Dagur - 09.03.1939, Qupperneq 2
38
D A G U R
10. tbl.
n « *•# • • * <* <
Löngu eyrun.
Allir kannast við eftirfarandi
vísu Steingríms Thorsteinssonar:
Af oflofi teygður á eyrum var
hann,
svo öll við það sannindi rengdust,
en ekki einn þumlung þó vaxa
hann vann,
Það voru aðeins eyrum, sem
lengdust.
Margir munu minnast þess,
hvernig söng í tálknum Morgun-
blaðsins í garð Héðins Valdimars-
sonar, á meðan hann var áhrifa-
maður í Alþýðuflokknum. Á þeim
dögum voru lýsingar aðalmál-
gagns Sjálístæðisflokksins ófagrar
á H. V. Nú er komið annað hljóð
í strokkinn. Nú hlaða Mbl. og ísa-
fold lofköst mikinn um þenna
sama mann, sem þau áður vildu
niður fyrir allar hellur. Þann 20.
f. m. lýsir t. d. ísafold Héðni sem
hinni dýrðlegustu frelsishetju,
sem með frelsisboðskap sínum
hafi „snortið hjarta hvers einasta
verkamanns“. Og fögnuður ísa-
foldar er mikill yfir sigri frelsara
verkalýðsins, Héðins Valdimars-
sonar.
Margir munu þeir vera, sem ef-
ast mjög um það, að H. V. stækki
við þetta ollof frá hendi málgagns
Sjálfstæðisfiokksins. Hitt muni
sönnu nær, að lof ísafoldar orki
því einu að gera Héðin eyrna-
stærstan aUra íslendinga.
En hvers vegna hefir málgagn
Sjálfstæðisflokksins breytt svo
stórlega afstöðu sinni til H. V.,
eins og raun ber vitni um? Hvað
veldur þessum snöggu sinnaskipt-
um í herbúðum íhaldsins?
Því er ekki torvelt að svara.
Eins og áður er drepið á, var H.
V. óalandi og óferjandi í augum
sjálfstæðsmanna, á meðan hann
starfaði undir merkjum Alþýðu-
flokksins. Svo skeður það, að Héð-
inn svíkur flokk sinn og gerir
bandalag við kommúnista. Þá
breytist hljóðið í málgögnum
Sjálfstæðisflokksins. Maðurinn,
sem áður var mesta óhræsi, er
orðinn að dýrðlegum frelsara!
Sjá! Þar er þinn frelsari, segja
íhaldsblöðin við verkalýðinn og
benda á Héðin Valdimarsson, sem
nú er orðinn yfirhershöfðingi
vopnaðra ofbeldismanna. Áður
léði Héðinn liðsmönnum sínum
stólfætur að vopni, til að berja á
burgeisum Sjálfstæðisflokksins í
baráttu verkamanna fyrir kjara-
bótum. Þá var Héðinn vargur í
véum í augum sjálfstæðismanna.
Nú lætur Héðinn hina nýju liðs-
menn sína fá niðursagaðar járn-
pípur, til þess að slá verkamenn í
Hafnarfirði til jarðar. Þá eygja
blöð íhaldsins ljómann af frelsis-
hetjunni, sem „snertir hjörtu allra
verkamanna“.
Það liggur í augum uppi, af
hverju lof íhaldsmanna um H. V.
er sprottið. Það á rót sína að rekja
til þess, að kommúnistum hefir
bætzt nýr kraftur með flokkssvik-
yrn Hóðins Valdimarssonar. Fögn-
uður sjálfstæðisblaðanna út af
þessu er einn þátturinn í sam-
starfi sjálfstæðismanna og komm-
únista, sem nú bólar víða á og
ekki fær dulizt, einkum í þrem
kaupstöðum landsins, Reykjavík,
Hafnarfirði og Neskaupstað.
Við næstu Alþingiskosningar,
hvenær sem þær verða, hljóía
kjósendur að krefjast þess af
Sjálfstæðisflokknum og fram-
bjóðendum hans, að gerð sé full
grein fyrir bandalagi sjálfstæðis-
manna við erindreka Stalins hér
á landi. Það ógeðslega bandalag
hlýtur að koma Sjálfstæðisflokkn-
um í koll á sínum tíma.
En ef sjálfstæðisblöðin halda
áfram uppteknum hætti um að
hlaða lofinu á olíukonung íslands
fram að þeim tíma, þá verða eyr-
un á Héðni Valdimarssyni orðin
hræðilega stór, þegar þar að
kemur.
Innaniélaj^s
skíðamét
íþréttafélagsfins ,Þór‘.
íþróttafélagið „Þór“ hafði inn-
anfélag's skíðamót austur í Vaðla-
heiði s.l. sunnudag. Þátttakendur í
mótinu voru 32, en alls fóru um
40 manns á vegum félagsins. —
Keppt var í brekkuskriði og svigi,
A- og B-flokkur.
Allir þátttakendurnir kepptu i
brekkuskriðinu, en sú vegalengd
var um 2000 m.
