Dagur - 16.06.1938, Side 1
DAOUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son i Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlf.
Afgreiðslan
er hjá JÖNl Þ. ÞÖB, Norfr-
urgötu 3. Talsimi 112. Upp-
sögn, bimdin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
í
XXI
. árg. j
Akureyri 16. júní 1938.
27. tbl.
Fundur ungra Framsóknar-
manna að Laugarvatni.
Þýðlngannikíl fíinamóf i sögulegri
þróun Framsóknarflokksins.
A 2. hundrað fullfrúar mæfa á
fundinum.
Fyrir 19 árum hélt hinn ungi
Framsóknarflokkur fyrsta stóra
landsmót sitt á Þingvöllum. Það
var glæsileg samkoma djarfhuga
manna hvaðanæfa af landinu. Þar
var mörkuð stefna í þýðingarmikl-
um málum lands og þjóðar fyrir
framtíðina og þar bundust menn
föstum samtökum um að hrinda
þessum málum til framkvæmda
með samvinnu og samhug. Þá var
gott árferði og framleiðsluvörur
landsmanna í síhækkandi verði.
Það gerði menn örugga til átaka
og vonbetri um stóra sigra.
íhalds- og kyrstöðuöflunum í
landinu leizt miður vel á bliku þá,
er þeim þótti upp vera að draga
með hinu mannmarga þingi Fram-
sóknarmanna sumarið 1919. Eink-
um skaut þeim skelk í bringu,
hve margt var þar ungra manna.
Sýnilegt var, að æskan í landinu
var að hylla hina nýju framsókn-
arstefnu. Sú hefir og orðið raunin
á í sveitum landsins fyrst og
fremst. Það sýnir landsmót ungra
Farmsóknarmanna að Laugar-
vatni, sem staðið hefir yfir und-
anfarna daga.
Smátt og smátt hafa ungir
menn, sem styðja Framsóknar-
flokkinn, stofnað með sér félags-
skap úti um sveitir landsins og
einnig í sumum kaupstöðum.
Eru nú starfandi nálega 30 félög
ungra Framsóknarmanna með um
þúsund meðlimi og fleiri væntan-
leg á næstunni. Að þessu hefir
enginn fastur tengiliður bundið
þessi félög saman í eina heild og
er það óheppilegt. En nú er bót á
þessu ráðin. Félögin komu sér
saman um að velja fulltrúa, til
þess að koma saman að Laugar-
vatni. Mót þetta var sett síðastl.
laugardag og voru þar mættir á 2.
hundrað fulltrúar úr öllum sýsl-
um landsins. Verkefni mótsins var
fyrst og fremst það að stofna Sam-
band ungra Framsóknarmanna og
leggja drög að skipulögðum og
traustum samtökum þeirra, en
jafnframt að bindast traustum
kynningarböndum og ræða sam-
eiginleg áhugamál sín.
Þetta fyrsta flokksþing ungra
Framsóknarmanna er haldið á
þrengingartímum íslenzku þjóðar-
iimar. Aflaleysi, markaðshrun,
fjárpest og margvíslegir viðskipta-
örðugleikar gera lífsbaráttuna
För þessi hófst í gær. I henni
taka þátt 180 manns, þar af 30
konur. Þátttakendur eru af öllu
sambandssvæði Búnaðarsambands
Suðurlands, en það tekur yfir
Vestur-Skaftafellssýslu, Rangár-
vallasýslu, Árnessýslu og Vest-
mannaeyjar.
Tilhögun ferðarinnar er á þessa
leið:
15. júni: Komið saman við Ölf-
usá. Þaðan haldið vestur yfir fjall.
Korpúlfsstaðir, Blikastaðir og
Reykir skoðaðir. Búnaðarsamband
Kjarlarnesþings veitir kaffi. Síð-
an haldið áfram yfir Hvalfjörð til
Hvanneyrar og þar gist. Fyrir-
lestur.
16. júní: Haldið til Reykholts.
Búnaðarsamband Borgarfjarðar
veitir máltíð. Síðan ekið norður í
Vatnsdal. Þar mætir flokknum
stjórn Búaðarsambands Húna-
vatnssýslu. Ekið fram í Vatnsdal
og síðan til Blönduóss. Þar gist.
17. júní: Ekið til Skagafjarðar.
