Dagur - 12.05.1934, Blaðsíða 2

Dagur - 12.05.1934, Blaðsíða 2
146 DAGUR 52. tbl. % •• •- Frá Norræna félaginu. Námsmót, skóla- og skemmtiferðir á þessu ári. — 1. Verkfræðingamót: Hefst í Kaupmannahöfn 23. maí og stend- ur til 31. s. m. Fariö verður um Fjón til Hindsgavl og til Jótlands. Fimm ísl. verkfræðingum er boð-' ið á mótið, og verða gestir Nor- ræna félagsins meðan dvalið verð- ur á Hindsgavl. Umsóknir þnrfa að vera komnar fram fyrir 10. mai. 2. Kennaranámskeið: Fyrir kennara og kennslukonur við barnaskóla og æðri skóla, hefst námsskeið í Oslo 1. júlí og stend- ur yfir til 13. s, m. Tíu ísl. kenn- urum er boðin þátttaka. Allur kostnaður við námsskeiðið er 105 k’rónur, og er þar innifalið kostn- aður við ferðir á meðan á mótinu stendur. Umsóknir þurfa að koma fram fyrir 1. júlí. 3. Námsskeið fyrir bókaverði og starfsmenn bókabúða: Fer fram dagana 1. til 10. júlú í Stokkhólmi og Uppsölum. Ýmsir þekktustu rithöfundar og vísinda- menn munu flytja erindi í sam- bandi við námsskeið þetta. — Nokkrar skemmtiferðir verða farnar í sambandi við námskeið- ið. Dvölin, ásamt kostnaði viö ferðir sem famar verða meðan mótið stendur yfir kostar 50 kr. ' 4. Verzlunar- og bankamálamót: Hefst í Stokkhólmi 4. júlí og stendur yfir til 9. s. m. Fimm ísl. þátttakenduln er boðið. Allmikinn afslátt af fargjöld- um, bæði milli landa og með járn- brautum, fá þátttakendur í öllum þessum mótum. 5. Skóla- og skemmtifcrðir. a. Noregsferð: Farið verður til Bergen og Voss. Dvalið í Bergen í tvo daga. Síðan til Oslo og þar dvalið í tvo til 3 daga og síðan til Lillehammer. Þaðan til Guð- brandsdalsins, og staðnæmst þar í seli í einn eða tvo daga, þá til Þrándheims og þaðan með skipi innanskers til Bergen og svo heim. öll ferðin tekur um 26 daga, með 15—17 daga dvöl í Noregi og kostar 200 ísl. krónur, fæði óg gistingar innifalið. b. Svíþjóðarferð. Farið verður til Bergen, þaðan til Oslo með Bergenbrautinni, þá til Karlstad í Vermalandi með járnbraut. Frá Karlstad með bílum lengra norð- ur í Vermaland, allt til Márbacka þar sem Selma Lagerlöf býr. Það- an til Dalarna, Leksand, þaðan með gufubát eftir Siljan til Mora, þar sem hið fræga listasafn Zoorn er. Frá Mora með jám- braut til Uppsala. Þaðan til Stokkhólms, og dvalið þar tvo til þrjá daga, og þá farin ferð út í skerjagarð Stokkhólms. Þaðan verður fariÖ til Gauta- borgar og heimleiðis þaðan yfir Bei’gen. Fei’ðin tekur um 26 daga með ca. 14 daga dvöl í Svíþjóð, og kostar 250 krónur. c. Danmerkurför. Farið verður með Gullfoss fyrst í júlí, og kom- ið heim aftur snemrna á ágúst. Gert er ráð fyrir þi’iggja daga dvöl í Kaupmannahöfn og fei’ð út á Fjón og til Jótlands. Dr. Arne Möller hefir lofað að greiða fyrir ferð þessari, og gei’a hana -svo ó- dýra sem hægt er. Áætlað er að ferðin kosti 250 krónur. Gei’t er ráð fyrir að skólafólk fari almennt á öðru farrými — Skólafólkið verður að vera á aldr- inum 13—18 ára. Umsóknir komi fram fyrir 1. júní. 6. Skemmtiferöir. Þeim verður hagað líkt og ferðum skólafólks- ins að öðru leyti en því, að gert er ráð fyrir ferð um Hardangers- fjörðinn í ferðinni fyrir félags- menn. Ferðaáætlunin í Svíþjóð verður í öllurn aðalatxúðum eins. Ferðir félagsmanna verða