Dagur - 07.03.1935, Side 1

Dagur - 07.03.1935, Side 1
D AGUR icemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri:. Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfiröinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. XVIII . ár. j ^ 'Afgreíðslan •r hjá JÓNI í>. ÞóR. Norðurgötu3. Talslmi 112. Úppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- gveiðslumanns fyrir l.des. Akurcyri 7, marz 1935. 10. tbl. Mjólkurverkfallið virðist ekki ætla að hafa mikla fremd í för með sér fyrir komm- únista- o g íhalds-»samlag« Reykjavíkur. Hefir mjólkursölu- nefndin látið rannsaka mjólkur- söluna í Reykjavík í febrúar og birt skýrslur um mánudagssöluna í þeim mánuði og er hún sem hér segir: Mánud. 4. febrúar 12608 lítrar. Mánud. 11. febrúar 13430 lítrar. Mánud. 18. febrúar 12920 lítrar. Mánud. 25. febrúar 13116 lítrar, en hinn 25. hófst einmitt mjólk- ur-»verkfallið«. Hefir því salan þann dag verið í góðu meðallagi. Þá lét og nefndin rannsaka mjólkursöluna vikuna 21.—28. febr., að báðum dögum meðtöld- um. Kom þá í Ijós, að 4 dagana næstu á undan verkfallinu seld- ust að meðaltali 13252 lítrar á dag, en 4 fyrstu verkfallsdagana 12589 lítrar á dag að meðaltali. Hefir rýmunin því numið aðeins 663 lítrum á dag að meðaltali 4 fyrstu dagana. Má það óverulegt teljast. Annars hamast blöð »verk- fallsmanna«, sérstaklega íhalds- blöðin, við að óvirða mjólkursölu- nefndina og við að spilla á allan hátt fyrir sölunni. En nefndin lætur hart rnæta liiirðu. A fundi 26. f. m. tók nefndin til athugunar, hvað gera skyldi til þess að mæta þessum hatram- legu árásum og gerði þá m. a. þessar ákvarðanir: xMjólkursölunefnd ályktar, að Jón Jónsson bóndi frá Sigurð- arstöðum i Bárðardal andaðist fyrir fáum dögum eftir uppskurð, á Landsspítalanum í Reykjavík. Pór hann suður í s. 1. janúarmán- uði, að leita sér læknishjálpar, en allt dró til þessarar niðurstöðu. Jón var kvæntur Jónínu, dóttur Sölva, er síðast bjó að Kaupangi, góðri konu og myndarlegri hús- freyju, lifir hún mann sinn, á- samt 5 bömum uppkomnum, en yngsta Dara þeirra, stúlka að nafni Steinunn, lézt fyrir tæpu ári síðan, svp að skammt er þar högga á milli. Jón hóf búskap á Sigurðíwf* gangi mjólkursalan saman, sem nemur meira mjólkurmagni en því, sem nú er flutt austan yfir Hellisheiði, þá verði dregið úr mjólkurflutningum frá' Korpúlfs- staðabúinu, og verði því búi fal- ið að vinna úr þeirri mjólk, sem ekki yrði markaður fyrir óunna«. 2) Mjólkursölunefnd ályktar, að teknir séu upp samningar um kaup eða leigu á mjólkurstöð Mjólkurfélags Reykjavíkur, og fer þess á leit við framkvæmda- stjóra Mjólkurfélags Reykjavík- ur, að hann undirbúi þetta mál fyrir fund mjólkursölunefndar næstkomandi föstudag«. 3) »Mjólkursölunefnd ályktar að fela formanni að leita álits lögfræðinga um hvort ekki heyri undir atvinnuróg og gefi því tilefni til að höfðað sé skaðabóta- mál á hendur félagi því og ein- staklingum, er beitast gegn eðli- legri mjólkumeyzlu í bænum. Ennfremur er formanni falið að leita álits lögfræðinga um, hvort ekki sé tilefni til að höfða skaðabótamál á hendur Morgun- blaðinu og Vísi fyrir aðgerðir þeirra í sambandi við hið svo- nefnda mólkurverkfalk. Málshofðun. Árangurinn af þessum ákvörð- unum hefir nú orðið sá, að nefnd- in hefir ákveðið að höfða skaða- bótamál gegn ritstjóra Vísis rit- stjórum Morgunblaðsins og hinu nýstofnaða Húsmæðrafélagi Reykjavíkur. stöðum laust fyrir síðustu alda- mót, við nokkur efni og frekar góða aðstöðu, kom það brátt í ljós, að hann var í tolu nýtustu bænda, enda af því bergi brotinn. Vann hann heill og óskiptur að heimili sínu og virtist kunna hín réttu tök á hverjum hlut, um heimilisstjóm og búnað allan. Olli það miklu um gæfu hans og gengi, að hann var, án efa, á réttri hyllu, sem bóndi, og auðn- aðist því að beita starfsorku sinni að þeim verkefnum, sem honum voru hugleiknust og skapi næst. Annars var þessi maður gæddur slíkum manndómi, að hann hlaut að verða