Dagur - 23.12.1937, Side 3

Dagur - 23.12.1937, Side 3
61. tbl. D A G U R 249 jólasöguna á ný um barnið, sem allir vildu sýna lotningu og færa gjafir, og englarnir spáðu um, að verða mundi mikill frelsari á jörðinni. En það er ekki nóg að verða snortinn af þessari sögu einu sinni á ári. Vér verðum að skilja það, að hvert einasta mannsbarn, sem í heiminum fæðist, er systkini þessa barns. Og hver veit nema englar himnanna hafi einnig sungið við fæðingu þess og því sé ætlað mikið og áríðandi hlut- verk að vinna í heiminum? Þess vegna erum vér einnig skyldug um að auðsýna því lotningu og færa því gjafir, hinar dýrustu, sem vér eigum: Vér eigum að gefa því, ekki aðeins ást vora og umhyggju heldur og trú vora á framtíð þess, alúð vora og fórn- fýsi, vorar æðstu og beztu hug- sjónir. Með því er von til, að hjá því glæðist allt, sem göfugast er, og það nái þeim þroska, sem það er frekast ákvarðað til. Ef vér tryðum þannig á æsk- una og breyttum þannig gagnvart henni, að vér gleymdum ekki hlutverki Maríu í jólasögunni, þá hætti jólahátíðin að vera æfin- týri eitt, sem kemur aðeins í huga vorn einu sinni á ári. Hún yrði megin markmið alls daglegs lífs. Ef eldri kynslóðin færi með al- vöru og ástundun að vinna að þroska og heill hinnar yngri, og ef hún gerði þetta af fórnfýsi móðurkærleikans og djúphyggli vitringanna, þá mundi mannlífið innan skamms ná að endurfæðast í anda og sannleika. Þá mundi dýrð drottins ljóma í kring um oss. Þegar vér því á hverjum jólum þökkum guði fyrir barnið, sem óx til þess manndóms, að það varð oss til fyrirmyndar um það, hvað sé þess vert að sækjast eftir því, hvað sé þess virði að trúa á það, og hvað sé þess virði að hugleiða það í hjarta sínu og gefa börnum sínum það í arf — þá gleymum heldur ekki að minnast hennar, sem hverri þeirri göfugri hugsun sáði í sál hans í barnæsku, er síð- ar bar fagran ávöxt. Ef mörg móðir líktist henni þyrftum vér eigi nú að horfa með söknuði út í næturhúmið og spyrja efandi um dýrð guðs í upp- hæðum. Fyrir kraft hennar trúum vér því, að friður guðs muni fyrr eða síðar taka sér bólfestu með öllu mannkyni. Þess vegna getum vér enn lotið henni og heilsað með þessari fögru latínu-bæn: Ave Maria, gratia plena. Það er útlagt: Heil sért þú, María, full náðar! jólamessur: Aðfangadag kl. 6: Akureyri. Jóladag kl. 11 f. h.: Akureyri. Jóladag kl. 2 e. h.: Lögpiannshlíð. 2. jóladag kl. 2 e. h.: Akureyri. (Barnaguðsþjónusta). Guðsþjónustur i Grundarþingapres kalli: Munkaþverá, jóladag kl. 12 á hád. Möðruvöllum, annan í jólum kl. 12 á hád. stundvíslega. Saurbæ, sama dag kl. 2 e. h. Hólum, nýársdag kl. 12 á hád. Grund, sunnudaginn 2. jan. kl. 12 á hád. jóhann Bersason á Skarði vegr bjarndýrit. Ejldur stóð at afli, óði kvað við hlóðir, — œsti hyrjar eisu iðju-þegn í smiðju. — Brá, er björn á hjarni bar fyrir dyr at Skarði, breiðum, blossarauðum brandi millum handa. Garpur geiri snörpum, glóðu roðnum lét boðit bessa, er beið á rassi, bana-lag