Dagur - 20.01.1938, Síða 3

Dagur - 20.01.1938, Síða 3
3. tbl. D AðUR 11 Það tilkynnist að faðir okkar Gnðmundnr Júlíus Jónsson, Príhyrningi, andaðist að heimili sínu 13. janúar siðastliðinn. Jarðarförin er ákveðin þriðjudaginn 25. þ.m., að Möðruvöllum, og hefst með húskveðju á heimili hins látna kl. 11 f. h. Þríhyrningi, 19. janúar 1938. Börnin. tilEglgB3S8B SIHW'ltf IH aMiiiMWiMHMB—H——— Fyrirspurnir til ritstj. Jsl ur kvenfélags íhaldsins, en for- stöðukonan verkfæri í hendi Jóns til að koma þar fram vilja hans. Með því hafi hann sigrað í hinni frægu prófkosningu hjá íhaldinu. En Jakob Karlsson, sem hefir mest traust í Sjálfstæðisfl. er sett- ur í 6. sæti á listanum — algerlega vonlaust sæti. Sýnist það vera glögg sönnun þess, að varla getur komið til mála að Sjálfstæðis- flokkurinn standi allur að þessum lista. Fjórði listinn er listi Framsókn- arflokksins — B-listinn. Efsti maðurinn á þeim lista er hinn þjóðkunni fjármálamaður og sam- vinnufrömuður, Vilhjálmur Þór. Enginn vafi leikur á því, að hann nýtur mest trausts allra hér í þessum bæ, til að starfa að bæjar- málefnum. Og þar sem aðrir menn listans eru valdir menn, sem kunnir eru fyrir störf sín við al- menn mál, má ganga út frá því, að listinn hljóti mikið fylgi. Enda er það bezt trygging fyrir farsælli framtíð bæjarfélagsins, að mið- bóksali og fyrrum ritstjóri varð fimmtugur að aldri 18. þ. m. Mörg heillaóskaskeyti bárust honum þann dag og margir vinir hans og kunningjar sóttu hann heim. Hefir hann jafnan verið sérlega vinsæll, ekki aðeins meðal flokks- manna sinna, heldur og í hópi andstæðinga. Mun þar miklu um valda, að hann er óvenjulega létt- ur í lund og síkátur og glaður í umgengni við hvern sem er. Þess vegna á hann fjölda vina og kunn- ingja en líklega engan óvin. FyrirspMMi til »Verkamannsins«. „Verkamaðurinn“ fór að reyna að bera í bætifláka fyrir hús- bændur sína í Moskva, vegna þýðingar á grein um afstöðu kommúnismans til kristindómsins er „Dagur“ birti eigi alls fyrir löngu, og neitaði blaðið því harð- lega að kristnir menn væru látnir sæta ofsóknum þar eystra, og lét á sér skilja, að grein „Dags“ hefði verið uppspuni frá upphafi til enda. Vegna þessa vill blaðið gera eft- irfarandi fyrirspurnir til „Verka- mannsins“: 1. Neitar „Vm.“ því, að fyrnefnd grein hafi birst í rússneska blaðinu „Trud?“ 2. Neitar „Vm.“ því, að blaðið • „Trud“ sé eitt af málgögnum Kommúnistaflokksins í Mos- kva? Svar óskast í næsta tbl. „Verka- mannsins“ og án allra vífilengja og tilvitnana í Þórberg Þórðarson. flokkurinn verði sem sterkastur í bæjarstjórninni, til að leggja lóð sitt á metaskálarnar, þegar öfg- arnar mætast. Aðalátökin við þessar kosningar eru á milli Framsóknarflokksins og sérhagsmunastefnu Jóns Sveirís- sonar. Framsóknarflokkurinn er því algerlega mótfallinn að æfin- týramenn, sem lítils trausts njóta, sé gefin aðstaða til að velja sjálfa sig í ábyrgðarstöður í bæjarfélag- inu. Listi Framsóknarjlokksins er eini listinn við þessar kosningar, sem hœgt er að treysta í þessu ejni. Kjósendur, sem athuga manna- val á lista Jóns Sveinssonar og lista Framsóknarflokksins, munu varla vera í miklum vafa um það, hvort verði heppilegra fyrir bæj- arfélagið, að fá Árna Jóhannsson og Þorstein Stefánsson inn í bæj- aistjórnina, til að ráða þar fram úr vandamálum bæjarins, eða frk. Arnfinnu Björnsdóttur undir stjórn Jóns Sveinssonar. Bœjarbúi. B-LISTI er listi miðflokksmanna. »Verkam.