Dagur - 24.09.1936, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. ' Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. jútí.
XIX
t t -#
. ár. ]
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri 24. september 1936.
39. tbl.
Klofið búnaðarþing
Búnaðarþing það, sem háð var
í Reykjavík fyrir nokkrum dög-
um, klofnaði í meiri og minni-
hluta um það, hvort Búnaðarfélag
íslands skyldi taka að sér fram-
kvæmd jarðræktarlaganna, með
þar til settum skilyrðum. Vildi
minni hlutinn að gengið yrði að
skilyrðunum, en meiri hlutinn
neitaði. í minni hlutanum voru
þessir 5 fulltrúar:
Jón Hannesson, Deildartungu.
Kristinn Guðlaugsson, Núpi.
Jón H. Fjalldal, Melgraseyri.
Sigurður Jónsson, Arnarvatni.
Björn Hallsson, Rangá.
í meiri hlutanum voru:
Magnús Friðriksson, Staðarfelli.
Jakob H. Líndal, Lækjamóti.
Jón Sigurðsson, Reynistað.
Ólafur Jónsson, Akureyri.
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum.
Magnús Finnbogason, Reynisdal.
Guðm. Þorbjarnarson, S.-Hofi.
Páll Stefánsson, Ásólfsstöðum.
Magnús Þorláksson, Blikast.
Allir meirihluta-mennirnir munu
tilheyra Sjálfstæðisflokknum og
varaliði hans.
Samkvæmt þessum úrslitum
búnaðarþingsins tekur ríkið að sér
framkvæmd jarðræktarlaganna, en
Alla síðastl. viku hafa fregnir
verið að berast um manntjón og
skaða af völdum ofsaroksins, er
gekk yfir mikinn hluta landsins
aðfaranótt 16. þ. m. í síðasta blaði
var frá því skýrt að franska haf-
rannsóknaskipið „Pourquoi pas?“
hefði farizt undan Mýrum með
allri áhöfn, að undanteknum ein-
um manni. Á skipinu var 40
manna áhöfn, þar á meðal hinn
heimsfrægi hafrannsóknamaður
dr. Charchot, sem starfað hefir að
hafrannsóknum í íshöfunum í
fjöldamörg ár. Nokkrir aðrir vís-
indamenn fórust þarna með skip-
inu. Fundizt hafa á land rekin 22
lík og hafa þau verið flutt til
Reykjavíkur og franskt herskip
komið þangað, sem flytur líkin
heim til Frakklands.
En því miður var þetta ekki
eina sjóslysið hér við land í sam-
Búnðarfélag íslands kemur þar
hvergi nærri.
Þessi niðurstaða meiri hlutans er
meðal annars eftirtektarverð í
sambandi við eitt atriði í forsögu
málsins.
Á Alþingi var allmikill ágrein-
ingur um það milli stjórnarflokk-
anna, hvort ríkið eða Búnaðarfél.
ísl. ættu að hafa með höndum
framkvæmd jarðræktarlaganna.
Sósíalistar héldu því fram, að rík-
ið sjálft tæki að sér framkvæmd-
irnar, en Framsóknarmenn vildu
að Búnaðarfél. ísl. hefði þær með
höndum, og höfðu þeir sitt fram,
að sósíalistum nauðugum. Nú er
það alkunnugt, að „Sjálfstæðið“
og varaliðið hafa mjög haldið því
á lofti, að það gengi glæpi næst,
að veita nokkru áhugamáli sósía-
lista nokkurn stuðning. En nú hef-
ir það einkennilega fyrirbrigði
gerzt, að fulltrúar á Búnaðarþingi
hafa með framferði sínu gengið í
lið með sósíalistum og þar með
svikið stefnu þeirra flokka, sem
þeir heyra til.
Sósíalistar eru þeim þakklátir
fyrir liðveizluna sér til handa og
svikin við stefnu íhaldanna
beggja.
bandi við ofviðrið. Norskt sel-
veiðaskip missti út 7 menn úti
fyrir Snæfellsnesi; drukknuðu 5
þeirra, en tveimur var bjargað.
Vélbáturinn „Einar“ frá Akureyri
sökk á leið til lands, en skipshöfn-
in bjargaðist í togara. „Dronning
Alexandrine“ var á leið frá Akur-
eyri til Siglufjarðar og mætti tog-
ara, sem hafði vélskipið „Brúna“
í eftirdragi með brotið stýri.
Tókst þá svo slysalega til, að
„Drottningin“ sigldi á „Brúna“ og
braut hann svo, að hann sökk
samstundis. Tveir skipverjanna
drukknuðu, en hinir björguðust
upp á þilfar „Drottningarinnar“.
Mennirmr, sem drukknuðu, 'voru
Edvard Solnes vélstjóri frá Akur-
eyri, kvæntur maður, 56 ára að
aldri, og Júlíus Sigurðsson mat-
sveinn, frá Grund í Svarfaðardal,
tvítugur að aldri.
Söguleg
háskólasetning.
