Dagur - 18.01.1940, Side 1
DAGUR
kemur ít á hverjiun
fimtntudegi Kostar
kr. 6.00 áig. Qjatdk.
Arni Jóhannsson !
Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjaldd. fyrir 1. júli.
-* • -* • * <> «. t> «
XXIII.
árg.J
AFGREIÐSLAN
er hjá jóni Þ. Þár,
Norðurgötu 3. Tnl-
simi 112. Uppsögn,
hunditi við áramót, sé
komiri til nfgreiöslu-
manns fyr r 1. des
« » ■* «k -<► ■%< •#>•«»■ -V •'■-.> c» v h w •*»*■•* » ««. •» 4/ 'M ■ 4k &■ f» e* ♦ « # 4» -*••■». ♦—*►-■•♦• •*• *» *t
Akureyri 18. janúar 1Q40 * 3. tbl.
Leikfélag Akureyrar
sýnir bæjarbúum
nýjan, íslenzkan leik.
Leikfélag Akureyrar heíir að
undanförnu haft með höndum
undirbúning annarar leiksýningar
sinnar á þessum vetri. Fyrst réð-
ist það í að sýna hinn bráð-
skemmtilega en fremur innihalds-
litla leik, Þorlák þreytta, sem
hlaut óvenjulega mikla aðsókn.
Eftir að honum lauk fór stjórn
félagsins að svipast eftir íslenzk-
um leik, er ekki hefði áður verið
sýndur. Varð fyrir valinu leikur,
er nefnist Hin hvíta skelfing, og
er Árni Jónsson stúdent og bæj-
arfógetaskrifari höfundur hans.
Leikur þessi er í einum þætti, sem
skipt er í fimm atriði með mjög
hröðum leiksviðsbreytingum í
hvert sinn og atriðin tengd saman
með músik. Að öðru leyti er ekk-
ert látið uppi um efni leiksins, en
þó hefir kvisast, að það muni
vera nokkuð nýstárlegt og alvar-
legt, enda bendir nafn leiksins á
að svo sé.
Er nú æfingum svo langt kom-
ið, að áformað er að leikurinn
verði sýndur um næstu helgi.
Leikstjórnina hefir Árni Jónsson
sjálfur á hendi, því aðalleikstjóri
félagsins, Ágúst Kvaran, sá sér
ekki fært að taka það starf að sér
vegna annríkis.
Jafnframt verður og sýndur
annar leikur, er nefnist Apalopp-
an; er hann þýddur úr ensku af
Söngskemmtun.
Ungfrú Sigríður Guðmundsdótt-
ir frá Lómatjörn og Róbert Abra-
ham píanóleikari höfðu „konsert“
í Nýja Bíó á sunnudaginn var.
Ungfrú Sigríður hefir ekki
mikla en mjög viðfeldna rödd.
Meðferð hennar á lögunum, sem
flest voru valin eftir getu söng-
konunnar, var smekkleg og lipur.
Flest lögin á söngskránni voru
eftir útlenda höfunda, svo sem
Mozart, Brahms, Haendel og
Schubert. Aðeins tvö lögin af 11
voru íslenzk: „í dag skein sól“,
eftir Pál ísólfsson og „Þess bera
menn sár“, eftir Árna Thor-
steinsson.
Róbert Abraham lék undir söng-
inn á píanó og spilaði auk þess
tvö soloverk. Hann er þegar
löngu kunnur Akureyringum sem
píanóleikari.
Konsertinn var endurtekinn á
jþr ið j udagskvöldið,
Árna Jónssyni, mjög einkennileg-
ur og dulræns efnis.
Að þessu sinni haldast því í
hendur á leiksviðinu bæði íslenzk
og ensk framleiðsla. Fer vel á
úví.
Aðalfundur
Akureyrardeildar K. E. A. var
raldinn { Nýja Bíó á mánudags-
kvöldið var.
Deildarstjóri, Sigtryggur Þor-
steinsson, gerði grein fyrir hag
deildarinnar, sem má teljast góð-
ur, og tölu deildarmanna um síð-
ustu áramót. Tala deildarmanna
er nú 1074 og hefir aukizt all-
verulega á árinu.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Jakob Frímannsson, gaf bráða-
Dirgðayfirlit um rekstur félagsins
síðastliðið ár.
Kjósa skyldi 53 fulltrúa, auk
deildarstjóra, til þess að mæta á
aðalfundi K. E. A. í vor. Aðeins
einn kjörlisti kom fram, og lýsti
því kjörstjórn yfir því, að þeir
menn, er á listann voru skráðir,
væru rétt kjörnir fulltrúar á
næsta aðalfund.
Kosningar að öðru leyti féllu
þannig:
Deildarstjóri: Sigtryggur Þor-
steinsson. Meðstjórnandi: Dr.
Kristinn Guðmundsson. Varamað-
ur í deildarstjórn: Ólafur Magn-
ússon. í félagsráð: Snorri Sigfús-
son. Varamaður í félagsráð: Ólaf-
ur Magnússon. Voru þeir allir
endurkosnir í einu hljóði.
