Dagur - 07.09.1939, Page 4
148
D A G U R
38. tbl.
Hraðferðir
Steindórs
e r u
Frá Akureyri:
Alla sunnudaga
Alla mánudaga
Alla fimtudaga
Alla laugardaga
F r á Ak ra n e s i:
Alla sunnudaga
Aila mánudaga
Alla miðvikudaga
Alla föstudaga
Alll hradlerðir um Akranes. Sjóleidina annast m.s.
Fagranes. Afgreidsla á Akureyri Bi/reiðastöð
Oddeyrar.
STEINDOR.
Ellilaun og örorkubætur.
Umsóknum um ellilaun og örorkubætur
ber að skila til skrifstofu bæjarstjóra fyrir
1. okt. n k. Umsóknareyðublöð fást á
bæjarstjóraskrifstofunum. Umsóknum um
örorkubætur verður að fylgja vottorð hér-
aðslæknis.
Akureyri, 6. september 1939.
Bæjarstjórinn.
Magnús Snæbjörn8son, K. A., 1 mín.
47,0 sek. 200 m. bringusund, konur;
fyrst varð Steinunn Jóhannesd., i3., 3
mín 32, 3 sek., nýtt ísl. met; fyrra
metið átti hún sjálf og var það 3 mín.
33,4 sek, önnur Hulda Pétursd., P.,
3 mín. 4 3,1 sek., þriðja Elsa Sigfúsd.
K. A., 4 mín. 9,0 sek. — 50 m. bak-
sund, karlar, fyrstur varð Jóhannes
Snorrason, G., 44,4 sek., annar Jónas
Einarsson, G.,44,6 sek., þriðji Magnús
Guðmundsson, P , 47,0 sek.
Pví næst synti Guðbrandur Porkels-
son úr K. R. 800 m. skriðsund á
móti 7 mönnum héðan, var það lítil
keppni sem vænta mátti og leiðinleg.
Nokkrir piltar sýndu dýfingar af stökk-
palli og var það sumt sæmilega gert.
Axel Kristjánsson alhenti því næst
verðlaun og sleit mótinu.
Um sundmótið er það hægt að segja
að það var lélegt yfirleitt, hvað árang-
ur snertir, sáralítil framför hjá flestum,
sem keppt hafa áður; það er því ekki
rétt að láta hvern skussa hafa verðlaun,
sem syndir, það á að setja visst tíma-
hámark, sem hver keppandi má vera í
hverri vegalengd, svo hann nái í verð-
laun; t. d. er lítið vit í því að þar
sem eru þrír keppendur og einn þeirra
veit fyrir fram að hann verður síðast-
ur, þá getur hann bara hvílt sig og
farið rólega, því þó hann sé klukku-
tíma með 100 metra, þá fær hann
alltaf þriðju verðlaun; meðan svona er
þá skapast enginn áhugi meðal kepp-
endanna, sakir þess líka, að svo fáir
stunda sund til keppni.
Tvímælalaust er Steinunn Jóhannes-
dóttir efnilegasti keppandinn, er þarna
kom fram, hún hefir gott sundlag, þó
hættir henni til að »súpa á< stundum
og tafði það hana mjög á sunnudag-
inn. Starfsmenn mótsins mættu bæði
óstundvíslega og illa og ætti að vera
hægt að fá menn, sem væri hægt að
treysta nokkurnveginn til að mæta á
réttum tíma. Leikskrána hefði líklega
varið óhætt að prenta ekki, því það
var mjög takmarkað, sem eftir henni
var farið, marga vantaði til leiks, sem
þar voru skráðir, og nokkrum bætt
inní.
Zog.
Hlutaveltu heldur Kvenfélag
Akureyrarkirkju næstk. sunnudag
í Samkomuhúsi bæjarins. Margir
ágætir munir verða á hlutavelt-
unni. Öllum ágóðanum verður
varið til styrktar kirkjubygging-
unni,
Herbergi til leigu
frá 1. okt. n. k.
Guðm. Guðlaugsson,
Munkaþverárstræti 25.
F jármark
mitt er: Alheilt h., tvístýft f. v.
Kristján Einarsion,
Staðartungu, Skriðuhreppi.
Friðrik Magnússon
lögfræðingur
skrifslofa i „EIMSKIP".
S í m i 4 15.
Kaupum
hálfflöskur á 15 aura slk.
Sf jörnu-Apótek K. E. A.
Bruni. Á laugardagskvöldið
brann verksmiðjuhús h. f. Brenni-
steinn við Námaskarð til kaldra
kola- Var enginn viðstaddur þeg-
ar kviknaði í.
Slys. Á sunnudagsnóttina varð
unglingsstúlka, Margrét Guðlaugs-
dóttir, Aðalstræti 23 hér í bæ, fyr-
ir vörubíl og meiddist svo á höfði
að flytja varð hana á sjúkrahús.
Tilboð éskast
í flutning sundnema af Arskógarströnd að Sundskála Svarfdæla.
Sundnámskeiðið hefst 25. þ. m. og varir í 12 daga. Þátttak-
endur væntanl. um 40 (börn og unglingar). Leitið upplýsinga hjá
undirrituðum sem fyrst. Akvörðun tekin um miðjan mánuðinn.
F. h. U. M. F. »Reynis«.
*
Jóhannes Oli. Simi Krossar.
Tilkynning.
Brezka stjórnin hefir tilkynnt, að eftirfarandi vörur verða
skoðaðar sem stríðsbannvörur,
Algert bann:
1. Allar tegundir vopna, skotfæra, sprengiefna; efni og á-
höld til notkunar í gashernaði; vélar til framleiðslu þeirra eða
viðgerða; varahlutir þeirra; hlutir og efni, sem nota má í
sambandi við þetta; efni, sem nota má við tilbúning þessa;
hlutir, sem nauðsynlegir eru eða gagnlegir til framleiðslu eða
notkunar slíkra efna.
2. Alls konar eldsneyti, öll tæki til flutninga á landi, sjó
eða í lofti, vélar, sem notaðar eru til framleiðslu þeirra eða
viðgerða; varahlutir þeirra; tæki eða skepnur, sem nauðsynleg
eru eða gagnleg í sambandi við þau; efni eða hráefni notuð
við gerð þeirra; hlutir, sem nauðsynlegir eru eða gagnlegir
við framleiðslu eða notkun slíkra efna eða hráefna.
3. Alls konar tæki til að senda skeyti; verkfæri, áhöld,
landabréf, myndir, blöð og aðrir hlutir, vélar og skjöl, sem
nauðsynleg eru eða gagnleg til að reka hernað, og allt, sem
nauðsynlegt er eða gagnlegt við framleiðsJu þeirra eða notkun.
4. Peningar (mynt), dýrmætir málmar, peningaseðlar eða
verðbréf. Einnig málmar, málmmót, málmplötur, vélar; hlutir
og efni, sem nauðsynleg eru við framleiðslu þeirra eða notkun.
Skilyrðisbundið bann:
5. Matvörur alls konar, skepnufóður, fatnaður, og efni til að
framleiða þessa hluti.
7. september 1939.
Vara-ræðisniaður Breia á Akureyri,
Arthur Gook.
Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentverk Odds Björnssonar.