Dagur - 18.11.1937, Side 1
D AOUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Arni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XX
• árg. |
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞóR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin vi'ð áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
• » * « « » « « • . ♦ • * •-• «
Akureyri 18. nóvember 1937.
55. tbl.
Frá því var skýrt í síðasta tölu-
blaði, að Iðjufundur, haldinn síð-
asta laugardagskvöld, hefði strá-
fellt samningsgrundvöll þann í
kaupdeilumálinu, er samningsaðil-
ar höfðu komið sér saman um.
Á öðrum fundi í félaginu Iðju,
sem haldinn var síðastl. mánu-
dagskvöld, fór samninganefnd
hennar þess á leit, að fundurinn
veitti henni fullt umboð til að
ganga frá samningum um verk-
smiðjur þær, er K. E. A. ætti eitt
eða að hálfu leyti móti S. í. S., en
það eru „Sjöfn“, „Freyja“, „Flóra“
og Mjólkursamlagið. Reis þá enn
upp Steingrímur Aðalsteinsson,
kommúnistaleiðtogi, sem slettir
sér fram í mál félags, sem hann
stendur utan við, og vildi að
fundurinn neitaði að gera sér-
samninga við K. E. A. á grund-
velli þeirra launakjara, sem áður
hafði orðið samkomulag um og
birt voru í síðasta tölubl. Dags.
Aftur á móti vildi Steingrímur óð-
ur og uppvægur að gerðar yrðu
„tafarlaust nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að framkvæmt verði full-
komið vöruflutningabann á K. E.
A. og S. í. S.“
En svo brá við að þessu sinni,
að fundurinn hafði þenna bægsla-
gang Steingríms að engu og sam-
þykkti með 60 atkv. gegn 1 að
veita fulltrúum sínum fullt um-
boð til að gera samninga um áð-
urgreindar verksmiðjur.
Eitthvað hafði Halldór Friðjóns-
son verið að læðast um á fundin-
um, en steinþagði að þessu sinni,
enda hefir því verið fleygt, að
hann hafi fengið þokkalega ofan-
ígjöf frá pólitískum húsbændum
sínum fyrir framferði sitt á fyrri
Iðjufundinum.
Strax næstu nótt eftir fund
þenna var síðan gengið á ný til
samninga um fyrrgreindar verk-
smiðjur og voru samningar undir-
ritaðir af báðum samningsaðilum
nær óbreytt frá því, sem aðilar
höfðu áður komið sér saman um
eins og sjá má á fregnmiða Dags,
sem birtur er á öðrum stað hér í
ólaðinu. Kaupgjaldið helzt svo að
segja óbreytt frá því sem það hef-
ir áður verið birt. í heild hefir
það þó fremur lækkað en hækkað,
sem liggur í því, að á tveim stöð-
um var mánaðarkaupið hækkað, á
öðrum um 10 kr. en 5 kr. á hinum,
Annar Idjufundur samþykkir einróma ótakmarkad umbod
til handa jnlltrúa sinna til að semja um kaup og kjör
verkajólks í iðnfyrirtækjum KEA og í þeim iðnfyrirtœkj-
um, er KEA á að hdlfu leyti á móti SIS.
Samningar síðan undirritaðir næstu nótt af báðum samningsað-
ilum og samkomulag fengið um iðnfyrirtækin »Sjöfn«, »Freyju«,
Mjólkursamlag og smjörlíkisgerð KEA.
Kaupgjald nálega óbreytt frá því sem áður hafði orðið sam-
komulag um, en vinnutíminn styttur um '/2 st.
Áróðursstarf Steingríms Aðalsteinssonar að engu haft.
Halldór Friðjónsson opnar ekki sinn munn á síðara Iðjufundinum.
en aftur á móti lækkað á öðrum
tveim stöðum, um 10 kr. á hvor-
um.
Auk þessarar smávægilegu
breytingar varð það að samkomu-
lagi, að vinnutíminn var styttur
um y2 klst. og er nú 8 stundir á
dag, nema í Mjólkursamlaginu er
hann 9 stundir. Áður var búið að
ganga inn á V2 stundar vinnutíma
lækkun við verksmiðjurnar Gefj-
un og Iðunn og var þessi lækkun
Fregnmiði »Dags« 16. nóvember 1Q37.
