Dagur - 28.03.1940, Síða 3

Dagur - 28.03.1940, Síða 3
15. tbL DAQUR 53 KornyrKja. (Framhald). Fyrir þá, sem aldrei hafa séð eða unnið að kornrækt, er margc að athuga. Og þó að framkvæmd kornyrkjunnar verði ekki að gagni kennd annarsstaðar en á ökrunum sjálfum, skal hér vikið að nokkrum atriðum til athugun- ar fyrir þá, sem eru að byrja þessa ræktun. AKURLANDIÐ. Þurrir grasmóar og vel fram- ræstar mýrar er hentugt land, ennfremur gömul tún. Flagmóar og mögur holt eru áburðarfrekari. Gamlir arfagarðar eru óhæfir. En í sambandi við val akur- landsins er þó vert að athuga að í framtíðinni, þegar ræktun byggs- ins er komið inn í reglubundið sáðskifti við gras, kartöflur, belg- jurtir og e. t. v. fleiri nytjajurtir, þar sem á annað borð eru skilyrði til fjölbreyttrar ræktunar, verður byggið ekki ræktað á sama stað lengur en 1—2 ár, þá er það fært á nýjan reit, en önnur nytjaplanta ræktuð þar sem byggið var og svo koll af kolli, eftir því hvernig fyr- irkomulag sáðskiftisins er, en það getur verið á marga vegu. Eins og nú er ástatt munu menn ógjarnan stækka ræktaða landið, þótt reynd væri ræktun fleiri nytjajurta, enda mun þess þÖrf að bæta ræktunina fremur en stækka hana. Það er e. t. v. skynsamlegt fyrir þá, sem eru að lengur. Aldrei hefir nokkur or- ustuvöllur verið jafn þrunginn þögn og ömurleik dauðans og Tolvajárvi. Einhver tók upp bréfapinkil, sem stóð hálfur út úr vasa eins hermannsins. Bréfin voru frá konu hans í Leningrad. Þótt hún gæti varla talizt skrifandi, gat fylgdarmaðurinn þýtt kafla úr sumum þeirra. Bréf eftir bréf hafði hún sent, sagði hún, en ekk- ert svar fengið, síðan hann var kallaður til vígstöðvanna í októ- ber. Hún hafði sent honum mynd af litla drengnum þeirra, Loonja; ástandið heima var hörmulegt; heimilið var bjargarlaust, en hún vonaði, að hann mundi koma heim bráðlega. „Hátíðin (7. nóv.) færði mér enga gleði“, skrifaði hún. „Eg grét mestaf. Loonja er alltaf að spyrja, hvenær pabbi komi heim. Hann spurði Pétur frænda: ,Hef- irðu séð pabba?’ Pétur sagði ,nei’, en að þú mundir koma heim fljótlega. Loonja sagði: ,Segðu mömmu þá, að pabbi sé að koma heim’“. Eg vona, að eg hafi ekki séð froststirnað andlit þessa rúss- neska hermanns. Við skildum við hann þarna í auðninni ásamt þús- undum helfrosinna öreiga Sovét- ríkjanna. Sjálfsagt hafa þúsundir sUkra byrja byggrækt, að taka til þess þúfnastykki í túninu, ef til er, eða þá nýrækt sem illa sprettur Þar sem nauðsynleg framræzla hefir komið á eftir ræktuninni, eða e. t .v. ekki fyrr en séð var að mýrargróðurinn var að útrýma sáðgresinu, sem átti að vera var- anlegt í landinu, er nauðsynlegt að bylta landinu á ný, og hafa það opið 1—3 ár á meðan torfið er að fúna og breytast í frjósama mold. Þá er heppilegt að rækta þar bygg eða aðrar einærar plöntur, þangað til landið hefir fengið skilyrði til að geta gefið góða uppskeru af grasi. Skjól og hæfilegur halli móti suðri eða suðvestri er hentugt fyrir byggrækt eins og aðra rækt- un. Hallinn má þó ekki vera svo mikill, að hann tefji fyrir vinnsl- unni. PLÆGING. Haustplæging ætti, hér norðan- lands a. m. k., að v,era sjálfsögð regla þeirra manna, sem korn- yrkju vilja