið s. 1. vetur, er skrifstofan, á-
samt vinnsluefnisgeymslu hefði
brunnið. Taldi hann nauðsyn á,
að komið yrði upp kamgarnsvél-
um vegna fínni dúkagerðar. Gat
hann þess, að mjög hefði verið
aukin dúkavinnslan eftir brun-
ann, til þess að bæta tjónið og
fullnægja eftirspurn. Nú á 4
mánuðum væri búið að vinna um
10 þús. metra dúka, eða svipað
og allt árið 1929. Með sama hraða
mætti vinna allt að 30 þús. m. á
ári, ásamt aukinni lopavinnslu,
og þá um leið lækka vinnslugjald
til muna.
Var þá gefið fundarhlé til
kaffidrykkju og til þess að gefa
fundarmönnum færi á að skoða
verksmiðjuna og vélarnar.
Kl. 5 byrjaði fundur að nýju.
Komu þá fram ýmiskonar fyrir-
spurnir viðvíkjandi verksmiðju-
starfsemínni, og svaraði verk-
smiðjústjórinn þeim greiðlega.
Að lokum var samþykkt í einu
hljóði að heimila stjórn S. í. S.
að koma upp kamgarnsvinnslu-
vélum til aukningar Gefjunni og
kosta til þess þeirri fjárhæð, er
nauðsyn krefur.
VI. Gæruverksmiðjan.
Verksmiðjustjóri Þorsteinn
Davíðsson talaði um gæruverkun
og starfsemi verksmiðjunnar.
Lagði hann áherzlu á að vanda
þurfi meðferð gæra, frá því þær
eru flegnar af kindunum og þar
til þær eru komnar til verksmiðj-
unnar, rista rétt fyrir, rífa ekki
í fláningu, þvo blóð úr og hreinsa
sem bezt innan skinnið, salta
vandlega og helzt í stafla og«
binda síðan 10 st. í búnt og
flokka eftir stæi’ð og lit. Taldi
hann, að líkur væri til að hægt
væri að fá hæst verð fyrir vel
hvítar gærur, ef þeim væri hald-
ið út af fyrir sig.
Þá talaði hann nokkur orð um
sútun skinna. Taldi hann, að öll
efni til að súta skinn þyrfti að
kaupa frá útlöndum, og yrði sút-
unin að vera verksmiðjuiðnaður,
en aftur á móti gæti vinnslan úr
hinum sútuðu skinnum, svo sem
skógerð og söðlasmíði, orðið að
einhverju leyti heimilisiðnaður.
Ekki taldi hann, að þörf værl
fyrir meira en eina litla sútunar-
verksmiðju í landinu eins og sak-
ir stæðu, af því ekki væru líkur
til að það mundi svara kostnaöi
að súta skinn til útflutnings.
Nokkrar umræður urðu um
þessi mál, og gerði framkv.stj.
Jón Árnason grein fyrir ýmsu, er
gert hefði verið og gera ætti í
komandi tíð fyrir þau. Engar til-
lögur voru fram bornar. Var þá
fundi lokið þenna dag.
Laugard. 17. júní kl. 10 f. h.
komu fundarmenn saman á sama
stað og áður, en sökum þess að
forstjóri Sig. Kristinsson var enn
ókominn vegna seinkunar á komu
Dettifoss, var fundi frestað til
kl. li/2 e. h.
Á tilteknum tíma hófst fundur
að nýju. Var þá mættur forstjóri
S. í. S., Sigurður Kristinsson og
einnig skólastjóiú Samvinnuskól-
ans, Jónas Jónsson. Ennfremur
þessir fulltrúar: Frá Kf. Rauð-
sendinga: ólafur Þórarinsson.
Frá Kf. önfirðinga: Magnús
Guðmundsson.
VII. Samvinnuskólinn.
Skólastjórinn, Jónas Jónsson,
gaf glögga skýrslu um starfsemi
skólans s. 1. vetur. Hafði skólinn
starfað með svipuðu sniði og vet-
urinn áður, og viðlíka aðsókn,
þrátt fyrir aukna örðugleika
manna til skólagöngu vegna vax-
andi fjárhagskreppu.
VIII. Timaritið »Samvinnan«.
Ritstjóri þess, Jónas Jónsson,
gaf ýtarlega skýrslu um tímarit
S. í. S. »Samvinnuna« og gat
ýmsrar nýbreytni í ritgerðum og
efnisvali, er nú stæðu fyrir dyr-
um og væri að hefjast.
IX. Kjötverzlunin.
Nú hafði nefnd sú, er skipuð
var í kjötsölumálinu, lokið störf-
um, og hafði Þorsteinn Jónsson
orð fyrir nefndarmönnum. Hafði
nefndin orðið sammála, nema um
eina tillögu. Þar hafði hún klofn-
að, og lagði minni hlutinn, Sig-
urður Þórðarson og Vilhjálmur
Þór, fram breytingartillögu með
greinargerð.
Eftir allýtarlegar umræður
voru tillögur nefndarinnar born-
ar undir atkvæði þannig:
»A. Fundurinn skorar á deildir
S. í. S. að láta ekki undir höfuð
leggjast að sækja til ríkisstjórn-
arinnar um kjötútflutningsleyfi
fyrir lok júlímán. n. k., svo sem
lög mæla fyrir um. Telur fundur-
inn rétt, að deildirnar sendi um-
sóknir sínar til framkvæmdar-
stjórnar S. í. S., en stíli þær þó
að sjálfsögðu til ríkisstjórnarinn-
ar«.
Tillagan samþ. í einu hljóði.
»B. Fundurinn skorar á fram-
kvæmdastjóra deilda S. í. S. að
gera að nýju fyrir lok ágústmán.
n. k. rækilegar áætlanir um kjöt-
útflutningsþörf deilda sinna, mið-
að við næstu haustkauptíð, og til-
kynna framkvæmdastjórn S. I. S.
tafarlaust áætlanirnar«.
Tillagan samþ. í einu hljóði.
»C. Fundurinn telur eðlilegt og
nauðsynlegt, vegna væntanlegra
takmarkana á útflutningsleyfum
á kjöti, að framkv.stj. S. í. S.
gefi þeim sambandsdeildum, sem
aðstöðu hafa til kjötfrystingar,
bendingar um það fyrir næsta
haust, hve mikið sé ráðlegt fyrir
hvert félag að frysta af kjöti, og
hve mikið að salta í næstu haust-
kauptíð«.
Tillagan samþ. í einu hljóði.
»D. Strax að lokinni kauptíð,
og aldrei seinna en 25. okt ár
hvert, skulu sambandsfélög þau,
sem reka slátrunarstarfsemi, eða
taka kjöt til útflutnings eða heild-
sölu Innanlands frá félagsmönn-
um sínum eða öðrum, tilkynna
f r amk væmdarst j órn Sambands-
ins nákvæmlega, hve mikið kjöt
þau hafa til sölu. Þegar félögin
hafa framvísað kjöti sínu til sölu
á þenna hátt, mega þau ekki ráð-
stafa því til sölu eða afhenda það
öðrum, nema með samþykki sam-
bandsstjórnar, enda ber S. f. S.
ekki skylda til að taka meira kjöt