Dagur - 21.09.1933, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út & hverjum fimto-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
GJalddagi fyrir 1. júll.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirúinga
Afgreiðsían
er hjá Jáni Þ. Þór,
Uppsögn, bundin yið ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
Norðurgötu 3. Talsími 112.
XVI
. ár. ^
Akureyri 21. september 1933.
38. tbl.
Menning
og
f relsi.
Ekki verður annað sagt, en að
frelsisbarátta hinnar fátæku og fá-
mennu islenzku þjóðar hafi verið
löng og ströng. Svo löng var hún,
að hún tók marga mannsaldra, og
8vo ströng var hún, að
meðan á henni stóð, var lítið sem
ekkert hugsað fyrir þeim vanda-
málum, sem biðu og kröfðust úr-
lausnar heima f landinu sjálfu.
Pess vegna var það, að þegar loks
ríkið er viðurkennt frjálst og full-
valda, og ekkert eftir af ófrelsinu,
sem nokkru máli skiftir, þá var
iandið óræktað, óbyggt, vegalaust,
aðmestu skólalaust og yfirleitt sár-
fátækt af öllu því, sem frjálsri
menningarþjóð er ómissandi. Síð-
ustu ár sýna þó og sanna, að
minnsta kosti nokkur hluti þjóðar-
innar hefir fundið til þessarar fá-
tæktar og viljað bæta úr henni.
Hinar stórfeiidu verklegu fram-
kvæmdir, sem á fáum árum hafa
gerbreytt lifskjðrum og aðstððu
fólksins, bera það með sér. Ekki
sfzt ræktun landsins, fjölgun býla
og byggingar skóla sanna það, að
nokkur hluti þjóðarinnar hefir öðl-
ast trú á það, að menntun og vax-
andi manngildi einstakiinganna
skapar frjálsa og fullvalda þjóð
meir en nokkuð annað.
En þó að sótt hafi verið fram
til menningar af miklu kappi, og
árangur þeirrar sóknar sé ótrúlega
mikill á ýmsan hátt, verður þvf þó
ekki neitað, að nokkurra andstæðna
gætir f lífi þjóðarinnar. Pað er nú
t. d. viðurkennt af öllum, að hin
sfðustu ár hafi áfengisneyzla þjóð-
arinnar farið mjög vaxandi. Sú
staðreynd er vissulega f andstöðu
við þá öru sókn til vaxandi menn-
ingar, sem ekki verður neitað. Eða
er námsmaðurinn Ifkiegri til að ná
árangri af námi sínu öivaður en
allsgáður ? Er listamaðurinn líklegri
til að ná meiri fullkomnun f list
sinni ölvaður en allsgáður? Er
embættismaðurinn lfklegri til að
standa vel f stððu sinni ölvaðuren
allsgáður? Er stjórnmálamaðurinn
Ifklegri til að gæta betur hins fengna
frelsis þjóðarinnar öivaður en alls-
gáður? Er bflstjórinn, skipstjórinn
og stýrimaðurinn líklegri til að sjá
þeim fjöida mannslifa borgið, sem
þeir hafa f hendi sinni og bera
ábyrgð á, ölvaðir en ailsgáðir? Er
faðir og móðir, sem fæða eiga og
fóstra upp menn og konur framtið-
arinnar, færari um hlutverk sitt
ölvuð en allsgáð? Spyrjið sjáif
ykkur. Spyrjið læknana, vfsinda-
mennina, listamennina. Spyrjið þá,
sém þið vitið að hafa þekkingu
eða reynslu til að byggja svör sín
á, og ekki einn einasti mun svara
játandi, ef hann svarar af samvizku-
semi og hreinskilni. Og ástæðuna
vita ailir. Hún ér einföld og óbrot-
in: Afengið er einn hættuiegasti
bluturinn menningu manna og
þroska. Afengisneyzlan vinnur gegn
allri menningu og ailri menntun.