Samningar undirritaðir í nótt um kaup og kjor starfsfólks
í verksmiðjunum »Sjöfn«, »Freyju«, Mjólkursamlagi og Smjör-
líkisgerð K. E. A.
Fólkið hefir sjálfdæmi um, hvort það gengur í »lðju« eða
ekki. — Kaupgjaldið helst svo að segja óbreytt eins og það
var birt í síðasta tbl. »Dags« (kr. 5 00 lægra í heild).
Vinna hófst í morgi
Fólkið, sem nú vinnur í þessum
verksmiðjum, skal algerlega sjálf-
rátt um það hvort það gengur í
„lðju“ eða ekki, en nýir starfs-
menn skulu gerast félagsmenn.
Vinnutíminn var styttur um V2
klst. og er nú 8 stundir á dag,
neipa í Mjólkursamlaginu, 9
stundir. Þetta var gert til sam-
ræmis við það, sem áður var búið
ið ganga inn á um verksmiðjurnar
Gefjun og Iðunn.
Eftirvinna greiðist með 35%
álagi eða fyrir 2 stundir unnar
komi þriggja stunda frí í almenn-
n.
um dagvinnutíma. Helgidagavinna
greiðist með 50% álagi.
Sjúkrahlunnindi og sumarleyfi
séu samkvæmt þeim reglum, sem
gilt hafa og gilda hjá K. E. A.
Samningurinn gildir til 31. des.
1938, og síðan um eitt ár í senn,
nema a^ honum sé sagt upp af
öðrum hvorum aðila innan 30.
sept.
Er þannig loksins orðið sam-
komulag um verksmiðjur þessar.
En pefjun og Iðunn eru ennþá í
banni, og haldinn um þær vörður.
Málefnasamning
um sffórnarsamvinnu hafa Framsókn-
arflokkuriian og Alþýðuflokkurinn á
Alþingi nýskeð komið sér saman um fil
bráðabirgða. Verður ndnar frá honum skýrt siðar.
NÝJA-BÍÓ
Sýnir fimmtudaginn 18.
þ. m., kl. 9:
Kvennaklúbbyíinn.
Niðursett verð.
Sýnd í síðasta sinn.
I. O. O. F. = 11911199 =
við hinar verksmiðjurnar gerð til
samræmis við það.
Vinna í þeim verksmiðjum, sem
samningur var gerður um, hófst
þegar næsta morgun, þriðjudag-
inn 16. nóvember. Hafði þávinnu-
stöðvunin staðið yfir hálfan
mánuð.
Þegar þetta er ritað, standa yfir
samningar um verksmiðjur Samb.
ísl. samvinnufélaga, Gefjuni og
Iðunni, sem enn eru í vinnubanni
og haldinn um þær vörður.
Karlakórinn »Geysir«
fimmtán ára.
„Geysir“ mun í næstu viku, eða
fyrir næstu mánaðamót, minnast
15 ára starfs með hátíða-konsert í
Nýja Bíó, undir stjórn Ingimund-
ar Árnasonar, sem starfað hefir
næstum óslitið sem söngstjóri
kórsins öll þessi ár, enda hlotið
viðurkenningu fjöldans og söng-
menntaðra manna fyrir ágæta
söngstjórn.
Á söngskrá eru meðal annars
þessi úrvalslög frá liðnum árum:
Um sumardag (Fr. Abt), Naar
Fjordene blaaner (A. Paulsen),
Vaaren er kommen (Diirner), Sof
í ró (F. Möhring), Landkjenning
(E. Grieg), Hermannasöngur (Ch.
Gounod). Tvö síðasttöldu lögin
verða sungin með flygil-undirleik
frú Jórunnar Geirsson. Þrír gam-
alkunnir einsöngvarar láta til sín
heyra.
Kórinn var upphaflega stofnað-
ur af 18—20 mönnum, og fyrstu
stjóm hans skipuðu: Éinar Reynis
(form.), Þorst. Thorlacius (ritari)
og Þorst. Þorsteinsson (gjaldkeri).
Nú eru í stjórn: Þorst. Þorsteins-
son (form.), Stefán Ág. Kristjáns-
son (ritari), Gísli R. Magnússon
(Frh. á 4. síðu).