Dagur - 21.09.1939, Síða 1

Dagur - 21.09.1939, Síða 1
DAGUE kemur i!: á hverjum fimmtudegi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaldk. Árni Jóhannsson • Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXII • árg. j Akureyri 21. september 1939. 38. tbl. S t r í ð i ð. Friðarsamningur milli Rússa og Japana Rússneskur her ræðsf inn í Pólland og leggur undir sig landið. Pólverfar verfast þýzka og rússneska hernum effir mæffi, en verða að likindum bróff ofurlitfi bornir. Frakkar treysfa aðstöðu sína á vesfurvígsföðvunum. Mikil og ótrúleg tíðindi hafa borizt að eyrum manna utan úr heimi síðastliðna viku. Rússar hafa samið frið við Jap- ani á þá leið, að herir Sovétríkj- anna og herir Japana í Mand- sjúkóú hættu öllum hernaðarað- gerðum 16. þ. m. Báðir herirnir halda þeim stöðum, er þeir höfðu 15. september. Geta nú Japanir óáreittir af Rússum snúið sér gegn Kín- verjum. Næst skeður það, að rauði her- inn ruddist inn yfir austurlanda- mæri Póllands á sunnudagsmorg- unirm á öllu svæðinu frá Lett- landi og suður að Rúmeníu, án þess að Sovétstjómin hefði sent Pólverjum nokkra úrslitakosti eða stríðsyfirlýsingu. Að undanfömu höfðu Pólverjar varist árásum þýzka hersins í sunnan- og vestanverðu landinu af hinni mestu hreysti. Nú réðist rússneskur her að baki Pólverj- um, og þrátt fyrir harðvítuga mótspyrnu Pólverja, hefir innrás- arhreinn nú sameinast þýzka hernum í Brest-Litovsk og Lem- berg. Er nú fyrirsjáanlegt, að þessi tvö stórveldi, Rússland og Þýzka- land, mola Pólland á milli sín. Enn verja þó Pólverjar höfuð- borg sína, Varsjá, en brátt mun hún falla í hendur óvinanna. Eftir að rauði herinn var farinn yfir landamæri Póllands, sendi Molotov, utanríkismálaráðherra sovétstjórnarinnar, sendiherra Pólverja í Moskva, langa orð- sendingu til réttlætingar árásinni. Þar segir, að pólska ríkið sé fall- ið í rústir, Varsjá sé ekki lengur höfuðborg og stjórnin flúin. Allir samningar við Pólland séu þar með úr gildi fallnir, og landið liggi nú opið fyrir hverjum þeim, sem kynnu að vilja ásælast það. Ennfremur segir í orðsending- unni, að Rússland hafi til þessa verið hlutlaust í stríðinu milli Þýzkalands og Póllands, en nú telji það skyldu sína að vernda hagsmuni, líf og eignir Hvítu- Rússa og Ukrainemanna í Pól- landi, og því hafi Sovétstjórnin falið rauða hernum að ráðast inn í landið. Pólski sendiherrann neitaði að taka við orðsendingunni, en kvaðst mundi skýra stjórn sinni frá innihaldi hennar. Pólski sendiherrann í London hefir mótmælt innrás Rússa í Pólland og lýsir yfir að ástæður þær, sem þeir færi fram fyrir inn- rásinni ,séu yfirskinsástæður ein- ar, til þess gerðar að reyna að dylja ofbeldið og samningarof gegn Póllandi. Auk þess hafi Rússar með þessu framferði brugðizt skuldbindingum sínum sem meðlimur Þjóðabandalagsins, segir sendiherrann. Á vesturvígstöðvunum hafa Frakkar umkringt borgina Saar- brucken, og er talið að þeir gætu nú þegar tilkynnt, að hún væri nú þegar fallin þeim í hendur, en það hafa þeir þó ekki gert, en treysta sem bezt aðstöðu sína á þessum slóðum, áðúr en stærri tíðindi gerast þar. Bandamenn segjast vera ákveðn- ir í að halda stríðinu áfram þar til yfir ljúki, þrátt fyrir innrás Rússa í Pólland. KIRKJAN: Messað í Lögmanns- hlíð n. k. sunnudag kl. 12 á há|l ísienzku skipin hafa tafizt í erlendum höfmun eftir að stríðið skall á, bæði vegna stríðsvátrygginga og tregðu á vöruafgreiðslu. Brúarfoss