Dagur - 07.01.1937, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
-m
Akureyri 7. janúar 1937.
Ártð
Um leið og »Dagur« óskar les-
endum sínum nær og fjær gleði-
legs nýjárs, þykir hlýða að líta um
öxl og minnast hins liðna árs með
örfáum orðum. Rúm blaðsins leyfir
ekki meira.
Frá náttúrunnar hendi var liðna
árið að ýmsu leyti gott ár. Að vísu
var síðastl. vetur óvenjulega harður
og snjóamikill norðanlands og aust-
an; gengu hey þá svo til þurrðar,
að búpeningur varð víða í hættu og
óhjákvæmileg fóðurbætiskaup juku
á örðugleika landbúskaparins; þó
rættist betur úr en á horfðist um
tima, því um sumarmál kom góður
og hagstæður bati og vorveðráttan,
sem svo mikið er undir komið, var
ágæt. Grasspretta varð því góð og í
framhaldi af þeim gæðum varð hey-
skapartíð einkar hagstæð og hey-
fengur manna eftir sumarið því yf-
irleitt mikill að vöxtum, eftir því
sem ástæður heiina fyrir leyfðu, og
ágætur að gæðum. Var þessa og full
þörf eftir tvö undanfarandi óþurrka-
sumur. Sumar afurðir búfjárins
hækkuðu og nokkuð í verði áárinuog
sala þeirra hefir gengið vel. Má því
segja, að öllu samanlögðu hafi frem-
ur verið góðæri en hitt til landsins á
árinu, þar sem tíðarfar og viðskipti
hafa tekið hönduin saman um að
bæta hag manna, sem mjög voru
orðnir aðþrengdir eftir undanfarandi
kreppuár og óhagstæða aðbúð frá
hendi náttúrunnar.
Til sjávarins hefir árið verið bæði
illt og gott. Þorskaflinn brást herfi-
lega og varð um helmingi minni en
árið áður. Hugðu ýmsir, að þetta
þunga áfelli mundi ríða ríkisbú-
skapnum á slig, en hér fór þó betur
en á horfðist, því síldaraflinn gekk
prýðilega í surnar og síldarafurðirn-
ar runnu út á markaðinn með hækk-
andi verði. Auk þess bætti hin nýja
atvinnugrein, karfaveiðarnar, nokk-
uð upp hinn afar rýra þorskafla. —
í þessu sambandi er þess raunalegt
að minnast, að til skyldu vera svo
blindir og óþjóðhollir menn, að þeir
reyndu að bregða fæti fyrir hið
mesta bjargræði á sviði sjávarút-
vegsins, síldveiðarnar, með því að
stofna til verkfalls á síldveiðaflotan-
um. Hefði slíkt »herbragð« tekizt,
væri íslenzka þjóðin nú um áramót-
in fjárhagslega í rústum. En þessi
ógeðslega tilraun misheppnaðist
með öllu sem betur fór.
Það er ánægjulegt til þess að vita,
að í árslokin síðustu stöndum við
svo út á við, að verzlunarjöfnuður-
1936.
inn er hagstæður um nokkrar millj-
ónir króna. Efalaust stafar það að
miklu leyti frá þeim ráðstöfunum,
sem gerðar hafa verið til takmörk-
unar á innflutningi erlendra vara,
þó að sumum þyki þungt undir þeim
takmörkunum að búa. En engu að
síður eru þær nauðsynlegar.
Þegar litið er til baka til atburða
liðins árs, ber einn dökkan skugga
yfir. Það eru hinar tíðu og stórfeildu
slysfarir á árinu, jafnvel um hásum-
arið. Á margur um sárt að binda í
ástvinamissi eftir þá sorglegu við-
burði. Þó að hjá slysum og mann-
tjóni verði aldrei hægt að komast
að fullu, þá hefir síðasta ár fært oss
heim sanninn um það, að mikið er
enn ógert í öryggismálum þjóðar-
innar og að enn er mikið verk að
vinna í þeim efnum. Öryggis- og
tryggingarmál eru meðal stærstu
mála þjóðarinnar.
Nýja árið hefir að þessu sinni
heilsað okkur hér norðanlands með
norðanátt og fannkomu. Það er ekki
óeðlilegt á þessum tíma. En því
skulum við ekki gleyma, að á bak
við hríðardimmuna fer hækkandi
sól, sem að lokum verður að vorsól,
er hellir geislaflóði sinu yfir hauður
og haf og gerir sjálfa nóttina að
björtum degi hér úti á hala veraldar.
Hvað nýja árið ber í skauti sínu,
vitum við ekki, og líklega er það
blessunarrík ráðstöfun að okkur er
framtíðin hulin. Töpum aðeins aldr-
ei voninni um bjartari framtíð og
batnandi þjóðlíf og verum allir sam-
taka um að vinna að því, að sú von
megi rætast.
í þessari von og trausti á »guð í
alheimsgeimi« og guð í sjálfum okk-
ur bjóðum við hver öðrum gleðilegt
nýjár.
Héraðslmknir í Eyjafh’ði ev settur
Arni Guðmundsson læknir hér í bæ.
Fram s óhnarfél a <7 Glæsibæjarhreppa
hélt fund síðastl. sunnudag. Á fundin-
um gengu 11 nýir meðlimir í félagið.
Hjónabönd: Ungfrú Jórunn Bjarna-
dóttir ljósmcðir hér í bæ og Jón Elías
Jónsson vélstjóri. — Ungfrú Ingibjörg
•Jónsdóttir og Sverrir Þór vélfræðing-ur.