að miklu liði, að hverju, sem hann sneri sér. Jón hafði jafnan fá orð um fi’amtíðarráðagerðir sínar, en hann virtist lifa eftir kjörorðinu: »Kapp er bezt með foi*sjá«. Hann sótti fram, jafnt og þétt. »Verkin tala« að öllu honum í vil. Jörð- inni tók hann við, að vísu í góðu lagi, eftir þeirra tíma mælistiku, en þó bætti hann hana mjög mik- ið — reisti ný hús, að nútíma kröfum, bæði fyrir fólk og fénað, átti nú orðið járnþaktar hlöður fyrir öll sín hey; byggði rafstöð, sem nægði til hitunar, suðu og Ijósa. Þá jók hann og drjúgum túnið; útvarp var komið ■ að Sig- ríðarstöðum fyrir nokkru, og þörfum bamanna ekki gleymt, því öll voru þau kostuð til náms, meira og minna og séð fyrir menningu þeirra á einn og annan hátt. En skuldir Jóns »falla« ekki, því lánsfé notaði hann aldrei og þar af leiðandi engar skuldir til. Bú átti hann stórt, og þó einkum fallegt, var prýðis fjármaður og skepnur hans svo vel með farnar og eftirlætislegar, að unun var að sjá. Heimilið bar vott um þrifn- að og reglusemi, og athygli hús- bóndans viðbrugðið um allt, smátt sem stórt. Jón var meðalmaður á voxt, þéttlegur á velli, fríður sýnum og drengilegur. — En nú er hann dáinn. Sveitungar hans eiga þar á bak að sjá góðum dreng. Ásfc- vinir og frændur sakna hans sárt. Mörgum góðvini í fjarlægt vakn- ar hlýja í huga. En ekki ber að æðrast; sextugum manni er hvíld- in góð. Jón fór á mis við svokall- að skólanám, og hefir því, að ein- hverju leyti staðið ver að vígi, sökum þess. En eigin brjóstvit, holl ráð og bendingar ágætra for- eldra, hafa dugað honum vel. Nú á dögum gerir þjóðfélagið mikið fyrír æsku landsins. Tak- ist bænda- og alþýðuskólunum, sem leika við ungmenni sveit- anna, að ala upp marga bændur, sem reynast jafn traustir og trú- ir sínu starfi, þegar á hólminn kemur, og sem bera bændamerk- ið með slíkum sóma, sem Jón á Sigurðarstöðum gerði, þá er á- stæðulaust að kvíða framtíð sveitanna. 3. marz 1935. Þorl. Martevnsson. Gar/nfræðaslcóli Akwreyrwr hélt í gær- kvöldi kvöldskemmtun £ Samkomuhúsi bæjarins, til ágóða fyrir hljóðfærasjóð sinn, við húsfylli og beztu ánægju á- heyrenda. Verftur kvöldsins nánar get- iý i næsta fclaði. NÝJA-BÍÓ HBBHI sýnir fimmtudagskvöld kl. 9 Vester vo vo. * Litli og Slóri. SíraBjörnÞorláksson látijnn, Hinn þjóðkunni merkismaður, séra Björn Þorláksson frá Dvergasteini, andaðist á sunnu- daginn var að heimili sínu í Reykjavík, 84 ára gamall. Hann var lengi alþingismaður og þjóð- kunnur bindindisfrömuður. Sigurður Eggerz, bæfarfógell, itti sextugsafmæli á föstudaginn var. Höfðu ýmsir vinir hans ætlað að halda honum samsæti, en hann beðiit undan því. Heimsóttu þau hjón fjöldi manns um daginn með ámaðaróskum, en frú Eggerz var einmitt nýkomin heim, að fengnum góðum bata eftir langa og þunga sjúkdómsvist í Reykjavík. KIRKJAN. Messað á Akureyri n. k. sunnudag, kl. 2. Dánardægwr. í gærdag lézt að heim- ili sínu hér í bæ Karl Bye-Pettersen, steinsmiður, 58 ára að aldri, eftir lang- varandi lasleika. Hann var kvsentur Sólveigu, systur Lárusar Thorarensen og áttu þau eina dóttur bama. Guðrún Pwsteinsdóttir syngur £ Samkomuliúsi bæjarins i kvöld kl. 9. Á söngskránni verða mörg íslenzk lög, þar á meðal nýtt lag eftir Karl O. Runólfsson »Borte«, samið við hið fagra kvæði Ibpens; ennfremur »Med en Vandlilje« og »Elsk« eftir Grieg, lög eftir Schumann og Brahms, og arí- ur úr frönskum óperum, xÞekkirðu land« eftir Tliomas, vögguvísa úr op. »Jocelyn« eftir Godard, og aSamson og Delilah« eftir Saint-Saent. Má á ofan- töldu sjá, að söngskráin er vönduð 0|g fjölbreytt. Má telja víst að margir verði til að hlusta á ungfrú Guðrúnu að þessu sinni, og fagna því að hún nú lætur til sín heyra, og munu bæjar- búar minnast hins ánægjulega konserts hennar í vetur, og þeirra vinsamlegu viðtaka sem hún þá hlaut, Búówni og skrifstofum verður lokað frá kl. 1214—3% á morgun vegna jai'ðarf^var Halldórs G. Aspars.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.