við dagan. — Svafðist Sváru hœfður Silfrintoppr af skilfing, hné með hel und bógi hlébarður við jarðu. Hin bókin er Sagnir Jakobs gamla, þjóðsögu- og sagnasafn, mestmegnis frá Vestfjörðum, er Þorsteinn Erlingsson skráði eftir frásögn fræðaþulsins Jakobs Aþanasíussonar. Er þar all margt merkilegra sagna frá síðari árum. Allar þessar bækur eru- hinar prýðilegustu og kærkomnar öllum bókavinum! Helgi Valtýsson. Gyðjan og uxinn. Dró ór und, sás endi afreksverk, enn sterki, mæki, — en marðar verður mjöllu rauð ens dauða. — Hló við hugr, es bláan hjalta- greip frá belti -nað — ok húðfletti hraður hafliða á skafli. K. V. Bækur Þorsteinn Ertinsgsson: Eiðurinn. Kvæðaflokkur 3. útgáfa. —• Reykjavík 1937. Nú um nokkur ár hefir þessi þjóðdáði kvæðaflokkur um æsku og æskuástir Ragnheiðar Bryn- jólfsdóttur verið útseldur og með öllu ófáanlegur. Er þó efni hans jafn ungt og nýtt í huga þjóðar- innar og eigi sízt nú, þar sem svo mikið hefir verið skrifað um þc-ssa ungu konu og Skálholt á síðari ár- um, og það á þann hátt, að orkað hefir tvímælis. Er þessi 3. útgáfa „Eiðsins“ eigi síður vönduð og prýðileg en hin fyrri, og er því ein hin fegursta og tilvaldasta jólagjöf, ljóðelsku ungu fólki — og öllum ljóðvinum. Er útgáfa þessi — eins og hin fyrri — prýdd nokkrum myndum, er gera hana enn eigulegri og dýrmætari. Þar eru tvær myndir af skáldinu og sýnishorn rithandar hans á 1. er- indi hins dásamlega kvæðis Nótt: Nú máttu hægt um heiminn líða, svo hverju brjósti verði rótt, og svæfa allt við barminn blíða, þú bjarta heiða júlínótt. Ennfremur tvær myndir frá Skálholti: Skálholtsstaður og hin veglega dómkirkja, er Brynjólfur biskup lét byggja, og eru þær myndir báðar sjaldgæfar, en eiga hér sérstaklega heima. Hér er einnig hinn stórmerki formáli frú Guðrúnar, þar sem hún segir frá draumi mannsins síns, skömmu áður en hann and- aðist, er varð þess valdandi, að hann brenndi allan kvæðaflokk ainn, síðari hluta Eiðsins, þar eð hann var eigi í samræmi við það, er Ragnheiður hafði sagt skáldinu og sýnt í draumnum. En fyrri hlutann var hún mjög ánægð með. Þar hafði skáldið hitt á hið rétta. Og Þorsteinn brenndi öllum síð- ari kvæðaflokknum og ætlaði að yrkja hann^upp á ný, hafði allt efnið tilbúið og niðurraðað í huga sér þegar eftir drauminn. Og nú skildi skáldið til fulls „allt líf Ragnheiðar og dauða — og yfir- leitt lífið í Skálholti.“ Og hann hlakkaði til að byrja á ný. „Hús mitt skal brenna til batnaðar“, sagði hann við konu síria. En fyrst a-tlaði hann að yrkja mansöng til Guðrúnar, og átti hann að standa framan við síðari hluta „Eiðsins“. Því henni ætlaði hann að tileinka þennan mikla kvæðaflokk sinn. „Nokkrum dögum seinna gekk hann úr skrifstofu sinni síðasta sinn upp í svefnherbergið sitt, með þessar vísur í hendinni, skrif- aðar með blýanti, sumar þeirra skrifaði hann í rúminu fyrstu daga banalegunnar. Blaðið lá á næturborði hans, er hann var lát- inn. Þeim mansaung varð aldrei lok- ið.