Dagur - 01.10.1936, Blaðsíða 3

Dagur - 01.10.1936, Blaðsíða 3
40. tbl. DAGUR 167 bát sinn eða báta, veiðarfæri o. þ. h., enda eru bátar þar jafnan sett- ir inn 'eftir hverja notkun. Er þar allsstaðar góð bátavör með föstum hlunnum (festir undir hliðar- hleðsluna) alla leið úr flæðarmáli og að naustdyrum, og er létt að setja þurra og velhirta báta á smurðum hlunnunum. Iðulega, a. m. k. haust og vor, eru bátar skafnir vandlega og bikaðir á ný, og hefi ég séð þar áttrœða báta, sem ungir væru að útliti og öllum kostum. Þar eru menn hrœddir um hátana sína. Varast að stíga í súð, stökkva niður í hann, láta hann liggja í fjörugrjóti, höggva niðri e. þ. h. Það er einn allra sorglegasti vottur um rótgróinn skort verk- legrar menningar að geta sætt sig við ár eftir ár að setjast í sama ó- hirta og hripleka bátinn, án þess að hafast nokkuð að til endurbóta. Auk þess sem líf eins manns eða fleiri er oft og tíðum undir báts- skelinni komið. Og margt er feigð- ar-farið! — Sama sagan endurtekur sig um róðrarbáta víða með ströndum fram á íslandi. Og hirðuleysið nær einnig til trillubáta, vélbáta og smáskipa, og mun þangað mega rekja orsakir allmargra slysa, því miður. Ég held nærri því, að mér hafi fundizt bátnaustaskorturinn einna tilfinnanlegastur næst salerna- skortinum hörmulega, sem Guðm. prófessor Hannesson hefir ritað einna mest um og bezt. Á því sviði sést bezt, hve hið brothætta skurn nútímamenningarinnar er enn þunnt á oss íslendingum! — (Meira). Bystander. Vegavin í ReykjðdaL í vor og sumar hafa verið að birtast í nokkrum blöðum ýmsir pistlar um vinnudeilur hér í Reykjadal. En þar sem nafn mitt, og okkar Einarsstaðafeðga, hefir alloft verið nefnt í því sambandi — sem annars málsaðila — óska ég að mega leggja þar orð í belg. Um 20. júní sl. kom út fregn- miði á Akureyri að tilhlutun kommúnistablaðsins „Verkamað- urinn“, sem skýrði frá harðvítugri vinnudeilu, sem stæði yfir í Reykjadal. Verkfall var hafið og félag stofnað, sem leitaði aðstoðar verklýðssamtaka og Alþýðusam- bands íslands. Er auðheyrð sam- úðin með því að ofbeldi sé beitt til þess að koma málum fram og skorað á alla verkamenn á Akur- eyri að standa með þeim, sem þær aðferðir nota; ekkert tillit tekið til málavaxta. Síðar komu í kommúnistablöð- um feitletraðar frásagnir um vinnustöðvanir á Fljótsheiði, sigra verkfallsmanna o. þ. h. auðvitað ýkt og rangfært eins og þeim mál- gögnum virðist eiginlegast, og var auðheyrt að kommúnistar fylgdu þessu sem sínu máli. Þá kom í Al- þýðublaðinu grein eftir Sigurjón Friðjónsson á Litlu-Laugum um verkfall í Reykjadal. Var þar að- allega sagt frá þeim þætti máls- ins, er nokkrir menn tókust ferð á hendur til þess að heimsækja okk- ur, sem vorum að vegavinnu á Fljótsheiði, og gerðu sér til erind- is að tefja þar fyrir verki litla stund. Saknaði ég þess úr þeirri frásögn, að Fjallræður þær, er öld- ungarnir fluttu þar, skyldu ekki vera birtar, þó þær væru nokkuð í öðrum anda, en fjallræða meist- arans frá Nasaret sem geymzt hef- ir nærfelt 2000 ár. Helzt er að heyra á S. F., að verkfallið hafi verið framið í mót- mælaskyni við þingmann kjör- dæmisins, Jónas Jónsson, sem mjög hefir unnið að því, ásamt vissum mönnum hér í sveitunum, að viðhald veganna væri fram- kvæmt af sveitarmönnum, sem til skamms tíma var í höndum kaup- staðarbúa. Ekki er að skilja að hann viti neinar sakir á mig né menn þá, er með mér unnu, sem réttlæti það að til örþrifaráða hafi þurft að grípa til þess að reyna að hrekja mig frá því starfi, er mér hafði verið falið að framkvæma. í