Dagur - 04.07.1935, Blaðsíða 1

Dagur - 04.07.1935, Blaðsíða 1
D AGUR icemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan er hjá JÓNI Þ. ÞÓR. Norðurgötu3. Talsimi 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XVIII . ár. | Akureyri 4, júlí 1935. 27. tbl. Aðalfundur S. I. S. Á síðastl. ári óx viðskiftavelian um 1,8 milj. kr., vöxtur sjóðeigna um 134 þús. kr.; kaupfélögin minnkuðu skuldir sínar við S. Í. S. um 1,229 þús. kr. Aöalfundur Sambands ísl. sam- vinnufélaga hófst í Reykjavík miðvikudaginn 26. i'. m. Stóð hann yfir í 4 daga og var lokið seint að kvöldi laugardagsins 29. s. m. Fundinn sóttu milli 40 og 50 fulltrúar víðsvegar af land- inu auk stjórnar og framkvæmda- stjóra. Sigurður Bjarklind kaupfélags- stjóri var kjörinn fundarstjóri,en til vara Þorsteinn Jónsson kaup- félagsstjóri. Ritarar voru kjörnir Hólmgeir Þorsteinsson Hrafna- gili og Karl Kristjánsson Húsa- vík. Þrjú kaupfélög höfðu sótt um inngöngu í Sambandið, Kaupfélag Stöðfirðinga, Kaupfél. Fáskrúðs- firðinga og Samvinnufélag Dala- hrepps. Var samþykkt að veita öllum þessum félögum inngöngu. Úr skýrslu forstjóra. Snemma á fundinum flutti Sig- urður Kristinsson forstj. skýrslu um afkomu S. i. S. á síðastl. ári. Erlendar vörur hafði Sambandið selt á árinu fyrir 6,459 þús. kr., iðnaðai’vörur frá verksmiðjum sambandsfélaganna fyrir rúmlega 201 þús. kr. og iðnaðarvörur ann- ara íslenzkra iðnfyrirtækja fyrir 79 þús. kr. Er þessi vörusala sam- anlögð 40% hærri en árið áður. Innlendar afurðir hafði S. f. S. selt á árinu fyrir 6,685 þús. kr. eða svipaða upphæð og árið áð- ur, en þá var salan 2 millj. kr. meiri en 1932. Vörusalan öll hefir því numið 13 millj. 424 þús. kr. eða nálega þrettán og hálfri milljón kr. Hef- ir því heildarumsetning S. í. S. aukizt um 1,8 millj. kr. frá ár- inu áður. Auk þess hefir S. f, S. selt fyrir ríkið útlendan áburð fyrir 507 þús. kr. eða 43 smálestum meira að magni til en árið áður. Félög í S. í. S. voru 39 í árs- byrjun og jafnmörg í árslok; tvö höfðu bætzt við á árinu og tvö hætt störfum. Sambandsfélögin höfðu bætt hag sipn við S. í. S. á árinu um 1,229 þús. kr. Voru 8 félög, sem áttu inni í árslok, 22 höfðu lækk- að skuldir * sinar á árinu, en 8 aukið skuldir. Sjóðir S. f. S. voru í árslok 1,623 þús. kr. og höfðu aukizt á árinu um 134 þús. kr. Tekjuaf- gangur varð 145 þús. kr. Skýrslur framkvæmda* stjóra S. í. S. Framkvæmdastjórar Sambands- ins, þeir Jón Árnason og Aðal- steinn Kristinsson fluttu sína skýrsluna hvor um starfsemi S. i. S. á árinu. f sambandi við skýrslu Jóns Árnasonar voru af- urðasölumálin tekin fyrir sér- staklega og rædd á fundinum. Fluttu þeir Jón Árnason og Jón ívarsson formaður kjötverðlags- nefndar ýtarleg erindi um þau í byrjún umræðanna. Að loknum umræðum um þessi mál var samþykkt með öllum at- kvæðum eftirfarandi tillaga frá Kristjáni Sigurðssyni kennara: »Aðalfundw S. /. S. finnur á>- stæóu til að láta í Ijósi ánægju sina yfir framkvæméum þeim, sem gerðar hafa verið u.m skipu- lag á meðferð og sölu aðalfram- leiösluvara landbúnadarins. Telur fundurinn, að ráðstafanir þessar hafi þegar orðid og verði land>- búnaðinum að miklu liði. Vill fundurinn i þessu sam- bandi sérstaklega þakka þeim framkvæmdastjóra Jóni Árnasyni og lundbúnaðarráðherra Her- manni Jónassyni fyrir önugga forystu i þcssu nauðsynjamálu. Rcikninganefnd. Eftir að forstjóri hafði flutt ársskýrslu sína og lagt fram reikninga