Pessvegna er það fávís námsmaður,
sem neytir áfengis, en hyggst samt
að ná árangri af nárai sínu. Pess-
vegna er listamaðurinn köllunsinni
ótrúr, ef bann neytir áfengis. Pess-
vegna er embættismaðurinn, stjórn-
málamaðurinn, skipstjórinn, stýri-
maðurinn og bilstjórinn, sem á-
fengis neyta, ótryggir starfsmenn,
sem ekki er hægt að treysta, og
bregðast skyidum sinumi Pessvegna
vanrækja faðirinn og móðirin, sem
áfengis neyta, að vinna hlutverk
sitt með trúmennsku og eru eins
Ifkleg til að fæða þjóð sinni ein-
staklinga, sem verða henni til byrði,
eins og menn og konur sem leggja
ómældan skerf til menningarbaráttu
hennar. Pessvegna er það fávis þjóð,
sem af ýtrasta mætti berst fyrir
aukinni menningu og menntun, en
lætur áfengið eyðileggja að meira
eða minna leyti þann árangur, sem
kynni að nást. Pess vegna er það
frámunaleg fávizka af fslenzku þjóð-
inni að hafa eytt á siðuslu 5 árum
minnsta kosti 6 milj. króna fyrir
áfengi, en hafa getað byggt fyrir
þá upphæð 600 verkamannaibúðir
eða ræktað 20.000 hektara af landi.
Eins og áfengið vinnur gegn allri
menningu, vinnur það einnig gegn
ðllu frelsi. ÖJvaður maður er ekki
frjáis. Hann er ósjálfráður gerða
sinna, og hnepptur í hina auðvirði-
legustu fjötra. Og eins og ölvaður
einstaklingur er ekki frjáls, er sú
þjóð ekki frjáls, sem lætur áfengið
eyða miljónum úr sjóði sinum,
jafnframt því sem það eyðir af lífs-
orku og lifshamingju hennar. Eitt
fyrsta og sfðasta einkenni ófrjálsrar
þjóðarersá skattur, sem hún verð-
ur að greiða annari þjóð. Engin
þjóð greiðir erlendum valdhafa því-
Hkan skatt, sem Bakkus heimtar af
þeim. Aldrei hefir fslenzka þjóðin
greitt erlendum konungi svipað þvf
eins háan skatt og hún greiðir fyrir
áfengi nú. Pó er um það rætt og
ritað, að nú sé þjóðin frjáls, ekkert
vanti nema að slíta samningunum
við Dani. Og þó er það meining
nokkurra manna, að nú i haust sé
skatturinn hækkaður til muna, fjöt-
urinn hnepptur fastar á þjóðina og
ófrelsinu breytt f kúgun. Peirra
meining er, að fakmörkun sú, sem
hér er á innflutningi áfengis, sé
afnumin, og innflutningurinn gefinn
frjáls.
Eins og kunnugt er, afgreiddi
sfðasta Alþingi áfengismáiin á þann
hátt, að þjóðin skyldi sjálf skera
úr þvf, hvort áfengishöftin yrðuaf-
numin. Og næstkomandi fyrsta vetr-
ardag á atkvæðagreiðslan að fara
fram.
Engum dettur f hug að halda
því fram, að ástandið, sem nú rikir
i áfengismálum sé viðunanlegt. Allir
ættu mikiu fremur að geta verið
sammála um það, að undir engum
kringumstæðum má það versna.
Eins og nú standa sakir er bann-
aður hér innflutningur sterkra
drykkja. Bannland er hér ekkert og
hefir ekki verið, slðan Spánarundan-
þágan var véitt og léttu vínunum
veitt inn f Iandið. Nú er þvi ein-
ungis spurt um það, hvort leyfa
skuli innflutning sterku drykkjanna
llka. Og hvernig getur nokkrum
manni dottið f hug, að sáinnflutn-
ingur minnki drykkjuskap f landinu
og dragi úr þvf böli, sem áfengið
nú þegar veldur? Nei, þvertámóti,
óhjákvæmilega hlýtur áfengisneyzl-
an að vaxa að mun. Eða myndi
það vera ráð gegn útbreiðslu berkla-
veiki, að berklaveikir sjúklingar væru
sem vfðast, og sem mest veikir?
