Dagur - 24.11.1934, Qupperneq 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar lcr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötuö. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir l.des.
XVII
• ár-1
> t » t-
Akureyri 24. nóvember 1934.
135. tbl.
Fárviðristjónið á Siglufirði.
Nefndin, sem starfað hefir
undanfarið að því að meta tjónið
á Siglufirði og nærsveitum, það
er varð í veturnáttabylnum, hefir
nú lokið starfi sínu. — Telst
henni að tjónið á Siglufirði nemi
245,550 krónum, er skiptist í 55
staöi. Á Siglunesi telur nefndin
tjón 7 manna hafi orðið 16.450
krónur en í Héðinsfirði tjón 6
manna 14,000 krónur. Þeir ú
Siglufirði sem meira tjón hafa
beðið en nemur 10,000 krónum,
Hau§tafia lokið.
Fiskiskip eru nú að hætta veiö-
um og flest reyndar hætt, þar
sem nú er að kalla náð því magni,
sem flytja má út til áramóta,
samkvæmt samningum við Eng-
lendinga og Þjóðverja. Til Þýzka-
lands hefir fiskur nú verið flutt-
ur og seldur fyrir 624.000 ríkis-
mörk, en til Englands fluttar
250.000 vættir seldar fyrir £
200.000, eða 4.430,000 krónur.
Hafís.
Að því er útvarpið hermdi i
fyrrakvöld haföi skip séð ísbreiðu
mikla, um 14 sjómílur á breidd,
á hraðri leið til norðausturs um
10—12 sjómílur út af Straum-
nesi.
Bfarndýr drepur
lömb.
útvarpsfregn á mánudagskveld
kveður bjarndýrshún hafa gengiö
á land á Ströndum og drepið tvö
lömb. Ekki hafði dýrið náðst og
álitu fréttamenn útvarpsins, að
það mundi vera horfið til baka
á ísinn.
§fórkostleg
seðlaíöfisuai.
Áð því er útvarpsfregn hermir,
hefir loks komizt upp um hina af-
kastamestu seðlafölsun í Banda-
ríkjunum er sögur fara af. Hafa
11 menn og ein kona verið tekin
höndum. Er talið, að þau hafi
verið búin að koma í umferð um
tvö þúsund mÁlljón dölum í fölsk-
iim. seðlum.
eru: Ilalldór Guðmundsson (kr.
42.400) ; Kaupfélag Eyfirðinga,
Akureyri (23.000) ; Ríkisverk-
smiðjurnar (22.000) ; Hafnar-
sjóður Siglufjarðar (19.300) ;
Goos-verksmiðjurnar (17.500) ;
Sigurður Kristjánsson, kaupm.
(16.400); Hinrik Thorarensen
(16.000); Ragnarsbræður (13.-
000) ; óli Henriksen (11.100). En
fjöldi annarra manna hefir misst
svo þúsundum skiptir.
Stjórn Yugo-Slovíu hefir nú
sent Þjóðabandalaginu álitsskjal
sitt í tilefni af konungsmorðinu.
Er það 45 blaðsíður, og eins og
áður er sagt, eigi bein ákæra á
hendur nokkrum, en ásakanir svo
þungar á hendur Ungverjum um
það, að hafa vísvitandi hýst óald-
arflokka þá, er staðið hafi að
konungsmorðinu, að samkvæmt
útvarpsfregn þeirri, er þetta
hermir, óttast menn að Yugo-
Hertoginn af Kent
Yngsti sonur Georgs Bretakon-
ungs, Georg prins, hefir lofazt
Marínu Grikklandsprinsessu, sem
orðlögð er fyrir fegurð. í tilefni
af þessu hefir konungur sæmt
son sinn heiðurstitlinum hertogi
a/ Kent. Er hann hinn þriðji, er
ber þann titil, og vona menn að
hann verði betri en sá sem næst
bar titilinn á undan honum, en
það var fjórði sonur Georgs 3.
Bretakonungs, Játvarður hertogi
af Kent, einhver fólskasti böðull,
er sögur fara af, enda drykkju-
maður mikill. Gaf hann hermönn-
um sínum slík húðlát, bundnum
við fallbyssuhjólin, þegar hann
þá ekki skemmti sér við það að
binda þá fyrir fallbyssukjaftana
og hleypa svo af, að hann var
loks tekinn frá yfirforingjastöð-
unni í Gíbraltarvíginu mikla og
sendur í útlegð til Quebec, þar
sem enn ganga sögur um hann.
En þó er nokkuð fleira af honum
að segja. 1818 kvæntist hann
systur Leópolds I. Belgíukonungs.
Með henni átti hann eina dóttur
barna, Victoríu, er seinna varð
»Drottuing Englands, Keisarinna
Indlands, Verndari Trúarinnarc.
Alpýöusambanilið.
Samkvæmt skýrslu ritara Al-
þýðusambandsins, Stefáns Jóh.