Árshátíð
Framsóknarfélags Akureyrar fór
fram í Samkomuhúsi bæjarins
síðastl. laugardagskvöld. Hófst há-
tíðin með sameiginlegri kaffi-
drykkju, og var stóri salurinn al-
skipaður veizlugestum bæði uppi
og niðri og skipti því hundruðum.
Undir borðum fóru fram ræðu-
höld, upplestur og söngur. Að því
loknu var stiginn dans langt fram
eftir nóttu. Fór hátíðahald þetta
hið bezta fram.
KIRKJAN: Messað í Lögmanns-
hlíð kl. 12 á hádegi næstkomandi
sunnudag.
Mjólkurverðið hefir hækkað hér
um 4 aura, er nú 34 aura lítrinn.
Rjómi hefir einnig hækkað úr
2.20 upp í kr. 2.40. í Rvík hefir
mjólkurverðið hækkað og er nú
46 aur, á flöskum,
Þann 12. þ. m. tekur „íslending-
ur“ sér fyrir hendur að ræða
nokkuð um hitaveitumál Akur-
eyrar, sem, eins og kunnugt er, er
mjög skammt á veg komið.
Leggur blaðið áherzlu á, að áríð-
andi sé að pólitískur flokkadrátt-
ur verði ekki til að tefja það eins
og í Reykjavík.
Þessi aðvörun „íslendings“ er á
fullum rökum byggð. Það er sorg-
legt, þegar ímyndaðir flokkshags-
munir spilla fyrir framgangi góðra
mála, eins og átti sér stað um
hitaveitumál Reykjavíkur. Það
var íhaldsmeirihlutinn í bæjar-
stjórn Reykjavíkur og blöð þau,
er hann styðja, sem gerðu það
mál að áróðurstæki sínu til fram-
dráttar íhaldsflokknum við bæj-
arstjórnarkosningar í Reykjavík.
íhaldsmenn pukruðu með málið,
en lustu því upp rétt fyrir kosn-
ingar, að þeir einir hefðu leitt það
til sigurs og undirbúið það svo
prýðilega, að framkvæmdir gætu
hafizt þá þegar. En strax að kosn-
ingum afloknum kom það í ljós,
að hér hafði aðeins verið um
skrum eitt að ræða, er notað var
sem kosningabeita. íhaldsmenn
höfðu siglt málinu upp á sker og
þar hefir það setið fast, þar til á
síðasta sumri. Það er því íhalds-
mönnum einum að kenna, að
framkvæmdir í hitaveitumáli
Reykjavíkur eru of seint á ferð-
inni.
„íslendingur“ kennir að vísu
Fx-amsóknarmönnum um þetta, en
það er nú aðeins gei't í þeim til-
gangi að leiða athygli manna frá
því, hvað flokksbræður blaðsins
héldu illa á spilunum í þessu
máli.
En leiði rannsóknir það í ljós,
að hitaveita sé framkvæmanleg og
hagsmunamál fyrir Akureyri, er
þess að vænta, að flokksbræður
„íslendings“ hér láti sér víti
íhaldsmanna í Reykjavík að varn-
aði verða.
Sá, sem mest hefir unnið að því
að opna augu manna fyrir gildi
IEiiar lenediktssosil
skáld I
andaðist að heimili sínu, Herdís-
arvík, föstudaginn 12. þ. m., rúm-
lega 75 ára að aldri.
Með andláti hans er í val fallið
eitt hið gáfaðasta stórskáld, er ís-
land hefir nokkru sinni alið.
F. O. O. F. = 1211199 ==
G E Y SI R: Söngæfing í kvöld
á venjulegum stað og tíma.
Leikfélag Akureyrar sýnir n. k.
laugardags- og sunnudagskvöld
sjónleikina „Hin hvíta skelfing“
og „Apaloppan“.
I. O. G. T. St. „Brynja“ nr. 99
heldur fund miðvikudaginn 24. þ.
m. á venjulegum stað og tíma. —
Auk venjulegra fundarstarfa:
Kosning embættismanna. Inntaka
nýrra félaga. — Fjölmennið!
Barnastúkan Sakleysið heldur
fund næstk. sunnudag á venjuleg-
um stað og tíma.
Jarðskjálfta varð vart hér norð-
anlands s.l. föstudagsmorgun.
jarðhitans, er formaður Fram-
sóknarflokksins, Jónas Jónsson.
íhaldsmenn tóku í fyrstu þeim
kenningum J. J. með fullri and-
úð. Það er gleðilegur vottur um
vaxandi skilning þeirra, að nú
hafa þeir hneigst til fylgis við
notkun jarðhitans.
Aðalfundur
Ferðafélags Akureyrar
verður haldinn á Hótel Gullfoss
(niðri) þriðjudaginn 23. jan. n. k.
og hefst hann VI. 8,30 síðdegis.
Dagskrá:
1. Skýrsla nm störf félagsins s. 1. ár.
2. Reikningar félagsins.
3. Kosningar.
4. Framtíðarstarfsemin.
Akureyri 17. jan. 1940.
StjÖlPElÍIl.
Aðalfundur
H.f. Síldarbræðslustöðin Dagrerðareyri
verðnr haldlnn að Hótel Gnllfoss fðstudaginn 2.
febrúar n. k. kl. 2 e. h.
Dagskrá skv. félagslögnm.
Stjérniit*