stað þess reynir hann að draga Jónas Jónsson inn í þessa deilu og telur orsökina þá, að hann hafi sýnt vilja til þess að rétta heimili í sveitinni hjálparhönd. Hér hlýt- ur S. F. að meina sitt eigið heimili, því vitanlega barðist J. J. manna mest fyrir því, að Alþýðuskóli Þingeyinga væri byggður á Litlu- Laugum og tilraun gerð til þess að nota laugarnar þar til upphit- unar og ýmiskonar þæginda — allt lánaðist það vel og hefir fært Litlu-Laugabóndanum. drjúgar tekjur í bú; þá mun J. J. m. a. hafa stuðlað að því, að S. F. væri veittur sérstakur skálda- eða rit- höfundastyrkur, svo segja má að þessi skrif hans séu framkvæmd með styrk frá því opinbera. En hvað þetta kemur þeirri árás við er S. F. og aðrir samherjar hans bófu á mig, mun fæstum skiljan- legt, og hefði vafalaust mátt sleppa því úr hans fréttabréfi að þessu sinni. Þá kemur nú hinn 20. ágúst grein í Degi með fyrirsögninni „Vinnudeilan í Reykjadal", eftir G. H. Mun þar vera nágranni minn á ferð, fyrrverandi brautar- stjóri, Glúmur Hólmgeirsson í Vallakoti. í byrjun greinarinnar er svo að skilja að hann vilji láta til sín heyra um þessi vegamál af sann- leiksást, og að hann einn „ekta Ludvig David“ geti sagt sögu málsins „frá upphafi til þessa dags“. Þegar ég las þessi orð G. H. datt mér strax í hug: Líklega byrjar hann þá hjá forfeðrum okkar, Kain og Abel, þar sem við höfum fyrstu frásögn um árangur af ofbeldisverknaði, sem framinn var vegna hins smámunalegasta metíngs og öfundar. Frá þeim tíma hefir sagan alltaf verið að endurtaka sig, ýmist í stærri eða smærri myndum, runnum frá sömu rót, að vinna sigur á með- bróður með hnefa og hæl. G. H. telur ástæðuna fyrir því, að þessi uppreisn á sér stað þá, að þeir, sem að henni stóðu, hafi ekki haft traust á mér til þess að tak- ast á hendur svo vandasamt starf, að stjórna brautarvinnu. Rétt er það, að ég leitaði ekki fyrirfram eftir trausti eða vantrausti þeirra manna, er ekki unnu hjá mér; en þessi ummæli G. H. hafa komið því til leiðar, að þeir menn, sem hjá mér unnu, hafa fundið ástæðu til þess að votta mér traust í yfir- lýsingu, er hér fylgir og er hún mér fyrir meiru en vantraustsyfir- lýsing G. H. En einmitt vegna þess að G. H. fer út á þessa braut, kemst ég ekki hjá því, að minnast á það, sem ég hefi heyrt um fortíð hans sem brautarstjóra. Á svipuðum aldri og ég stend nú, var G. H. veitt brautarstjóra- staða, ekki hefi ég heyrt þess get- ið að á honum hafi hvílt vantraust nokkurs manns þá og sjálfstraust- ið, sem enn virðist nokkuð, mun þá vart hafa vantað. En hvernig G. H. auðnaðist að halda trausti og virðingu í því starfi, vita allir Reykdælir a. m. k. Þar má líka enn sjá minnisvarða, síðasta hluta þess vegar, er hann veitti for- stöðu, hinn svokallaða „Glúms- stúf“, sem liggur út í foraðsmýri og óvissuna, þar sem hann endar sem tákn ráðleysis og ómennsku. Um það leyti var Hjálmari Jóns- syni falin verkstjórn við veginn og hefir G. H. fengið að hvíla sig heima í Vallakoti með sínar mæl- ingastengur og brautarstjóra- mennt. Síðan þetta skeði er nú víst liðið nokkuð á annan tug ára; álítur því G. H. máske, að minn- ingar frá þeim tíma séu að gleym- ast og deyja, „en orðstír deyr al- drei“, segir í Hávamálum og svo mun hér reynast enn. — G. H. fer í grein sinni að tilfæra umsagnir eftir Hjálmari Jónssyni um mig og ennfremur að segja úr „prívat“ samtali milli mín og hans, auðvit- að treystandi því, að hann þurfi ekki að bera ábyrgð á þeim orðum, en geti látið söguna berast — sam- anber söguna úr hænsnahúsinu hjá H. C. Andersen. Flestar