Dagur - 15.12.1938, Síða 1

Dagur - 15.12.1938, Síða 1
DAOUR bemur út á hverjum fimtu- degi. K»3tar kr. 6.00 árg. Gjaidkeri: Arni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. Júli. XXI. árg. j Afgreiðslan er hjá JÓNl Þ. ÞOR, NorO- urgötu 3. Talsími 112. Upp- sögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. *-o-*-*- *-* * * * • »«*«« *a » e o■ Akureyri 15. desember 1938. 53. tbl. - • ♦ » • • •-■« irsxa verKivQSDiausii kofnmunismann. Norska Dagblaðið, sem gefið er út í Oslo, skýrir 1. nóv. s. 1. frá eftirtektaverðum ummælum verk- lýðsblaðsins norska (Arbeider- bladet) um kommúnismann í Rússlandi og áhrif hans í öðrum ríkjum í Evrópu. Sú var tíðin, að norska verklýðs- blaðið leit á stjórnmálastefnu ráð- stjórnarríkjanna sem fyrirmynd, en nú kveður við nokkuð annan tón. Blaðinu farast orð á þá leið, að það hafi verið stór yfirsjón að gera rússneska bolsevismann að útflutningsvöru. í Rússlandi hafi þessi stjómarstefna mótast af því sérstaka ástandi, sem þar hafi ver- ið fyrir hendi: einveldi og óstjórn yfirstéttar, sem að lokum hafi ver- ið orðin sundruð og ráðþrota. Norska Dagblaðið telur það mikið gleðiefni, að augu verklýðs- blaðsins hafi opnazt fyrir þeim sannleika, að rússneski bolsevism- inn hafi orðið til sKfeðræðis í Ev- rópu utan Rússlands. í því sam- bandi vitnar það ennfremur til þeirra ummæla verkamannablaðs- ins, að í Ítalíu og Þýzkalandi hafi kommúnisminn með sundrungar- starfi sínu og heiftrækni skapað jarðveginn fyrir fasisma og naz- isma þessara ríkja, sem hvarvetna hafi orðið ofjarlar kommúnism- ans og drepið niður verklýðshreyf- inguna og frelsi þegnanna. Loks bendir norska Dagblaðið á það, að málgagn landflótta Þjóð- verja, Das Neue Tagebuch, sem kemur út í París, sé algerlega sammála norska verklýðsblaðinu um það, að afleiðingar kommún- ismans hafi verið hinar örlaga- þrungnustu gagnvart stjórnmálum Evrópu, því án hans hefði hvorki fasismi né nazismi orðið til í Ev- rópu. Þessar fullyrðingar norska verk- lýðsblaðsins og „Das Neue Tage- buch“ um skaðsemi kommúnism- ans ættu að verða okkur íslend- ingum ærið umhugsunarefni. Ekki svo að skilja að hér hafi birzt nokkur ný sannindi, sem við ekki vissum áður, en það er ekki nóg að vita hið rétta, ef ekki er breytt eftir Jsví. Við höfum svo sem orðið þess varir hér á landi, að kommúnism- inn hefir myndað nokkurn jarð- veg fyrir fasistískar og nazistísk- ar tilhneigingar. Og því meir sem kommúnisminn veður uppi, því betri skilyrði fást fyrir þróun þessara útlendu ofbeldisstefna. Þess vegna er um að gera að skera burtu rætur meinsins. Til þess eiga allir þjóðhollir menn að leggja lið sitt. í þeirri baráttu ætti okkur að verða mikill styrkur í fordæmi frændþjóða voi’ra á Norðurlönd- um. Þær hafa allar þurrkað komm- únismann út hjá sér og um leið útrýmt fasista- og nazistahætt- unni. Förum eins að. Eimskipaf élagið lætur smíða nýtízku farþegaskip. Þr|á sólarhringa milll Rvfihur og Khafnar. Eimskipafélag íslands hefir látið blaðinu í té eftirfarandi upplýsingar: Svo sem kunnugt er hefir Eim- skipafélag íslands undanfariö verið að vinna að því að smíðað yrði handa félaginu farþega- og flutn- ingaskip, miklu stærra og hrað- skreiðara en þau skip, sem nú eru í förum milli fslands og útlanda. Undirbúningi þessa máls er nú það langt komið að stjórn Eimskipafé- lagsins hefir leitað tilboða hjá 18 skipasmíðastöðvum á Norðurlöndum, í Pýzkalandi, Hollandi, Frakklandi, Ítalíu og Stóra-Bretlandi og eiga tilboð að vera komin fyrir 15. janú- ar næstkomandi. Stcefð skipsins á að vera sem hér segir: lengd 320 fet, breidd 45V3 fet, dýpt 26a/2 fet og djúprista 16 fet. Til saman- burðar má geta þess að »Gullfoss< og »Goðafossc eru 230 fet að lengd en »Brúarfoss« og »Dettifoss« 237 fet. Skipið verður motorskip með einni vél, 11 cylindra, með 5000 hestöfluni. Hraði skipsins í reynsluiör, með fullfermi af