Dagur - 17.09.1936, Síða 4

Dagur - 17.09.1936, Síða 4
160 D AGU R 38. tbl. Ritfregnir. Árbók Hins íslenzka Fornleifa- félags fyrir árin 1933—36 er ný- lega komin út í vönduðum bún- ingi. Fyrsta grein heftisins: „Sýsla. Sýslumaður“, er eftir Finn heitinn Jónsson prófessor, og er einskonar skýring á nöfnunum 1 yfirskrift- inni. Skúli Guðmundsson frá Keldum ritar „Athugasemdir um landnám á Rangárvöllum og i Fljótshlíð“, mjög fróðlega grein. Önnur grein um sama efni hefir yfirskriftina „Engá“. Þá er og þarna smekkleg grein um „Ör- nefni í Þríhyrningi“, eftir Helgu Skúladóttur frá Keldum. — Forn- minjavörður Matthías Þórðarson, ritstjóri Árbókarinnar, skrifar prýðilega skemmtilega ritgerð um „Rannsóknir nokkurra forndysja“, og aðra ritgerð, sem ekki er síðri, er hann nefnir „Tvö Grettisbæli“. Er sú ritgerð skrifuð um rann- sóknir, er gerðar hafa verið í til- efni af því, að Fornritafélagið er að undirbúa hina nýju útgáfu af Grettissögu. — Einar Eiríksson frá Hvalnesi ritar um „Fornminjar á Hvalnesi í Lóni“, og um „Minjar um fjórðungsþing í Lóni“, fróð- legar og merkilegar greinar. — Jóh. Gunnar Ólafsson á þarna grein um „Kirkjurnar í Vest- mannaeyjum“. — Magnús Frið- riksson frá Staðarfelli skrifar um „Arnarbæli“, ágæta örnefnarit- gerð. — „Örnefni á Flóa- og Skeiðamannaafrétti“, eftir Þorst. Bjarnason, og „Örnefni á afrétti Hrunamannahrepps“, eftir Guð- jón Jónsson, heita tvær næstu rit- smíðar. — Þá skrifar Ólafur pró- fessor Lárusson ritgerð um „Nokkur byggðanöfn". — Næst koma ritgerðir um „Örnefni á Austur-Bleiksmýrardal“, eftir Sig- urð Draumland, og „Örnefni á Að- albólsheiði“, eftir Benedikt Jóns- son. — Að lokum eru skýrslur Fornleifafélagsins. Árbókin er rúmar 140 blaðsíður í stóru broti, prentuð á vandaðan pappír, með fögru letri. Hún flyt- ur feykilega mikinn menningar- sögulegan fróðleik, íslenzkan, og ættu menn að sjá sóma sinn í að styðja hið fátæka og fámenna, en svo afarþýðingarmikla félag, sem gefur hana út. Árstillag er aðeins þrjár krónur. S. Dr. Iðunn, 19. árg. 1936, 1.—2. hefti, er komin út eftir eins árs hvíld, því ritið kom ekki út síðastl. ár. Efni þessara tveggja hefta er sem hér segir: Stefán Einarsson: Þorgils gjall- andi (með mynd). — Jakob Thor- arensen: Forboðnu eplin (saga). — Alf Ahlberg: Þýzku miðstétt- irnar og þjóðernisstefnan. — Jón Leifs: íslenzk menntastefna. — Otto Rung: Töflurnar (saga). — Halldór Kiljan Laxness: Trúmála- umræðurnar. — Ólafur Jóh. Sig- urðsson: Á leið suður (saga), — Iðnskóti Akureyrar verður settur 15. okt. n. k., kl. 8 síðdegis. Eins og að undanförnu tekur alþýðudeild skólans við fólki til náms í íslenzku, dönsku, ensku, reikningi og bókfærslu gegn mjögsanngjörnu skólagjaldi. Fæst þar hentug kennsla fyrir unglinga, sem bundnir eru störfum að deg- inum að meira eða minna leyti. Far sem húsrúm er takmarkað, ættu menn að tala sem fyrst við undirritaðan, er gefur allar nán- ari upplýsingar um skólann. — Til viðtals í Hamarstíg 6, simi 264. Jóliann Frímann