Dagur - 21.01.1937, Blaðsíða 4

Dagur - 21.01.1937, Blaðsíða 4
12 DAGUE 3. tbl. Verðlag ák lcartöfltiifii. Söluverð Grænmelisverzlunar ríkisins er ákveðið: 1. janúar—28. febrúar: Kr. 22 00 pr. 100 kg. 1. marz—30. apríl: — 24.00 — 100 — 1. maí—30. júní: — 26 00 — 100 — Innkaupsverð Grænmetisverzlunarinnar má vera allt að þrem krónum lægra hver 100 kg. Verðlagsnefnd Grænmetisverzlnnar ríkisins. Skjaldsveinar Ðakkusar. Hinn illræmdi konungur, Bakk- us, situr á veldisstóli sínum og horfir yfir mannkynið. Það blasir við honum sem taflmenn á skák- borði, en þar gefur að líta tafl- mennina standa æði misjafnlega að vígi. Sumir eru komnir að því að þeim verði fleygt í taflkassann, en aðrir standa sem klettur úr hafinu, og í andlit þeirra er með skýrum dráttum mótuð viljafesta og skarpleitni til hins ýtrasta. Hinir fyrrtöldu eru mennirnir, sem fallið hafa 'í skaut áfengis- nautnarinnar og hún haft þá að leiksoppi. Hlýðnir og undirgefnir hafa þeir verið henni allt til hins síðasta að hún hefir leikið þeim á vonarvöl. Þá er hlutverki hennar 'lokið gagnvart þeim. Þeir síðar- töldu eru mennirnir, sem reynt hafa og jafnvel helgað líf sitt því málefni, að bægja heiminum frá þeim bikar, sem áfengisnautnin er ætíð að byrla honum, og einnig skjaldsveinar hennar, sem eru því miður of margir. Bikar þennan mætti kalla bikar dauðans, því hver sá, sem veitir honum viðtöku og bergir af, hefir vegið skammar- víg á mannorði sínu, og er þá orð- inn æði léttur á metunum á meta- skálumalmenningsálitsins. Enhvað er verra en að vera sviftur mann- orði sínu og trausti? Yfir nöfn manna þeirra, er reynt hafa að af- stýra þessu öllu, mun ódauðleik-, inn lengst af bregða ljósi sínu, til þess að komandi kynslóðir geymi nöfn þeirra og veiti þeim heiðurs- sess. Hversu örlagarík hlýtur ekki sú stund að vera fyrir foreldrana, er þau sjá börn sín hverfa úr föður- húsunum út í heiminn, út á hið mikla haf lífsins, þar sem svo margir brjóta fley sitt? Þá er eins og skarað sé í glæður þær, er iengst lifir í af báli minninganna. Þá rifjast upp fyrir þeim sú stund, er þau stóðu við vöggu barns síns Takid eitií! Saumanámskeið held eg frá 1. febr. til 1. marz. Talið við mig fyrir 28. þ. m. Krisíjana Kristjdnsdóttir. Brekkugötu 3. og spurðu sjálfa sig: Hvað liggur fyrir þessu barni, hvernig mun framtíð þess verða? Mun það standast eldhríð hins illa og láta hvergi sigrast, eða mun það hrasa á hinum hálu glötunarbrautum og lenda í tálsnörum, sem svo víða liggja fyrir hinu unga og veik- byggða? Framtíðin felur þögul og storkandi svarið í skauti sér. (Framhald). Bcbmastúlcan Sakleysið heldur ' fund í Skjaldborg n. k. surmud. kl. IV2 e. h. Kosnir embættismenn fyrir næsta árs- fjórðung. Kvennadeild Slysavarnafélagsins held- ur aðalfund í Skjaldborg' næstk. sunnu- dag kl. 4 e. h. — Félagskonur mæti og taki með sér nýja félaga. Dánardiegur. Þann 10. þ. m. andaðist að heimili sínu hér í bæ Jónatan Sig- tryggsson Snælund, úr afleiðingum mislingaveikinn ar. Á sunnudaginn var tefldi L. Engels skákmeistarinn þýzki, sem dvelur hér nú, fjölskák við 32 menn í Hótel Akur- eyri. Kapptefli þessu lauk þannig, að Engels vann 20 skákir, gerði 4 jafn- tefli og tapaði 8. í kvöld kl. 8% flytur «*» Engels erindi um skák í Skjaldborg, á vegum Skákfélags Akureyrar. Aðgang- ur fyrir utanfélagsmenn, meðan hús- rúm leyfir, seldur á kr. 0.50. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Tilboð í húseignina Hafnarstræti 2, tilheyrandi dánarbúi Karls Sigurjónssonar, og erfðafestuland tilheyrandi sama búi, sem er 1.5 dagslátta, sendist til undirritaðs. Upplýsingar allar viðvíkjandi eignunum verða veitt- ar hér á skrifstofunni. Bæjarfógetinn á Akureyri, 8. janúar 1937. Sig. Eggerz. H. F. EIMSKIPAFÉLAQ ÍSLANDS. AÐALFUNDUR. Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður hald- inn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 19. júní 1937 og hefst kl. 1 e. h. Dagskrá: I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur- skoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1936 og efna- hagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu árs- arðsins. 3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt félagslögunum. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. — Að- göngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðs- mönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 15. til 18. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 5. janúar 1937. St jórni n.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.