Dagur - 16.06.1938, Qupperneq 3
I
27. tbl
DAGUR
111
störf sín við það. Unga menn, sem
hafa opin augun fyrir mistökum
þeim og göllum, sem óneitanlega
eru á ýmsum málum, og vilja
vinna að endurbótum, en láta það
ekki verða til að draga úr starfi
sínu fyrir heildina.
Þjóðin þarfnast nú ungra manna
og kvenna, með metnað og áhuga,
sem ekki er sama hvort þau starfa
að verkum, sem eru gagnleg þjóð-
arheildinni og aðkallandi eða mið-
ur gagnlegum. Hún þarfnast
ungra manna, sem heldur vilja
róa á sjó til fiskjar eða stunda
garðrækt og hvaða sveitavinnu
sem er, heldur en stunda atvinnu-
bótavinnu eða ganga iðjulausir og
kvarta yfir því að hvergi sé rúm
fyrir þá eða starf sem bíði þeirra.
Landnemar skapa
sér sjálfir land.
Við búum í lítt numdu landi.
Allstaðar blasa verkefnin við.
Landið verður hins vegar aldrei
imnið til fulls, ef æskulýðurinn
aðhyllist einhliða kenningar
kröfumannanna.
Verulegt landnám og nýsköpun
getur ekki átt sér stað nema æska
íandsins sé þess reiðubúin að
leggja að sér nokkurt erfiði og
skapa sér þannig starf þeirrar teg-
undar, sem þjóðarheildin þarfnast
mest. ísland hefði aldrei byggst ef
landsnámsmennirnir hefðu ekki
sjálfir skapað sér starf — þótt
í byrjun væri örðugt, ef þeir
hefðu t. d. ekki byrjað á landnám-
inu fyr en þeim voru tryggðar
fastar tekjur eftir kaupgjaldsregl-
um nútíðarinnar. Á sama hátt
verður landnámi hér ekki haldið
áfram, ef unga fólkið bíður og
bíður eftir því að fyrir það opnist
starf með taxtakaupi kaupstað-
anna, ef unga fólkið er ekki reiðu-
búið til þess að leggja á sig erfiði
til þess að skapa sér rúm og starf
í framleiðslunni eins og forfeðum-
ir hafa gert. Þjóðin þarfnast
ungra manna, sem vilja og þora
að sækja brauð sitt í skaut ís-
lenzkrar náttúru.
Framsóknarflokkurinn lítur á
það, sem eina sína höfuðskyldu,
að styðja slíka æskumenn og
starfsemi þeirra. Hann mun fram-
vegis, sem hingað til, líta á það
sem sitt hlutverk, að standa á
verði gegn þeim, sem seilast eftir
arðimun af starfi þeirra.
KIRKJAN: Messað í Lögmannshlíð n.
k. sunnudag kl. 12 á hádegi (safnaðar-
fundur).
Tvð umferðaslys urðu hér í bœ um
síðustu helgi. Stúlka varð fyrir bifhjóli
og handleggsbrotnaði, en sá, er á bif-
hjólinu var; féll á götuna og fékk heila-
hristing. I annan stað varð stúlka fyrir
bifreið og meiddist á fæti. Hið meidda
fólk var flutt á sjúkrahúsið og mun líða
vel eftir ástæðum.
Bláa kápan var sýnd á Húsavík síð-
astl. fimmtudags- og föstudagskvöld við
geysi mikla aðsókn og síðan hér á Ak-
ureyri á Iaugardagskvöld í 3. og síðasta
sinn fyrir troðfullu húsi og urðu margir
frá að hverfa. Héðan fór leikflokkurinn
á sunnudagsmorgun og sýndi á Biöndu-
ósi þá um kvöldið,
Jósavin Guðmundssoi
bónda á Auðnum í Öxnadal.
Eins og áður hefir verið getið í
„Degi“, andaðist hann á sjúkra-
húsinu á Akureyri þann 27. maí
s.l. eftir þunga sjúkdómslegu.
Jósavin sálugi varð aðeins
tæplega 50 ára gamall, fæddur 17.
des. 1888 að Grund í Höfðahverfi.
Um uppvöxt hans er þeim er þetta
ritar lítið kunnugt, en mjög ungur
var hann, er hann varð að fara að
sjá um sig sjálfur.
Þann 30. apríl 1914 giftist hann
eftirlifandi konu sinni, Hlíf Jóns-
dóttur, hinni mestu dugnaðar- og
myndarkonu. Varð þeim 9 barna
auðið og eru 8 þeirra á lífi, öll hin
mannvænlegustu.
Fyrstu hjúskaparárin dvöldu
þau hjón á ýmsum stöðum, en
vorið 1922 reistu þau bú á Auðn-
um í Öxnadal og þar hafa þau bú-
ið síðan. Voru þau mörg ár leigu-
liðar þar, en voru nú fyrir fáum
árum búin að kaupa jörðina.