skólastjóri. K v a r t e t t-k ó r. Þeir karlar og konur, sem vilja stofna ferfaldan kvartett-kór, eru beðnir að gefa sig fram við Robert Abraham, Krabbastig 4, sem fyrst, helzt næstk. laugardags- eðamánudags- kvöld kl. 7,30 — 9. K e n n s 1 a. Eg byrja nú þegar að kenna þýzku, píanó- og harmoniumleik, einnig tónfræði. Einkatímar og bópkennsla. — Eágt verð. — Til viðtals í síma nr. 247 kl. 7,30— 8 síðd. Robert Abraham Skór úr gúmmí og annar úr rúskinni töpuðust á Akureyri 8. sept. s.l. — Finnandi beðinn að skila þeim í matvörudeild K.E.A. Georg Gretor: Upphaf fasismans. — Valdís Halldórsdóttir: Ferðalag. — Bergsveinn Skúlason: Okur. — Jóhannes úr Kötlum: Enn glímir Jakob við Jehova. — Björn Páls- son og Þorbergur Þórðarson: „Með strandmenn til Reykjavíkur“. — Enn eru í þessum heftum Iðunnar ritdómar eftir Stefán Einarsson, Kristinn E. Andrésson og Árna Hallgrímsson, og kvæði eftir Jón Þórðarson, Sigurjón Friðjónsson, Guttorm J. Guttormsson, Guðm. E. Geirdal, Sigurð Jónasson, Jón Helgason og Jónas Jónasson. Hjáljyræðisherinn hefir sína tvo blómadaga föstudag og laugardag þ. 18. og 18. þ. m. Vinsamlegast styðjið starf vort með því að kaupa blóm af þeim sem selja £ götum og í húsum. Það mun verða tækifæri til þess að kaupa blóm við hús Hjálpræðishersins. Söng- ur og hljóðfærasláttur. Öllu því sem kemur inn mun verða varið til þess að borga skatta hússins. Kapteinninn. Síldaraflinn. Síðastl. laugardagskvöld vai- búið að salta á öllu landinu tæp 232 þús. tunnur síldar. Af því voru rífar 1!) þús. tn. Faxaflóasíld. Sigurður Nordal prófessor varð fimmtugur 14. þ. m. Hann er af öllum viðurkenndur sem einn af allra fremstu fræði- og vísindamönnum þjóðarinnar og Háskólanum til mikils sóma. Skólar Verzlun mín er og verður vel birg af af öllum skólavörum og námsbókum, sem notað er við kennslu í hverskonar skólum. — Snúið yður til sérverzlunar þegar þér gerið innkaup til skóla, þar er mest úrval og verðið lægst. Bókaverzl. P Thorlacius. E.s. NOVA fer frá Bergen þann 26. þ. m. í síðustu ferð til Islands á þessu ári. — Allir heiðraðir viðskiftavinir mínir, sem ennþá eiga eftir innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir yfrstandandi ár, á: Matvörumflífóðurvörum ættu að láta mig vita sem allra fyrst, svo hægt sé að nota þessa ferð. Umboðsmaður fyrir: A.s. P. G. RIEBER & SÖN, Bergen, Valgarður Stefánsson, ------------s í m i 3 3 2. ---------- „Kampóla" heitir raksápan, sem þeir vandlátu nota. — Ef þér eruð skeggsár og viljið nota góða raksápu þá notið „K a m p 6 I a“. Sverasta og erfiðasta skeggrót beygir sig í auðmýkt fyrir „K a m p ó 1 a“. — Sápuverksmiðjan Sjöfn framleiðir „KampóIa“ Ein stola með eldunarplássi óskast 1. okt. — Prenlsmiðjan vísar á. Borðsalt. Ódýrasta og bezta borðsaltið í 25 aura pökkum fæst í Etliílfla, Nýlenduvörudeild. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Rcy ht Ysa, Sild, 4tegunðir, Lax. Kjötbúð REÁ. Prentsmiðja Odds Björnssonar,

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.