Dagur - 24.03.1937, Blaðsíða 3

Dagur - 24.03.1937, Blaðsíða 3
12. tbl. DAGUR 47 verandi ríkisstjórn hefir fylgt, frá því að hún tók við völdum.“ Meginstaðreyndirnar, sem fyrir liggja í þessu máli og ekki verða véfengdar, eru þá á þessa leið: Verzlunarjöfnuðurinn hefir batn- að um 121/:2 milj. kr. síðan núver- andi stjórn tók við völdum. Fullur greiðslujöfnuður hefir náðst á síð- astliðnu ári þrátt fyrir hrun Spán- armarkaðarins. Samtals hefir 16 milj. kr. innflutningslœkkun átt sér stað á árunum 1935 og 1936. Lögreglueftirlii................ (Framh. af I. síðu). hvaða opinberri sveitasamkomu sem er. Það er hörmulegt til þess að vita, að nú á tuttugustu öld skuli viðgangast slíkur samkomubragur, sem fremur væri hægt að hugsa sér að verið hefðu siðvenjur hríinþursa og annarra ókinda í rammri forneskju, en háttur sið- aðra nútímamanna. Enn þann dag í dag eru pústrar og hrindingar daglegt brauð á samkomum i nánd við kaupstaði, og blóðnasir og glóðaraugu venjulegur ábætir. Nú eru augu manna að opnast fyrir því siðleysi, sem felst í slíku framferði, og kröfurnar verða há- værari með hverjum degi um að koma í veg fyrir, að slíkt eigi sér stað. Sumum hefir komið til hug- ar, að hægt væri að koma í veg fyrir slíkt framferði á samkomum í nágrenni Akureyrar með því að fá lögregluþjóna bæjarins til að hafa á hendi eftirlitið. En þetta hefir reynzt óframkvæmanlegt, þar sem lögreglulið bæjarins má ekki fámennara vera til eftirlits í bænum og er jafnvel of fámennt. Þar að auki er of dýrt að kaupa lögregluþjóna bæjarins fyrir tíma- kaup til eftirlits í sveitum. Bezta lausnin á málinu er vafalaust á þann veg, sem sumar áfengis- varnanefndir í Eyjafjarðarsýslu, héraðsþing U. M. S. E. og nú síð- ast ílokksþing Framsóknarmanna hefir bent á, og það er að stofna lögreglulið í þeim sveitarfélögum, sem hlutaðeigandi áfengisvarna- nefndir telja þess þörf. Þyrfti sennilega að halda einhver náms- skeið til að kenna mönnum það nauðsynlegásta viðvíkjandi starf- inu. í þessu máli verður ekki hjá því komizt að gera ákveðnar kröfur til sýslumanns Eyfjafjarðarsýslu um að gera sitt ítrasta til góðrar úrlausnar. í hverri einustu sveit sýslunnar mun verða fylgzt með aðgerðum í þessu máli. Ung- mennafélagar, áfengisvarnanefnd- ir og yfirleitt allir hugsandi menn eru á einu máli um nauðsyn þess að ráða bót á ástandinu í þessum efnum í nágrenni Akureyrar. Eyfirzkir ungmennafélagar heita á sýslumanninn að taka að sér forgöngu þessa máls og leysa það á sem heppilegastan hátt í sam- ráði við áfengisvarnanefndir hinna ýmsu sveitarfélaga sýslunn- ar. Með. viðunandi lausn þessa máls væri stigið stórt spor í menn- jngarátt. Ungmennafélagar um Leðuruórur í miklu úrvali, svo sem: Kjóla og kápubelti Kjólkragar Hanzkar kvenna & karla Kvenveski Peningabuddur Herrabindi og slaufur. Kaupfélag Eyfirðinga. Vefnaðarvörudeild. Bréf til Dags. Dagur sæll! Á þessari öld vísind- anna gleypa menn eins og gráðugur þorskur agnið, hverja þá nýjung, sem frá hátindi vísindamannsins kemur, og gæta þess ekki hvernig nýjungin berst út, hvort hún er tiikynnt í áreiðanlegu vísindariti, eða er fréttapistill í miður ábyggilegu dagblaði. Það þótti því tíðindum sæta, er blöðin fluttu nýlega þá fregn, að franskur vísindamaður spáði þeim harð- asta