Dagur - 17.11.1938, Page 3

Dagur - 17.11.1938, Page 3
49. tbl. DAGUR 199 Beaiedikt á Moldhangum. Nokkiir Maðnrinn minn, faðir okkar og (engdafaðir, Böövar Bjarkan, andaðist 13. þ. ni. Útforin fer fram niiðviku- daginn 23. nóv. næstk. og hefst með húskveðfu kl. 1,30 e. h. að heimili okkar, Brekkuglitu 6, Akureyri. Krisfín Bfarkan. Skúli Bjarkan. Sigrún Bjarkan. Ragnar Bjarkan. Benedikt Guðjónsson hrepp- stjóri á Moldhaugum í Glæsibæj- arhreppi andaðist að heimili sínu 1. nóv. s.l. Jarðarför hans fór fram að Möðruvöllum í Hörgárdal laug- ardaginn 12. s. m. að viðstöddu fjölmenni. Síra Friðrik J. Rafnar flutti húskveðju, en sóknarprest- Benedikt Guðjónsson. urinn, síra Sigurður Stefánsson, talaði í kirkjunni. Karlakórinn Geysir annaðist um sönginn. Sýslunefndarmenn Eyjafjarðar- sýslu báru kistuna í kirkju, en starfsmenn úr K. E. A. úr kirkju. Benedikt var fæddur að Þóru- stöðum í Kaupangssveit 8. júli 1868 og var því nær fjórum mán- uðum betur en sjötugur, er hann andaðist. Hann var af fátæku for- eldri kominn og missti báða for- eldra sína um 8 ára aldur. Ólst hann síðan upp á vegum vanda- lausra og mun ekki hafa verið mulið undir hann á þeim árum. Saga hans er saga munaðarlausa drengsins, sem vann sig af eigin ramleik fram úr umkomuleysi æskuáranna til manndómsþroska fullorðinsáranna.. Um tvítugsaldur réðist hann vinnumaður að Hrafnagili til hins þjóðkunna fræðimanns, síra Jónasar Jónas- sonar. Óefað mun dvöl Benedikts hjá þessum fjölhæfa menntamanni hafa örvað námslöngun hans sjálfs. Haustið 1892 fór hann í Möðruvallaskólann og stundaði þar nám í tvo vetur. Hann var 24 ára gamall þegar hann kom í skólann og vel þroskaður orðinn bæði til sálar og líkama. Skóla- bræðrum hans fannst hann stund- um nokkuð kaldhryssingslegur í svörum og í fyrstu var hann mjög svo óráðin gáta, en við fyrsta prófið reyndist hann með þeim efstu í sínum bekk, og brátt urðu skólabræður hans þess vísir, að undir skelinni átti hann viðkvæmt drengskaparhjarta, sem aldrei brást. Benedikt sóttist námið ágætlega og óx í áliti skólabræðra og kennara, því lengur sem leið. Eftir að hann fó.r frá Möðruvöll- um hafði hann í huga að halda áfram skólanámi og fara í Latínu- skólann, sem þá var svo nefndur, en af því varð þó ekki. Síðast á árinu 1895 kvongaðist Benedikt og gekk að eiga heitmey sína, Málmfríði Baldvinsdóttur Baldvinssonar prests á Upsum. Var hún fótsurdóttir bændaskör- ungsins Jóns Guðmundssonar á Krossastöðum. Reistu ungu hjónin minningarorð. bú að Ytra-Hóli í Kræklingahlíð og voru fátæk í fyrstu, en síðar meir urðu þau vel bjargálna, enda var Benedikt kappsamur og dug- legur verkmaður. Eftir fárra ára búskap að Ytra-Hóli fluttu þau hjón búferlum að Moldhaugum í sömu sveit og hafa dvalið þar alla tíð síðan. Vegna hæfileika Benedikts og mannkosta ávann hann sér traust sveitunga sinna og voru honum því falin ýms mikilvæg trúnaðar- störf. Hann var í hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps í 29 ár, frá 1905 til 1934, og oddviti hreppsnefndar- innar í allmörg ár. í sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu átti hann sæti i 27 ár, frá 1911 til dauðadags. Árið 1915 var hann settur hreppstjóri Glæsibæjarhrepps og skipaður í það embætti árið eftir og gegndi því starfi til æfiloka. í fjölda mörg ár var hann einnig endurskoðandi reikninga þeirra, er við koma Eyjafjarðarsýslu. Öll sín trúnaðar- störf leysti hann af hendi af hinni mestu skyldurækni og röggsemi. Benedikt var kosinn í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga árið 1918 og jafnan síðan endurkosinn. Hann var óhvikull samvinnumað- ur og var ánægjulegt að eiga samstarf við hann í þeim málum. Þeim hjónum varð 6 barna auð- ið og eru öll uppkomin. Þau eru þessi: Jón Marinó, bóndi á Efri- Rauðalæk. Snjólaug, húsfreyja á Mold- haugum. Anna Baldursbrá, ógift heima. Unnur, kennslukona í Þingvalla- sveit. Daney, ógift