Dagur - 02.01.1936, Side 1
LA MI) ó d6 i\ A3á F N |
Jth 139363
,j V '\iV }.i
DAGUR
feraur út á hverjum fimtu-
degi. Iíostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjaiddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðsian
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
NorðurgötuS. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin tii af-
greiðsiumanns fyrir 1, des.
- • • •• • • •
XVIV
. ár. |
■ -*■-# #-#--#-#• • #~
Akureyri 2. janúar 1936.
1. tbl.
■-#-#-
•-#-#• # • •
Áramót.
Árið 1935 er liðið í aldanna
skaut. »Svo rís um aldir árið hvert
um sig, eilífðar lídð blóm í skini
hreinu«. Þannig kvað Jónas. Hér
verður ekki ri'taður annáll liðna árs-
ins, heldur aðeins stiklað á stærstu
atburðunum, sem við koina afkoinu
atvinnuveganna.
Eins og öll önnur ár hefir lióna
árið haft sína örðugleika í för með
sér fyrir þjóðarheildina og einstak-
lingana. Sumarið 1934 var ineð af-
brigðum óhagstætt fyrir landbún-
aöinn hvað veðráttufar snerti.
Bændur voru því illa viðbúnir að
taka á móti síðasta vetri. Leit illa
út um framgang búfjárins i lok
vetrarins vegna harðrar veðráttu.
En til allrar hamingju kom einkar
hagstæður bati um sumarmál, sem
bjargaði miklu við. Þó urðu fjár-
liöld norðan- og austanlands ærið
misjöfn á síðasta vori, og átti
margur fjáreigandi um sárt að
binda í þeim efnum. Voru það af-
leiðingar af skemmdu fóðri eftir ó-
þurrkasumarið 1934.
Sumarjð 1935 var erfitt til hey-
öflunar. Grasspretta að miklum
mun rýrari en sumarið áður og ó-
þurrkar allmiklir norðan- og aust-
anlands, þó ekki kæinist í samjöfn-
uð við það, er átti sér stað 1934.
Nú um áramótin er fannkingi á
þessu landsvæði.
Sala íandbúnaðarvara hefir geng-
ið greiðlega á árinu. Útflutningur-
inn allmikið hærri en árið á undan
og verðlag nokkru hærra. Hefir
verðlag stöðugt farið hækkandi
þrjú síðustu árin.
Þó að landbúnaðurinn hafi átt
við mikla örðugleika að etja á síð-
astliðnu ári, hafa framkvæmdir á
því sviði verið miklar og framleiðsl-
an fjölbreytfari en nokkru sihni
fyrr.
Kornrækt hefir verið stunduð á
i200 stöðum í landinu, að vísu í
smáum stíl víðast hvar, en tilraun-
ir þessar virðast gefa svo góða
raun, að hægt sé að gera sér vonlr
um, að atvinnugrein þessi eigi fyr-
fr sér að blómgast og vaxa. Ætti
það að vera einn bjartasti draumur
þjóðarinnar, að »akrar hylji móa« í
framtfðinni.
Sjávarútvegurinn hefir átt við
mikla örðugleika að stríða á liðna
árinu. Fiskaflinn yfirleitt miklu
minni en áður og þó meiri fisk-
birgðir i landinu um árainót, Á ár-
inu hefir verið gerð tilraun um
breytta verkunaraðferð fiskjar,
þannig að nokkur hluti hans er
hertur til sölu, og eru vonir um, að
það geti orðið til mikils hagnaðar í
framtíðinni. Jafnframt er farið að
leita eftir víðtækari markaði fyrir
þessa framleiðslu en áður.
Síidveiði brást stórkostlega fyrir
Norðurlandi á síðasta sumri, en aft-
ur á móti var veitt mikið af síld tit
söltunar við Faxaflóa, og hefir sú
veiði verið stunduð nokkuð til árs-
loka. Þar sem verð á síldinni hefir
verið hærra en áður, mun mega
telja heildarútkomuna af síldveiðun-
um sæmilega.
Þá voru teknar upp karfaveiðar
á díðasta sumri. Er það alveg ný
atvinnugrein, sem haldið mun verða
áfram og líklegt áð gefi góðan
hagnað.
Gleðilegt er til þess að vita, að
ýmiskonar iðnaður hefir færzt injög
í aukana á síðasta ári og undirbún-
ingur hafinn til frekari aðgerða í
því efni.
Þegar á allt er litið, er ekki á-
stæða til annars en fagna nýja ár-
inu með bjartsýni og vongleði.
Með þeirri bjargföstu trú að við
sigrumst á örðugleikunum, og að
íslenzka þjóðin eigi bjarta og far-
sæla framtið fyrir höndum, bjóðum
við hver öðrum
G l e'ð i l e g t n ý j á r.
ýrmulegt slys.
A mánudagskvöldið var jólatrés-
skemintun barna haldin í samkoinu-
húsi í Keflavík. Voru þar saman
komin 180 börn og 20 fullorðnar
manneskjur. Kviknaði í jólatrés-
skrautinu og læsti eldurinn sig um
allt húsið að innan, svo að við ekk-
ert varð ráðið. Fórust þarna 4 börn
í brunanum og 2 gamlar konur, en
auk þess skaðbrenndust allmörg
börn og önduðust 2 þeirra síðar af
brunasárum og auk þess 1 kona.
Hafa því alls farizt 9 inanns af
völdum eldsins, auk þeirra er liggja
í brunasárum.