stykkjavöru (3/6 dw.) á að verða 17Vs mila á vöku. Með þessari stærð skipsins og hraða í reynsluiör er gengið út frá að meö- al siglingahraði þess á hafi, geti orðið rúmlega 16 mílur á vöku. Verður skipið þá rúma 2 sólar- hringa milli Reykjavíkur og Leith, rúman U/s sólarhring milli Leith og Kaupmannahafnar, en beina leið milli Reykjavíkur og Kaupmanna- hafnar rúmlega 3 sólarhringa. Á fyrsta farrými verður rúm fyrir 112 farþega, á öðru farrými 60 og þriðja farrými 48. — Skipið verður 3700 brúttó smál. Frystirúm verður f skipinu 30 þús. teningsfet, iitektaveri sem nægir til að fiytja 500 smálest- ir af flökuftum fiski eða 17 þúsund skrokka af dilkakjöti. Að því er snertir útvegun gjald- eyris til skipakaupanna, þá verður ekkert um það sagt, hver aöstaða félags vors verður í því efni fyrr en séð verður samkvæmt væntan- legum tilboöum hinna erlendu skipa- smíðastöðva, f hvaða landi skipið verður smíðað. En ríkisstjórnin hefir gjört það að skilyrði fyrir tillögum til Alþingis um styrk til skipsins, að slík lausn f.íist á gjald- eyrishlið málsins, sem rlkisstjórn og gjaldeyrisnefnd telja framkvæman- lega. Ný bók er væntanleg næstu daga, og er hún nú í prentun í Prentverki Odds Björnssonar. Það er smá- sögusafn rúmar 9 arkir að stærð eftir Sigurð Róbertsson frá Sig- ííðarstöðum og heitir Lagt upp í langa ferö. Eru smásögur þessar 8 talsins. Sigui’ður Róbertsson er áður nokkuð kunnur af smásögum, er hann hefir skrifað öðru hvoru í „Nýjar Kvöldvökur" undanfarin ár, — fyrst undir dulnefninu Þór- ir þögli, en síðan undir nafni. Hafa sumar þessara smásagna vakið eftirtekt og athygli lesenda. HöfundurinTi er hugkvæmur og athugull og segir skýrt og látlaust frá. Munu því margir hafa ánægju af að lesa þessar sögur hans. H. V. KANTÖTUKÓR AKUREYRAR: Bassi og tenór. Mætið allir á æf- ingu í Skjaldborg, kl. 9 annað kvöld (föstud.). Uretnr Fells: Á vcj'um and- ans. Nokkrir fyrirlestrar. Út- gefaridi: Gtiðspekifélag ís- lands. Reykjavik 1938. Fyrirlestrar þessir eru 10 að tölu og fjalla um guðspekilegar hug- myndir og hugsjónir og segir höf- undur þeirra í formála að tilgang- ur þeirra sé að vinna á móti tvennskonar efnishyggju, en þess- ar tvær tegundir telur hann vera: „1) hina grófgerðu efnishyggju skynfæratrúarmannsins, sem ekki tekur annað gilt, en það, sem séð verður og þreifað á, mælt og veg- ið, og 2) þrönga bókstafstrú á hvaða sviði sem er, — Hér er ekki rúm til að ræða um þessi erindi Gretar Fells, en þau fara öll eins og nafnið bendir til, eftir vegum andans. Þau eru rituð fyrir hugsandi menn, þau lýsa þroskaleiðum og þroskalindum og allur er málflutningur þeirra rök- fastur og hófsamur og yfirleitt virðist það eitt af höfuðeinkenn- um guðspekilegra rita og höfunda að skoða öll mál frá innra sjónar- miði og eins og höfundurinn orð- ar það, „að leiða lesendur sína til í’ýmri skilnings á ýmsum við- fangsefnum mannsandans". F. H. B. KIRKJAN: Messað í Akureyrar- kirkju n. k. sumrudag kl. 5 e. h. Sr. Sigurður Stefánsson prédikar. □ Rún 593812186’/* — Jólaf. I. O O. F. = 12012169 = O. Skúkfréttir. í kvöld ætlar Bald- ur Möller að segja skákfréttir af þingum þeim er hann hefir tekið þátt í erlendis og mun hann þá einnig geta að nokkru helztu skák- snillinga, er hann hefir kynnzt. Það má gera ráð fyrir að erindi þetta verði bæði fróðlegt og skemmtilegt og ættu því unnend- ur skáklistarinnar að_ fjölmenna í Skjaldborg í kvöld. Sunnudaginn 18. þ. m. mun fara fram hraðskák- keppni á Hótel Akureyri, sem hefst kl. 1 e. h. og tekur Baldur þátt í henni. Eins og allir vita, þá er hraðskákkeppni mjög spenn- andi og reynir sérstaklega á flýti í hugsun, þar sem tími til umhugs- unar er svo mjög takmarkaður. Þetta verður síðasta tækifæri til að sjá íslandsmeistarann tefla, því hann mun fara héðan upp úr-. helginni áleiðis heim til sín.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.