Dagur - 20.05.1936, Blaðsíða 1
DAGUR
semur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðsian
er hj& JONI Þ. ÞÖR.
Norðurgötu3. Talsími 112
Uppsögn, bundin við &ra-
mót, sé komin til af-
greiðslmnanns fyrir 1, de6.
XIX.
ár. |
Akureyri 20. maí 1936.
21. tbl.
K.E.A. undirbýr
stofnun
kornrækfarbús.
Síðasti aðalfundur K. E. A. sam-
þykkti meðal annars eftirfarandi til-
lögu, er fram var borin af Vilhjálmi
Þór:
»Fundurinn ályktar að skipa skuli
5 manna nefnd, til þess að athuga
ásamt með stjórn félagsins, hvort
tiltækiiegt sé, að Kaupfélag Eyfirð-
inga komi upp kornræktarbúi í
Eyjafirði, eða á hvern hátt annan
félagið geti unnið að aukinni korn-
rækt i héraðinu. Verði nefndin og
stjórnin sammála um hvað gera
skuli í þessu máli, heimilast stjórn-
inni að hefja framkvæmdir«.
I nefndina voru kosnir:
Ölafur Jónsson, framkvæmdastj.
Kristján Sigurðsson, kennari.
Halldór Guðlaugsson, Hvammi.
Stefán Stefánsson, Fagraskógi.
Björn Jóhannsson, Laugalandi.
Þann 27. marz sl, kom nefndin
saman og tók málið til athugunar
og umræðu. Lagði hún síðan álit sitt
fyrir kaupfélagsstjórnina. Var úrslit-
um málsins þá frestað að sinni, en
kosin þriggja manna undirnefnd tii
þess að gera ákveðnar tillögur í
málinu. I undirnefndina voru kosn-
ir: Ólafur Jónsson, Kristján Sig-
urðsson og Ingimar Eydal.
Eftir að undirnefndin hafði lokið
störfunr, var 17. apríl sl. haidinn
sameiginlegur fundur kaupfélags-
stjórnarinnar og nefndarinnar. Var
þar gengið frá málinu með sam-
þykkl svohíjoðandi ályktana í <-inu
hljóði:
a) Kaupfélag Eyfirðinga stofn-
setji og starfræki eitt kornyrkjubú á
hentugum stað í Eyjafirði og hefji
undirbúning þegar á komandi sumri
Fræðslulög þau, sem Alþingi hef-
ir nú sett, hafa að geyma ýms
merkileg atriði, enda mikið undir-
búningsstarf leyst af hendi, áður en
til kasta þingsins kom.
Undirstaða allrar bóklegrar
menntunar er að sjálfsögðu lestrar-
kunnátta. Nú er það staðreynd, að
heimilin eru þess ekki megnug yfir-
leitt að veita börnum nægilega
fræðslu í þessu undirstöðuatriði eða
þannig, að búið geti hafið kornrækt
vorið 1937.
b) Til þess að stofnsetja korn-
yrkjubúið, kaupi Kaupfélag Eyfirð-
inga jörð eða hluta úr jörð, er hafi
nægilega mikið af hentugu landi til
kornyrkju og sé vel sett við sam-
göngum.
Þá hafði nefndin reynt að gera
sér nokkra grein fyrir stofnkostnað-
inum við að koma kornyrkjubúinu
á fót, og komst hún að þeirri niður-
stöðu, að hann mundi verða um 27
þúsund kr. alls. Þessum stofnkostn-
aði ætti að mega dreifa á 3—4 ár,
og á sama tíma ætti að rnega gera
ráð fyrir nokkrum hagnaði af rekstr-
inum, ef kornyrkjan gengur sæmi-
lega, og áætlaði nefndin Iauslega
þann hagnað 4—5 þús. kr.
Næsta undirbúningsatriði var þá
að sjá kaupfélaginu fyrir landi til
kornræktar. Svo stóð á, að jörðin
Klauf á Staðarbyggð, sem er nálægt
10 km. fyrir framan Akureyri, var
laus til kaups og ábúðar á þessu
vori. Eftir að athugaðir höfðu verið
staðhættir til kornyrkju á jörð þess-
ari og komizt hafði verið að þeirri
niðurstöðu, að þeir væru hentugir til
slíkra framkvæmda, var snúið að
því ráði að kaupa jörð þessa, til
þess að reka þar hið fyrirhugaða
kornyrkjubú K. E. A., og kaupsanm-
ingur gerður.
í sumar hefjast svo framkvæmdir
á Klaufarlandi, landið brotið og girt
og að öðru leyti búið undir korn-
yrkju næsta feumar.
Munu allir framfaravinir. óska
þess, að þessar kornyrkjufram-
kvæindir K. E. A. megi verða merk-
ur þáttur í landbúnaðarsögu Eyja-
fjarðar.
annari fræðslu. Þess vegna hvílir
fræðslustarfið nú orðið nær ein-
göngu á skólunum. Þegar þess er
gætt, að börnin koma lítt eða ekki
læs í skólana, þó að aldur þeirra
leyfi það eða öllu heldur krefjist
þess, þá er auðvitað, að slíkt kunn-
áttuleysi verður slæmur þröskuldur
á námsbraut þeirra alla skólaveruna
út.