frásagnir um þessi vega- mál snúast um deilur, sem hér hafi farið fram og endað með sigri verkfallsmanna, sem unninn hafi verið með aðstoð kommúnista á Húsavík og oddvita Reykdæla- hrepps. Ekki mun verða fundið eitt dæmi því til stuðnings, að deilan hafi átt sér stað í þeim vinnu- flokki, sem ég hefi sagt fyrir verk- um; en þó hinir óróasömu menn, ev heimsóttu okkur á' Fljótsheiði, þar sem við vorum að vinna í friði og spekt, rugluðu um ýms mál, sem ekki komu brautarvinnunni við, s. s. ungmennafélagsfor- mannskosningu o. þ. h., má það frekar teljast sveitarkritur og lýð- æsingar, en vinnudeilur. Og enga sök hafa uppreisnarmennirnir bor- ið fram á hendur mér eða nokkr- urs þess manns, er með mér var í verki. Og hver er svo sigur Reyk- dæla? Með símskeyti dags. 17. júní sl. var mér að fyrirlagi ráðuneytisins veitt verkstjórn við vegina í Aðal- dal og Reykjadal fram að Lauga- skóla, svo og Fljótsheiði. Aðgerð- um í Aðaldal og Reykjadal var þá lokið, en eftir nokkurra daga vinna á Fljótsheiði. í samtali, er ég átti við vegamálastjóra, var svo ráð fyrir gert, að vinnu þeirri yrði lokið á þriðjudagskvöld 23. júní, eða m. ö. o. siðari heimsókn- ardaginn, þegar mér á að hafa verið vikið frá. En að kvöldi þess dags sendir vegamálastjóri mér svohljóðandi símskeyti: „Sigfús Jónssori, Einarsstöðum. Haldið á- fram umbótum vegarins þessa viku.“ Fór ég þá milli manna hinn 24. júní og bauð vinnu, meðal annara G. H. og mörgum öðrum úr liði uppreisnarmanna. Enginn þeirra bar því við, að hann vildi ekki vinnu undir minni stjórn, en töldu vorannir við heimastörf hindra það, að þeir gætu sinnt brautarvinnu meira þetta vorið, enda höfðu þeir margri dýrmætri stundinni eitt undanfarna daga og nætur í undirbúning við hið fyr- irhugaða árásarstríð, sem fæstum af liðsmönnunum ber saman um í hvaða tilgangi hafi verið hafið. — Dagana 25., 26. og 27. júní vann ég svo á heiðinni með nokkrum mönnum án nokkurra mótmæla. í sumar hefi ég og annazt aðgerð- ir á þessum vegum, þar sem þeirra hefir verið þörf, og hefi ekki orðið þess var að skipun sú, sem út var gefin 17. júní, værx afturkölluð eða breytt. Hefi ég og enga ástæðu til þess að ætla að stjórnarvöld þau, er fólu mér þetta starf, fari að líkt og verk- stjórinn, sem vék mér frá flokks- stjórn án nokkurra saka, til þess eins að þóknast fáeinum rauðleit- um öfundssjúkum sálum, sem voru að verki á allt öðrum stað — í öðrum hreppi — og engin af- skipti þurftu að hafa af mínum vinnuflokk. Eg get því glatt G. H. og aðra hreinhjartaða nágranna mína með því, að ef mér endist líf og heilsa, vona ég að geta sem verkstjóri boðið þeim vinnu við vegavið- haldið hér í Reykjadal og á Fljótsheiði, svo þeir af eigin reynd geti borið um kosti mína og ókosti — ég vona að þeim sjáist ekki yfir hið síðarnefnda, en þurfi ekki að stjórhast af innblæstri og ímynduðum árásarefnum, sem hafa gert þá svo hvatvísa og fræga hið mikla styrjaldarár 1936, þegar borgarastríð brýzt út á Spáni og' hér í Reykjadal. Það skal tekið fram hvað Aðaldals- braut snertir, að ég tel sjálfsagt að hi’eppsbúar í Aðaldal sitji þar fyrir vinnu. Að lokum þetta til G. H.: Þar eð þessi mál virðast nú fyrst og fremst vera ómerkilegur nágranna- og sveitarkritur, held ég að færi vel á því, að við, sem vildum skeggræða hann frekar, stofnuðum sveitarblað. Það mætti t. d. heita „Brautarstjórnin“. Það mundi varla spilla fyrir að fleiri gæfu sig fram. Gæti svo útdráttur úr beztu ritsmíðunum ásamt sig- u rvinningafréttum haldið áfram

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.