stunda. Strengirnir þurfa að hvolfast vel við, svo að grasrótin tefji sem minnst herf- unina. Þegar stórþýft land er plægt, þarf 1—2 menn með plæginga- manninum, til að „velta úr“. Þá er hægt að ætlast til að plægingin verði viðunanlegar framkvæmd en víða er. Við höfum lagt höfuðáherzluna á það að plægingamaðurinn bréfa verið í skóginum. En þau verða aldrei lesin aftur. Öreigarn- ir, sem hvíla í hinni hvítu eyði- mörk við Tolvajárvi, hverfa aftur til jarðarinnar, þegar vorar, og brumin á greni- og furutrjám Austur-Finnlands springa út og teygja sig móti hækkandi sól. Feröafélag Akureyrar fer næstk. sunnudag skíðagöngu upp Finna- staðadal, vestur fyrir Kerlingu og norður Glerárdal. Er skíðaland hið bezta á allri þessari leið. Gengið verður á Kerlingu ef skyggni reynist gott, en þaðan mun hið mesta víðsýni inn yfir öræfi og austur um sveitir, sem hægt er að fá í senn nokkurstaðar á Norðurlandi. Ekið verður í bíl- um að Finnastöðum. Dánardœgur. Á laugardaginn fyrir páska andaðist hér á sjúkra- húsinu frú Guðlaug Jónasdóttir, ekkja Þórðar Daníelssonar, er lengi bjó í Núpufelli og móðir Pálma Þórðarsonar, er þar býr nú. Guðlaug sál var hin mesta sæmdarkona á alla lund. Samkomu heldur Héraðssam- band eyfirzkra kvenna í þinghúsi Hrafnagilshrepps laugardaginn 30. marz. — Til skemmtunar verður sjónleikur og dans. — Byrjar kl. 9 e. h. Björgvin spilar. — Veiting- ar seldar á staðnm plægði mikiö. Af þessu hefir leitt hina hörmulegustu hroðvirkni, sem kom okkur í koll þegar farið var að herfa. Þá voru hestar og hestaverkfæri bannsungin, en dráttarvélarnar taldar hin eina úrlausn. Þessi uppgjöf, sem er nokkuð algeng, hefir fært framkvæmd jarðyrkjunnar mjög af þeirri leið, að ræktunarstörfin verði heimil- isstörf, eins og þau að sjálfsögðu eiga að vera. Hún hefir líka tafið fyrir því, að bændurnir sjálfir lærðu hin einföldustu jarðræktarstörf, og kenndu hestum sínum að ganga fyrir plóg og herfi. HERFIN. Heppilegast er að herfa að nokkru leyti að haustinu, ef um nýbrot er að ræða. En að vorinu þarf að herfa strax þegar jörð fer að þiðna. Sagt hefir verið að' herfið ætti bókstaflega að fylgja klakanum. Diskaherfi eru góð, með þeim er líka gott að herfa niður áburð- inn og útsæðiskornið. Landið þarf að vera vel girt. ÁBURÐUR. Korntegundirnar þurfa auð- leystan áburð. Tilbúni áburðurinn er því hentugur fyrir þær. Og þær þurfa líka minni áburð en kartöfl- ur og jafnvel gras, sérstaklega af köfnunarefnisáburði. Samkvæmt tilraunum Ólafs Jónssonar á Akureyri þarf á 1 ha. lands, við bygg- og hafrarækt og miðað við meðalfrjóan móajarð- veg, á fyrsta ári: 300 kg. súperfosfat. 200 kg. kalí 40%. 200 kg. kalksaltpétur. Sé nitrophoska notað, þarf 200 —250 kg. og til viðbótar 100 kg. súperfosfat. Þessar tölur eru auðvitað mjög ófullnægjandi, og verður hver og einn að prófa sig áfram að ein- hverju leyti, hvað aburðarþörfina snertir. Séu gömul vel ræktuð tún notuð til kornræktar, þarf lítinn áburð, e. t. v. ekki annan en súp- erfosfat 100—200 kg. á ha. Sama gildir um opið land, sem fengið hefir ríflegan skammt a : húsdýraáburði. Bygg hefir náð góðum þroska af húsdýraáburði einum saman, þótt algengast sé að rækta