Sambandsins fyrir síð- astliðið ár, kaus fundurinn 7 manna nefnd til þess að athuga reikningana og rekstur S. f. S. á árinu. í nefndina voru kosnir: Björn Kristjánsson. Egill Thorarensen. Guðmundur. ólafsson. Hannes Pálsson. Tngimar Eýdal. Sigurður Þórðarson. Vilhjálmur Þór. Nefndin átti með sér nokkra fundi og lagði að þeim loknum skriflegt álit sitt fyrir aðalfund- inn. Kosningar. Síðasta fundardaginn fóru fram kosningar. Átti að kjósa tvo menn í stjórnina til þriggja ára, og voru þeir Einar Árnáson alþm. og síra Sigfús Jónsson alþm. endurkosnir. Varaformaður , til eins árs var endurkosinn Sigurð- ur Jónsson á Arnarvatni. í vara- stjórn til eins árs voru kosnir Vilhjálmur Þór kaupfélagsstjóri og Jón ívarsson kaupfélagsstjóri. Þá fór fram kosning á endurskoð- anda, var Jón Guðmundsson end- urkosinn, og Guðbrandur Magn- ússon kosinn varaendurskoðandi. Hjúakapur: 28. júní voru gefin sam- an í hjónaband Viglín Sigurðardóttir og Ingvar ólafsson, bæði til heimilis í Melgerði, Glerárþorpi. — 1. júlí Axel- ína Geirsdóttir, Veigastöðum og Hall- dór Jóhannesson bóndi, Sveinbjarnai’- gerði. — Hjónavígslurnar framkvæmdi síra Benjamín Kristjánsson. NÝJA-BIO Föstudags-, Laugardags- og Sunnudagskvöld kl. 9: Kvikmynda- prinsinn. (Hans Höjhed filmer). Þýzk tal- og hljómmynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Victor de Kowa. — Liane Haid og skop- leikarinn heimsfrægi: Paul Kemp. Mynd þessi er ein af skemmti- legustu ínyndum, sem lengi hafa sézt hér. Hún er leikin af vinsælustu og hlægilegustu leik- urum Þjóðverja — fallegu fólki í fallegu umhverfi. >Kvik myndaprinsinn t var nýlega sýnd í Reykjavík við ágæta aðsókn, og að lokinni sýningu hér. fer hún þangað aftur lil sýningar, vegna fjölda áskorana. Fulltrúa ■* §amvinnufélaganna taka aístöðu til rógburðarins gegn Sigurði Kristinssyni, forstfóra S. í. S. Forstjóriun fær traustsyfirlýsingu með óskiptum fögnuði. Eftir að Sigurður Kristinsson forstjóri hafði flutt ársskýrslu sína á aðalfundi S. í. S., vék hann að árásum þeim, er hann hafði orðið fyrir i Morgunblaðinu og blaðinu »Framsókn«, og skýrði frá málaferlum þeim, sem hann hefir átt í út af þessum árásum. Taldi hann sér skylt að gefa full- trúunum skýrslu um þetta, því ef hann hefði verið sekur um að »gefa falsvottorð« og vera í »þjónustu lyginnar«, þá hefði hann tafarlaust átt að víkja úr stöðu sinni. Frá þessu hermir gerðabók aðalfundarins sem hér segir: »í lok ræðu sinnar sagði for- stjórinn frá árásum, er hann hefði orðið fyrir í Morgunblaðinu s. 1. ár, og blaðinu Framsókn, og tók fram að hann teldí sér skylt að gefa skýrslu um þetta, því að ef sakirnar, sem á sig hefðu verið bornar, hefðu haft við sannleik að styðjast, þá hefði hann eigi talið Sambandi ísl. samvinnufé- laga sæmandi að hafa sig sem forstjóra áfram. Svohljóðandi tillaga til fundar- yfii’lýsingar kom fram frá Ingi- mar Eydal: nMorgunblaðiö beiir á næstliðnu ðri birt ðhrððursgreinar um Sigurð Krislinsson (or- stjóra Sambandsins, par sem honum er borið á brýn, að hann hali gefið falsvott- orð i ákveðnu máii. En með pvi að luli- víst er, að 611 hin meiðandi ummæli blaðs- ins eru staðlaus úsannindi - enda hafa pegar verið dæmd dauð og ðmerk - pá lýsir aðalfundur Sls andstyggð á sliknm ummælum og telur, aö með pessari fram- komu sinni verðskuldi biaðíð fyrirlitningu allra gððra drengja f landinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.