Dagur - 22.06.1939, Qupperneq 3
25. tbl.
D AQUR
103
BiiMlinclisiimniiaiiiót-
ið að Laugnm.
lvegg$a daga mót með
þátttökn af Akureyri,
Siglufirðl, Húsavik, úr
Eyfaffarðarsýslu og
Þingeyfarsýslum.
Siðari daginn uni 400
manns.
Þann 17. og 18. júní s.l. var hald-
ið almennt bindindismannamót
fyrir Norðurland í Laugaskóla að
tilhlutun Umdæmisstúkunnar nr.
5 á Akureyri. Þátttakendur í móti
þessu voru templarar af Akureyri,
Siglufirði og Húsavík og fulltrúar
frá bindindisfélögum og ung-
mennafélögum í Eyjafjarðarsýslu
og Þingeyjarsýslum. Lengst að-
komnir fulltrúar innan Norðlend-
ingafjórðungs voru frá Langanesi
og Þistilfirði. Auk þess mættu á
þinginu frá Stórstúku íslands þau
Friðrik Á. Brekkan, stórtemplar,
Jensína Egilsdóttir, stórvara-
templar og Sigfús Sigurhjartarson
fyrv. stórtemplar. Einnig mættu
fulltrúar frá Sambandi bindindis-
félaga í skólum. Fyrri daginn var
mætt á annað hundrað fulltrúar
og síðari daginn var um 400
manns. Veður var ekki sem ákjós-
anlegast síðari daginn, þó hindraði
það ekki störf mótsins, þar sem
húsakynni voru nægileg. Gistingu
og veitingar annaðist Páll H.
Jónsson, kennari að Laugum, og
fór það prýðilega úr hendi.
Forsetar mótsins voru Stefán
Ág. Kristjánsson framkvæmdastj.
og Jóhannes Óli, kennari. En rit-
arar Eiríkur Sigurðsson, kennari
og Birgir Steingrímsson, verzlun-
armaður. Aðrir aðalstarfsmenn
mótsins voru: Hallgrímur Jónsson,
járnsmiður, ferðastjóri og Jón
Gunnlaugsson verzlunarmaður,
er aðstoðaði brytann við veitinga-
sölu og fyrirkomulag gistinga fyr-
ir hönd Umdæmisstúkunnar.
Mót þetta var haldið samkvæmt
tillögu frá Hannesi J. Magnússyni
á síðastl. hausti. Það hófst með
því að Stefán Ág. Kristjánsson
flutti ræðu, og því næst var sung-
ið frumort kvæði eftir hann. Þá
hófust framsöguerindi í þeim
málum, sem þingið tók til með-
ferðar. Hin helztu þeirra voru
þessi: Bindindissamtök Norður-
lands, frummælandi Hannes J.
Magnússon. Áfengislöggjöfin,
frummælandi Brynleifur Tobias-
son. En af því að hann gat eigi
mætt á mótinu, flutti Jón Gunn-
laugsson framsöguræðu hans. Tó-
baksnautn, frummælandi Marinó
L. Stefánsson. Vandamál sam-
kvæmislífsins, frummælandi Árni
Jóhannsson. Að loknum framsögu-
ræðum var skipuð fjölmenn nefnd
í hverju máli. Nefndirnar unnu
svo um kvöldið, en skiluðu tillög-
um næsta dag. Það yrði of langt
mál hér að vitna í þessar tillögur,
þó má geta þess, að ýmislegt var
gert til að tryggja samstarf þeirra
félaga, er að móti þessu stóðu, í
bindmdismálum og skorað á Um-
dæmisstúkuna nr. 5 að gangast
aftur fyrir slíku móti.
Frá áfengislaganefnd var sam-
þykkt að mæla með héraðabönn-
um, þ. e. að kaupstaðir landsins
fái sama rétt og önnur lögsagnar-
umdæmi til að ákveða, með at-
kvæðagreiðslu, hvort þeir vilji
hafa áfengisútsölu innan sinna
vébanda.
Þá var skorað á öll bindindis-
sinnuð félög á Norðurlandi að
hefja baráttu til undirbúnings
þjóðaratkvæðagreiðslu um áfeng-
isbann, er yrði látin fara fram að
nægilegum undirbúningi loknum.