« iirekkur vii. „Kommum“ hér í bæ er sýni- lega órótt við þá fregn, að menn hópist inn í Framsóknarfélag Ak- ureyrar nú fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar. í angist sinni snýr „Verkamaðurinn“ frá 15. þ. m. sér að formanni félagsins og spyr: „Hvað eru margir pólitískir flokk- ar í Framsóknarfélagi Akureyr- ar?“ Það, sem „Vm.“ vill forvitn- ast um með þessari fyrirspurn, er auðvitað það, hvort menn, er áður hafa tilheyrt öðrum flokkum en Framsókn, hafi tekið sinnaskipt- um og gengið í Framsóknarfélag- ið, og fyrst og fremst vill blaðið grennslast eftir, hvort nokkrir fyrv. kommúnistar séu gengnir í félagið. Leiðtogujn „kommanna“ þarf ekki að koma það á óvart, þó að augu hinna hyggnari í liði þeirra opnist fyrir því að ekki sé sem heillavænlegast að vera í flokki þeirra manna, sem háðir eru og hlýða verða í blindri undirgefni fyrirskipunum frá blóðstjórninni í Moskva. Það er ekkert undarlegt, þó að slíkir menn hverfi frá villu síns vegar og leiti inn í frjáls- lyndan umbótaflokk. Að sjálfsögðu ber formanni Framsóknarfélags Akureyrar eng- in skylda til að gera „Vm.“ grein fyrir því, er fyrirspurn hans fjall- ar um. 1. Hvað hefir Jón Sveinsson af- rekað síðustu 4 árin, sem rétt- lætt geti það, að hann, sem ekki fékk að vera á lista Sjálf- stæðisflokksins við síðustu kosningar, og hafði ekki traust flokksins sem bæjarstjóri, er nú settur í efsta sæti á lista Sjálfstæðismanna? 2. Hvenær var frk. Arnfinna Björnsdóttir skólastýra á Siglu- firði? 3. Hvers vegna er Jakob Karls- son settur í vonlaust sæti á lista Sjálfstæðisflokksins? Vermlendingarnir, eftir Dahlgren. Þessi leikur, er nemendur Menntaskólans hér sýna um þess- ar mundir, er fallegur, sænskur dþýðusjónleikur. Skiftast þar á skin og skuggar, gleði og sorg, en allt fer vel á endanum. Leikurinn er töluvert vandasamur meðferð- ar, svo hann er í raun og veru of- viða fyrir viðvaninga. í stuttu máli er aðalefni hans þetta: Sveinn Eiríksson, hrepps- nefndarmaður í Holti og Lísa kona hans eiga son, er Eiríkur nefnist. Pilturinn^Jsynnist stúlku þar í sveitinni, er Anna heitir og er dóttir hjáleigubóndans, Jóns á Vatni. Takast ástir með unga fólk- inu, en feður þeirra eru svarnir fjandmenn, og sérstaklega stend- ur Sveinn í vegi fyrir þeirri ráða- gerð sonar síns, að hann festi Önnu sér fyrir konu. Til þess að koma í veg fyrir það, sendir hann Eirík son sinn burt úr sveitinni, en hann hafði áður gert tilraun til þess að knýja hann til að bindast annarri stúlku, Brittu, dóttur ríks bónda þar í nágrenn- inu. Þegar Eiríkur er kominn