Stefánssonar hrm., eru nú 65 fé-
lög í Alþýðusambandinu og fé-
lagsmenn alls 10305. Síðustu tvö
árin hefir verið vikið úr Alþýðu-
sambandinu þessum félögum:
Verkamannafélagi Akureyrar,
verkakvennafél. »Eining«, Akur-
eyri og Verlcamannafélagi Siglu-
fjarðar, en í stað þeirra hafa,
samkvæmt skýrslu ritara, bætzt
20 félög.
Slovar muni segja Ungverjum
stríð á hendur, taki Þjóðabanda-
lagið eigi fyllilega til greina álits-
skjal þetta og skerist í leikinn til
málamiðlunar.
Forsætisráðherra Ungverja,
Júlíus Gömbös, hefir í viðtali við
blaðamenn í gær harðneitað þess-
um ásökunum og kveður þær ill-
girni eina og tilraun til þess að
egna Ungverja til fjandskapar.
Veizluhöld mikil standa til í
London, brúðkaupsvei^Ja hjóna-
leysanna, að því er útvarpsfregn
hermdi á sunnudaginn. Veizlu
halda Georg konungur og Mary
drottning 26. þ. m. og verða með-
al boðsgesta Kristján X. og Alex-
andrína, konungshjón Islands og
Danmerkur, og Maud Noregs-
drottning, er þá á afmælisdag.
Ó|»œgifieg kllpa.
Ríkisstjórinn í fríríkinu írska
hefir, að því er útvarpsfregn
hermir, orðið að afþakka boð Ge-
orgs Bretakonungs til brúðkaups-
veizlu Georgs, hertoga af Kent og
Marínu Grikkjaprinsessu. Ástæð-
an er hollustuloforð gefið de
Valera.
AKURE YRARKIRKJ A: Messað &
morgun (sunnud.) kl. 5 e. h. Síra
Benjamín Kristjánsson stígur í stólinn.
K AUP AN GSKIRKJ A: Messað á
morgun (sunnud.) kl. 12 á hádegi. Síra
Friðrik J. Rafnar stígur í stólinn.
Prédikun í Aðventkirkjunni á morg-
un kl. 8 síðdegis.
Matthíasa/rkvöldið, er Stúdentafélag-
ið efndi til á miðvikudagskvöldið, fór
hið bezta fram. Sigurður Guðmundsson
skólameistari hafði orð fyrir nefndinni.
Minntist hann þjóðskáldsins með fá-
einum skemmtilega snjöllum orðum, en
skýi’ði annars tiigang samkomunnar:
Upphaf fjársöfnunar til hæfilegasta
minnisvarða yfir skáldið góða, bókhlöðu
undir Amtsbókasafnið, með sérstöku
Matthíasarherbergi, þar sem endurbú-
in væri skrifstofa hans, að því er frek-
ast væri unnt, og þar svo varðveitt m.
a. allt, sem um hann hefði verið og
yrði ritað. Skyldi hornsteinn lagður að
hausti, á aldarafmæli skáldjöfursins,
11. nóv. 1935. — Að endingu gat hann
þess — og til hvatningar — að Oddur
Björnsson, prentsmiðjueigandi, hefði
heitið að gefa bókasafninu allt sitt fá-
gæta bókasafn, yrði byggt yfir það, svo
sem nefndin gerði ráð fyrir, en ekki
ella. En bókasafn Odds Björnssonar
mundi mega meta á tugi þúsunda. —
Aðalræðumaður var séra Benjamín
Kristjánsson, er flutti mjög ýtarlegt og
víða stórskáldlegt og snjallt erindi um
trúarskáldið séra Matthías. Var gerð-
ur hinn mesti rómur að máli hans. —
»Geysir« söng sálma, frumorta af séra
Matthíasi á undan og eftir aðalræð-
unni, og að síðustu þjóðsönginn. —
Síðan var danzað.
Sumurifl 1882 oy 1934.
Sumarið, sem kvaddi í gær,
mun mörgum verða minnisstætt.
Mér og mörgum öðrum, sem
muna sumarið 1882, mislinga-
sumarið svonefnda eða ísasumar-
ið, mr.n verða það, að bera saman
þessi tvö sumur, sem að því leyti
eru lík, að þau eru hin langmestu
óþurrkasumur í mínu minni, en
að mörgu svo ólík.
Sumarið 1882 var afarkalt og
grasspretta ákaflega rýr. Þá voru
sífelldar þokur og súld og 10
sinnum alsnjóaði á sumrinu á
Norður- og Austurlandi.*)
Mestar hríðar voru: 23. maí
grimmilegasta kafaldshríð þvínær
um allt land. 21. júní, kafaldsbyl-
ur norðanlands; sömuleiðis 15. og
16 ágúzt; 5. sept. kafaldshríð
nyrðra; sumstaðar 7 stiga frost á
R. Síðari hluta apríl rak ísinn að
Norðurlandi vestur að Horni og
fyllti alla firði. Vöruskortur var
þó eigi, minnsta kosti eigi hér við
Eyjafjörð, því vöruskip, »Ingc-
boi'g«, kcmst hingað inn áður en
*) T. d. sá aldrei sól frá 4. ágúst tit
höfuðdags.
Vofir Evrópustyrjöld yfir?