í A-flokki í 350 m. svigi voru 12
þátttakendur. Þrír fyrstu menn
voru:
1. Júlíus Magnúss. 1 mín. 10.1 sek.
2. Jón Egilsson 1 mín. 10.8 sek.
3. B. Brynjólfsson 1 mín. 11.1 sek.
í B-flokki í 150 m. svigi voru 14
þátttakendur. Fyrstir voru:
1. Jóhannes Kristjánsson 34.8 sek.
2. Hafsteinn Sigurðsson 38.9 sek.
3. Jón P. Hallgrímsson 39.9 sek.
Hvor flokkur fór tvær umíerðir
og er þetta samanlagður tími
beggja ferðanna.
Veður var hið bezta, logn og
sólskin og skíðafæri ágætt á þess-
um stað.
Skíðamenn félagsins hafa æft
af kappi í vetur, m. a. hafa þeii
gengist fyrir skíðaferðum austur í
Vaðlaheiði undanfarna morgna og
þá lagt af stað héðan úr bænum
kl. 6, en þurft að vera komnir
heim aftur fyrir kl. 9 til vinnu
sinnar.
í ráði er að senda þátttakendur
á landsmót skíðamanna, sem hald-
ið verður á ísafirði um páskana.
Laugardaginn 11. þ. m. hefir
Héraðssamband eyfirzkra kvenna
hlutaveltu í þinghúsi Hrafnagils-
hrepps. Drátturinn kostar 50 aura.
Dans á eftir. Aðgangur kr. 1.00.
Haraldur spilar. — Veitingar fást
á staðnum. — Húsið opnað kl.
8.30 eftir hádegi.
8
NÝJA-BÍÓ
Þarm 14. þ. m. verður sextugur
Ólafur J. Hvanndal, prentmynda-
meistari í Reykjavík. Ólafur er
kunnur mörgum hér á Norður-
Ólafur J. Hvanndal.
landi að fornu og nýju, þó einkum
síðan hann setti á stofn prent-
myndagerð sína fyrir nærri 20
árum (í nóv næstk.). Er því vel
viðeigandi að einhver minnist
hans hér að nokkru á þessum
tímamótum í lífi hans.
Ólafur Hvanndal er Borgfirð-
ingur að uppruna; sonur Jóns
Ólafssonar í Galtavík og Sesselju
Þórðardóttur frá Innra-Hólmi.
Fyrst framan af stundaði Ólafur
sjómennsku, en lærði síðan tfé-
smíði hjá Samúel Jónssyni og
lauk þar prófi. Árið 1907 fór hann
utan og lærði teikningu og gler-
skiltagerð. Var hann fyrsti maður
hérlendur er numið hafði þá iðn-
grein. Eftir heimkomuna 1908,
stundaði hann trésmíði og gler-
skiltagerð, en um haustið, sama
ár, sigldi hann aftur og byrjaði
nám við prentmyndagerð hjá
Hjálmari Caresen í Kaupmanna-
höfn. Síðan fór hann til fram-
haldsnáms til Þýzkalands og lauk
þar prófi hjá Brockhaus í Leipzig,
1911. Sama ár kom hann heim, en
ekki hafði hann efni á að setja
á stofn prentmyndagerð fyrst í
stað. Vann hann að ýmsu næstu
árin. T. d. var hann túlkur ferða-
manna o. fl. Á stríðsárunum rak
hann umboðsverzlun í stórum stíl.
Efnaðist hann svo á þeim árum að
hann gat sett á stofn prentmynda-
gerð þá, er hann síðan hefir starf-
Fimiudagskv. 9. þ. m. kl. 9
kvikmyudin
Hiöursett verð
Sýnd i siðasta sinn
□ Rún 59393177 = 1
I. O. O. F. = 1203109 se
rækt með miklum dugnaði og
ósérhlífni, þrátt fyrir óhæga að-
stöðu. Prentmyndagerð hans hefir
ávallt átt miklum og vaxandi vin-
sældum að fagna. En hjá lítilli
þjóð, með tiltölulega lítilli bóka-
og blaðaútgáfu, var mjög í tví-
sýnu teflt með því að setja á stofn
jafn atvinnulega ótryggt fyrir-
tæki sem prentmyndagerð virtist
vera í þá daga. Enda mun nokkuð
hafa skort á það fyrst í stað að
Fyrirmyndin . . ;
(Framh. af 1. síðu).
leg, Óskir hans snerust ekki um
það, að hann gæti látið lífið líða
hjá með sem léttustu móti og
lengstum hvíldum, heldur vildi
hann og hét því, að vinna sem
mest til eflingar frjórri lífsnautn
lýðsins.
Heit sín efndi hann trúlega allt
fram á banadag -sinn á tíræðis
aldri.
Það væri í anda Benedikts
Jónssonar frá Auðnum, að þessi
yrðu einkunarorð hverrar ungrar
stúlku og hvers ungs manns:
Stefndu hátt! Vertu sjálfum þér
trúr!
Slíkir menn eru stórir og
frjálsir.
Þeir minna á heiðan himin og
há fjöll.
Jónas Baldursson.
Ljósmyndastofan
1 QránufélajrsRÖíu 21
er opin frá kl. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
Guðr. Funch-Rasmussen.
t&l að atiala með heilhveiti
nýkoninar
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild