Dagur - 15.09.1934, Blaðsíða 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
or hj& JÓNI Þ. ÞÓB.
Norðurgötu 3. Talslmi 11J.
Uppsögn, bundin við &ra-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII. ár
. | Akureyri 15. september 1934. |
106. tbl.
Hin nýja kjötbúð K. E. A.
Svo er venjulega nefnt hið
nýja stórhýsi, er K. E. A. hefir
í smíðum, andspænis búðunum og
skrifstofunum, sökum þess að vit-
að er að kjötverzlunin verður í
það flutt.
Unnið er nú kappsamlega að
því að fullgera það sem ákveðið
er að ljúka fyrst, en það er kjall-
ari og næsta hæð fyrir ofan, en
alls verður húsið fjórar hæðir of-
an á kjallara, þegar það er full-
gert.
Fjórir byggingameistarar hafa
tekið að sér ákvæðisvinnuna við
þessar tvær hæðir, og eru það
Snorri Guðmundsson og Þorst.
Þorsteinsson, frá Lóni, trésmíða-
meistarar og Ásgeir Austfjörð og
Bjarni Rósantsson múrarameist-
arar. En eftirlitsmaður við smíð-
ina er Gunnar Pálsson húsateikn-
ari frá Staðarhóli.
Húsið er smíðað eftir teikningu
V e rkfal I
Sagt er að verkfallsmönnum
hafi nú verið tilkynnt opinber-
lega, að þeir beri héðan af alla á-
byrgð á hugsanlegum afleiðingum
þess, að kalla hafi þurft, og þurfi
e. t. v. framvegis, á herlið til þess
að sefa óeirðir.
Menn muna, að síðast var frá
því sagt, að verkfallsmenn vildu
að því ganga að leggja deiluna í
gerðardóm, ef lokað yrði öllum
verksmiðjum, unz dómsúrskurður
væri fallinn. Því atriði hafa at-
vinnuveitendur nú algerlega neit-
að.
frá Kooperativa förbundet i
Stokkhólmi. Grunnflöturinn er
um 3B0 fermetrar og kjallari er
grafinn 2.60 metra niður fyrir
gangstétt. í kjallaranum verður
m. a. kartöflugeymsla og hitinn
þar tempraður. Kæliklefar verða
þar og á næstu hæð, þar sem m.
a. kjötbúðin verður.
Mjög virðist smíðið vandað og
ramgert. Verða bæði veggir og
gólf, — einnig kjallaragólf — úr
afarsterklega járnbentri stein-
steypu og veggir allir og skilrúm,
bitar og burðarsúlur úr sama
efni. Bílgöng, fyrir vörubíla,
verða inn í bygginguna að austan,
svo að ferma má þar bíla og af-
ferma sem skjótast.
Búizt er við að þessar tvær
hæðir verði komnar undir þak
seinni partinn í október, og að
fullu frá þeim gengið í febrúar-
lok 1935.
i ð m i k I a.
Sökum þeirrar neitunar hafa
leiðtogar verkfallsmanna látið
skipun ganga til verkfallsmanna
að herða sóknina á hendur öllum
þeim verksmiðjueigendum, er létu
halda áfram vinnu í verksmiðjun-
um.
óeirðir hafa nokkrar orðið, en
eigi er greinilega enn frá þeim
skýrt. Helzt er að sjá að boriö
hafi á þeim í Rhode Island
(minnsta ríkinu) á austurströnd-
inni, þar sem út varð að bjóða
300 manna ríðandi lögregluliði til
þess að sefa óeirðirnar.
Hitler mælir irÉamlega.
Nýlega hélt Hitler hina fyrstu
opinberu veizlu síðan hann tók
við völdum sem ríkisleiðtogi
(Reichsfiihrer). Var þangað boð-
ið seridiherrum og fulltrúum allra
ríkja, sem siður er, þar á með-
al sendiherra Sovét-Rússlands. —
»Er það óbifanlegur vilji minn
að Þýzkaland vígi framtíð sína
friðarstarfsemi«, sagði Hitler.
Kvað hann sína heitustu ósk vera
að efla friðsamlegt samband við
aðrar þjóðir, því að ómögulegt
væri fyrir Þýzkaland að yfirstíga
þá örðugleika er framundan væru
nema með því að hafa frið við
allar þjóðir og sem vinsamlegust
viðskipti að öllu leyti.
Söngskemmtun. Eins og minnzt var
á í síðasta blaði, heldur ungfrú Jó-
hanna Jóhannsdóttir söngskemmtun í
Samkomuhúsi bæjarins annað kvöld kl.
9. Verður söngskráin fjölbreytt: m. a.
lög eftir Járnefelt, Alnes, Strauss,
Schubert, Hugo Wolff o. fl., einnig ís-
lenzk lög í þjóðlagastíl. Einn þáttur
söngskrárinnar verður sunginn af
nokkrum nemendum ungfrú Jóhönnu.
Verða það tví- og þrírödduð lög, einnig
einsöngvar með aðstoð annara radda.
Verður það nýjung fyrir bæjarbúa að
heyra samæfðar kvenraddir. — Söng-
slcránni fylgja skýringar á útlendum
textum.
Allsherjarverkfall á Spáni?
útvarpsfregn hermir, að í Ma-
drid hafi undanfarið gengið á sí-
felldum sögum um yfirvofandi
allsherjarverkfall. er næði um allt
ríkið. Talið er, að í tilefni af
þessum fregnum hafi verkamenn
í eigi allfáum bæjum lagt niður
vinnu í von um allsherjarverkfall.
Er sagt að sumstaðar hafi af
þessu nokkrar óeirðir orðið.
Verkföll aukasl
i Japan.
Nýlega var hér sagt frá verk-
falli flutningamanna í Japan. Það
verkfall stendur enn yfir. En nú
hóta sjómenn verkfalli verði ekki
kaup þeirra hækkað að mun frá
því sem nú er.
Sœskrímslið
í Loch Ness.
Um þetta voðalega vatns- eða
sæskrímsli í Nesvatni á Skotlandi
hefir afar mikið verið talað og
ritað í sumar. Hafa jafnvel verið
teknar myndir af því. Sást það
þó alltaf á sama stað.
Hermálaráðuneytið brezka á-
kvað að ganga úr skugga um,
hvað þetta gæti verið og skipaði
sendinefnd til þess að rannsaka
málið. Kom þá í Ijós, að þetta var
ræfillinn af Zeppelin-loftfari
þýzku, er skotið hefir verið niður
í ófriðnum mikla, en fallið þarna
í vatnið, sjálfsagt á næturþeli,
svo að ekkert hefir til þess sézt
né heyrzt.
Hjálpræðisherinn
stefndi nýlega fulltrúum sínum
tii Lundúna til þess að kjósa yfir-
hershöfðingja, í stað Higgins, er
kosinn var 1929, er Bramwell
Booth, sonur stofnandans, var
neyddur til að segja af sér. Kosn-
ingu hlaut nú »Commander« E-
vangelinc Booth, systir Bramwell
Booth, með yfirgnæfandi meiri-
hluta. Hún hefir verið yfirforingi
Hjálpræðishersins í Bandaríkjun-
um síðan 1904. Hefir hún jafnan
þótt hinn mesti skörungur og
töldu margir að hún líktist meira
föðurnum, gamla William Booth,
en bróðirinn, hinn fyrrverandi
yfirhershöfðingi, Bramwell Booth.
Hún er mælsk í bezta lagi, hefir
ritað bækur og í blöð, fengizt við
tónsmíðar og lagt mikla rækt við
íþróttir.
Morgnnn.
Engir skuggar hjörtu hrjá.
Hopar veldi njólu.
Glitrar dögg á dagsins brá.
Dalur hlær við sólu.
J. S.
Til leigu
1 eða 2 sólrík herbergi fyrir
einhleypa. Uppl. í síma 266.
Lifil ÍBÚÐ
til leigu. —
Ingimnndur Árnason.
K. E. A. og Flórasmjörlíkið.
Félagið licfftr lækkað verðið
ii þe§savi framleiðslu uiti
25 prc. í Reykjavík.
Kaupfélag Eyfirðinga hefir
lækkað verð á smjörlíki því, er
það framleiðir, ofan í kr. 1.30 kg.
Lækkunin er gengin í gildi fyrir
nokkrum dögum.
Smjörlíkisverðið hefir verið út
úr búðum í Reykjavík kr. 1.70 til
1.80. Lækkunin þar nemur því
um 25%.
Hér á Akureyri hefir verðið ver-
ið kr. 1.50. Lækkunin hér nemur
því 13—14%.
Smjörlíkisverksmiðja félagsins
hefir nú komið á mikilli aukningu
og endurbótum á framleiðslu
sinni, Flórasmjörlíkinu. Hefir
verksmiðjan bæði nýtízkuvélar og
fyrsta flokks sérfróðum mönnum
á að skipa.
Þessi mikla verðlækkun á einni
aðalnauðsynjavöru almennings í
kaupstöðum og sjávarþorpum eru
mikil tíðindi og góð.
Er þetta enn ein sönnun þess,
að samvinnumönnum er bezt trú-
andi til að koma á bættu skipu-
lagi í verzlun með nauðsynjavör-
ur almennings.