Dagur - 28.03.1940, Page 1

Dagur - 28.03.1940, Page 1
DAGUR kemur it á hverju.n fimmtudegi Kostar kr. 6.00 úig. Gjatdk. Árni Jóhannsson ( Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júli. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við araniót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXIII. árg.J «»-•«>• 4»-•« -4Þ—9-Í Akureyri 28. marz 1940 13. tbl. - * *•-•* -3' 4*>--*• •—♦ Bændnr M |»wi nær alSan f>asin áburð, sem þeir hufa panlað. Áburðarsala ríkisins hefir til- kynnt Kaupfélagi Eyfirðinga, að hún geri ráð fyrir að afgreiða all- ann áburð samkvæmt pöntunum, nema garðáburð og superfosfat. Af þeim tveimur tegundum munu bændur fá sem næst 80% af garð- áburðar- og 35% af superfosfat- pöntunum sínum. Af superfosfat- inu munu ekki hafa verið pantað- ir nema um 400 sekkir á félags- svæði K. E. A., og varla hægt að segja að takmörkunin á innflutn- ingi þeirrar tegundar muni verða mjög bagaleg. Hinsvegar er ástæða til þess að gleðjast mjög yfir því, að ekki varð nauðsynlegt ALLIR þurfa að kaupa og lesa MT HJÖRÐU. Síðari hluta laugardagsins fyrir páska sást flugvél hátt á lofti yfir innri hluta bæjarins. Reyndist það vera fluga Svifflugfélags Akur- eyrar. Austanvindur var, allhvass, og notuðu flugmennirnir upp- streymið upp af Brekkunni til þess að halda sér á lofti. Flogið var frá Gróðrarstöðinm út að gamla Hótel Akureyri, fram og aftur, en lent á ís fyrir innan leirugarðinn. Þrír ungir Akurej'r- ingar luku C-prófi í svifflugi: Jóhannes R. Snorrason, Arinbjörn Steindórsson, Kristján Mikaelsson. Eru þeir fyrstu Akureyringarn- ir, sem ljúka A, B og C-prófi í svifflugi. Prófin veitti Helgi Filiuppsson svifflugmaður frá Reykjavík. Kom hann til bæjarins með „Esju“ með sýningu Módel- flugfélags íslands. Helgi er ný- kominn heim frá Þýzkalandi, fuil- numa í svifflugi og hefir kenn- araréttindi. Að prófunum loknum hóf Helgi sig til flugs og sveif yf- ir bænum í fullar 25 mínútur, en lenti þá, því skuggsýnt var orðið. Hinir ungu svifflugmenn hafa stundað flugæfingar af mesta kappi í allan vetur. að takmarka úr hófi fram inn- flutninginn á þeim áburðarteg- undum sem mest eru notaðar, þótt bændur hafi vitaskuld sjálfir dregið úr pöntunum sínum eins mikið og þeir frekast hafa getað. Framsóknar- fél. Akureyrar hélt fund í Skjaldborg mánudags- kvöldið 18. þ. m. Að þessu sinni var „sjálfstœðismálið“ á dagskrá, og hafði Þorsteinn M. Jónsson framsögu í því. Rakti hann í stór- um, skírum dráttum bæði hnign- unar- og þróunarsögu íslenzks sjálfstæðis og sýndi skarplega fram á, að því óháðari sem íslend- ingar hafa verið útlendu valdi, því öflugar hefir framsóknarhug- ur þjóðarinnar færst í aukana og látið til sín taka í verkum, bæði á andlega og efnislega sviðinu. Allt mál sitt rökstuddi ræðumaður með sögulegum dæmum, og hné það eindregið að þeirri niður- stöðu, að drýgst mundi enn sem fyr reynast til velfarnaðar þjóð- inni, að íslendingar hefðu sjálfir með höndum mál sín, bæði inn á við og út á við. Nokkrar umræður urðu um mál- ið, og samþykkti fundurinn að halda þeim áfram síðar. ívö sorgleg slys hafa orðið í Reykjadal síðustu daga. Piltur frá Laugabóli, Hauk- ur að nafni, 17 ára að aldri, sonur hjónanna þar, féll ofan í ríflega mannhæðar djúpan skurð og beið bana af. — Þá vildi það slys til í Laugaskóla, að ungt sveinbarn féll í sundlaugina þar og drukkn- aði. Foreldrar barnsins eru hjónin Þorgeir Sveinbjarnarson kennari og Bergþóra Davíðsdóttir. Kantötukór Akureyrar efnir til hljómleika í Nýja-Bíó þriðjudaginn 2. april næstk. Söng- skráin verður fjölbreytt og skemmtileg. Meðal viðfangsefna verða lög úr söngheftinu „Söngva- Borga“, sem Kantötukór Akureyr- ar hefir gefið út og tileinkað minningu Magnúsar heitins Ein- arssonar tónskálds. Flest þau lög eru gamlir kunningjar Akureyr- inga frá því um aldamót og voru mikið sungin í tíð M. E. Hefjast hljómleikarnir á því að sunginn verður lofsöngur eftir M. E. Þá verða og sungnir þrír kórar úr oratoríuverkinu „Strengleikar“, eftir söngstjórann, Björgvin Guð- mundsson. Einsöngvarar verða ungfrú Ingibjörg Steingrímsdótt- ir og Hermann Stefánsson. Píanó- undirleik annast ungfrú Þyri Eydal. Samkór R. Abrahams í Nýja-Bíó á páska- dagskvöldið var mjög vel sóttur og söngnum vel tekið af áheyr- endum. Nánari frásögn af hljóm- leikunum verða að bíða næsta blaðs. Hljómleikarnir verða endur- teknir í kvöld. I. O. O. F. = 1213200 = O. Úthlutun skömmtunarseðla fer fram dagana 28., 29. og 30. inarz, gegn afhendingu stofnmiða. Til bátsverja á ,.Kristjáni“: K. B. 5 krónur. N. N. 5 kr. Áður aug- lýst 10 kr. (áheit). Vilja ekki fleiri reyna þá aðferð? Dagur tekur á móti samskotum til sjóhetjanna, sem hröktust í 12 daga á hafinu. Þingstúka Akureyrar heldur að- alfund sinn í Skjaldborg miðviku- dag 10. apríl n. k. kl. 9% síðdegis (á eftir ísafoldarfundi), og ber öllum stúkum í umdæminu að kjósa fulltrúa á fundinn samkv. fyrirmælum lögbókar. Á fundin- um verður: Veitt trúnaðarstigið. Kosnir embættismenn. Kosnir fulltrúar á umdæmisstúkuþing og stórstúkuþing. Aukalagabreyting- ar. Vinningar í 1. flokki happdrætt- isins voru í Akureyrarumboði eins og hér segir: Nr. 14027: 500 kr. Vinningar á 200 kr. voru: 7126, 22092, 22910, 23871. Vinningar á 100 kr. voru: 542, 2943, 4344, 5005, 5220, 8028, 8846, 12219, 13629, 14393, 14948, 15233, 15552, 16000, 16950, 17462, 21742, 21748. Vinn- ingar alls voru útdregnir í 1. fl. 200. í næsta flokki verða útdregn- ir 250 vinningar. IffalteMiis- afmæiið. Eins og tilkynnt hafði verið, var aldarafmælis Hjaltalíns skóla- stjóra minnzt fyrra miðviku- dagskvöld með samkomu 1 Sam- komuhúsi bæjarins. Ræður fluttu Sigurður Guðmundsson skóla- meistari, Jónas Jónsson alþm., Ingimar Eydal ritstjóri, Páll Her- mannsson alþm. og Steindór Stein- dórsson menntaskólakennari. Ennfremur söng karlakórinn Geysir allmörg lög. Athöfninni var útvarpað. Þá var og á skírdag aldarafmæl- isins minnzt með morgunverði að Hótel Gullfoss, og tóku margir þátt í borðhaldinu. Aðalminning- arræðuna flutti Þorst. M. Jónsson skólastjóri, en margir aðrir tóku til máls. □ ltún 5040437 - Frl.\ Bamastúkan Sakleysið heldur fund n. k. sunnudag. Áríðandi mál á dagskrá. Ársfjórðungsgjöld ber að greiða. Frá skátunum. Blaðið hefir ver- ið beðið að geta þess, að á sunnu- dögum, meðan skíðafæri helst, getur fólk fengið við vægu verði kaffi, te eða Kakao að „Fálka- felli“. Brauð fylgir ekki. Þingkosningar í Canada fóru fram 26. þ. m. Mr. King forsætis- ráðherra rauf þingið í vetur, eftir að stjórn hans hafði orðið fyrir hinum hörðustu árásum frá and- stæðingunum. í hinum nýafstöðnu kosningum vann Kingsstjórnin og Eylgismenn hennar, Liberalflokk- urinn, hinn glæsilegasta kosninga- sigur og hlaut frá 170 til 180 þing- sæti, en aðalandstæðingarnir innan við 40. Kommúnistar komu engum þingmanni að við kosningar þess- ar. Látinn er vestan hafs Bárður Sigurðsson, hátt á níræðisaldri. Hann var eyfirzkur að ætt, sonur Sigurðar bónda á Æsustöðum í Saurbæjarhreppi, Bárðarsonar bónda á Kerhóli, Ásmundssonar. Bárður Sigurðsson fluttist á þrí- tugsaldri vestur um haf. Hann var greindur maður og hagyrðingur góður.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.