Dagur - 17.05.1939, Side 3
20. tbl.
D A ö JJ R
81
y
sóknarflokksins, heldur eru þau
aðeins bráðabirgðaúrræði, á erf-
iðum timum, sem æskilegt er að
geta losnað við sem fyrst. Að
lokum tókst að laða saman hin
óliku stjórnarmið flokkanna i
þessum málum með þeirri nið-
urstöðu, að þau verða undir yf-
irráðum Eysteins Jónssonar, böft-
unum verður haldið áfram fyrst
um sinn, en þau leyst jafnóðum
og fært þykir. Er það í raun og
veru engin breyting frá stetnu
Framsóknarflokksins.
Af yfirlýsingu Gísla Sveinsson-
ar er það ljóst, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir sprungið í tvo
nær jafnstóra hluta, um þessi
mál og gengismálið. Það er auð-
séð á ummælum Gísla Sveins-
sonar, að áttmenningarnir í Sjálf-
stæðisflokknum vantreysta hin-
um armi flokksins að taka ein-
um þátt i stjórn landsins, þess
vegna setja þeir Jakob Möller
inn í stjórnina til öryggis. Jakob
Möller er hafður sem spenging
yfir þverbrest þann, sem orðið
hefir í þingliði Sjálfstæðisflokks-
ins.
B æ K u r.
Eimreiðin, 1. h. þ. á., er út kom-
in. Meðal annars, er ritið flytur að
þessu sinni, má nefna: Við þjóð-
veginn, eftir ritstjórann. Við
Öskjuvatn (saga) eftir Huldu.
Leon Trotzki og málaferlin miklu
í Moskva, eftir Baldur Bjarnason.
Á aðalstöðvum brezka útvarpsins,
eftir ritstjórann. Enn um berkla-
varnir, eftir M. B. Halldorson;
er það svar til Sigurjóns Jónsson-
ar læknis, og jafnframt er loka-
svar frá S. J. Kynjöfnunarstefnan,
eftir Pétur Magnússon frá Valla-
nesi. Tvö íþróttaafmæli, eftir rit-
stjórann. Svefnfarir, eftir Alex-
ander Cannon. Enn eru í ritinu
saga eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson,
er nefnist Leyndarmálið, og önn-
ur þýdd saga, nokkur kvæði eftir
ýmsa höfunda o. fl. smávegis. I
heftinu er allmikið af myndum.
Dvöl, 1. h. þ. á., er nýlega út
komin. Eðvarð Árnason ritar um
gervivörur, Jón Magnússon skáld
um fól'kið á ströndinni og íslenzka
menningu, svar til síra Páls Þor-
leifssonar; Þórarinn Guðnason
skrifar um Reykjavíkurstúlkuna
1939; Richard Beck á þar ritgerð,
er hann nefnir „Brúin yfir hafið“
og útgefandinn, Vigfús Guð-
mundsson aðra, er nefnist Þjóð-
málaþættir. Þá eru í heftinu ýms-
ar sögur, þýddar og frumsamdar,
kvæði o. fl.
Vak&, 1. h. 1939, er komin út.
Tveir menn nefnist grein, sem rit-
stjórinn skrifar. Gerir hann þar
að umtalsefni tvo íslendinga, sem
á s.l. ári hafa lotið mjög lágt í
þjónustu sinni við einveldisherra
tveggja stórvelda. Þessir menn
eru Halldór Kiljan Laxness rit-
höfundur og Knútur Amgrímsson,
fyrrum prestur.
Rimólfur Sveinsson skrifar um
þegnskyldu, Ásgeir Ásgeirsson um
kosningu og byltingu, Jón Pálma-
son um landaura og launakjör,
Gunnar Þórðarson um byggða-
hverfi, Jón Eyþórsson um vort
daglega -brauð og Jónas Jónsson
um heita lífstrú. Nokkrar fleiri
greinar eru í þessu hefti Vökú,
ein saga og talsvert af kvæðum.
Jón Benediktsson, prentari:
Fyrsta Ijóðskáldið, sem
minnist íþróttahússins,
er Ounnar S. Hafdal.
(Framhald af 1. síðu).
Eftir Konráð Vilhjálmsson:
21. Strengjatök, kvæði.
Eftir Sigurð Vilhjálmsson:
22. Sólskinsblettir, ferðakvæði.
Eftir Sigurð Róbertsson:
23. Lagt upp í langa ferð, sögur.
Eftir Sigurð Eggerz:
24. Sýnir, ljóð og ritgerðir.
25. Það logar yfir jöklinum,
sjónleikur.
