Dagur - 24.10.1935, Síða 3
t! tbt.
DAGUR
179
orku heldur en Goðafoss hefir,
þegar fljótið verður sem nrinnst.
Gerandi ráð íyxir að Dettifoss
hafi aðeins 50 mtr. fall, og Jök-
ulsá flytji aðeins 100 m.3 á sek.,
ekki 110 m.3, eins og G. J. Hlíð-
dal segir, þá er orka Dettifoss
10°° x 50 x 100_ thö = 66666 thö
75
óbundin; og gerandi ráð fyrir að
vatnsvélarnar hagnýti 75% ork-
unnar, þá hefir fossinn 50000 eim-
hestöll vinnandi dag og nótt til
hvers sem vera skal.
Hvers virði getur það orðið ?
Eftir 2ja tíma dvöl við fossinn
tókum við bilinn og keyrðum
aftur að Lindarbekku, fengum
þar ágætan miðdegisverð og héld-
um síðan slitlaust til Húsavíkur
í íegursta veðri og þaðan til Ak-
ureyrar og komum heim til okk-
ar litlu eftir kl. 10 um kvöldið
hinn 9. okt.
Þessa ferð tel ég eina hina
heillavænleguslu og þýðingar-
mestu, sem ég hefi farið hér á
íslandi.
Akureyri 14, okt. 1935.
Frímann B. flrngrimsson.
S k ý r s 1 a.
Heilsufræðissýning læknafélags-
ins var opnuð í barnaskólanum
i Húsavík sunnudaginn 8. sept.
1935 af sýslumanni Júlíusi Hav-
steen. Fiutti sýslumaður, fyrir
hönd héraðsins, læknafélaginu
þakkir fyrir þennan áhuga á heil-
brigðismálum þjóðarinnar og lagði
áherzlu á, að slík hvatninga-
meðöl þyrftu sem oftast að fást
til að vekja menn og brýna fyrir
þeim þýðingu heilsunnar og varð-
veilslu hennar.
Jón Jónsson læknir þakkaði
sýslumanni góð orð og skólanefnd
góðar viðtökur, er hún lánaði
skólastofurnar ókeypis fyrir sýn-
inguna, skýrði siðan frá tildrögum
hennar og tilgangi og hvernig
henni væri nú komið íyrir í her-
bergjum skólans.
Héraðslæknirinn Björn Jósefs-
son talaði þá um slíkar sýningar
sem íræðsiu og uppeldismeðöl,
og óskaði að almenningur vildi
færa sér sýninguna sem bezt í
nyt.
Sýningin var opin til 15. sept.,
sem lika var sunnudagur. Sýning-
una skoðuðu um 200 manns.
Skólabörn höfðu ókeypis aðgang
undir umsjón kennara.
Þessi erindi voru flutt á sýn-
ingunni:
Héraðslæknir Björn Jósefsson:
1. Um berkla og berklavarnir.
2. Um byggingu líkamans.
Héraðslæknir Kristján Þorvarð-
arson á Breiðumýri:
1. Um kynsjúkdóma. .
2. Um meðterð ungbarna.
Læknir Jón Jónsson:
1. Um tannskemmdir og með-
ferð þeirra.
2. Um farsóttir og heilbrigðisá-
standið.
En auk þessara erinda var sýn-
(áður Dyngja)
er eina alislenzka
ikúriduftið.
Jafn góð
Jafn vel umbúin því bezta útlenda.
Jafn ó d ý r
Fæst í öllutn hreinlætisvðruverzlunum
norðsn Iands á aðeins 40 aura keilan,
Vinum og vandamönnum tilkynnist, að móðir okkar, tengda-
móðir og amma, Ragnhildur Jónsdóttir, andaðist 22. þ. m. að
heimili sínu, Klapparstíg 1 Akureyri.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Innileg hjartans þökk, til ykkar allra, er auðsýndu okkur samúð
við andlát Sigtrj'ggs okkar, og heiðruðu minningu hans og útför,
með nærveru ykkar og vingjöfum.
En .sérstaklega þökkum við hjúkrunarkonunni ungfrú Halldóru
Borláksdóttur fyrir alla hennar mildu hjálp, frá því fyrst í sjúk-
dómslegunni og þar til hann var fluttur í hvíluna hinstu.
Foreldrar og systkini.
Tilkynnin
Frá næstu mánaðamótum verður starfrækt almenningseldhús
í húsi Hjálpræðishersins á Akureyri.
Rar geta þeir fengið ókeypis fæði, sem sanna fyrir fátækra-
stjórn bæjarins að brýna nauðsyn beri til. Menn, sem ekki eiga
framfærslurétt að lögum í Akureyrarkaupstað og eigi þiggja af
sveit, verða þó ekki teknir í mötuneytið,
Bæjarstjórinn á Akureyri, 21. Okt. 1935,
Steinn Steinsen.
ingin ölJ skýrð fyrir gestunum er
tækifæri gafst. Nokki'ir ungir pilt-
ar sáu um dyravörzlu og út-
breiðslu auglýsinga og umráða-
menn samkomuhússins lánuðu
bíósalinn til skuggamyndasýning-
ar 1 kvöld.
Þessum og öllum öðrum, sem
veittu mér einhverja aðstoð, vil
eg flytja þakkir fyrir hönd lækna-
félagsins og mína.
Aðgangur kostaði 1 kr. fyrir
fullorðna, 0.25 kr. fyrir börn.
Auk þess voru seldir nokkrir
aðgöngumiðar fyrir fjölskyldur á
kr. 5. — Að endingu vil eg þakka
Sigurði Björnssyni, er var mín
önnur hönd, fyrir ötulleik hans
og stjórnsemi.