Háskóli íslands var settur laug-
ardaginn 19. þ. m. af núverandi
háskólarektor, prófessor Níels
Dungal. Hafði hann boðið Haraldi
Guðm.undssyni kennslumálaráð-
herra að vera viðstöddum skóla-
setninguna, og þáði ráðherrann
boðið. í setningarræðu sinni réðist
rektor á ráðherrann út af veitingu
hans í prófessorsembætti í laga-
deild háskólans, en ráðherrann
hafði veitt embættið ísleifi Árna-
syni á móti vilja prófessoranna
við háskólann. Fór rektor hörðum
orðum um þessa veitingu. Að
ræðunni lokinni bað kennslumála-
ráðherrann um orðið, áður en
setningarathöfninni væri lokið, en
rektor neitaði. Að háskólasetning-
arathöfninni lokinni kvaddi ráð-
herrann sér hljóðs og flutti stutta
ræðu, þar sem hann lét í ljós
undrun sína yfir þessari fram-
komu rektors og átaldi hana. Er
búist við blaðahvelli út af þessu
atviki.
Tvo menn tók út af vélbátnum
„Gotta“ frá Vestmannaeyjum.
Náðist annar meiddur, en hinn
drukknaði. Bátur fórst frá Bíldu-
dal með þremur mönnum, og
arukknuðu þeir allir.
Vélbáturinn „Þorkell máni“ úr
Ólafsfirði var einn þeirra báta, er
úti voru í oí'viðrinu. Hefir ekkert
til hans spurzt og leit eftir honum
engan árangur borið. Er nú talið
fullvíst að hann hafi farizt. Á
bátnum voru 6 menn: Guðm.
Magnússon formaður, Ártúnum,
48 ára, lætur eftir sig konu og 1
barn. Jón Stefánsson, Ártúnum,
63 ára, ókvæntur. Óli Magnússon,
Tungu, 28 ára, lætur eftir sig konu
og 1 barn. Sigurbjörn Jónsson,
Hofi, 25 ára, lætur eftir sig konu
og 1 barn. Bergvin Jónsson,
Skeggjabrekku, 21 árs, ókvæntur.
Tryggvi Ólafsson, vélstjóri úr
Glerárþorpi, 28 ára, lætur eftir sig
konu og 2 börn. Allir hinir voru
úr Ólaísfirði.
Auk hins mikla mannskaða olli
ofviðrið feiknatjóni víðsvegar um
landið, bátar fuku og # brotnuðu
eða sukku á höfnum inni, þök
fuku víða af húsum og mannvirki
með ströndum fram stórskemmd-
ust af sjávarróti, mikið af veiðar-
færum týndist. Á Suður- og Aust-
urlandi fylgdi ofviðrinu hellirign-
Slysfarir og tfón af
TÖldum tárviörisins.
NÝJA-BÍÓ
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Njósnari
nr. 13.
Afarspennandi njósnara-
saga úr borgarastyrjöld
Bandaríkjanna. Tekin af
Metro-Cxoldwyn-Mayer. —
Aðalhlutverkin leika:
Garry Cooper 0g
Marion Davies
ásamt hinum heimsfrægu
Mills Brothers.
Börn innan 12 ára fá ekki aögano-
□ .*. Rún.
Pf.li •*. □
59369268
Kirkjan: Messað n. k. sunnudag kl.
2 e. h.
Þingkosningar eru nýlega um garó
gengnar bæði í Danmörku og Svíþjóð.
í Danmörku var kosið til Landsþings-
ins og urðu úrslit þau, að sósíalistar
sigruðu og náðu meirihluta með hlut-
kesti um þingmannssæti í Borgundar-
hólmi. Þessi kosningasigur sósíalista 1
Danmörku hefir það í för með sér, að
Landsþingið verður afnumið, þar sem
það þykir hafa verið hemill á umbótum
i landinu.
í Svíþjóð vann Alþýðuflokkurinn sig-
ur, bætti við sig 300 þús. atkvæðum og
vann 8 ný þingsæti. Hefir hann fleiri
þingmenn en borgaraflokkarnir til sam-
ans, en þó ekki meirihluta í þinginu,
þvi kommúnistar eiga þar nokkur þing-
sæti, en gert ráð fyrir að þeir styðji
sósíalista til stjórnarmyndunar eða
verði hlutlausir.
ing, svo vöxtur mikill hljóp í ár
og læki, sem olli miklum skemmd-
um, og skriður féllu á Austfjörð-
um. Óttast menn mjög, að þær
hafi orðið fénaði að bana.
Heyskaðar hafa orðið afskapleg-
ir í fárviðri þessu. Óþurrkar
höfðu gengið nokkurn tíma á und-
an norðanlands og því mikil hey
úti; fuku þau að mestu, jafnvel
100 til 300 hestar á sumum bæj-
um.
Að öllu þessu athuguðu er það
sýnilegt, að heildarskaðinn af
þessum náttúruhamförum er gíf-
urlegur.