Ekki virðist svo hafa verið litið á,
þegar berklavarnarlögin voru samin.
Enda dettur engum slikt i hug. Pað
vita lika allir, að afnám innflutnings-
haftanna myndi ekki minnka heima-
brugg, heldur myndi það stórum
vaxa f skjóli þess. Ef verzlunin
verður gefin frjáls, og áfengið fæst
f verzlunum eins og matvara, getur
það samt alls ekki orðið svo ódýrt
að ekki borgi sig að brugga, og
hafi rfkið verz'unina áfram, getur
það heldur ekki haft áfengið svo
ódýrt. Tii þess yrði það að vera
selt með stórkostlegum skaða fyrir
ríkið, Hvernig sem að verður farið,
getur ekki afnám innflutningshaft-
anna leitt til neins, nema aukinnar
áfengisneyzlu, aukinna sjúkdóma,
slysa, menningarleysis og fátæktar.
Pað afnám væri tilraun tii að eyði-
leggja fslenzka menningu.
Hver, sem greiðir atkvæði með
afnámi innflutningshaftanna fyrsta
vetrardag, greiðir atkvæði gegn
menningu og frelsi þjóðarinnar.
Vegna þess að áfengið vinnur gegn
allri menningu og öllu frelsi, getur
enginn stuðláð að auknum drykkju-
Sumarið góða.
V - i
Sumarið góða, senn ert þú á fðrum;
sólhlýju dagar, þrungnir lífs af magni,
hvíla nú liðnir hausts á bleiku börum,
á brott er snúið sólar hvita vagni.
Líður um sefa hrollur hausts og
vetrar,
sem hélustafi sína á rúður letrar.
Dimmir i Iofti, drungaský á fjöllum,
dunar við ströndu hafsins bassa-
rómur;
grámáfar svifa yfir ölduföllum,
er sem af fegurð heimurinn sé
tómur.
Sitja um gleði sólar litlir dagar,
svartnætti haustsins lffsins rætur
nagar.
Heiðlóa söngelsk hópar sig til ferða,
horfinn úr Ijóði er vorsins töfra-
kliður.
ÖII hennar kvök að ekkastunutn
verða;
ér nú á þrotum sumardýrð óg friður.
Hnípin frá ásta- og æskudrauma-
löndum
er hun að flýja brott að hlýrri
ströndum.
Dimmt er í lofti, yfir byggð og
bæjum
beltar sig þokan, liktjald sumardaga.
Líggur á Kaldbak Hfræningi á
gægjum,
landráðavetur gjósti blæs um haga;
btikna við anda trðllsins tún og engi,
tekur i hvitra fossa silfurstrengi.
Blessaða sumar! ylur þinn og yndi,
óttudýrð prúð og kvöldsins lygna
blíða,
skfnandi blik á stráumi og á strindi,
strjúkandi blær og litaskifti hiíða
eiga nú að eins stað í muna og
minni
manna, er syrgja yfir brottför þinni.
Pökk, fyrir gjafir þinar, blíða sumar,
þeim gleymir enginn, sem fékk þeirra
notið.
Pú hefir margar sálir hresst, er
hrumar
við hélustrandir skip sin höfðu
brotið.
Pær munu blessa þína sólskinsdaga,
þegar að fýkur mjðll um bleika haga.
F. H. B.
skap, án þess um Ieið að bregðast
þjóð sinni og vega að henni á hinn
litilmannlegasta hátt.
Pó undariegt megi virðast á
þeirri öld réltiætis og jafnréttis, sem
ýmsir vilja nú vera láta um aðstöðu
fólksins tii að hafa áhrif á þjóðmál
og neyta atkvæðis síns, þá á nú