Dagur - 02.01.1936, Blaðsíða 2

Dagur - 02.01.1936, Blaðsíða 2
2 D AGIIR 1. tbl. Oddur Björnsson kjöcinn heiðursborgarí prentmeistari Akureyrarbæfar. Bæjarstjórn Akureyrar hefir á fundi sinum 28. desember síðastliðinn kjörið Odd Björnsson prentmeistara heið- ursborgara Akureyrarbæjar með svolát- andi fundarályktun: »Bæjarfulltráunum er það Ijóst, að hinn mesti heiður, sem bæjarlélagið getur í té látið, megi þeim einum hlotnast, sem verið heflr öðrum til fyrirmyndar, og með störfum sínum unnið bæjarfélag- inu svo mikið gagn og sóma, að ætla megi samhuga vilja allra góðra íbúa bæjarins, að honum verði auðsýndur hinn fyllsti vottur virðingar og þakk- lætis. Herra prentmeistari Oddur Björnsson hefir uin þriðjung aldar dvalið á Akureyri, rekið þar prentiðn og bókaútgáfu við ágætan orðstír. Auk þess hefir hann safnað bókum alla æfi, helgað því starfi tómstundir sfnar og umhyggju, og loks sýnt þá höíðinglegu rausn, að gefa Ak- ureyrarbæ bókasafn sitt, frábært að verðmæti, með fögru fyrirheiti um mikla tjárupphæð, þvi til viðhalds og eflingar. Um leið og bæjarstjórnin gerir sér þetta allt fyllilega ljóst, telur hún sér sæmd að því og er einhuga um, að herra prentmeistari Oddur Björnsson sé kjörinn heiðursborgari Akureyrarbæjar, þar sem hann hefir með störfum sinum veriðöðrum til fyrirmyndar, sýnt fágæta fórnarlund og gjafmildi, og lagt fram krafta sina alla, samborgurum sinum, öldnum og óbornum, til þroska og menningar. Bæjarstjórn Akureyrar: fón Sveinsson. Steinn Steinsen. Sig. Ein. Hlidar. J. Frlmann. Brynleifur Tobiasson. Helgi Pálsson. fóhs. fónasson. Steingr. Aðalsteinsson. Erlingur Friðjónsson. Stefán fónasson. fón öuðmundsson. Þorsteinn Þorsteinsson.« ★ ★ * Áður hefir þremur mönnum hlotnazt sá heiður að vera kjörnir heiðursborgar- ar Akureyrar: Matthias Jochumsson skáld árið 1920, Finnur Jónsson prófes- sor árið 1928 og pater Jón Sveinsson árið 1930. Samvinna vinstri flokkanna I Húsavík. í vetur — 17. nóvember — fór fram aukakosning á einum manni í hreppsnefnd Húsavíkurhrepps. Kosningu hlaut Sigurður Kristjáns- son, starfsmaður hjá Kaupfélagi Þingeyinga. Hann er í félagi Jafn- aðarmanna í Húsavík og ákveðinn samvinnumaður. Að kosningu Sig- urðar stóðu allir vinstri flokkarnir: Framsóknarmenn, Jafnaðarnrenn og Kommúnistar. Þessir flokkar — hver unr sig —■ hafa starfandi félög í þorpinu, og stjórnir félaganna undirrituðu 15. nóv. yfirlýsingu unr bandalag við kosninguna. 1 yfirlýs- ingunni voru tekin fram nokkur at- riði, er félagsstjórnirnar telja að flokkarnir eigi að geta unnið sanran að, og geri eðlilegt að þeir kjósi saman að þessu sinni, þegar aðeins var um eins manns kosningu að ræða. Löngu fyrir 15. nóv. höfðu Fram- sóknarfélagið og Jafnaðarmannafé- lagið ákveðið kosningabandalag sín á tnilli og komið sér saman um að kjósa áðurnefndan mann. Fékkst samkomulag unr þennan mann, af því bsöði Framsóknarnrenn og Jafn- aðarmenn töldu sig eiga ítök í skoðunum hans. Ekki höfðu þessi félög talið ástæðu til að gera skrif- lega samstarfsskrá, enda hafa full- trúar þessara flokka lengi átt sam- leið í sveitarstjórn Húsavíkur, þótt Framsóknarflokkurinn hafi átt þar fleiri fulltrúa, og því haft þar meiri ráð. Kommúnistar höfðu frá því I september leitað »samfylkingar« bæðl við Fifamsóknarféjsgið og