Dagur - 24.10.1935, Síða 2

Dagur - 24.10.1935, Síða 2
182 DjKGUR 43. tbl. ♦ ♦♦ -♦ -♦-♦- Heimiliserfurnac i Bændaflokknum. Þegar »EiiikafyTÍrtækið« klauf sig út úr Framsóknarflokknum, sögðu þeir, er fyrir klofningnum stóðu, að þeir hefðu verið neydd- ir til brottfarar úr flokknum, af því að flokksaginn hefði verið svo strangur,. að þeir hefðu ekki haft frið með sannfæringu sína. Þess vegna hefðu þeir orðið oð stofna sinn eiginn flokk, þar sem sann- færing einstaklingsins ætti öllu að ráða um framferði hans og framkomu í þjóðmálunum, en all- ur flokksagi að vera útilokaður. Á þessum grundvelli buðu Bændaflokksmenn sig fram við síðustu þingkosningar. Þegar per- sónuleg sannfæring rækist á ílokksviljann, ætti það fyrnefnda að ráða; sögðu þeir. Allt átti að vera svo einstaklega frjálst og óþvingað, engin höft á sannfær- ingunni, engin »handjárn«. Þegar til þingstarfanna kom, fór brátt að brydda á því, að þeir Þorsteinn Briem og Hannes Jónsson vildu halla sér að íhalds- flokknum til samvinnu. Magnús Torfason var aftur á móti alveg móthverfur þessari samvinnu við íhaldið og taldi hana meira að segja svik við kjósendur sína í Ámessýslu, því forkólfar og mál- pípur Bændaflokksins hefðu lýst því þar yfir, að ætlunin væri að flokkurinn ynni til vinstri og •hefði samvinnu við hina frjáls- lyndari flokka. Þessi ágreiningur var raunar ekki annað en »heimiliserjur« inn- an »Einkafyrirtækisins« og áttl því að réttu lagi að útkljást innan vébanda þess. En þessar heimilis- erjur leiddu það brátt í Ijós, að allar hinar fögru yfirlýsingar um persónulegt sannfæringarfrelsl höfðu verið yfirskin eitt og fals, froðuhjóm, sem hreykt hafði ver- ið upp til kosningafylgis, og ann- að ekki. Skyndilega var frelsis- múrinn um sannfæringu Magnus- ar Torfasonar rifinn til grunna, og flokksmenn hans tóku að ýfast við honum, af því að hann vildi ekki beygja sig fyrir flokksagan- um, vera hlýðinn og góður og vinna með íhaldinu. Gengu þessar ýfingar svo langt, að Magnús Torfason sá sig neyddan til að tilkynna 'flokki sínum, að hann »sliti við hann samvinnu«, en úr flokknum hefir hann aldrei sagt sig og heldur ekki verið formlega úr honum rekinn. En svo var frekja flokksmanna Magnúsar Torfasonar mikil, að þeir nú í þingbyrjun kröfðust þess, að Alþingi tæki af honum þingmennskuumboðið og fengi það öðrum í hendur. Gengu f- haldsmenn fram fyrir skjöldu í þessu máli og studdu kröfuna um brottreþstur M. T. af þingi af öllu megni. Ekkert stoðaði það, þó að stjórnarflokkarnir færðu að því skýr rök, að þingið brysti með öllu lagaheimild til brottreksturs- ins. íhöldin bæði sátu föst við sinn keip. Magnús Torfason skyldi dæmdur frá þingmennsku þrátt fyrir heimildarleysi bæði í stjórnarskrá og kosningalögum. Hann hafði óhlýðnast því að láta af sannfæringu sinni, beygja sig fyrir vilja meiri hluta flokks síns og gerast þægur þræll íhaldsins á Alþingi. — Þessar sakir töldu stjórnarandstæðingar nægar til þess, að Magnús Torfason yrði gerður þingi-ækur. Meiri hluti þingsins var nú svo hlálegur að vilja ekki sinna kröfu Bændaflokksins, sem ein- ungis var sprottin af erjum á heimili »Einkafyrirtækisins«, þar sem sannfæringarfrelsi einstak- lingsins átti að vera hinn lýsandi hnöttur, en var nú orðinn for- myrkvaður í höndunum á Þor- steini Briem og Jóni í Stóradal. Áttundi aðalfundur Prestafélags Vestfjarða. (Niðurl.). 2. Prestakallafælclcun. Formað- ur félagsins var málshefjandi. Svohljóðandi tillaga var sam- þykkt í einu hljóði: Fundurinn skorar á þing og stjórn að fækka ekki prestaköllum landsins frá því, sem nú er, nema með sam- þykki hlutaðeigandi safnaða. 3. Dýrafjarðarþing. Eftirfar- andi tillaga var samþykkt í einu hljóði: Fundurinn skorar á þing og stjórn að endurreisa Dýra- fjarðarþing, sem felld voru niður með lögum 1907. Jafnframt telur fundurinn, að vel færi á því, að prestur Dýrafjarðarþinga væri jafnframt kennari við Héraðs- skólann á Núpi. 4. SálmAlög. Síra Halldór Kol- beins flutti inngangserindi. Að því loknu urðu allmiklar umræð- ur um málið. Svohljóðandi tillaga var samþykkt í einu hljóði: Aðal- fundur Prestafélags Vestfjarða óskar eindregið eftir því, að þeg- ar næst verður efnt til kirkju- söngsbókar vorrar, þá sé gömlu lögunum sérstaklega gaumur gef- inn. (Vitnar fundurinn um ágæti þeirra til lagsins: »Vist ert þú Jesús kóngur klár«). Telur hann félag sitt jafnvel geta stutt að söfnur) ef til kæmi. Yfirleitt ósk-' ar fundurinn að kirkjusöngur ver rnegi verða íslenzkari en nú er og að í því skyni verði leitað eftir nýjum lögum, sem nú munu vera til víðsvegar um landið. 