Dagur - 18.11.1937, Side 4
228
DAGUR
55. tbl.
Framsóknarfélag Akureyrar.
Fundur í SKJALDBORG á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
20. nóvember kl. 8,30 e. h.
FUNDAREFNI:
Skýrsla frá nefndum.
Frá vinnudeilunni.
Þingfréttir.
Allir Framsóknarmenn á fund. STJÓRNIN.
EG NOTA PERIiTJ
HÚN ER BEZT.
„6eysir“ 15 ára.
(Framh. af 1. síðu).
(gjaldkeri) og meðstjórnendur:
Sigurður O. Björnsson og Gunnar
Magnússon.
Átta stofnendur syngja ennþá í
kórnum og munu minnast þess
sérsíaklega í tvöföldum kvartett,
er kemur upp á pallinn í byrjun
samsöngs.
Nú teiur kórinn 38 félaga.
Ættu bæjarbúar og nærsveita-
menn að sýna það, — meðal ann-
ars með ágætri aðsókn að vænt-
anlegum samsöngvum, í tilefni af-
mælisins, — að þeir kunni að
meta það óeigingjarna menning-
arstarf, sem kórinn hefir á liðn-
um árum unnið að, því þrátt fyrir
margskonar erfiðleika, sem ýms
önnur félög hafa ekki yfirstigið,
hefir „Geysir“ borið gæfu til að
halda uppi hróðri Akureyrar, með
þátttöku í söngmótum á Þingvöll-
um 1930 og í Reykjavík tvisvar
sinnum, auk söngferða um Norð-
urland, og með stöðugri söngstarf-
semi í bænum.
Kirkjan: Messað í Akureyrarkirkju
n.k. sunnudag kl. 2 e. h.
Ungmennastúkan Akurlilja nr. 2
minntist 4 ára afmælis síns í Skjaldborg
laugardaginn 13. nóv. s.l. Mættir voru
um 90 manns, félagar stúkunnar og gest-
ir þeirra. Þar var sameiginleg kaffi-
drykkja, ræðuhöld, upplestur og söngur.
Á eftir vaA stiginn dans.
Stúkan heldur fund í Skjaldborg n.k.
sunnudag kl. 8 e. h. Haukur Snorrason
flytur erindi. Smáleikur o. fl.
NÆTURVÖRÐUR er í Stjömu Ap6-
teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er
weturvörður í Akureyrar Apóteki.)
Kennslumálaráðherra, Haraldur Ouð-
mundsson, hefir vikið síra Birni Magn-
ússyni úr dósentsembættinu við guð-
fræðideild háskólans, er hann var settur
til að gegna samkv. úrskurði dómnefnd-
ar eftir samkeppnisraun um embættið,
og veitt það síra Sigurði Einarssyni.
Vekur þessi atburður undrun og umtal
hvar sem til hefir spurzt.
Leikurinn »Sundgarpurinn« verður
sýndur um næstk. helgi (laugardags- og
sunnudagskvöld) með niðursettu verði.
Fara nú að verða síðustu forvöð fyrir
þá, sem enn hafa ekki séð leik þenna,
að fara í leikhúsið. Fólk skemmtir sér á-
gætlega við Ieikinn og meðferð leikend-
anna á hlutverkunum fær góða dóma,
einkum er rómuð meðferð leikstjórans,
Jóns Norðfjörð, svo og Arnar Snorra-
sonar, á hlutverkuni þeirra, Elsa Frið-
finnsson sýnir gamla konu og ferst það
mjög vel. Hefir hún aldrei áður haft
slíkt hlutverk með höndum. Fleiri dæmi
mætti nefna um góða frammistöðu leik-
endanna, þó að hér sé þeim sleppt. Bezt
fyrir ahnenning, sem enn hefir ekki far-
ið í leikhúsið, að láta sjón verða sögu
ríkari, notfæra sér hið niðursetta verð
og fylla húsið bæði kvöldin.
Slys á Húsavík. Á mánudaginn var
vildi það slys til á Húsavík, að bóndinn
í Saltvík í Aðaldal, Logi Helgason, féll
út af bryggju í sjóinn og drukknaði.
Starfaði hann ásamt fleirum að því að
hlaða flutningabil fiski á bryggjunni, er
slysið vildi til. Er álitið að kaðall, er
I.ogi var að binda fiskinn með, hafi
slitnað, og hann við það hrokkði í sjó-
inn. Náðist líkið eftir nokkra stund og
voru af lækni reyndar lífgunartilraunir,
en árangurslaust.
Logi sál. var 27 ára, kvongaður mað-
ur, sonur Helga Jóhannessonar, er lengi
bjó í Múla,
L0GTAK.
Að undangengnum úrskurði kveðnum upp í fógetarétti
Akureyrar í dag verða ógreidd þinggjöld í Akureyrarkaupstað
frá árinu 1937 tekin lögtaki innan viku frá birtingu auglýsingar
þessarar.
Lögtökin fara fram án frekari fyrirvara.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar,
9. nóvember 1937.
S I G. E e G E R Z.
Silkinærfatnaður
kvenna í miklu úrvali, mjög ódýr.
Undirkjólar aðeins kr. 4.90
Buxur — — 2.10
Skyrtur — — 2 50
Sokkar — — 2 25
Kaupfclag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild.
Hraðritun
er skemmtilegtog i mörgum
tilfellum mjög gagnlegt að
kunna. Tilsögn geta menn
fengið hjá Kristni Sigmunds-
syni Oddagötu 11.
Velour
í glugga og gtuggaljöld.
Fieiri litir.
Vefnaðarvörudeild.
¥
STÚLKU
vantar til innanhússtarfa
fyrri hluta dags fram að
nýári. — Upplýsingar á
skrifstofu KEA.
Corn Flakes
er komið. Sömuleiðis
X E,
nýjar teguudir.
Nýlenduvörudeild.
í drengjaföt á aðeins
kr. 5,50
meterinn.
Kaupfélag
Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild
Varðtími lækna.
18. nóv. — Árni Quðmundsson.
19. nóv. — Jóhann Þorkelsson.
20. nóv. — Jón Geirsson.
21. nóv. — Sunnud. og kvöldið: Jón G.
22. nóv. — Pétur Jónsson.
23. nóv. — Árni Guðmundsson.
24. nóv. — Jóhann Þorkelsson.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
beztu kaupin gerið
þið á pappír og rit-
föngum í
Járn- og glervörudeild.
Kjólatau,
mikið úrval. Verð aðeins
kr. 2,70 meter.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild.
Prentverk Odds Björnssonar,