vetri, er komið hefði í Evrópu síðan efnhverntíma á 16. öld. Skyldi vetur þessi standa 68 daga með hörk- um og grimmd. Heima á íslandi þætti rúmlega tveggja mánaða vetrarveðrátta ekki svo viðsjárverð, en hér um slóðir sló menn ótti, ekki sízt sökum þess, að fám dögum eftir að menn lásu spá þessa í blöðunum, setti að með frost- um og óstillingum um meginhluta Evrópu. — Fimbulvetur. — Ekki ís- lenzkur fimbulvetur, en fyrir þá, sem ekki eiga vetri að venjast, er 4 stiga frost biturt og mugguveður harðindi. Á meginlandinu varð að vísu frost-hart, en hér í Danmörku mest 9 stiga frost, nú er þíðvindi og sumarveðrátta með 9 stiga hita — veturinn stóð aðeins 8 daga, — lán fyrir þau gamalmenni, sem máttu gista rúmið á köldum kvist- herbergjum, sökum þess að eldsneyti skorti. Vera má að vetur korai á ný, en langvinnur verður hann naumast, því hækkandi sól sendir ylríka geisla og vor og sumar nálgast. En hvern skal svo ásaka fyrir fals- spá um hinn mikla fimbulvetur? Vera má að einhver sérvitringurinn hafi tilkynnt þessi miklu tíðindi og blöðin, sem allt hið nýja finna til að fylla dálkana með, gleypa jafnt það óh'klega sem líklega, og dreifa þannig út á meðal almennings. t*ví ber sízt að neita, að veðurtilkynningarnar og veð- urspárnar taka stórstígum framförum til ómetanlegs gagns fyrir sjófarendur og fiskiveiðarnar fyrst og fremst, en svo langt sjá menn nú ekki fram í tímann ennþá, að útlit og veður verði sagt fyrirfram, fyrir meir en nokkrar klukkustundir, eða fáa daga þegar bezt gegnir. En hvað um það. Veðráttan fer sínu fram, óhindruð af tækni og snilli mannsandans, það eina, sem vér megnura, er að brynja oss gegn þeim dutlungum hennar, sem viðsjárverð- astir eru, og helst valda heilsu- eða fjörtjóni. BLÖÐIN. Mér er næst skapi að gefa blöðun- um sök á þeim felmtri, sem sló niður í hugi auðtrúa einstaklinga, og þeim hrolli sem nokkrir fylltust við hina köldu veðurspá. Landshornaflækingarnir og umrenn- Eyjafjörð treysta sýslumanni sín- um til að bregðast fljótt og vel við til að ráða bót á því ófremd- arástandi, sem ríkir í þessum efn- um í nágrenni Akureyrar. Þá fyrst er að vænta verulegrar skemmtunar á samkomum, að þær fari prúðmannlega fram. Hitt er og verður ómenning, þegar sam- komum svipar til vígvalla eða götuupphlaupa. 19. marz 1937. Eiríkur G. Brynjóljsson. ingarnir, sem rápuðu bæ frá bæ hérna á árunum, voru ætíð stútfylltir af nýj- ungum, sem þuldar voru yfir hausa- mótum heimilisfólksins hvar sem komið var. Var þeim gjarnan vel fagnað sem fjölskrúðug tíðindi höfðu að flytja. F*að er kunnara en frá þurfi að segja, að á meðal þeirra nýjunga flutu Gróu sögur eigi ósjaldan, en á hvern hátt þær voru til orðnar, var ekki ætíð létt að dæma, þar eð fæðingarvottorð sjaldan fylgdi. Vegna nýjunga þeirra, sem blöðin flytja, er þeim alltaf vel tekið, og naumast verður því dagblaði langra lífdaga ‘auðið, sem ekki flytur nýjungar — fréttir. — Auðvitað er það hlutverk blaðanna að vera á verði um það, sem við ber, og tilkynna það svo hlutdrægnislaust sem unt er, því þó flest fréttablöð séu líka stjórnmála- blöð, borin uppi af ákveðnum stjórn- málaflokkum, verður vísvitandi rangur fréttaburður aldrei vel séður. Aðrir dálkar blaðanna, þar sem rætt er um þjóðroálin, eru og verða