það með tilbúnum áburði. Steinefnaáburðinn þarf að herfa niður, áður en sáð er. Haganlegast er að dreifa honum á landið þegar það er langt til fullunnið og herfa hann síðan niður. Áríðandi er að dreifa áburðinum jafnt, það er reyndar ekki vandaverk, ef rétt er að farið, og sennilega ekki vandameira en að dreifa með áburðardreifara. Gott ráð til að handdreifa sem jafnast er það, að dreifa fyrst helming áburðarskammtsins á allt landið. Ganga svo, þegar seinni helmingnum er dreift, þvert við fyrri dreifinguna. Verða þá tæp- lega eftir auðir blettir. Sama ráð er gott, þegar korni er handsáö. ‘ SÁNING. Þegar landið er fullunnið og moldin orðin mjúkur vaxtarbeður i'yrir plönturnar, er kominn tími til að sá. Og því fyrr, því betra, a. m. k. eftir að komið er fram í miðjan aprílmánuð. Talið er óráð- iegt að sá byggi seinna til þrosk- unar en 20. maí. Um það er þó alls ekkert hægt að fullyrða. En Dað þarf langan vaxtartíma, eða oft um 120—135 daga og hafrarnir nokkuð lengri. Síðastliðið sumar þroskaðist byggið þó á 105 dögum bæði norð- anlands og sunnan. Byggið þolir vorfrostin vel, sömuleiðis hafr- arnir. Þau þurfa því ekki að fæla neinn frá að sá snemma. Hitt er líka vert að athuga, að á meðan flögin eru blaut, eru þau auðveld- ust í vinnslu. Það er gott að herfa á klaka og það er engin ástæða til að draga sáninguna, þangað til aann er farinn. Handsáning er fljótleg og ein- föld og engin ástæða er til að nota sáðvélar, þótt korn sé rækt- að í nokkrum hö. eða minna. Korninu er því dreifsáð (með sömu aðferð og tilbúna áburðin- um er dreift). Bygg og hafrar sjást greinilega ofan á moldinni, sérstaklega ef hún er rök, og er þá auðvelt að dreifa jafnt. Kornið þarf svo að fella niður, með hrífu ef um lítinn blett er að ræða, annars með hálfskekktu diskaherfi — ekki mjög þungu. Bezt er að herfa hálft í hálft eða taka hálfa herfisbreiddina fyrir í einu; Verður þá landið tvíherfað og sáðkornið jafnt í moldinni. Hæfileg sáðdýpt er 3—5 cm. Sáð- vélar sá korninu í raðir, fella það niður og sópa yfir það. Sáðmagn af byggi er talið hæfi- legt 200 kg. á ha. Sáðmagn af höfrum einnig 200 kg. á ha. og af rúgi 110—120 kg. á ha. VÖLTUN. Þegar eftir sáningu þarf að valta landið rækilega. Því hefir verið haldið fram, að ef kornlandið sé valtað seint, eða ekki fyrri en kornið er farið að koma upp, þá geri haustrakinn því minni skaða. Eltki veit ég á hverju þetta bygg- ist. Akrarnir passa sig sjálfir á sumrin, og er ekkert við þá að gera þangað til kornskurðurinn hefst. Ef tíðin er hagstæð, kemur byggið upp á 10—15 dögum og hafrarnir nokkru seinpa, og akr- arnir verða fagurgrænir á skömm- um tíma. Við getum nú hugsað okkur akrana í blóma, og eru þeir þá hreinasta heimilisprýði. Síðari hluta sumars fara þeir að gulna, en það er merki þess, að kornið er að þroskast. Byggið þroskast venjulega 6—8 vikum eftir að það setur ax (skríður). Það er gerður greinarmunur á grænþroska, fullþroska og hrað- þroska korni. Grænþroska er kornið, þegar stráið er grænt og kjarninn linur. Fullþroskað er það talið, þegar kornið er orðið seig- hart og stráið gult og hart, Þegar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.