(Pramh, á 4. síöu).
Barnaskóla Akureyrm va.r slitið 16.
þ. m. kl. 2 e. h. Skólastjóri gaf skýrslu
um störf skólans á liðnum vetri. Skól-
ann sóttu 445 börn og var þeim skipt í
18 deildir. Árspróf tóku 338 börn og'
fuUnaðarpróf 82 börn, en inntökupróf
64, og vantar til prófs samkv. manntali
um 30 börn. 4 börn, sem fullnaðarpróí
tóku, höfðu ágætiseinkunn, 59 börn
höfðu 1. einkunn, og 19 aðra einkunn.
Hæsta einkunn var 9.62. Börnin drukku
nál. 5000 1. af mjólk og 2 tunnur af lýsi
og hækkuðu að meðaltali um 2.1 sm. og
þyngdust um 2 kg. Aurasjóðurinn er nú
um 2000 kr. Fjarvistir voru óvenju
miklar vegna lasleika, er virtist stafa af
afleiðingum mænuveiki og kíghósta frá
sl. sumri. Þrifnaður bama hefir batn-
að. Handavinnusýning á vinnu bam-
anna var opin 10. þ. m. og sótti hana
fjöldi fólks. Sömuleiðis var til sýnis
uppsagnardaginn allskonar vinna í
kennslustofunum, teikningar, leður-
vinna, útskurður, o. fl., auk skriftar frá
í haust og vor.
Eins og áður hefir verið frá skýrt,
telja ítalir sig hafa gjörsigrað í
stríðinu við Abessiníu. Mussolini
vill færa sér sigurinn í nyt og inn-
iima Abessiníu sem hluta af ítalska
ríkinu. Hraðaði hann yfirlýsingu um
þetta sem mest, áður en fundur
Þjóðabandalagsráðsins kom saman
og sýnir það, að hann hefir búizt
við mótstöðu úr þeirri átt. Musso-
lini gaf yfirlýsinguna af svölunr
hallar sinnar frammi fyrir hundruð-
um þúsunda mann^, sem safnast
höfðu saman á torginu framan við
höllina og milljónir manna höfðu
safnazt S'aman um land allt, til þess
að hlýða á boðskap leiðtogans í
gegnum hátalara.
Flutti þá Mussolini þann boð-
skap, að framtíð Abessiníu væri á-
kveðin á þann veg, að lönd Abessi-
níu og þjóðir þær, senr þau byggja,
væri undir fullum yfirráðum ítalíu-
konungs og að hér eftir bæri hann
titilinn Abessiníukeisari, og gengi sá
titill í erfðir til ríkserfingja hans. 1-
talía væri því loks orðin stórveldi.
Þá tilkynnti Mussolini, að landstjóri
mundi settur í Abessiníu, með und-
nýja-bíó mm
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Kristín Svísdrottning
Stórfengileg og hrífandi kvik-
mynd með
Greta Garbo
í aðalhlutverkinu.
Aldrei hefir GRETA GARBO
tekist betur en að leika KRIST-
lNU drottningu.
Hún valdi sjálf efni mynd-
arinnar, eftir að hafa kynnt
sér sögu hinnar frægu drottn-
ingar á söfnum í Stokkhólmi,
sögu, sem henni var löngu
hjartíólgin, enda hefir hún
I gert hana ógleymanlega með
I snilldarlegum leik sínum í
þessari ágætu mynd.
irkonungsnafnbót, og að Badoglio
marskálkur mundi verða skipaður
fyrsti vísikonungur i landinu.
Nú víkur sögunni að fundi Þjóða-
bandalagsráðsins í Genf.
Fulltrúi ítala, Aloisi baron, krafð-
ist þess, að deilan milli ftalíu og
Abessiníu yrði tekin út af dagskrá
og fulltrúa Abessiníu neitað um sæti
á fundinum, þar sem Abessinía væri
nú aðeins hluti af ítalska ríkinu.
Þegar þessari kröfu var neitað,
stökk fulltrúi ftala af fundi.
Með neitun sinni hefir Þjóða-
bandalagsráðið lýst yfir því, að það
viðurkenni ekki innlimun Abessiníu f
ítalíu.
Fulltrúi ítala kom þó síðar á
fundinn og mótmælti setu Abessi-
níufulltrúans og neitaði að sitja við
sama borð og hann. En þegar mót-
mæli hans voru að engu höfð, rauk
Aloisi barón enn á dyr.
Fulltrúi Abessiníu tók það fram,
að það væri ekki hann, sem ætti að
banna þingsetu, því að Abessinía
hefði ekki rofið neina samninga,
heldur hefði þvert á móti verið ráð-
izt á hana að ósekju.
Messað á uppstigningardag á Akur- Sunnudaginn 24. þ. m. í Lögmanns-
eyri kl. 11 f. h. og kl. 2 e. h. Ferming í hlíð kl. 12 á hádegi. Ferming.
hft'ði skiptin.
Nýjn Iræðslulögin.
Að utan.
Mussolini ftnnlimar Abessiniu.
Þfóðabandalagið neifar.