Dagur - 22.09.1938, Blaðsíða 1

Dagur - 22.09.1938, Blaðsíða 1
DAOUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júll. Afgreiðslan er hjá JÓNl Þ. ÞÓE, Norð- urgötu 3. Talsími 112. Upp- sögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. XXI. árg. J Akureyri22.september 1938. 41. tbl. Stríð eða friður? Evrópufriðurinn hefir verið á hangandi hári undanfarna daga. íkveikjuefnið er ekki innrásar- stríðið á Spáni, heldur ástandið í Tékkóslovakíu. í því ríki éru bú- settir 314 miljón Þjóðverja. Þeir nefnast Súdetar og foringi þeirra nefnist Henlein. Þykjast þeir verða að búa við slæm kjör undir stjórn Tékka og heimta sjálfstjórn sér til handa. Hefir af þessu spunnist deila og harðir árekstrar milli Tékka og Súdeta samfara manndrápum á báðar hliðar. Þýzku blöðin blása að kolunum og hafa foringjar nazista í Þýzka- landi lofað Súdetum vopnaðri hjálp, ef á þyrfti að halda. Tékk- neska stjórnin hefir orðið að grípa til sérstakra neyðarráðstafana til að halda uppi reglu í Súdetahér- uðunum og má heita, að einskon- ar hernaðarástand sé þar ríkjandi. Súdetar hafa flúið unnvörpum til Þýzkalands og margir Tékkar hafa flúið Súdethéruðin. Leiðtogar Súdeta leitast við að auka róst- urnar eftir mætti. Frakkar eru samningsbundnir við Tékka um að hjálpa þeim, ef á þá verði ráðist. Englendingar eru í miklu vinfengi við Frakka. Auk þess eru Rússar Tékka meg- in. Aftur á móti er Mussolini á bandi Þjóðverja. Englendingar hafa lagt sig mjög fram um að fá deiluna leysta á friðsamlegan hátt. Hafa þeir þótzt sjá, að ef það ekki heppnaðist, væri stór hætta á Evrópustríði. Því var það, að í síðustu viku fór Chamberlain forsætisráðherra Breta fljúgandi til Þýzkalands á fund Hitlers og átti við hann sam- ræðu. Enn hefir ekki frétzt ná- kvæmt af viðræðum þeirra. Þó hefir verið fullyrt, að kröfur Hitl- ers hafi verið á þá leið, að þau Súdetahéruð, þar sem Þjóðverjar eru í sterkum meiri hluta, verði látin af hendi við Þýzkaland, en önnur héruð, þar sem Þjóðverjar búa, verði gerð að „kantónum“ eftir svissneskri fyrirmynd, og síðan taki stórveldin að sér að ábyrgjast að vernda þann hluta Tékkóslovakíu, sem þá verður eft- ir. Talið er, að brezka og franska stjórnin hafi komið sér saman um .grundvöll til þess að ganga til móts við þessar kröfur Hitlers, en allt er þó enn þoku vafið um úr- lausn þessa máls. Enginn getur enn um það sagt, hvort í þeirri þoku felst stríð eða friður. Cham- berlain og Hitler hittast aftur um þessar mundir til nýrrar og að líkindum úrslitaviðræðu um mál- ið. Líklegt er talið, ef.gengið verð- ur að kröfum Hitlers um samein- ingu Súdetahéraðanna við Þýzka- land, muni af því leiða að pólsku og ungversku þjóðarbrotin í Tékkóslovakíu brjótist undan yf- irráðum Tékka. Haft er eftir stjórninni í Prag, sem er höfuðborg Tékkóslovakíu, að hún taki heldur þann kost að berjast til þrautar, en að láta af hendi þumlung af landi sínu. Hér er því sá hnútur riðinn, sem óleysanlegur sýnist án stríðs á einhvern hátt. Síðuslu fregnir. Eftir að framangreint var ritað og sett í letur berast þær fregnir, að Pragstjórnin hafi ekki séð sér annað fært, en að fallast á tillögur Breta og Frakka um lausn deil- unnar. Samkvæmt því má vænta þess, að ófriðarblikan sé liðin hjá í bili. K v e ð j a. Síðastliðið föstudagskvöld héldu Svarfdælir kveðjusamsæti á Dal- vík þeim læknishjónunum frá Ár- gerði, Sigurjóni Jónssyni og frú hans. Samsætið sat á annað hundrað manns, en raunar voru þátttakendur miklu fleiri er eigi gátu mætt sökum annríkis. Aðal- ræðuna fyrir minni heiðursgest- anna hélt Þórarinn Eldjárn hrepp- stjóri á Tjörn og afhenti þeim um leið málverk, útsýn af Vaðla- heiði yfir Eyjafjörð, eftir Svein Þórarinsson málara. Sigurjón Jónsson hefir verið læknir Svarfdæla um 30 ára skeið, en sagði af sér embætti s.l. vor. Hann hefir verið fyrirmyndar embættismaður á alla grein, enda skilur hann eftir djúpa virðingu og þökk héraðsbúa. Haustfundur Félags barnakenn- ara við Eyjafjfarð hefst í barna- skólanum á Akureyri laugardag- inn 1. okt. næstk., kl. 4x/2 síðdegis. Aðalumræðuefni fundarins verð- ur þátttaka félagsins í undirbún- ingi hátíðarhalds í tilefni 50 ára afmælis kennarasamtakanna. L ö o g æ s I a n í bæniim. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á fundi framkvæmda- nefndar Umdæmisstúkunnar nr. 5 þann 19. þ. m. „Vegna vaxandi drykkjúskapar- óreglu, óspekta á götum úti og samkomustöðum í bænum, skorar framkvæmdanefnd Umdæmisstúk- unnar nr. 5 á háttvirta bæjar- stjórn Akureyrar: 1. Að fjölga nú þegar lögreglu- þjónum bæjarins eins og lög áskilja. 2. Að sjá svo um, að lögreglan fái varðstofu til afnota, svo að hægt sé að ná til hennar, ef þörf gerist. 3. Að hafa til fangaklefa, svo að hægt sé að fjarlægja ölóða menn af almannafæri. 4. Að hlutast til um að Sam- komuhús bæjarins sé ekki lánað fyrir almennar samkomur, nema með því skilyrði, að ölvuðum mönnum sé bannaður aðgangur og sé það tekið fram í auglýsingum. Lítur framkvæmdanefnd svo á, að framtíð bæjarfélagsins sé háski búinn, ef svo er áfram haldið, sem nú horfir í þessum efnum og telur það brýna skyldu bæjarstjórnarinnar að auka lög- gæzluna í bænum og koma á hana því menningarsniði sem nauðsynlegt er. Á síðastl. vori tók miðstjórn Framsóknarflokksins þá ákvörðun í samráði við stjórn Blaðaútgáf- unnar h. f. að sameina flokksblöð sín, Tímann og Nýja dagblaðið. Þessi ákvörðun er nú komin til framkvæmda. Með útkomu Nýja dagblaðsins 15. þ. m. hætti það að koma út. En í stað þess að Tíminn hefir hingað til komið út einu sinni í viku, kemur hann hér eftir út annan hvern virkan dag í nýju formi með sama leturfleti og áður og verður sendur öllum kaupend- um Nýja dagblaðsins. Þessi ákvörðun um sameiningu blaðanna var tekin vegna þess, að miðstjórn Framsóknarflokksins taldi eðlilegra að gefa út eitt blað, sem útbreiðslu hefði um landið allt, heldur en að halda úti viku- blaði fyrir sveitirnar og dagblaði, sem aðallega væri miðað við kaupstaðina. Miðstjórn Framsóknarflokksins væntir þess, að þessi breyting á blaðaútgáfu flokksins verði til þess, að betur verði fudnægt þörf- um hinna dreifðu byggða, en að áhugasamir flokksmenn í þéttbýl- inu felli sig eftir ástæðum við breytinguna. Þórarinn Þórarinsson, sem verið hefir ritstjóri N. dagbl., tekur að sér ritstjórn Tímans ásamt Gísla Guðmundssyni, sem er ábyrgðar- maður blaðsins. Nefndarskipun samkv. tillögu J. J. Ríkisstjórnin hefir í samráði við landsmálaflokkana skipað nefnd til þess að gera ti'lögur um, hvern- ig bezt yrði búið í haginn fyrir aldurhnigna sjómenn. Eiga sæti í nefndinni Pálmi Loftsson fram- kvæmdastjóri, Sigurjón Á. Ólafs- son alþingismaður og Þorsteinn Þorsteinsson fyrv. skipstjóri. Jón- as Jónsson bar á síðasta Alþingi fram tillögu um nefndarskipun þessa. Kirkjan: Messað í Akureyrar- kirkju n.k. sunnudag kl. 2 e. h. ZÍON. Samkoma næstkomandi sunnudag kl. 8,30 e. h. Allir velkomnir. Síra Björn O. Björnsson flutti erindi í Skjaldborg í gærkveldi. — Efni: „Hvað vantar íslenzku prest- ana mest?“ Nokkrar umræður urðu á eftir. Nánar mun verða vikið að er- indi síra Björns í næsta blaði. Þess skal þó getið nú þegar, að deild var stofnuð í félaginu Vída- línsklaustur í Görðum við þetta tækifæri. Stofnendur um 20; með- al þeirra, auk vígslubiskupsins, bæjarstjórinn Steinn Steinsen, Oddur Björnsson, Páll Bergsson í Hrísey, Halldóra Bjarnadóttir, Lárus Thorarensen, Vigfús Jóns- son, málarameistari. □ Kún 51)389267 - Gunnar Gunnarsson skáld hefir að sögn keypt jörðina Skriðu- klaustur í Fljótsda' og flytur al- farinn heim til íslands á næsta vori, til þess að reka búskap á jörðinni. Umsögn um söng frú Elísabetar Einarsdóttur í Nýja Bíó síðastl. sunnudag bíður næsta blaðs vegna rúmleysis.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.