auðvitað ætíð þtaðir af skoðunum og ályktunum þess flokks, sem málgagnið tilheyrir. F*að er sjálfsagt og eðlilegt. En á hvern hátt þeir dálkar eru skrifaðir er ekki sama. Eg hefi á undanförnum árum lesið dagblöðin hér erlendis, þar sem eg hefi dvalið, og hefi einnig lesið ís- lenzku dagblöðin og viknblöðin. Eg geng hér á snið við fréttaburðinn, vil aðeins geta þess, að eg hygg það engu íslenzku blaði til skaða, þó meira flytti af almennum fréttum frá gjör- völlu svæði lesenda sinna, og fyrst og fremst er það blaðanna að skýra frá hverri þeirri nýjung í verklegum fram- kvæmdum og menningaratriðum, sem unnin eru í landi voru. F*egar blöðin hér úti í Evrópu ræða þjóðmálin eða sveitamátin, þá er venju- lega dregin upp sú mynd, sem ákveð- inn flokkur hyllir, og ekki blandað inn í persónunöfnum, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Og þegar deilt er um málefni frá sjónarmiðum tveggja ólíkra þjóðmálafylkinga, þá eru það fyrst og fremst málin, sem rædd eru og skoðanir andstæðinganna rifnar niður á víxl, en aðrir þættir í fari þeirra persóna, er málin ræða, látnir hlullausir. F*etta er ekki hægt að segja um íslenzka blaðamensku — því miður. — F*að hefir verið — og er enn — sá svarti blettur á blaðamensk- unni íslenzku, sem þörf væri að þvo burt. F’að má segja með sanni, að á Islandi þekkjum vér hver annan, og „Boddy“, með fjaðrasætum, fæst með tækifærisverði. —- Nánari upplýsingar gefur Árni Jóhannsson K. E. A. í Eyjafirði, sem liggur vel við samgöngum, fæst til kaups og ábúðar. Árni Jóhannsson K.E.A. gefur nánari upplýsingar. vel má vera, að það ráði nokkru um að einstaklingshögum og ástsðum er svo oft blandað inn í mál þau, sem rædd eru. Réttmætt er, þegar deilt er, að skoða andstæðinginn í því ljósi, sem hann birtist í viðkomandi efni, og eðlilegt _að af honum sé flett ölíum flfkum að skinni, á þann hátt verður uppskátt hvort um óheilindi sé að ræða, en það er stórt glapræði að blanda heimilis- eða fjölskylduhögum inn í mál, sem þeim er óviðkomandi, og það er ekki vanzalaust að bendla gamalli yfirsjón andstæðings inn í mál, sem rætt er í dag. (Framh.). NÆTURLÆKNAR. Miðvikudagskvöld: Jón Geirsson. Fimtudag og kvöldið: y. Steffensen. Föstudag og kvöldið: Árni Guðm. Laugardagskvöld: V. Steffensen. Paskadag og kvöldið: Jón Geirsson. 2. í páskum og kvöldið: Jón Geirsson. íþróttafélciiíið »Þór« fer i skíðaferð ruistur í Vaölaheiði á skírdag. Lagt verður af stað frá K. E. A. kl. 9 f. h. knattspyrnuæfing á ísnum klukkan 10 f. h. — Allir félagar með. Dánardægur. Jón Friðfinnsson, faðir Finns alþingismanns á Isafirði og þeirra systkina, andaðist að heimili sinu, Þing- vallastræti 12 hér i bæ, laust fyrir há- degi 22. þ. m., 79 ára að aldri. Jón heitinn ól mestan hluta aldurs síns hér á Akureyri; á unglingsaldri var hann þó um skeið vinnumaður hjá sira Daníel Halldórssyni á Hrafnagili og nam þar góða rithönd, sem koni honurh að haldi æ siðan. Hann bjó og nokkur ár austur á Tjörnesi, og um mörg ár bjó hann á Eyrarlandi við Akureyri. — Jón heitinn var vel kynntur maður, sí- vinnandi áhugamaður, hreinn og ör I lund. Hann tók mikinn þátt í verklýðs- hreyfingunni og var óhvikull samvinnu- niaður, eftir að sii hreyfing hófst,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.