brott úr föðurgarði, lætur Sveinn gamli lýsa með þeim Brittu einn sunnudag þá messað er. Anna frá Vatni er þar stödd í kirkjunni, og er hún heyrir þetta, bregður henni svo við að hún hnígur í ómegin. Allt kemst í uppnám og hún er borin út úr kirkjunni. Er hún fær meðvitundina aftur eftir nokkra stund, er hún orðin vit- skert. Er hún um hríð veik og liggur rúmföst, en kemst aftur á fætur, en hefir ekki vitkast og ráfar um og leitar unnusta síns, er hún nú kallar „vatnabúann". Heldur hún mest til hjá vatni einu skammt frá bæ föður henn- ar. Sóknarpresturinn hittir hana þá einu sinni sem oftar og vill gera allt sem í hans valdi stendur til þess að létta hið þunga böl ungu stúlkunnar. Taka þau bát og róa um vatnið. En í þeim svifum kemur Eiríkur heim, en hann hef- ir enga vitneskju fengið um ástand unnustu sinnar, en er nú sagt nokkuð frá því. Sér hann Önnu í bátnum og kallar til hennar hástöfum. En henni bregð- ur þá svo við að hún fellur út- byrðis. Kastar Eiríkur sér þá í vatnið á efir henni, en þeim er báðum bjargað af fólki sem er þar í bát nálægt á vatninu. Meðan á þessu stendur, kemur Sveinn gamli á vettvang og hitt- ast þeir Jón á Vatni þar. í mikilli hugaræsingu tilkynnir Jón Sveini að börn þeirra muni vera drukkn- uð. Við þá fregn bugast Sveinn af sorg og samvizkubiti, og þeir sættast þar, gömlu mennirnir full- um sáttum. En eins og áður er sagt, hafa þau Eiríkur og Anna bjargast, og við þau viðbrigði hef- ir hún fengið vit sitt aftur ogfulla heilsu. í síðasta þætti leiksins fer svo fram brúðkaup þeirra Eiríks og Önnu með mikilli rausn og allskonar gleðskap. — Aðrir at- burðir, en þeir, sem hér hefir verið skýrt frá, fléttast og inn í leikinn, og margt fólk kemur þar við sögu. Sænskir þjóðdansar eru sýndir í leiknum, og inn í hann er flétt- að fjölda mörgum söngvum, jafn- vel helzt til of mörgum, því leik- þráðurinn slitnar sumstaðar dálít- ið þess vegna. Um meðferð leikenda á hlut- verkum þeirra verður lítið sagt hér. Þetta er „skólasýning“ og leikendurnir flestir byrjendur á leiksviði og sumir þeirra nær börn að aldri. Örlítil skil vil eg samt gera nokkrum þeirra og þá sér- staklega þeim þremur, er stærst viðfangsefnin hafa með höndum. Svein, hinn skapmikla og ráðríka bónda leikur Árni Jónsson ágæt- lega að ýmsu leyti. Talar skýrt, með góðum áherzlum og svip- breytingar miklar. En mér finnst hann hafa tæplega nógu gott per- sónugerfi og er full unglegur í hreifingum. Eirík, son hans, leíkur Hermann Stefánsson. Leikandinn er stór-myndarlegur á sviðinu og söngur hans er prýðilegur, enda er hann æfður söngmaður, og einkum vegna þess mun hann hafa verið fenginn til að fara með þetta sönghlutverk, en hann er of karlmannlegur og þroskaður, sem ungur maður, í samanburði við hina aðra meðleikendur sína. Þá er nú „stjarnan“ í leiknum, ungfrú Sigríður Stefánsdóttir, er leikur Önnu. Þetta er kornung Skrifstofa B-listans er í Hafnarstræti 108. Gunnlaugur Tr. Jönsson

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.