heima. Guðmundur, bílstjóri, heima. Benedikt var lengstaf heilsu- hraustur maður. Þó lá hann þunga legu fyrir allmörgum árum og bar hennar minjar æ síðan, en komst samt til sæmilegrar heilsu aftur. Fyrir nokkru kenndi hann þess innvortissjúkdóms, sem leiddi hann til dauða. Hann sá hvað verða vildi. Dauða sínum mætti hann með karlmannlegri geðró og öruggu trúartrausti. I honum var kjarnviður. Hjónaband. Síðastl. laugardag voru gefin saman hér í kirkjunni ungfrú Björg Axelsdóttir kaup- manns Kristjánssonar og Agnar Koefod Hansen flugstjóri. Háskólabyggingin í Reykjavík má nú heita fullgerð að utan, en að ganga frá öllu innanhúss tekur langan tíma. Gert er þó ráð fyrir að verkinu verði að fullu lokið sumarið 1940. Ráðgert er, að kostnaðurinn við bygginguna verði eitthvað yfir eina milj. kr., en í hana hafa þegar farið nálægt sjö hundruð þús. kr. Húsið er reist fyrir happdrættisféð sem kunnugt er, og er talið að það verði hið glæsilegasta og mikil bæjarprýði. Benediki Guðjónsson hreppstjóri, f. 8. júlí 1868, d. 1. nóvember 1838. (Flutt við útför hans í kirkjunni). Þú ert horfinn. — Þú ert farinn þangað, sem að feðraskarinn, vegamóður, veöurbarinn, vitjaði lands á undan þér. Þetta land, sem lýðir sáu, leizt þú, með þeim háu og smáu, brosandi svo gazt þú gengið gröf og dauða móti hér. Minning þín mun lengi lifa Ijúf og kcer, og strengi bifa. Margt var starfað þjóð til þrifa þinnar sveitar málum að. Dugnaður og drengskapslundin, djúphyggjan og hjálpfús mundin vinsœldir og traust þér tryggðu, trúr þú varst á hverjum stað. — Þakkir vinur. — Því skal segja: þetta er að lifa, en ekki að deyja, þetta er sínum herra að hneigja höfuð sitt á rétta lund. — Æska, tak þú mannsins merki mundum tveim, i orði og verki, ber það fram mót sumri og sólu, sigurinn felst í þinni mund. D. J. Anna Tómasdóttir, Eyrarlandi, 80 ára 23. október 1938. Tvenna ferna tugi ára traust þig leiddi drottins mund ; opt þó risi rauna bára, röðull skein þér aðra stund ; lindin þó að titri tára, traust hún veitir mannsins lund. Heiðurskona heill þér veitist, hylla vinir þig í dag; aldrei gæfan því á þreytist, þinn að milda og bæta hag ; v ð því allar vættir leitist að verði bjart þitt sólarlag. Anna, þér ég þakkir færi, það, sem okkar kynning nær; stirðan hörpu streng eg hræri, stefnir til þín kærleiks blær. Af þínu dæmi þjóðin læri þá list, sem að er öllum kær. Lengra eg ei lopann teygi ljóða nú í þetta sinn ; aldrei sorg þér verði á vegi, við þér brosi heimurinn allt að hinztum æfi degi; ósk ei betri til þín finn. , J. 0. K A U PI notuð isl. frfmerki hæsfa verði. Ouðm. OuðlaugssonKea Alúðarþakkir vottum við öll- um þeiin sem sýndu okkur samúð og hlutlekningu við and- lát og jarðarför Benedikts Guðfónssouar á Mold- haugum. Vandamenn Pökkum innilega auðsýnda samúð og liluttekningu við frá- fall og jarðarför mannsins míns og föður okkar, Sveinbjarnar Sigtryggssonar Saurbæ. Sigrún fónsdóttir og börn. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og útför ekkj- unnar Bjargar Kristjáns- dóttur. Vandamenn. Kaupi notaðar sðgubækur. Verzlunin Norðurland. Fimm ára aWi. Ungmennastúkan Akurlilja nr. 2 minntist 5 ára afmælis síns í Skjaldborg 12. þ. m. Þar voru saman komnir 140 manns. Fór þar fram kaffidrykkja, ræðuhöld og' söngur undir borðum. Æðsti templar stúkunnar, Magnús Jóns- son, stjórnaði samkomunni. Eirík- ur Sigurðsson mælti fyrir minni stúkunnar en Snorri Sigfússon fyrir minni íslands. Hans Jörgens- son flutti ræðu um æskuna og bindindið. Anna Snorradóttir og Ólafur Hjartar lásu upp kvæði. Sex stúlkur skemmtu með söng. Fjórir piltar og fjórar stúlkur önnuðust framreiðslu einkennis- búin. Á eftir var stiginn dans fram eftir nóttu. í stúkunni eru 150 félagar. Ferðafélag Akureyrar heldur fund í Samkomuhúsinu næstk. miðvikudagskvöld kl. 8,30. Til skemmt- unar: Skuggamyndasýning, ferðasaga tjl Herðubreiðar o. fl.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.