.Ióii Jónsson læknir.
KIRKJAN: Messað í Lögmannshlíð
n. k. sunnudag (27. okt.) kl. 12 á hád.
Trúónr — lcristniboði. Kínverjinn
Zikka Wong heimsækir Akureyri
sunnudaginn 27. og mánudaginn 28.
október. Hann er fæddur í Shanghai
fyrsta ári. Zikka Wong hafði farið
víða um heim, meðal annars til Noregs.
Hann reikaði um einmana, unz hann
komst í kynni við Hjálpræðisherinn,
sem tók hann í arma sína. Síðar tók
hann kristna trú. Zikka Wong heldur
fyrirlestur í samkomusal Hjálpræðis-
hersins, sunnudaginn 27. okt. kl. 8%.
Mánudaginn 28. okt. kaffisamsæti kl.
8%.
Kosningamar til danska þingsins, er
fram fóru í fyrradag, enduðu með sigri
jafnaðarmanna, fengu 68 þingsæti, en
höfðu áður 62. Hinir stærri flokkar
hlutu þingsæti sem hér segir: Frjáls-
lyndi flokkurinn 14 og hafði sama
þingsætafjölda áður; íhaldsmenn 26, en
höfðu áður 27. Vinstri flokkurinn 28,
en hafði áður 36.
StriÖið. Uin það er raunar lítið nýtt
að segja. Bandalagsþjóðirnar eru nú
hver fyrir sig að undirbúa framkvæmd
refsiaðgerða gagnvart Itölum og eru
þær viðskiptalegs eðlis. Hermt er að
sjúkdómar geysi í ítalska hemum i
Abessiníu og að hennennimir hrynji
niður af þeim völdum.
Bruni. Alþýðuhúsið á Siglufirði
brann með öllú, sem f því var, aðfara-
nótt 18. þ. m. Húsið var vátryggt en
ihnanstokksraunir ekki,
Kosningarr til sambandsþingsins í Ka-
nada eru nýlega afstaðnar. Hefir
frjálslyndi flokkurinn undir forystu
Mac-Kenzie King unnið stórsigur. 1-
haldsfiokkurinn, sem setið hefir að
völdum síðastl. 5 ár, tapaði 93 þing-
sætum.
Helgi Valtýsson rithöfundur og kenn-
ari er fluttur hingað til bæjarins. Hér
í blaðinu auglýsir hann kennslu fyrir
fullorðna og unglinga. H. V. er þaul-
æfður kennari, þar sem hann í meira
en 20 ár hefir starfað að kennslu við
ýmsa skóla, bæði heima og erlendis,
meðal annars var hann 7 ár kennari
við Flensborgarskólann í Hafnarfirði
og um nokkur ár yfirkennari við
Landsmenntaskólann á Voss í Noregi
o. s. frv. Hefir hann ætíð notið hylli
og vináttu nemenda sinna.
Athygli vakti það, að tveir íhalds-
þingmenn voru fjarstaddir, þegar at-
kvæðagreiðsla fór fram um þingsetu
Magnúsar Torfasonar. Voru það þeir
Kiríkur Einarsson og Jón Ólafsson.
Eftirtekt vakti það lika, að sá af lög-
fræðingum íhaldsins, sem helzt nýtur
álits, Pétur Magnússon, tók engan þátt
í hinum löngu umræðum um málið.
Hjónaefni: Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Ingibjörg Sig-
urðardóttir frá Seyðisfirði og Stefán
Þórarinsson trésmíðanemi á Akureyri;
ungfrú Elsa Jónsdóttir, Akureyri, og
Guðlaugur Marteinsson, sjómaður, á
Hjalteyri.
Stóra bifreiðasýningu opnaði prins-
inn af Wales 17. þ. m. Voru bifreið-
arnar frá 54 verksmiðjum, þar af 25
brezkum.
Við lok þriðja ársfjórðungs þessa
árs, voru útvarpsnotendur á öllu land-
linu 11290, en á sama tíma í fyrra
9357. Hefir þeim því fjölgað um 1933.
Garðávextir hafa verið fluttir tii
landsins, það sem af er þessu ári, fyr-
ir 300 þúsund krónur.
Guðlaug Zakaríasdóttir, ekkja Torfa
Bjarnasonar í ólafsdal, átti 90 ára af-
mæli s. I. laugardag.
15. þ. m. var samkvæmt lögum heim-
ilt að skjóta rjúpur, en óvanalega mik-
ið af þeim hefir sézt í vetur víðsvegar
um land, en þó mest á sunnanverðu
Norðurlandi. T. d. segir í frétt úr
Þingeyjarsýslu, að sjaldan hafi sézt
jafnmikið af rjúpunni þar og nú. —.
Aftur á móti segir útvarpsfregn frá
Noregi, að þar sé næstum rjúpnalaust,
og verð á rjúpuro sé þar kr. 1.80 stk.
Athygli skal vakin á því, að Sjóvá-
tryggingarfélag Islands er nýlega byrj-
•
að að starfrækja líftryggingar. Eru
þær, samkv. auglýsingu í útvarpinu,
með daglegri iðgjaldagreiðslu. — Ættu
þeir, sem ætla að líftryggja sig, að at-
liuga þau kjör, sem þetta eina innlenda
vátryggingarfélag býður, og hvort ekki
sé betra að líftryggja sig hjá því,
fremur en öðrum tryggingarfélögum,
sem reka starfsemi sína hér á landi.
Bavnaskóllnn
verður settur næsta laugardag. Allar skólavörur —
frá því smæsta til hins stærsta — er að fá, eins
og áður, í mestu úrvali í
Bókaverzlun Þorst. Thorladus.