Einnig var mikið rætt um
drykkjuskap á opinberum jam-
komum og ýmsar ályktanir gerðar
til umbóta í því efni.
Jafnframt voru samþykktar til-
lögur um varnir gegn tóbaksnautn
barna og unglinga.
Einnig voru samþykktar tíllög-
ur um nauðsyn bindindis við ýms-
an atvinnurekstur, þar sem menn
eiga líf sitt undir stjórn eins eða
fleiri manna.
Mótinu bárust nokkur heilla-
skeyti frá yfirstjórnum bindindis-
málanna í landinu og U. Templ.
Snorra Sigfússyni, skólastjóra,
sem staddur er í útlöndum.
Annað það, er fram fór til fróð-
leiks og skemmtunar, var eftirfar-
andi: 17. júní var minnst með
ræðu af Páli H. Jónssyni. Guðs-
þjónusta fór fram á sunnudag og
predikaði séra Friðrik A. Frið-
riksson á Húsavík. Þá flutti Frið-
rik Á. Brekkan ræðu um viðhorf í
bindindismálum. Hópsýning fór
fram úti. Þar komu fram: Hópur
bindindismanna og Bakkus með
fylgdarliði sínu. Fluttu þeir mál
sín fyrir dómara. Einnig kom þar
fram hópur kvenna og hópur
barna, og að lokum þrjár dísir,
sem vöktu almenna hrifningu
áhorfenda. Á mótinu söng Karla-
kór Reykhverfinga undir stjórn
Sigurjóns Péturssonar.
Flutt voru ávörp frá hinum
ýmsu samböndum og yfirstjórn
bindindissamtakanna. Fyrir Stór-
stúku íslands talaði Sigfús Sigur-
hjartarson, fyrir Samband bind-
indisfélaga í skólum Valgarð Ól-
afsson, fyrir U. M. S. Eyjafjarðar
Jóhannes Óli form. sambandsins,
fyrir Samband ungmennafélaga
Suður-Þingeyinga Geir Ásmunds-
son, Víðum, formaður, og fyrir
Ungmennasamband Norður-Þing-
eyinga Björn Þórarinsson, Kila-
koti, Kelduhverfi.
Mótinu lauk með samsæti. Þar
flutti Jón Gunnlaugsson erindi.
Frú Jensína Egilsdóttir og Páll
H. Jónsson skemmtu með söng.
I. eifur Ásgeirsson flutti ræðu og
lét ánægju sína í ljósi yfir því að
þetta fyrsta almenna bindindis-
mannamót Norðlendinga skyldi
hafa verið haldið í Laugaskóla.
Auk þess voru fluttar margar aðr-
ar kveðjuræðúr og mikið sungið.
Á laugardagskvöld fóru flestir
fulltrúar á mótinu að Laxárfoss-
BfflK'H'BIIIIM IIIIWll II—IIIIISWaHroBa—HIB—————gSB8M
Pað tilkynnist vinum og vandamönnum, að
Ólöf Guðmundsdótlir há Bakka
andaðist að heimili sínu, Pverá í Öxnadal, laugardaginn 17. þ. m.
Jarðarför hennar er ákveðin fimmtudaginn þ. 29. þ m. að
Bakka í Öxnadal og hefst með húskveðju á heimili
hinnar látnu, Þverá, kl. 1 e. m.
Synir og tengdadcelor.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér samúð
og vinarhug við fráfall og jarðarför mannsins míns
Sigiifax’iiar Bförnssonar.
Krisiín Krisijánsdótiir.
um að skoða hið mikla mannvirki,.
sem þar er í smíðum, og hina dá- ■
samlegu náttúrufegurð.
Það mun almennt álit þátttak-
enda bindindismannamótsins, að
það hafi vel tekizt og náð þeim
tilgangi, er því var ætlað, að auka
viðkynningu og efla og treysta
samstarf bindindismanna úr hin-
um ýmsu félögum. Og þó að bind-
indismenn úr Skagafjarðar- og
Húnavatnssýslum gætu eigi sótt
þetta mót, er þess að vænta, að
þeir verði með næst og gjörist að-
ilar í þessum samtökum.