Skagfirðingar mæta flokknum á
Vatnsskarði. Búnaðarsambahd
harða. Menn verða að horfast í
augu við þessa örðugleika með
djörfung og ráðnir í að beita sam-
takamætti sínum að því marki að
sigrast á örðugleikunum án þess
að blikna eða blána. Ungu menn-
irnir, sem saman hafa verið á
Laugarvatni, og umbjóðendur
þeirra heima fyrir, eru þess full-
vissir, að Framsóknarflokknum sé
bezt treystandi til að vinna þenna
sigur. Þess vegna skipa þeir sér í
þéttri fylkingu uridir merki hans,
staðráðnir í að veita stefnu hans
öruggt og traust fylgi og flokkn-
um þá vaxtarmöguleika, að styrk-
ur hans og áhrif í málefnum þjóð-
Skagfirðinga veitir í Varmahlíð.
Ekið til Sauðárkróks. Þar veitir
Kaupfélag Skagfirðinga. Farið
heim að Hólum og þar gist.
18. júní: Guðsþjónusta í Hóla-
dómkirkju. Staðurinn skoðaður.
Fyrirlestur. Síðan haldið til Akur-
eyrar. Helztu sögustaðir á þeirri
leið skoðaðir. Gist á Akureyri.
Kaffidrykkja hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar.
19. júní: Ekið fram í Eyjafjörð.
Gróðrarstöð Ræktunarfélagsins
skoðuð. Gist aftur á Akureyri.
20. júní: Verksmiðjur K. E. A.
og S. í. S. skoðaðar. Snætt hjá K.
E. A. Ekið austur í Vaglaskóg.
Skógræktarstj óri veitir kaffi. Ek-
ið áfram. Staðnæmst við Goðafoss.
Gist að Laugaskóla.
21. júní: Ekið til Mývatns og
skoðað þar allt, sem fallegast er
og markverðast. Síðan ekið til
Húsavíkur og gist þar.
arinnar gegnsýri allt líf hennar í
framtíðinni. Þess vegna leggja
æskumennirnir á sig löng ferða-
lög og allmikinn kostnað til stofn-
unar Sambands ungra Framsókn-
armana og þess vegna hefir ókvik-
ul bjartsýni og trú á land og þjóð
birzt í starfi þeirra á landsmót-
inu á Laugarvatni, þrátt fyrir
sorta þann, er dregið hefir upp
yfir atvinnu- og viðskiptalífi þjóð-
arinnar nú um sinn.
Þessi viðburður vekur eftirtekt
um allt land og mun valda þýð-
ingarmiklum tímamótum í sögu
Framsóknarflokksins.
Að þessu sinni verður ekki nán-
ar skýrt frá stofnfundi Samb.
imgra Framsóknarmanna. Aðeins
skal þess getið, að í byrjun fund-
arins var lesin upp kveðja til
fundarins frá formanni Fram-
sóknarflokksins, Jónasi Jónssyni,
sem ekki gat mætt á Laugarvatni,
þar sem hann er á ferðalagi hér
norðanlands. Ennfremur má geta
þess, að Eysteinn Jónsson ráð-
herra flutti eftirtektaverða ræðu á
fyrsta degi fundarins, er hann
nefndi: „Landnemar skapa sér
sjálfir starf“. Birtist kafli úr þeirri
ræðu á öðrum stað hér í blaðinu.
22. júní: Ekið yfir Reykjaheiði
til Ásbyrgis og að Dettifossi.
Lengra verður ekki haldið, en þar
snúið við og ekið aftur til Húsa-
víkur. Gist þar og í Laugaskóla.
23. júní: Komið saman að
Breiðumýri. Farið til Akureyrar;
borðaður miðdegisverður þar og
síðan lagt af stað vestur. Gist í
Reykjaskóla.
24. júní: Snæddur miðdegisverð-
ur í Reykholti. Farið um Kaldadal
á Þingvöll. Lokamáltíð fyrir allan
flokkimi í Valhöll. Þaðan til
Reykjavíkur.
Steingrímur Steinþórsson búnað-
armálastjóri er fararstjóri.
Bændaferðir sem þessi hafa ver-
ið sjaldgæfar. Sú merkasta, sem
áður hefir verið farin, var för
norðlenzkra bænda til Suðurlands
árið 1910. Um þá för rituðu þeir
Sigurður á Arnarvatni og Jón í
Yztafelli myndarlega bók. — í
150 bændur og 30 konur taka pítl í forinni.