kom til Reykjavíkur frá Kaupmannahöfn sl. fimmtudagskvöld hlaðinn vör- um, og gekk ferð skipsins að ósk- um. Tók skipið hafnsögumann í Suður-Noregi og sigldi innan skerjagarðs norður til Bergen, til að sleppa við aðalhættusvæðið. Á leiðinni var skipinu veitt eftirför af ensku herskipi, sem renndi all- nærri því, en lét það afskipta- laust, er það sá merki skipsins og þjóðerni. Esja hin nýja var afhent Skipa- útgerð ríkisins fyrir síðustu helgi. Pálmi Loftsson framkvæmdastjóri hefir verið erlendis að undan- förnu, til þes að taka við skipinu. Á sunnudag lagði skipið af stað frá Álaborg heimleiðis með fjölda farþega og er væntanlegt til Reykjavíkur imi þessar mundir. Ákveðið er, að einhver Fossanna fari til Ameríku í þessum mán- uði, hlaðinn íslenzkum afurðum og flytji aftur heim nauðsynja- vörur vestan yfir hafið: Brezkt eftirlit með siglingum hlut- lausra þjóða. Brezka stjórnin hefir sett á eftirlit með siglingum hlut- lausra þjóða, til þess að koma í veg fyrir að þau flytji kornvörur til óvina Stóra-Bretlands. Hefir brezka stjórnin sent íslenzku stjórninni tilkynningu um þetta. Hefir þetta þau áhrif, að öll ís- lenzk skip verða að koma við að líkindum í Kirkwall á Shetlands- eyjum (Hjaltlandi) eins og þau urðu að gera í síðasta ófriði. í tilkynningu sinni segist brezka stjórnin reyna að tálma sem minnst hlutlausa verzlun í ófriði þeim, sem Stóra-Bretland á nú í, eftir því sem slíkt er samrýmán- legt þeirri ákvörðun hennar að koma í veg fyrir, að ófriðarbann- vörur komist í hendur óvinum Stóra-Bretlands. Brezka stjórnin telur sig verða að beita að fullu réttindum sínum sem ófriðaraðili, en jafnframt tjáir hún sig reiðu- búna til þess að taka til vinsam- legrar athugunar tillögur frá rík- isstjórnum hlutlausra landa, sem miða að því að auðvelda verzlun þeirra, sem gerð er í góðri trú. Lokun áfeng- isverzlunar- innar. Lögreglan hér í bæ hefir látið áfengisvarnanefndinni í té skýrslu eða umsögn um þau áhrif, er lok- un áfengisvezlunarinnar, vikuna sem leið, hafði haft á bæjarlífið. Skýrir lögreglan svo frá, að þessa viku hafi varla sézt drukk- inn maður við höfnina, ekki hafi sézt ölvaður maður á dansleik í Samkomuhúsinu, aldrei hafi þessa viku þurft að kveðja lögregluna til aðstoðar á hótel Akureyri, sem sé alveg óvenjulegt, og út af hó- telinu hafi aldrei sézt koma drukkinn maður alla vikuna. Enn- fremur segir í skýrslimni, að fáir dagar hafi liðið svo í sumar, að ekki hafi drukknir menn orðið á vegi lögreglunnar, en umrædda viku hafi hún aldrei þurft að skipta sér af mönnum vegna ölvunar. Geysir: Fundur verður haldinn í Skjaldborg í kvöld kl. 8.30 e. h. Fulltrúakosning. Áríðandi að allir mæti. Stjóm Jarðræktarfélags Akur- eyrar áminnir félagsmenn og aðra garðyrkjumenn bæjarins um að taka frá nægilegt kartöfluútsæði handa sér til næsta vors, sam- kvæmt áskorun Búnaðarfélags ís- lands. Til að reyna að fullnægja geymsluþörf félagsmanna hefir verið tekin á leigu kjallara- geymsla til viðbótar geymslu fé- lagsins, sem þegar er fullskipuð. Þeir félagsmenn, sem óska að fá kartöflur geymdar, eru beðnir að skila pöntunum fyrir 1. okt. til Kristjáns Sigurðssonar smiðs, Brekkug. 5B. Eftir þann tíma verða kartöflur teknar til geymslu af utanfélagsmönnum meðan hús- rúm leyfir. Hlutaveltu heldur Kvennadeild Slysavarnafélagsins á Akureyri í Samkomuhúsinu sunnudaginn 24. þ. m.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.