26. Líkkistusmiðurinn, sjónleikur.
Ég ætlast til þess, að framan-
skráð bókagjöf, sem er 26 bindi,
verði notuð sem einn vinningur í
happdrætti, sem æskilegt væri að
stofna á þessu ári, til ágóða hinu
fyrirhugaða íþróttahúsi, sem
brýna nauðsyn ber til að reist
verði í Akureyrarbæ, og það sem
fyrst. —
íþróttahúsið þarf að vera veg-
legt og fullkomið, búið öllum
beztu og nýjustu tækjum. Slík
stofnun væri m. a. höfuðskilyrði
fyrir hreysti og heilbrigði æsku-
lýðsins í þessum bæ. Og hún yrði
ennfremur tákn menningar og
þroska bæjarfélagsins í heild
sinni. —
Þér hafið, Jón Benediktsson,
unnið af alúð og kostgæfni að
framgangi íþróttamálanna og bar-
ist hraustlega fyrir byggingu
íþróttahússins. Við það eru vonir
yðar og hugsjónir tengdar. Ég
óska að þær megi rætast yður í
náinni framtíð.
Með fyllstu virðingu.
Yðar einl.
Gunnar S. Hafdal.
Hugsum okkur, að einhver
smiðurinn hér á Akureyri gæii
fallegan bókaskáp undir bókagjöf
Gunnars. Síðan færu forleggjarar
bóka, og hin önnur skáld1) og rit-
höfundar þessa lands að dæml
Gunnars, og gæfu verk sín og for-
lagsbækur, þá gæti þetta orðið
500—1000 króna vinningur í happ-
drættinu, eða meira, en slíka
verðmæta vinninga er nauðsyn-
legt að hafa í hverju happdrætti,
sem útgengilegt á að verða. Eins
gætu einstaklingar og bóksalar
gefið eina eða fleiri bækur í safn-
ið. Ég veit ekki um vilja gefand-
ans í þessu efni, en mér finnst, að
hin höfðinglega og frumlega gjöf
hans þurfi ekkert að minnka við
þetta. Og auðvitað ætlast ég til,
að bókagjöf Gunnars skipi öndvegi
!) Því, að nú er Gunnar búinn að taka
þetta ómak, eða réttara sagt, þennan
heiður af skáldum og rithöfundum
þessa bæjar, með hugsun sinni og
framtaksserpi.
í bókaskápnum, og síðan hver
DÓkagjöfin af annarri í þeirri röð,
sem þær berast. En nú er aðal-
spurningin þessi: Hver gefur
bókaskápinn? Og, berast safninu
fleiri bækur? Og frá hverjum?
Gunnar S. Hafdal er einn hinn
mesti bókamaður hér um slóðir og
notar hverja þá frístimd, sem
rann getur gefið sér frá daglegum
störfum til ljóðagerðar og fræði-
iðkana, það kemur sér þá vel, að
maðurinn er mikilvirkur í hverju
starfi og hefir því meiri frítíma
yfir að ráða en ella, enda mun
hann þurfa mikinn tíma til að
dytta að bókasafni sínu, afla fleiri
Dóka, gamalla jafnt sem nýrra og
skipuleggja safnið á einn og ann-
an hátt. Ávöxturinn af þessum á-
íuga hans og ástundun er svo sá,
að nú á hann eitt með stærri
öókasöfnum, sem til eru í
eigu eins einstaklings, fjölbreytt
mjög, vandað og vel um gengið og
íörumvexti.* Gjörhugull er Gunn-
ar í leit og vali að nýjum bókum
í bókasafn sitt, og vandfundin
mun sú bók, sem hann ekki kann-
ast við eða höfund hennar; til
dæmis leiðir hann alveg nýtt
skáld fram á sjónarsviðið í þessari
^ókagjöf sinni, þar sem er Sigurð-
ur Vilhjálmsson. Þeir munu vera
færri, Akureyringamir, sem vita
að Sigurður er skáld, og það gott
skáld, eða að hann hafi gefið út
ítið ljóðakver, „Sólskinsblettir“,
sem ber nafn með réttu. En því
miður kann þjóðin ekki að meta
störf Gunnars og annarra slíkra
manna, sem heyja baráttuna einir
og óstuddir fyrir áhugamálum sín-
um — meira að segja verða oft
fyrir misskilningi og jafnvel að-
kasti og fá því eigi notið sín til
fullnustu. Og hvers hefði mátt
vænta af Gunnari, hefði hann
mátt leggja óskipta krafta sína á-
hugamálum sínum, skáldskap og
fræði-iðkunum, og fengið ásamt
meðfæddri náttúrugáfu góða
skólagöngu. En þessi eru örlög og
sorgleg saga skálda og listamanna
allra landa.