5. Oxfordhreyfingin. Síra Sig- urður Z. Gíslason flutti allýtar- legt erindi um Oxfordhreyfing- una. Kl. 814 á miðvikudagskvöldið í'lutti síra Einar Surlaugsson op- inbert erindi um síra M'atthías Jochumsson, en sunnukórinn söng bæði fyrir og á eftir sálma eftir síra Matthías. Fimmtudaginn 5. sept. kl. 9 f. h. var sunginn sálmurinn nr. 194, en síra Jón ólafsson las Jóh. 21, 15—17 og flutti bæn. Var síðan gengið til dagskrár: 6. Samvinna presta og lækna vm sálgæzhmál. Málshefjandi var síra Sig. Z. Gíslason. Um málið urðu miklar umræður. Eftirfar- andi tillaga frá frummælanda var samþykkt í einu hljóði: Fundur- inn skorar á Prestafélag íslands að taka til athugunar möguleika á samvinnu milli presta og lækna um sálgæzlumál og önnur skyld efni, þar sem starfssvið þeirra fellur saman að meira eða minna leyti. — Þessi tillaga var einnig samþykkt í einu hljóði: Fundur- inn samþykkir að aðalmál næsta fundar Prestafélags. Vestfjarða verði sálgæzla og andlegar lækn- ingar. 7. Sóknartekjur kvrkva. Frum- mælandi Sigtryggur prófastur Guðlaugsson rakti málið nokkuð og ýmsir aðrir tóku til máls, en engin fundarályktun var gjörð. 8. Eftirlaun presta. Málshefj- andi var síra Böðvar Bjamason. Rakti hann nokkuð hvaða kjör iuppgjafaprestar eiga við að búa jog sýndi fram á, hve eftirlaun þeirra væru fjarri öllum sanni lág eftir gildandi lögum. Lagði hann loks fram eftirfarandi til- lögu: Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða skorar á Prestafélag íslands að beita sér fyrir því, að eftirlaun presta verði bætt þann- ig að lágmark eftirlaunanna verði 2000.00 kr. og eftir 75 ára aldur presta 2500.00 kr. — Tillagan var samþykkt í einu hljóði. 9. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt samhljóða og árið áður: »Fundurinn lýsir því yfir, að hann heldur fast við samþykkt síðasta aðalfundar um að sálma- bókin verði öll tekin til endur- skoðunar og gefin út í heild og í nefnd þeirri, er verkið vinni, eigi 7 menn sæti, þar af a. m. k. 3 þjónandi prestar«. Stjórnin var endurkosin: Sig- urgeir Sigurðsson prófastur, síra Böðvar Bjarnason, síra Halldór Kolbeins. Bending kom fram um, að vel færi á, að næsti fundur yrði hald- inn á Flateyri, en stjórninni var falin endanleg ákvörðun í því máli. Fundarmenn voru allir boðnir gestir á ýmsum heimilum á ísa- firði. Fyrsta l'undarkvöldið voru fundarmenn heima hjá formanni félagsins við góðar veitingar og ánægjulegar samræður. Seinasta kvöldið kl. 8Vk komu allir fundarmenn saman á heimili Jónasar Tómassonar bóksala í boði sóknarnefndarinnar og sátu þar í gððum fagnaði og við ágæt- ar veitingar fram á nótt. Þaðan héldu fundarmenn svo til kirkj- unnar og lauk svo fundinum með bænarstund í kirkjunni 6. sept. 1935. (Heimildarm. síra Halld. Kolbeins). Deltiloss. Ferð til orkumesta foss Norðurlands. Niðuriag. t*eir Gisli og Guðmundur, sem voru mun fótkvatari en ég, fet- uðu sig fljótt niður af hjallanum sem bíllinn stóð á, og komustað lítilli stundu liðinni mjög nálægt fossinum, i hérumbil 50 íaðma fjarlægð. Þar renndu þeir út seglgarnssnúru, sem stálstöng var bundin við annan endann, niður að vatnsborði árinnar, en sú hæð taldist þeim vera tæpir 50 mir., það er 8 mtr. lægri en G. J. Hlíð- dal telur Dettífoss vera (sbr. rit- gerð hans »Fossar á Islandk, birta í Verkfræðingaritinu, út- gefnu í Reykjavik árið 1917). Petta voru einu mælingarnar, sem ég gat gert í þessari ferð, því mæliáhöldin, sem ég lét búa mér til á Akureyri árið 1916, og ég notaði upp frá því til hausts- ins 1932, hafa að líkindum tap- azt, eftir að ég fluttist á sjúkra- húsið 20. jan. 1932. En þótt Dettifoss sé 8—10 mtr. lægri en hann er talinn í ofan- greindri ritgerð G. J. Hlíðdals, þá hefir hann samt áttfalt meiri Saumavélar. Höfum nú hinar viðurkenndu Husqvarna og Juno saumavélar, handsnúnar og fótvélar af mörgum gerðum. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeildin. iilillliillliiiftillliiiP

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.