Dagur - 08.10.1936, Síða 3

Dagur - 08.10.1936, Síða 3
41. tbl. DAGUR 171 Skilnaða rkoeðja við burtför Sieingríms héraðslœknis Maíthíassonar frá Akureyri. Flutt i samsœti á Akureyri 29. september 1936. Bliknar fróns feldur, fölnar dags eldur. Sígur haustfriöur af himni niður. — Sveiptur stjarn-ljósum og segulrósum glóir fjarðar-bœr friðsœll og kœr. Speglast leiftur-log í lygnum vog. Úti er kyrrt og hljótt, því að að fer nótt. En i gleðisal góðvinatal, setið að skilnaðsskálum og skemmti-málum. Þó er höfugt sinni í hugum inni, þeirra er hyggja á hag við hniginn dag. — Kvöldar og kólnar hér, þegar kveðjum vér mæring mjúk-ráðan og menntum fjáðan. Rík er minning hans — hins reynda manns, fróð hin forna rún um föður-tún. — Ungur lék hann sér, þar sem unum vér á fjarðar hleinum og fjörusteinum. Þá var þessi bœr þjóðvegi nær menntar, máttar og manndóms-háttar. — Út frá þeim arni, er ornaði barni fluttust frœgðar-órð um fjarlœga storð. Veittust frægðar-manni í foreldra ranni speki- og spádóms-orð við sparneytið borð. — Ei sú móðurást í mannraunum brást, er var þar að verki undir vizku merki. Brýndu unglings dug og arnfleygan hug fránar forn-glæður og föður ræður. — Fór að feðra líking í frœði-víking með mennta-þrá heita megins að leita. Hóf hann höndum tveim í hernaði þeim vizku veg-tama og virkan frama. — Unnin vona-gull — verðmæti full — bar hann að landi, — bætur við grandi. Of hann líknar-þáttu þeim er lítils máttu, bœtti sjúkra hag sí-strangan dag. Frœddi hollum greinum, — og heilsu-meinum bœgði bœnar-málum og blikandi stálum. Verðugt er að meta þá er vakað geta, fægt hin sollnu sárin og sefað tárin. — Lagði hann svefn og fjör við sjúkra kjör; — átti um áratugi alþjóðar hugi. Óskað er einum rómi að almanna dómi: ástir honum fáist og af alhug tjáist hylli heima-sveitar, er hans hugur leitar að fjarlægum löndum frá fóstur-ströndum. Vefji íslands sól yfir Örœfa-stól guðlegt geisla-skin um vorn góða vin, sem með sorg og þrá á sonar brá siglir sæ-ljóni suður að Fjóni. K. V. >0« Borgarastyrjöldin á Spáni snýst nú aðallega um höfuðborgina Madrid. Hafa uppreisnarmenn sameinað meginstyrk- inn til átaka um borgina og er talið, að þeir hafi 150 þús. manna her til sóknar á þeim slóðum. Sækja þeir á- kaft fram og hafa þegar gert nokkrar flugárásir á Madrid. Alþýðufylkingin býst til varnar eftir beztu föngum, en mjög skortir stjómarherinn vopn og verjur, en uppreisnarmenn hafa nægtir af hvorutveggja frá Þýzkalandi, Italíu cg Portúgal. Hlutleysissamningur ann- ara ríkja kemur því eing'öngu niður á stjórnarhemum, en hjálp fasistaríkj- anna til handa uppreisnarmönnum á Spáni má teljast opinbert leyndarmál. Skólabömin eru beðin að ha.fa með sér sálmabækur á laugardaginn kl. 2 við setningu skólans. Sömuleiðis óskar skólastjórinn þess, að börn, sem tóku fullnaðarpróf sl. vor, mæti til viðtals í skólanum kl. 8V2 næstk. þriðjudags- kvöld. »Heimur versnandi íer«. Oss nútímamönnum er víst ær- *ið gjarnt að skoða þetta gamla máltæki sem öfugmæli eitt og bölsýni, er stundum grípi gamal- menni, sem gleymt hafi sinni eig- in æsku, er eflaust hafi haft skin og skúrir á víxl eigi síður en á vorum dögum. Og hin framgjarna nútímaæska vill ekki einu sinni gefa hornauga hinum „menntun- arsnauðu“ tímum, er gamla fólkið lifði á. En hvað er svo um alla hina marglofuðu menntun. Hefir hún fært oss raunverulega menningu og gert oss að nýjum og betri mönnum? Hefir hún gert lífið bjartara og ríkara, eflt bróður- kærleika og andlegan þroska og ást á öllu því, „sem er gott og nyt- samlegt, lofsamlegt og gott af- spurnar?