Jafnaðarnrannafélagið, en ekki orðiö ágengt. Hvorttveggja var, að úrslit kosningar þóttu örugg án þeirra stuðnings, og einnig hitt, að þeh vildu fá undirritaða aljkomnrúnist- íska yfirlýsingu unr samstarfið . (þessa yfirlýsingu — hið svokall- aða »Samfylkingartilboð« — hafa þeir látið birta í blöðunr flokks síns). En 15. nóv. var í ljós komið, að Sjálfstæðisflokkurinn, setn engan veginn treysti sér til að etja kappi fyrir sinn eigin fulltrúa í kosning- unni, var farinn að beita sér fyrir að kosinn yrði formaður Jafnaðar- mannafélagsins, Þórður Eggertsson, og hugðist með því kljúfa Jafnað- artnannafélagið og vekja ágreining um kosningu Sigurðar Kristjánsson- ar, sem Sjálfstæðismenn prédikuðu að yrði eingöngu fulltrúi fyrir Kaupfélag Þingeyinga og Framsókn í hreppsnefndinni, en ekki fulltrúi Jafnaðarmanna. Munu Sjálfstæðlsinenn að líkind- um hafa gert sér einhverjar vonir um beinan eða óbeinan stuðning Kommúnista, reiknað með því, að Kommúnistar hafa fjandskapazt við Kaupfélag Þingeyinga, sem sterk- asta andstöðuvígið í þorpinu. Með þessu segi ég ekkert um það, að þessar vonir mundu hafa rætzt og Jafnaðarmenn virtust ör- uggir. En þegar hér var komið, datt mér í hug, að réttast væri að sýna Sjálfstæðisflokknum, að þegar á reyndi gætu allir vinstri flokkarnlr staðið saman á móti honum, og beitti mér þessvegna fyrir því, að kosningabandalag var gert þá sam- stundis við Kommúnista. Var það á þann hátt gert, að samstarfsyfir- lýsing var samin og stjórn Komm- únistafélagsins boðið að sktifa und- ir hana með sfjórnum hinna félag- anna, og gekk hún inn á það, enda höfðu kommúnistar áður leitað fast eftir samstarfi um kosninguna — eins og fyrr segir — boðið að styðja Framsóknar- eða Jafnaðar- menn, en viljað þá að öðru leyti ráða miklu um skilmála. Geta má þess, að ég hygg, að formaður Jafnaðarmannafélagsins, Þórður Eggertsson, hafi gengið — svo hiklaust sem hann gerði — til bandalags við Kommúnista, af því hann vildi sýna óbeit sína á stuðn- ingi þeim, er Sjálfstæðismenn vildu veita honum — og hann gat ekkert að gert, frekar en heiðvirður maður fær við því gert, þó hann verði fyrir nærgöngulli ástleitni léttúðugrar konu. Ekki þótti okkur Framsóknar- mönnum né Jafnaðarmönnum þetta svo merkilegur viðburður, að við færum að rita um hann í blöðin. En kommúnistar birtu strax samstarfs- yfirlýsinguna í sínum blöðum •— og viðþaðhefði ekkert verið að athuga, ef fylgt hefðu réttar frásagnir og skýringar. En svo var ekki. Einkum ber á ósannindum í framhaldsum- ræðum hjá blöðunum sjálfum og verður ekki við því þagað lengur. »Verkamaðurinn« 30. nóv. deilir við »Alþýðumanninn« um »sam- fylkinguna«, sem hann (Vm.) kall- ar. Segir hann þar m. a.: »En hitt vita þeir, sem til þekkja, að á Húsa- vík er kjörfylgi Kommúnistaflokks- ins álíka mikið og hinna flokkanna beggja (þ. e. Framsóknar- og Jafn- aðarmanna) og að þótt óvíst væri um kosningu fulltrúa hans við þessa hreppsnefndarkosningu. var þess- vegna jafn óvist um kosningu sam- eiginlegs fulltrúa fiinna beggja«. ■HHWWiWWfHWWfW | Sjafnar-vörur. «Baðsápa, Gólfáburður, Handsópa, Skóáburður, Baðsápa, Handsópa, Sólsápa, Stangasápa, Krystalssápa. Gólfáburður, Skóáburður, Tannkrem, Næturkrem, Dagkrem o. fl. Notið Sjafnar-vörur. i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.