Frú Sigriður Daníelsdóttir frá Mel-
gerði í Eyjafirði var meðal farþega
hingað á Goðafossi síðast. Hún fluttist
ti! Ameríku árið 1922, giftist þar Ein-
ari Haraldssyni frá Einarsstöðum í
Reykjadal og eru þau búsett í Winnt-
peg. Ætlar hún að dvelja hér fram á
næsta sumar.
BofQarastyrjöldin á Spáni
heldur áfram jafnt og þétt og sér
ekkert fyrir enda hennar enn. Um
jólin tók eitt af herskipum spönsku
stjórnarinnar þýzkt flutningaskip,
lilaðið hergögnum til uppreistar-
manna og neitaði stjórnin að láta
af hendi hergagnafarminn. Eftir það
náðu þýzk herskip tveimur spönsk-
um flutningaskipum og vilja ekki
sleppa þeim aftur. Þriðja flutninga-
skipið ætlaði þýzkt herskip að
hremma, skaut á þaö, en það hleypti
til grunns og skildi þar með þeim.
Eru úfar mjög teknir að rísa út af
þessum atburðum milli stjórnarinnar
á Spáni og Þýzkalandi. — Nú síð-
ast hafa vopnuð skip uppreista^-
manna skotið á brezk kaupför við
Spánarstrendur. Hefir brezka stjórn-
in mótmælt þessu athæfi, og er ekki
ólíklegt, að »brezka ljónið« rumsk-
ist betur, ef þessu heldur áfram.
Um gervallan Spán halda orrust-
ur áfrain af mestu grimmd á báða
bóga, einkum þó umhverfis Madrid;
veitir ýmsum betur, án þess að úr
skeri. Ugglaust er talið, að yfirfor-
ingi uppreistarmanna hafi upphaf-
lega búizt við að geta leitt innan-
landsstyrjöldina til lykta á skömm-
um tíma með sigri sín megin, en
rtyndin er orðin öll önnur. Og nú er
þessí grinnna styrjöld orðin ineira
cn borgarastríð á Spáni, því naum-
ast verður annað sagt, en Þjóðverj-
?.r og ítalir séu orðnir aðilar í stríð-
inu. T. d. er það staðfest fregn, að
á 11. þús. ítalir liafi á síðustu tveim-
ur vikum verið fluttir til Spánar til
liðs við uppreistarmenn. Er slík
þátttaka sem þessi talin mjög í-
skyggileg fyrir friðinn í Norðurálf-
unni og óttast margir að úr verði
Evrópubál.
Lúðvík Friðriksson sjómaður héðan
úr bænum, hvai'f í Reykjavík á að-
fangadag jóla; hefir hann ekki fundizt
og mun talið vonlaust um að hann sé
á lífi. Hann var hátt á sjötugsaldri.
Aðalfun/l heldur íþróttafélag'ið »Þór«
sunnudaginn 10. jan. n. k., kl. 9 e. h.,
að Hófel Akureyri (uppi). Venjuleg að-
alfundarstörf. — Að fundinum loknum
verður dansað á sama stað. — Félagar
eru ámintir um að fjölmenna og mæta
stundvíslega.
Friðgeir H. Berg hefir frá síðustu
áramótum verið skipaður fréttaritari
útvarpsins hér á Akureyri og nærsveit-
unum, að ytri takmörkum Árskógs-
hrepps og að Gjögurtá og öllum sveit-
um þar inn af, ásamt Hrísey, svo langt
sem byggð nær.
Fimmtudagskvöld ld. 9:
Fröken Dokfor.
Föstudagskvöld kl. 9:
Laugardagskvöld kl. 9:
Fröken Doktor.
Sunnudagskvöld kl. 9:
Flughetjurnar.
KIRKJAN: Messað á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 2 e. h.. Síra Helgi Sveins-
son prédikar.
Hjónabönd: Laugardaginn 19. des. sl.
voru gefin saman í hjónaband í Reykja-
vík ungfrú María Bjarnadóttir, Jóns-
sonar fyrrv. bankastjóra, og Arnold
Henckell frá Hamborg. Þau sigldu á-
leiðis til Þýskalands með Gullfossi 2.
janúar sl.
Á 2. jóladag sl. voru gefin saman í
hjónaband af sóknarprestinum í Grund-
arþingum ungfrú Laufey Stefánsdóttir
bónda á Munkaþverá Jónssonar og
Baldur stúdent Eiríksson, starfsmaður
K. E. A. Hjónavígslan fór fram í
Munkaþverárkirkj u.
Eins og auglýst er, á öðr-
um stað tiér í blaðinu,
heldur »Félag ungra Framsóknar-
manna« hér í bæ fund n. k. þriðjudag,
12. janúar. Er áríðandi að sem flestir
félagsmenn mæti, þar sem mjög merki-
leg mál eru á dagskrá, og kosinn verð-
ur fulltrúi á flokksþing Framsóknar-
manna, er hefst í Reykjavík 12. febrú-
v. ■ næstkomandi.
Jarðarför Guðmundar Björns-
sonar Hallanda er ákveðin að
Svalbarði mánudaginn 11. þ. m.
og hefst með húskveðju á heimili
hins látna kl. 11 f. h.
Aðstandendur.
Hér með tilkynnist að Sigurjón
J. Ósland andaðist í Norðurgötu
7, Akureyri, aðfaranótt 5. þ. m.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Aðstandendur.