“ Hefir hún gert lífið fegurra og eftirsóknarverðara yf- irleitt? Auðgað það að andlegu verðmæti? Lítum í kringum oss. Byrjum að utan og færum oss inn á við, unz vér stöndum rnitt í vorum litla þrönga — þrönga hring lið- lega hundrað þúsunda sálna. Hvað ber fyrir augu vor og eyru? í blöðum, útvarpi, síma o. fl. Hat- ur, tortryggni, öfund, einræðis- brölt og valdafíkn. Vígahugur, hernaðaræði og ægileg hervæðing stórþjóðanna. Geigvænlegur ótti um nýja heimsstyrjöld í aðsigi. Og hér heima leikum vér í orð- um og innræti — og eftir megni í verki — örlitla skrípamynd af öllu þessu. Viljann vantar ekki. Úlfúð hugans, kuldi hjartans og kærleiksleysi er meira en nóg til fullrar tortímingar ímyndaðra andstæðinga, ef mátturinn væri meiri. Nei, „heimur vor“ hefir ekki batnað. Menning vor hefir ekki hækkað í samræmi við menntun- ina. Vér erum ekki betri menn og íslendingar en áður fyrri. Síður en svo. — En það er fróðlegt að litast um og lærdómsríkt fyrir alla þá, er sjá vilja og skilja og vita eftir föngum deili á lífinu. í fyrra gáfu 50 ára stúdentar norskir út minningarrit allstórt. Rita þar margir merkir menn og víðkunnir. Eru í riti þessu marg- ar ritgerðir fróðlegar mjög og merkilegar, og fjalla sumar þeirra einmitt um það efni, er ég hefi hér drepið lauslega á. Eru sumir þessara manna bjartsýnir, en aðr- ir bölsýnir og daprir í huga af vonbrigðum yfir lífinu og mönn- unum yfirleitt. Direktör Evensen, forstjóri hins mikla geðveikrahælis að Gauts- stöðum (,,Gaustad“), segir m. a. á þessa leið: „Það er ekki auðvelt fyrir þann, er í daglegu starfi sínu sér mest- megnis ranghverfuna á lífinu, að varðveita bjartsýni sína og trú á mennina. Einstaklingar eru all- góðir, sumir meira að segja all- merkir menn og elskulegir. En Hfartkœr eiginkona min, Svanlaug Jónsdóttir, lézt að heim- ili sinu, Gilsbakkaveg 1 á Akur- eyri, þann 4. þ.m. Jarðarförin fer fram 14. þ.m. og hefst kl. 1 e. h. á heimili hinnar látnu. fón íónasson. sem heild standa þeir skör lægra. Gamall fylgismaður persónulegs frelsis lítur því með sorg og sökn- uði á straumrás nútímans, þar sem harðstjórn og einræði ríkir, og krafizt er, að einstaklingurinn sníði sér stakk eftir vexti fjöld- ans, og að menn læri að hugsa í takt. Er maður daglega sér og reynir, hve mennirnir geta verið heimskir, óærlegir, vondir, laus- málugir og undirförulir, gegnsýrð- ir af úlfúð og rógburði, tortryggnl og öfund og valdafíkn, þá verður manni ljóst, að vonzka heimsins getur hæglega orðið hinum veik- byggðu sálum um megn. Að skapgerð eru hinir geðbil- uðu eigi sjaldan betri en hinir, sem utan hælis eru, a. m. k. með- an veiklunin hefir eigi magnazt og rifið niður upprunalega eigin- leika þeirra. Það er einn hinna fáu sólskinsbletta starfsins að reisa við þá föllnu. — í hugarfari mannanna verður engra framfara vart. — Lítið aðeins til fornaldar- innar og hinna 1500 ára gömlu indversku sjónleikja: Sakúntala og Leirvagninn. Það er víst lítil von þess, að mennirnir verði betri eða öðruvísi en þeir alltaf hafa verið, jafnvel þótt viðhorf og um- hverfi breytist með tímunum og allt gangi í hring í bylgjum. Mað- ur verður því að taka mennina eins og þeir eru, og leitast við að hjálpa þeim, sem eru hjálpar- þurfi, og hefir maður þá orðið einhvers góðs aðnjótandi í lífinu. Vissulega er þetta fátækleg nið- urstaða á lífsskoðun eftir svo margra ára strit og erfiði; en sem betur fer verður maður lítilþæg- ur með aldrinum. En svo lítilþægur að maður visni með gleði — aldrei." Hinn víðkunni norski verkfræð- ingur, direktör Samuel Eyde frumstofnandi „Norsk Hyrdo“) er eigi mikið bjartsýnni. Hann segir meðal annars: „Síðan síðustu minningarhátíð- ina (f. N. H.) hefi ég að mestu leyti lifað sem privat maður i sorg og gleði. Á sumrin hefi ég verið heima á Bygðey (við Osló), og á veturna erlendis, oftast i villa „Les Mimosa“ í Cannes.“ — „Ég get aðeins sagt það, að ég verð þess eigi var, að heimurinn hafi batnað. Vér höfum auðsjáan- lega ekki tekið neinn verulegan lærdóm af heimsstyrjöldinni, og það eru sár vonbrigði að verða að viðurkenna að vélrænar og vís- indalegar framfarir stuðla aðal- lega að því að auka hið ráðandi eirðarleysi og óánægju.“ Bystander.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.