Dagur


Dagur - 03.08.1933, Qupperneq 4

Dagur - 03.08.1933, Qupperneq 4
126 DAGUR 31. tbt. • *»t»*t**••••*•••••*♦»»••••••••*•♦•• i • • •••••< Fréttir. □ RÚH 5933856 — Híf. Ftl.*. Hjónaband. Sunnudaginn 30. júlí s. 1., voru gefin saraan í hjónaband af séra Benjamín Kristjínssyni, þau Laufey Sig- urðardóttir frá Torfufelll og Björgvin Jónsson málari frá Vatnsenda. Hjónavígsi- an fór fram að Möðruvöllum í Eyjafirði. Framtíðarheimili ungu hjónanna verður á Akureyri. Héraðsneíndir. Samkvæmt ákvæðum 6. gr. laga um Kreppulánasjóð, skal skipa þriggja manna nefnd í hverri sýslu sjóð- stjórninni til aðstoðar. Skal einn þeirra skipaður af sjóðstjórninni, annar af hlut- aðeigandi sýslunefnd, en atvinnumáiaráð- herra skipar formann nefndarinnar. Hefir nú 'atvinnumálaráðherra og sjóðstjórnin (Tryggvi Þórhallsson, Jón í Stóradal og Pétur Magnússon) skipað fyrir sitt leyti í nefndirnar, en sýslunefndir hafa enn ekki lokið þvi. í Norðlendingafjórðungi er nefndaskipunin á þessa laið: Vestur-Húnavatnssýsla: Jakob Líndal Lækjamóti formaður, Ouðjón Jónsson Búrfelli. Austur-Húnavatnssýsla: Runólfur.Björns- son Kornsá formaður, Guðmundur Ólafs- 8on Ási. Skagafjarðarsýsla: Sigurður Pórðarson Nautabúi form., Jón Konráðsson Bæ. Eyjafjarðarsýsla: Einar Árnason Eyrar- landi form., Bernharð Stefánsson Pverá. Akureyri: Ólafur Thorarensen banka- stjóri form., Ólafur Jónsson framkvæmda- stjóri, Suður-Pingeyjarsýsla*. Björn Sigtryggs- Bon Brún form., Ouðni Þorsteinsson Lundi. Norður-Pingeyjarsýsla: Þorsteinn Por- steinsson Daðastöðum form., Pétur Sig- geirsson Oddsstöðum. Hámskeið. Samkvæmt ráðstöfun síðasta fundar í »Félagi barnakennara við Eyja- tjörð< hefir stjórn félagsins ákveðið að gangast fyrir námskeiði fyrir kennara í lestrarkennsiu, ýmsri handiðju og töflu- teikningu á komandi hausti, ef nóg þátt- taka fæst, óg mun námskeiðið byrja um 20 sept. og standa í 10-12 daga. Þó að námskeið þetta sé aðallega fyrir kennara í Eyjafjarðarsýslu, er þó kennurum í Skagafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslu vel- komið að sækja það, ef þeir sjá sér það fært að öðiu leyti. Kénnslugjald mun verða kr. 10-15. Þeir kennarar, sem hafa í hyggju að sækja nefnt námskeið, sendi umsóknir sínar Hannesi J. Magnússyni kénnara Ak- ureyri eigi síðar en í Iok ágústmánaðar, Messað á Möðruvöllum í Hörgárdal sd. 13 ág. kl. 12 á hádegi og í Glæsibæ sama dag kl. 4, Látinn er nýlega Vilhjálmur Einars- son bóndi að Bakka í Svarfaðardal, kunnur áhuga- og dugnaðarmaður, nokkuð hniginn að aldri. Sigvaldi Þorsteinsson kaupm. kom heim með »Drottningunni« á sunnudag- inn. Slysfarir. Fyrir skömmu var dreng'- ur á bæ einum suður í Landeyjum sendur út fyrir túngarð að sækja hest. Eftir að örengurinn hafði höndlað hestinn, fældist hann og dró drenginn á eftir sér, sem var fastur í beizlinu, Er stöðugt hrópað til ykkar, en