“ En það sem búið var af þessum undurfagra svanasöng Þorsteins Erlingssonar, er hér prentað fram- an við „Eiðinn“. Um þennan þjóðkunna kvæða- flokk þarf eigi að fara mörgum orðum. Allur þorri. landsmanna á fullorðins aldri ann ljóðum þess- um frá bernskuárum og kann mörg þeirra utanbókar. Enda hef- ir eigi fegurra og innilegar verið ort um æsku og ástir og vor og heiðar sumarnætur á íslenzka tungu. Mörg þessara kvæða eru ljóðrænir töfrar, er vekja söng í huga vorum og hljóma þar lengi. — Og hvernig er því varið, að tónskáld vor skuli eigi fyrir löngu hafa ort lög við heil kvæði þess- ara yndislegu ljóða? Eg vil nota tækifærið til að minna á tvær aðrar bækur Þor- steins Erlingssonar, sem frú Guð- rún, ekkja hans, hefir gefið út, og enn eru fáanlegar hjá bóksölum. Önnur þeirra eru hinar undur- fögru smásögur hans Málleýsingj- ar, æf'intýri um dýrin. En þar eru einnig sögur um mennina. Síðasta sagan gullfallega, um Sigurð mál- lausa, er skrifuð síðasta sumarið, sem Þorsteinn lifði. í ljómandi fallegum formála, er Ásgeir fræðslumálastjóri Ásgeirs- son hefir ritað að sögum þessum, segir að lokum réttilega: „Þor- steinn Erlingsson er einn af ’peim fáu útvöldu, sem á að yngjast upp með hverri kynslóð fyrir kvæðin sín og sögur“. Með því heiti er síðasta skáld- saga eftir Kristmann Guðmunds- son. Hún er að stærð 220 bls. Kristmann er afkastamikill rit- höfundur. Auk allra smásagna hefir hann lokið 11 stórum skáld- sögum og er þó ekki gamall maður. Sú saga Kristmanns, sem hér er bent á, er einstök í íslenzkum bókmenntum. Hún gerist austur á Krít fyrir þúsundum ára, og er aðalsöguhetjan piltur frá Þrakíu, sem leynist fram í ræningjaskip, sem siglir til Krítar. Þar kemst hann í undirbúningsskóla í uxa- musterinu, en þaðan liggur leiðin í lærdómsmusterið. Frásagnir og lýsingar á musterislífinu og sið- venjum þar eru nokkuð lang- dregnar og þreytandi, en sjálfsagt hefir höf. aflað sér öruggra heim- ilda um þessi efni, sem út af fyrir sig geta verið merkileg frá forn- fræðilegu sjónarmiði, þó að al- menningi þyki þau ekki aðlaðandi í skáldsögu. Eins og í fyrri sögum Krist- manns, er honum í þessari sögu tamt að draga fram í ljósið kyn- ferðishvatir sögupersóna sinna og virðist honum naumast vera sjálfrátt um þau efni. Það logar yfir jöklinum. Hið nýja leikrit Sig. Eggerz bæjarfógeta, með þessu nafni, hefir hlotið mikið lof í blaðadóm- um. „Hann er skáld, mannskratt- inn“, sagði Níels gamli um Jónas Hallgrímsson. Hið sama má ef- laust segja um Sig. Eggerz, þó að ekki jafnist á við Jónas. Um það ber þetta leikrit hans vott. í því eru prýðilega skáldlegar setningar víða hvar og spakleg málblóm. Tilgangur leiksins stefnir og að göfugu marki, en hann er sýnilega NÝJA-BÍÓ Annan jóladag kl. 2.30 e. b.: Avtlster. Niðursett verð. Sýnd í síðasta sinn. Annan jóladag kl. 5 og 9 e. h.: Intermezzo. Aðalhlutverkin leika: Ingrid Bergman, Gösta Ekman.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.