Þegar Jósavin sál. kom að Auðn-
um, var hann báfátækur, enda
ekki fyr komist að þolanlegri bú-
jörð til neinnar frambúðar; hafði
og ekki löngu áður orðið fyrir til-
finnanlegu tjóni í eldsvoða og
ómegð hans töluverð. En me'ð
framúrskarandi dugnaði og ráð-
deild, tókst þeim hjónum ekkl
einasta að sjá sér og barnahópn-
um farborða, heldur einnig að
bæta efnahag sinn verulega. Jósa-
vin sál. var skilvís maður og
áreiðanlegur og hefði sjálfsagt
fátt fallið þyngra en að láta aðra
greiða skuldir sínar, enda kom
ekki til þess. Og á verstu kreppu-
árunum eftir 1930, þegar flestir
bændur söfnuðu skuldum, minnk-
aði hann skuldir sínar, en jók þó
búið. Hann bætti ábúðarjörð sína
meira en títt er um leiguliða og
nú, er hann hafði eignast jörðina,
var hann að byrja á stórfelldum
framkvæmdum, bæði ræktun og
byggingum. Hafði hann undirbúið
byggingu íbúðarhúss, áður en
hann lagðist banaleguna, og var
verkið hafið áður en hann lézt og
verður nú haldið áfram af ekkju
hans.
Jósavin sál. var fáskiftinn mað-
ur og laus við allt yfirlæti. Hann
gaf sig og lítt að opinberum mál-
um og hafði engin opinber trún-
aðarstörf á hendi, en eigi að síður
var hann áhugamaður um mál al-
mennings, bæði sveitar sinnar og
þjóðarheildarinnar, og öruggur
flokksmaður þess stjórnmála-
flokks, er hann fylgdi að málum.
Jósavin sál. var góður drengur
í hvívetna, ágætur heimilisfaðir,
góður félagsbróðir og nágranni.
Það, sem einkum einkenndi hann,
var þrek, dugnaður, ráðdeild og
hagsýni í vinnubrögðum. „Það
var svo fallegt að sjá hann vinna“,
var sagt yfir moldum hans. Það
voru sönn orð. Eg, sem þetta
skrifa, var í mörg ár nákunnugur
búnaðarháttum hans og hefi eg
hvergi séð verkum hagað af meiri
hagsýni né með meiri dugnaði að
þeim gengið, en hjá honum.
Og nú er hann fallinn í valinn
á bezta aldri og þá er hann hugð-
ist sem mest að vinna. Þannig er
lífið stundum. Hann fékk ekki að
sjá nýja húsið á Auðnum rísa, í
stað gamla hrörlega bæjarins, en
— „hann lagði hornsteininn að
húsinu“, eins og sagt var við gröf
hans. Og húsið mun verða reist.
Vonandi fá ástvinir hans að njóta
þar birtu og yls og uppskera það,
sem hann sáði, og þá hefir barátta
hans og erfiði fengið sín laun, þá
hefir hann sigrað í dauðanum.
Bernh. Stefánsson.
Karlakórinn
Vísir
söng hér í Nýja Bíó á hvítasunnu-
dag s. 1., á leið sinni til Suður-
Þingeyjarsýslu, við góða aðsókn
og ágætar viðtökur.
Höfundur þessara lína hefir
ekki aðstöðu til að minnast á
meðferð einstakra verkefna, þar
hann starfaði sem meðlimur kórs-
ins næstsíðasta starfsár hans, enda
gerist þess ekki þörf, því að
hann er þegar orðinn landskunn-
ur af fyrri söngferðum sínum, og
sem starfandi meðlimur í S. í. K.
sem einn meðal fremstu kóra
landsins. Þó verður að geta þess,
að í viðbót við hina góðkunnu
tenóreinsöngvara sína, þá Daníel
Þórhallsson og Sigurjón Sæ-
mundsson, virðist kórinn vera að
eignast nýjan ágætan einsöngvara,
sem mikils má vænta af, þar sem
er bassinn Halldór Kristinsson,
héraðslæknir.
En það er önnur hlið á starf-
semi karlakórsins Vísir, heldur en
hin sönglega, sem ég get ekki
stillt mig um að minnast á. —
Þetta er útbreiðslu- og landvarna-
kór. Hann ætti að heita Her-
mannakórinn Vísir. Og engum bæ
í víðri veröld hefir legið eins á
hermennskustarfsemi, af þeirri
tegund er Vísir hefir haldið uppi
fyrirfarandi ár, eins og Siglufirði.
Og hvað ver þá kórinn? Fyrir
hverju berst hann og hvað út-
breiðir hann? Hann ver mannorð
bæjar síns, hann berst fyrir æru
hans og hann útbreiðir réttan
skilning á honum.
