Dagur - 14.06.1934, Page 1

Dagur - 14.06.1934, Page 1
D AGUR kemur út á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- iögum. Kostar kr. 9.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreíðsían er hjá JÖNI Þ. ÞOR. Norðurgötuö. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. • XVII. ár. | • -mt- Akureyri 14. júní 1934. ’-Wr-m 66. tbl Innlendar fréttir. Frá jarðskjálftasvœdinu Snemma á þriðjudagsmorgui,i- inn kom síðasti kippurinn, sem heyrzt hefir um. Var hann all- snöggur. Síðan var allt kyrrt þann dag og hefir ekki heyrzt að hræringar hafi fundizt síðan. Er nú vonandi að framúr sé raknað með þær hörmungar, er dunið hafa yfir á jarðskjálftasvæðinu. í Svarfaðardal eru 14 bæir svo gjörfallnir af völdum jarðskjálft- anna að byggja verður þá upp frá grunni. Auk bæjanna eru mörg peningshús í rústum. Samskotin til hjálpar fólki á jarðskjálftasvæðinu hafa gengið vel að þessu. T. d. hefir Samb. ísl. samvinnufélaga gefið 10 þús. kr., íslandsdeild lífsábyrgðarfélagsins Andvaka 1000 kr. og útibú olíu- verzlananna hér, Shell og Olíu- verzlun íslands, 1000 kr. hvort. Mjög er þó hætt við að hjálp sú, sem fæst með samskotum ein- um nái of skammt. Verður því að gera þá kröfu, að ríkið hlaupi undir bagga. Á annan hátt verður tjónið tæplega bætt sem verðugt er. Er það eðlilegt og sjálfsagt, að auk einstaklinganna komi rík- ið eða þjóðarheildin öll til skjal- anna með nauðsynlegt úrslita- átak, þegar slík tíðindi ^gerast, sem hér hafa orðið. Framsóknarfélag ungra manna á Akureyri hélt fund síðastl. þriðjudagskvöld. Á fundinum gengu 18 menn í félagið og auk þess lágu fyrir fundinum 12 um- sóknir um inngöngu manna, sem ekki gátu mætt að þessu sinni. Má því sjá að allmikið líf er að fær- ast í félagið nú. Mannalát. Frú Ásthildur Rafn- ar, kona' Stefáns Rafnar starfs- manns í Samb. ísl. samvinnufél., andaðist í Reykjavík í þessari viku. — Nýlega er látinn á Sel- fossi syðra Sigurbjörn Einarsson verkamaður, bróðir Magnúsar sál. organista og faðir Jóns Halls hér í bæ. Var Sigurbjörn lengi hér í bænum. Lík hans er flutt hingað til greftrunar. — Fyrir skömmu andaðist hér á sjúkrahúsinu Ind- riði Indriðason verkamaður, eftir stutta legu í lungnabólgu. — Þann 7. þ. m. andaðist hér i bænum húsfrú Sigurborg ólafsdóttir, kona Guðbrandar Samúelssonar úrsmiðs. — Látin er í Hornafirði frú Ingibjörg Friðgeirsdóttir, kona Þórhalls Daníelssonar kaup- manns þar. — Nýlega er látinn fyrir sunnan Einar Þórarinsson verkamaður héðan úr bænum. — Nýlátinn er hér í bæ Norðmaður- inn Petter Honningsvaag vélstj.; hann var kvæntur íslenzkri konu. Hjónabönd: Ungfrú Ingibjörg Jóhannsdóttir og Bernharð Lax- dal klæðskeri. — Ungfrú Sigrún Pétursdóttir og Agnar Guðlaugs- son verzlunarmaður. — Ungfrú Ingibjörg Jónsdótir og Þórhallur Kristjánsson Breiðumýri. —Ung- frú Anna Kristinsdóttir og Valdi- mar Haraldsson verzlunarmaður. Ungfrú Kristín Hinriksdóttir frá Sauðárkróki og Höskuldur Geir- finnsson frá Tjörn í Aðaldal. —• Ungfrú Marianna Baldvinsdóttir listmálari og Sigurður Pálsson Menntaskólakennari. Hitar sterkir hafa verið um land allt nú um tíma og mikill vöxtur í ám og lækjum. Jörð hef- ir farið ört fram, en víða hefir þó skort rigningu. Hér um slóðir rigíidi nokkuð í þessari viku og þokur og döggfall hefir verið sumar nætur. Malbikun er verið að undirbúa í Brekkugötu hér í bænum. Stjórnmtdaumræður eiga að fara fram í útvarpinu dagana 18., 19. og 20. þ. m. Eiga þær að hefj- ast kl. 8 e. h. öll kvöldin. Sigurdvr Eggerz hefir verið skipaður bæjarfógeti á Akureyri og sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu frá 1. næsta mánaðar að telja. Embættisprófi i lögfræði hafa lokið við háskólann í Reykjavík Ragnar Bjarkan og Valdemar Stefánsson frá Fagraskógi, báðir með I. einkunn. 