nokkru dýrari en skólaferðirnar, er stafar af því, að ekki fæst jafnmikill afsláttur á fargjöldum fyrir fullorðna og fyrir unglinga, og auk þess er gert ráð fyrir að félagsmenn búi á hótelum, en skólafólk í skólum. Verð Noregsfai’ar er áætlað 300—375 kr. en Svíþjóðarfarar 375—440 kr., eftir því hvort far- ið verður á l! eða II. farrými. Svíþjóðai’ferðin hefst 12. júlí en Noi’egsferðin 26. júlí. Umsóknir komi fram fyrir 1. júlí. Að þessu hafa Noregs^ og Sví- þjóðárferðir verið miðaðar við ferðir með s/s Lyru frá Reykja- vík, en nú fyrir skömmu hafa, að tilhlutun Noi’iæna félagsins, tek- izt samningar um sömu kjör á s/s Nova, einkum fyrir félaga á Norður- og Austurlandi. Ritari félagsins í Reykjavík, G. Rósinki’anz, Tjarnai’götu 48, gef- ur fi-ekari upplýsingai*, einnig Sveinn Bjarman og eftir að deild verður stofnuð hér, sem verður bráðlega ef sæmileg þátttaka fæst, stjórn félagsdeildarinnar hér á staðnum. ÚTVARPIÐ. Laugardaginn 12. maí: Kl. 19.25 Frú Þórunn Richardsdóttir: Ástir. Erindi. Kl. 20.30 Halldór Ki]jan Laxness les kafla úr nýrri sögu. Kl. 21 Lúðra- sveit Reykjavíkur. 21.20 Grammófón- hljómleikar. Dánardægur. Hinn 16. apríl s. 1. and- aðist eftir langa sjúkdómslegu að heim- ili sínu Litlu-Brekku í Arnameshreppi ekkjan Anna Runólfsdóttir, nær níræð að aldri. ■»Dettifoss«. kom í nótt að sunnan. meðal farþega var Steinn Steinsen, bæjarstjóri með fjölskyldu sína, frú Ágústa Bjarman, Sigurður Guðmunds- son, skólameistari, Arnór Sigurjónsson frá Laugum og frá Siglufirði Friðrik Hjartar, skólastjóri. Framsóknarfélag Akureyrar. Fundur í Skjaldborg þriðjud. 15. maí kl 8'/2 e. m. Ákveðið framboð flokksins á Akureyri. Framsóknarmenn fjölmennið! STJÓRNIN uppboð. -m Miðvikudaginn 16. þ. m. verður haldið uppboð við húsið Aðal- stræti 2, Akureyri og þar selt, ef viðunanleg boð fást, ýmsir innanstokksmunir, m. a. vandaðar plusmöblur (sofi og 6 stólar, þar af 2 lenustólar), mahogniborð, spegill í mahogni- ramma, borð og stólar, kommóða, grammofón og grammofón- plötur, saumávél, rúmstœði og sængurföt, bækur og m. fl. Ennfremur nokkuð af góðum bókum og verzlunarvörum. Uppboðið hefst kl. 1 e. h. Langur gjaldfrestur. Hólmfriður Jónsdóttir. Hofum til: Handverkfæri allskonar og garðyrkjuverkfæri. Amerísk, sænsk og norsk. Bez?u gerðir og bezta verð. Samband ísl. samvinnufélaga. * ® NÝTT!!! ® ® Látiö nafn yðar grafa á lindarpenna eða blýant yðar með prentletri eða eiginhandarskrift og í mismunandi litum. Komið strax. Gudmanns Efterf. Messað kl. 1 á morgun á Akureyri. Frá Amtsbólcasafninu: Þeir, sem hafa bækur að Jáni úr Amtsbókasafn- inu, eru beðnir að skila þeim sem allra fyrst. Safnið er opið frá kl. 4—7 dag- lega, á öðrum tímum dagsins má skila bókunum í íbúðinni niðri í bókasafns- húsinu. — Áríðandi að allir skili, áður en safninu verður lokað. Herbergi, með nokkru af húsgögn- um og síma, til leigu í sumar. Ritstjóri v. á 10—12 ára telpu vanftr nú þegar, til að gæta barns ( sumar. Guðrún Guðmundsdóttir Hafnarstræti 88. Húseignir til sölu. Böðvar Bjarkan. Fréttaritstjóri: Sigfús Halldórs frá Höfnmn. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentsmiðja Odds Björassonar,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.