Er þetta hörinulega slys sárara
en tárum taki.
Tunnuefni ei- væntanlegt til Akur-
eyrar með Súðinni snemma í þessum
mánuði. Alþingi heimilaði ríkisstjóyn-
inni að ábyrgjast allt að 150 þús. kr.
lán fyrir bæinn til reksturs tunnuverk-
smiðjunnar í vetur. Er því gert ráð
fyrir að tunnusmíðið geti hafizt um
miðjan janúar.
Barnastúkan »Samúð« heldur fund
sunnudaginn 6. jan. kl. 1%. Inntaka
nýrra félaga o. m. fl. «— B-flokkur
skemmtir. Komið öll k fundl
Stjðrnu apótek K. i A.
Hin nýja lyfjabúð K. E. A., sem
hlotið hefir nafnið Stjörnu apótek,
var opnuð fyrir almenning í morg-
un. Er það fyrsta lyfjabúð, sem
stofnað er til á samvinnugrundvelli,
ekki aðeins hér á landi, heldur á
öllum Norðurlöndum.
Lyfjafræðingur sá, sem veitir
hinni nýju lyfjabúð forstöðu, heitir
Holger Mikkelsen; er hann danskur
maður, en talar islenzku reiprenn-
andi.
Á nýjársdag var læknum bæjar-
ins, blaðamönnum og nokkrum
fleirum boðið að skoða stofnunina.
Luku læknarnir lofsorði á hana og
töldu apótek þetta eitt hið full-
komnasta og prýðilegasta, er til
væri hér á landi og jafnvel þó víðar
væri leitað.
Kantötukór Akureyrar. Söngæfing í
Zíon föstudagskvöld kl. 8,30.
NÝJA-BÍÓ BM
sýnir (östudagskviHd 3. p. m. kl. 9:
Bjacteyg.
Tal- og hljómmynd í 10 þátlum.
Aðalhlutverkið leikur :
Shirlejj Temple, B
lilla telpan ameríkanska.
Skemmtileg og spennandi
mynd fyrir unga og gamla.
Laugardagskvöld kl. 9:
Continentat
með sinum fjörugu og fall-
egu dönsum.
Sunnudagskvöld kl. 9:
Bjarteyg.
Bílitjóraverkfallinu
i Iteykjavík og Hafnarfirði aflýst.
Bílstjóraverkfallinu var aflýst kl.
6 árdegis á gamlársdag eftir sam-
eiginlegan fund bílstjórafélaganna í
Reykjavík og Hafnarfirði. Er þetta
alger uppgjöf verkfallsmanna, jiví
verkfallið var hafið í þeim tilgangi
að kúga ríkisstjórnina til þess að
afnema hækkunina á benzinskattin-
um eða iáta hana ekki koma til
framkvæmda. Verkfallið var hafið
rúmri viku áður en lögin öðluðust
gildi og upphafið einum degi áður
en lögin komu til framkvæmda.
Að vísu var þetta tiltæki ekki
verkfall í venjulegum skilningi,
heldur uppreisn og ofbeldi gegn
lögum og stjórnarvöldum. Er því
vel farið, að verkfallið fékk þenna
enda.
Verkfallsmenn telja aflýsinguna
byggða á því, að hlutafélagið Nafta
liafi fengið leyfi til innflutnings á
pólsku benzíni. En hækkunin á
benzínskattinum stendur óhögguð.
Eitt hefir þetta bílstjóraverkfall
leitt í ljós, sem er eftirtektarvert.
Hin látlausu samfylkingartilboð
kommúnista hafa loks hlotið bæn-
heyrslu hjá nazistadeild Sjálfstæð-
isflokksins, því koinmúnistar og
nazistar stóðu hlið við hlið í þeim
skemmdarverkuin, sem ætlað var
að framkvæma með bílstjóraverk-
fallinu.
Hér eftir vita menn því, að þessir
tveir ofbeldisflokkar eru reiðubúnir
að taka höndum saman til ofbeld-
isverka. Sú vitneskja er nokkurs
virði og lærdómsrík fyrir landslýð-
inn. ;
Hiál'præ&isherinn. Fimmtudag 2. jan-
úar kl. 8% opinber jólatréshátíð. Kaffi
og kökur, inng. 25 aura. Laugardag 4.
jan. JólatréshátíÖ í Glerárþorpi. kl. 3.
Sunnudag kl. 10% bæn, kl. 2 sunnu-
dagaskóli og kl. 8% opinber samkoma.
Allir velkomnir.
J ólatrésskemmtun. B amastúkurnar
»Sakleysið« og »Samúð« halda jólatrés-
skemmtun fyrir félaga slna í Sam-
kömuhúsi bæjarins laugardaginn 4.
jan., eí hefst kl. 5 e. h. stundvjslega.
Aðgöngumiðar verða afhentir í stúku-
stofunni í Skjaldborg á föstudag kl. 5
—7, og' er þess óskað að allir félagar
sæki þá þangað og greiði það sem þeir
skulda í stúkunni um leið, ef eitthvaö
er. — Skemmtunin or aðeins fyrir
stúkufélaga.
Dánardxgwr. Á jóladagsmorguninn
andaðist hér $ bænum Hallfríður Egg-
ertsdóttir Guðmundssonar, smiðs, 23
ára að aldri, myndarstúlka, vel látin,
l?anameinið voru berklar.