Siglufjörður er landsins afflutt-
asti og mannorðslausasti bær. Til
skamms tíma var það segin saga,
ef minnzt var á Siglufjörð, að um-
sögn flestra íslendinga var eitt-
hvað á þessa leið: „Þetta er ekki
bær. Það er óþrifahola. Þar er
enginn minnsti menningarvottur í
einu né neinu. Þar býr enginn ær-
legur maður, heldur eintómir bóf-
ar, fjársvindlarar, fylliraftar og
siðleysingjar“. Það hefir lítið stoð-
að þótt einstaka réttsýnir menn
hafi verið að reyna að benda á að
þetta væri hin mesta fjarstæða.
Að hinir eiginlegu Siglfirðingar
hefðu haldið uppi ágætri og
merkri menningu undir erfiðustu
skilyrðum allra bæja á íslandi.
Allt hefir komið fyrir ekki. Fólk
var nú einu sinni búið að fá þetta
inn í sig, og fortölur þýddu ekki.
En nú á seinni árum hefir karla-
kórinn Vísir tekið málið að sér,
og hann hefir farið sínar eigirj
leiðir. Hann talar ekki um fyrir
fólki. Hann sannfærir það með
staðreyndum. Það er sem sé varla
til svo rangsnúinn og skilnings-
laus maður, að hann ekki sjái í
hendi sér, að einhver töluverð
menning hlýtur þó að leynast í
bæ, sem framleiðir hóp jafn gervi-
legra og mannaðra pilta eins og
þá, sem flokkinn skipa, og að feð-
ur þeirra og mæður hljóta að hafa
gefið þeim einhver undirstöðugóð
manngildisverðmæti að arfi, því
slíkir kvistir vaxa ekki rótarlaus-
ir. Og smátt og smátt fara menn
að sannfærast um, að eitthvað
hafi verið bogið við hinn almenna
Stóradóm þjóðarinnar yfir Siglu-
firði.
Þessi skilningur fylgir nú orðið
allstaðar í spor karlakórsins Vísir.
Þetta er árangurinn af hinni sig-
ursælu hermennsku hans. Og það
má sannarlega segja um hann, að
„þetta er að kunna vel til vígs
og vera lands síns hnoss“.
Stefán Bjarman.
Góður gestur.
Hinn góðkunni búlgarski blaða-
maður Ivan Krestanoff er nýkom-
inn til bæjarins og hyggst að
halda hér fyrirlestra nú næstu
daga. — Hr. Krestanoff hefir unn-
ið mikið og óeigingjarnt starf til
þess að kynna ísland og íslenzk
málefni löndum sínum. Hann hef-
ir ritað fjölda greina í búlgörsk
blöð og tímarit um ÍSland. Vænt-
anlega fýsir marga bæjarbúa að
hlýða á mál hans.
Menntaskólanum var slitið á mánudag-
inn var. Útskrifaðra stúdenta verður
getið siðar.
Leyniteg atkvæöagreiðsla fór nýlega
fram í verklýðsfélaginu Dagsbrún í
Reykjavík um lagabreytingar, er Héðinn
Valdimarsson og kommúnistar vildu
koma fram og áttu að gefa þeim aukin
völd i félaginu. Atkvæðagreiðslan stóð
yfir í 4 daga og var barizt af mikilli
heift á báðar hliðar. Úrslit þeirrar or-
ustu urðu þau, að Héðinn og hans lið
varð í nokkrum minni hluta. Voru laga-
breytingar Héðins felldar með 647 atkv.
gegn 619.
Samtímis fór fram atkvæðagreiðsla um
það, hvort svipta ætti 8 Alþýðuflokks-
menn fulltrúaumboði fyrir félagið á Al-
þýðusambandsþing. Féll það einnig með
639 atkv. gegn 594.
Héðinn og kommúnistar töpuðu þvi
báðum atkvæðagreiðslunum, þó að ekki
væri munurinn sérlega mikill.
Atkvæðagreiðsla hefir farið fram með-
al sjómanna i Reykjavík og Hafnarfirði
um það, hvort lögskrá skyldi á sildveiði-
skipin eftir kaupákvæðum gerðardóms-
ins frá í vetur. Var það samþykkt með
miklurn meirihluta. Atkvæðagreiðslan
var Ieynileg.
Dánardægur. Þann 10. þ. m. andaðist
í Reykjavík Guðrún Sesselja Jónsdóttir,
móðir Kristjáns bakara, 76 ára að aldri.
Kantötukór Akureyrar syngur í Húsa-
víkur-kirkju næstk. Iaugardagskvöld kl.
9 síðdegis. — Meiri hluti viðfangsefna
verða gamal-kunn smálög — og einnig
tveir kórsöngvar úr Friður á jörðu. —
Inngangseyrir aðeins 1 króna.
Akurliljufélagar! Súlnaförinni frestað
til 25. |úní,