Vafalaust var Laugaskóli mjög
heppilegur staður fyrir samkomu
sem þessa. Skólastjóri skólans og
kennarar sýndu frábæra lipurð og
velvild í garð mótsins. Enda er
þeim það ljóst, að bindindismálið
er einn þáttur í því menningar-
starfi, sem þeir eru að vinna.
Bindindismenn á Norðurlandi
hafa verið sundraðir í hinum
ýmsu félögum. Nú hefir verið
tengdur ofurlítill þráður á milli
þeirra, og væntanlega á hann eftir
að styrkjast, og ætti það að gefa
þeim betri aðstöðu til að vinna
fyrir bindindismálið hvern og
einn í sínu félagi.
E. S.
SÍúdentar íiá Menntaskól-
anum á AKureyri 1939.
A. Máladeild.
Egill Sigurðsson S -Þing. I 6,06
Emil Björnsson, S.-Múlas. I. 6 53
Gestur Jónsson, Skagafj.s, I. 6,85
Guðjón Kristinss., Strand. I. 6 20
Halldóra Eggertsd., Sigluf. II. 5,49
Hólmfríður Sigurðard., Húnv. I. 6.37
Hulda Kristjánsdóttir, S.-Múl. I. 6,09
lóhann Hannesson, Sigluf. I. 7,47
lörundur Oddsson, Hrfsey I. 7,08
Ólafur Hjartar, Siglutirði II. 5.97
Þóroddur Jónasson, S.-Þing. I, 7,34
Utnnskóla:
Baldur Líndal, Húnav, II, 4,60
B. Stærðfræðideild:
Bergur Sigurbjörnss., N.Ping. I. 6,61
Björn Bjarnason, Bolungarv. I. 7,45
Jón Hjaltalfn, N.-ísaf. I, 6,42
Sigurður Ólafsson, Rvik I. 6,10
forsteinn Gunnarsson, Ak, II. 5,66
Utanskóla:
Borgþór Gunnarsson, Gullbr. I. 6,49
Til þriðju einkunnar (til aö standast
próf) þarf 4,25, annarrar einkunnar
4,50, fyrstu einkunnar 6,00 og á-
gætiseinkunnar 7,50.
Jóhann Hannesson vantar því að-
eins s/joo °g Björn Bjarnason 6/ioo
í ágætiseinkunn.
Stjórnskipaðir prófdómendur við
stúdentspróf votu: Björn Bjarnason,
cand. mag„ úr Rvík, /ónas Rafnar,
læknir, Friörik Magnásson, cand.
jur., Steingr. Jónsson, fyrv. sýslum.,
próf. Ouðbr. Björnsson og Ouðm.
Arnlaugsson, stud. mag. í Kaup-
mannahöfn.
t flngvél á
níræðis-
aldri.
Jónas Jónsson frá Völlum í Saur-
bæjarhreppi var einn af farþegum
í flugvélinni Tf. Örn til Reykja-
víkur að kveldi 17. þ. m.
Jónas er 83 ára að aldri og kar-
lægur síðustu árin. Hefir hann
búið á Völlum í samfleytt 50 ár,
en lét af búskap nú í vor. Konu
sína, sem var á svipuðum aldri og
hann, missti hann síðastl. haust
eftir 60 ára sambúð.
Nú flytur Jónas til dóttur sinn-
ar, sem búsett hefir verið í
Reykjavík rúm 20 ár.
Nágrannarnir munu lengi muna
þenna hægláta, dula gáfumann og
ágæta hagyrðing, sem nú er flog-
inn frá þeim karlægur á níræðis-
aldri.
Eldur kom upp í vélskipinu
Arthur & Fanney við Torfunefs-
bryggjuna síðastl. fimmtudag.
Hafði kviknað í tjöruíláti. Slökkvi-
liðið réði bráðlega niðurlögum
eldsins, en skemmdir urðu þó all-
miklar á skipinu. Eigandi þess er
Kristján Tryggvason,
Skrifstofustjóri í fjármálaráðu-
neytinu er skipaður frá 1. júlí
Magnús Gíslason sýslum. í Suður-
Múlasýslu,