4 ' Kosningasmalarnir hér í bæ eru nú farnir að hóa á hjarðir sínar. Smalar íhaldsins biðja kjósendur að herða sig upp og kjósa ísberg bæði hart og títt, því annars sé h.... hann Einar viss að komast að! Kommúnistasmalarnir segja kjósendum að herða sig að kjósa Einar, því það vanti aðeins herzlumuninn til þess að hann komist aðl Smalar Erlings hrópa á 300 sálir honum til fulltingis, því þá geti hann orðið uppbótar- þingmaður, og þá fái Akureyri tvo þingmenn, ísberg og Erling! Hjörtur Lárusson hefir keypt 80 smálesta gufuskip í Álasundi og er nýlega kominn með það hingað heim. Hefir skipið verið skírt »Rúna«, og mun ætlunin að halda því á síldveiðar. Siglufjarðarlæknisliéraó er frá 1. júlí veitt Halldóri Kristínssyni lækni í Bolungarvík. Fyrsti bíll frá Reykjavík á þessu sumri kom hingað í gær. Bílstjóri Páll Sigurðsson. B'rúarfoss kom að sunnan og vestan kl. 10 í morgun. Meðal far- þega var Jónas Þorbergsson út- varpsstjóri. Sóknarpresturinn biður þess þess getið, að hann fari úr bæn- um á þriðjudagsmorgun og verði ‘ fjarverandi fram yfir mánaða- mót. í fjarveru hans þjónar séra Sigurður Sigurðsson á Möðruvöll- um emlsættinu. Laugardagslokun sölubúða á Akureyri kl. 4 síðdegis byrjar laugardaginn 16. júní og stendur þriggja mánaða tímabil. SAMKOMA verður haldin í Þinghúsi Hrafnagilshrepps næstkomandi laugardags- kvöld, til ágóða fyrir jatðskjálftasvæðið. Fjölmennið. Pökkum hjartanlega öllum þeim mörgu, er auðsýndu okk- ur hjálp, samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu okkar og móður, Þuríðar Jóns- dóttur. Öxnafelli 13. júní 1934. Eiginmaður og börn. Jarðarför elsku litlu stúlk- unnar okkar, er andaðist 11. þ. m.'i er ákveðin mánudaginn þann 18., og hefst kl. 1 e. h. að heimili okkar Oddeyrarg. 16. Friðfinna Hrólfsdóttir. Viklor Krist/dnsson. Nýja-Bíó fjH§ I Föstudags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld kl. 9. Ást Indverjans. Tal- og hljómmynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Ramon Novarro og Míkg'da Evens. RAMOM NOVARRO leikur hér indverskan gimsteinakaupmann í Bombay, sem verður ástfanginn af amerískri stúlku. — Fer hann með henni á tígrisdýra- veiðar og sýnir henni allt skraut indverskra auðmanna. Er myndin mjög spennandi og skrautleg og framúrskarandi fögur og hugð- næm er lýsingin á Hindúanum, sem af þakklátssemi og tryggð fórnar því dýrmætasta sem hann á. Guðmundur Finnboga- son: íslendingar. Nokk- ur drög að . þjóðarlýs- ingu. Rvík. 1933. Þessi bók er girnileg til fróð- leiks og auk þess hin skemmtileg- asta í sinni röð. Dr. Guðmundur Finnbogason er fjölkunnugur maður í bezta skilningi þess orðs, þaulfróður og margvíss um flesta hluti í jörðu og á, sífjör- ugur andi og þrunginn af áhuga um fjöldamörg málefni. Er hann ekki aðeins marglesinn í erlendri neimspeki, heldur einnig svo ger- kunnugur íslenzkum fræðum og bókmenntum að fornu og nýju, að fátt virðist honum þar vera ó- kunnugt og og vekur það undr- un, að honum skuli hafa unnizt tími til þess með margháttuðum störfum, að sökkva sér svo djúpt i Mímisbrunn sögunnar. Auk þess er hann manna hagastur á ís- lenzkt mál og verður aldrei ráða- fátt við að klæða strembnustu hugmyndir, jafnvel tölvísinnar, í íslenzkan hátíðabúning. Er hann þessvegna kjörinn maður til þess að skrifa bók um íslendinga og manna líklegastur til þess að líta skyggnum augum á kosti þeirra og bresti og varpa ýmsum hlið- (Framh. á ,4- síðu).. ✓

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.