þið hafið ekkert að spara nema þó að kaupa það litla sem þið get- ið keypt, þar sem nauðsynjar ykkar eru ódyrastar, en það mun vera nú eins og að undanförnu í VERZLUN Jóns G. Guðmanns. fer fram á skrifstofu bæj- arins dagana 1, —3. ágúst næstkomandi. Akureyri, 29. júli ’33. Bœjarstjórinn. og var hann örendur þegar að var komið. Fyiir rúmri viku fylgdi Þorsteinn Þórarinsson bóndi á Drumboddsstöðum í Biskupstungum ferðamanni að Efsta- dal í Laugardal og sneri síðan heim aftur. Hefir hann ekki komið fram síðan og er ætlað að llann hafi farizt í Brúará. Hinn 20. f. m. vildi það slys til vestur á Vatnsskarði, að vörubifreið frá Blönduósi valt um koil og undir henni varð Sigurður Jónasson bóndi á Álfgeirsvöllum og beið hann þegar bana. Hallgrímshátíð. Síðastl. sunnuöag var hátíðarhald mikið að Saurbæ á Hvalfjarðurströnd til minningar um höfund Passíusálmanna. Síra Þorsteinn Briem atvinnumálaráðherra embættaði, en sóknarpresturinn lagði sveig á leiði síra Hailgríms Péturssonar. Á sam- komunni söng Eggert Stefánsson vers- ið »Víst ertu Jesú kóngur klár« og kvæði Matthíasar »Atburð sé ég anda mínum nær«, undir nýju lagi eftir As- kel Snorrason. Lúðrasveit úr Reykja- vík lét þar til sín heyra og mennta- menn úr liöfuðstaðnum fluttu ræður. Á samkomunni var hátt á 3. þús. manns. Ágóðinn legst í Hallgrímssjóð, sem á að vei-ja til þess að reisa Hallgríms- kirkju í Saurbæ. Finnur Guðmundsson, sonur Guðm. sál. Bárðarsonar prófessors, er staddur hér í bænum um þessar mundir. Hann stundar dýrafræðinám við háskóla í Ilamborg. Fyrir meðmæli kennara síns er hann ráðinn nú um tima á raim- sóknarskipið »Dana«, til þess að at- huga svifdýralíf við norðurströnd Is- lands og austurströnd Grænlands og fer auk þess eina hringferð kringum ísland. Ætlar F. G. við þessar rann- sóknir sínar að safna efni í prófrit- gerð við þýzka háskólann, sem jafn- framt verður doktorsritgerð. Mun Finn- ur vera einn af hinum efnilegustu yngri vísindamannaefnum okkar og cr ánægjulegt að vita að honum ætlar að kippa í kynið. framleiðir nú bestu sápur, sem búnar eru til hérjá landi. Allar Sjafnar-sápur eru seldar með Iægsta verði sem hér þekkist. I heildsölu hjá SÁPUVBRKSMIÐJUNNI SJÖFN á Akureyri. SAMBANDIISL. SAM VINNUFÉL. Reykjavík. Skrifið og biðjið um verðlista og sýnishorn. Brunatryggingar (hús, innbú, vörur og fleira). Sjóvátryggingar (skip, bátar, vörur, annar flutningur og fleira). f. h. Sjóvátryggingarfélag íslands. Umboð á Akureyri Kaupfélag Eyfirðinga. Hænsnaföður. »G N Ý« ungafóður og »G N Ý« eggfóður eru einhverjar hinar allra beztu tegundir af hænsna- fóðri sem fáanlegar eru. — »G N Ý« er sett saman eftir reynslu æfðustu hænsnaræktarmanna í Danmörku. Reynið »G N Ý«. Samband isl. samvinnufélaga. Rjtstjóri: Ingimar Eydal. Prentsmiðja Odds Björnssohftr,

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.