Gunnar S. Hafdal! Hafið þökk
fyrir hina höfðinglegu gjöf yðar.
Hún er hliðstæð hinni ágætu gjöf
Edvards Sigurgeirssonar, - mynd-
inni úr hjarta lands vors. Nema
gjöf yðar eru myndir úr þjóð-
lífi þjóðar vorrar, dregnar fram
af skáldum hennar og listamönn-
jm. Þér völduð hana, af því að
þér eruð skáld og bókamaður, og
,hvað elskar sér líkt“. Eins er
með gjöf Sveinbjörns Jónssonar,
byggingameistara, — þrjú himdr-
uð króna rafmagnseldavél, og
miðstöðvarofna í eina íbúð, áf
íans þjóðfrægu Helluofnum.
Allar eru þessar gjafir gefnar a:
áhuga, hugsun og innri þörf gef-
andanna, og fyrir lögeggjan
* Nú kynnu kannske einhverjir að efast
um sannleiksgildi þessara orða. Þeim
hinum sömu vil ég aðeins benda á að
fá að líta á bókasafn Gunnars. Þeir
geta þá séð, með eigin augum, að hið
sjálfmenntaða skáld, Gunnar S. Haf-
dal, er enginn aukvisi til átaka á þessu
sviði, eða fáfrœðingur i heimi bók-
menntanna.
„íþróttamála“, og þó verða eigi
talin eða metin til fjár áhrif
Deirra á alla íþróttastarfsemi og
Öll íþróttamálefni þessa bæjar.
Skáld, rithöfundar, bókaforleggj-
arar! Farið að dæmi Gunnars S.
Hafdal, og gefið til íþróttahúss
Aikureyrar Ijóð yðar, ritverk og
forlagsbækur.
Ljósmyndarar og listmálarar!
Farið að dæmi Edvards Sigur-
geirssonar, og gefið ljósmyndir og
málverk af þeim hugðarefnum,
sem þér hafið mestan áhuga fyrir,
til íþróttahúss Akureyrar.
Iðnaðarmenn, verzlanir og iðn-
fyrirtæki! Farið að dæmi Svein-
ojörns Jónssonar, og gefið hagan-
lega gerða muni, gagnlega verzl-
unarvöru og framleiðsluvörur yð-
ar til íþróttahúss Akureyrar. Það
er áreiðanlega bezta auglýsingín
fyrir atvinnugrein yðar.
ÍSLENDINGAR! Hvar sem þér
eruð staddir á landinu. Ef til vill
liggur leið barna yðar og nánustu
ættingja gegnum menntastofnanir
höfuðstaðar Norðurlands. Með
því að styrkja íþróttahússmálið
hafið þér búið þeim betri kjör og
skilyrði til frama og þroska.
GLEÐILEGT SUMAR!
í Sovét hefir verið gefin út ný
vinnulöggjöf, og samkvæmt henni
eiga laun að lækka um 15%, en
jafnframt eiga afköst að aukast
um 25%. Einnig er þar ákveðið að
sá verkamaður, sem komi allt að
y2 klukkustund of seint til vinnu,
skuli tafarlaust rekinn.
Út af þessum ákvæðum og
fleiru í lögunum eru verkamenn
mjög óánægðir og við skipasmíða-
stöð í Leningrad, þar sem verið
var að byggja herskipið „Kirov“,
ákváðu 15000 verkamenn að
leggja niður vinnu, eftir að stjóm-
endur skipasmíðastöðvarinnar
höfðu neitað að ræða við sendi-
nefnd þeirra. •
Þegar verkfallið síðar var úr-
skurðað ólöglegt neituðu verk-
fallsmennirnir að yfirgefa vinnu-
stöðvamar.
2000 G. U, P. menn voru þá
kallaðir á vettvang og ráku þeir
verkamennina af skipasmíðastöð-
inni með byssustingjum og tóku
600 til fanga.
Hjónaband: Ungfrú Elín Ein-
arsdóttir verzlunarmær og Arn-
grímur Bjarnason skrifstofumaður
í K. E. A.
Frá Amtsbókasafninu: Skilið
bókum safnsins sem allra fyrst —
annars verða þær sóttar á kostn-
að lánþega.
Endurbólusetning á krökkum,
12—14 ára, fer fram í barnaskól-
anum laugardaginn 20. þ. m., kl.
1 e. h.
Aðalfundur þriðjudaginn 23. mai
n.k. kl. 8.30 síðd. i SKJALDBORG.
Dagskrá samkv. félagslögum.
Lagabreytingar o. fl.
Alvarlega skorað á kórfélaga að
mæta. STJÓRNIN.