Dagur - 30.05.1940, Side 1
DAGUR
kemur it á hverjum
fimmtudegi Kostar
kr. 6.00 áig. Gjaldk.
Árni Jóhannsson f
Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjaldd. fyrir 1. júlí.
AFGREIÐSLAN
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Tal-
sími 112. Uppsögn,
bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslu-
manns fyrir 1. des.
XXIII
. árg.j
Akureyri 30. maí 1940
22. tbl.
Óvænt 1
i Belgíu.
Að undanförnu hefir belgíski
herinn barizt við innrásarher
Þjóðverja af mikilli hreysti og
hugprýði, og hefir Leopold kon-
ungur Belgíu lokið miklu lofsorði
á framgöngu hers síns og látið svo
um mælt, að hann væri stoltur aí
her sínum. En síðastliðna þriðju-
dagsnótt skeði sá óvænti atburð-
ur, að konungur Belgíu semur frið
við Þjóðverja og skipar her sín-
um, allt að hálfri miljón, að leggja
niður vopn, og þetta gerir kon-
ungur á eigin spýtur, án þess að
ráðfæra sig við stjórn sína eða
herforingja sína, enda er uppgjöf-
in í óþökk beggja þessara aðila.
Hefir forsætisráðherra Belgíu lýst
yfir því, að með þessu tiltæki sínu
hafi Leopold konungur rofið
stjórnarskrá landsins, og sé því
þjóðin leyst frá hollustu við kon-
unginn.
Meðal Bandamanna mælist þetta
tiltæki konungs að sjálfsögðu illa
fyrir, en Þjóðverjar segja, að kon-
ungur hafi gripið til þessa ráðs,
af því að hann hafi séð, að öll
vörn væri þýðingarlaus.
Verið er að æfa nýjan belgískan
her ungra manna, sem eiga að
berjast við hlið Bandamanna.
Aðstaða hers Bandamanna i
Belgíu er nú enn alvarlegri en áð-
Dánardægur.
Síðastl. sunnudag andaðist eftir
stutta legu á Landsspítalanum frú
Helga Jónsdóttir, kona síra Jakobs
Kristinssonar, fræðslumálastjóra.
Frú Helga var hin mesta ágætis-
kona og manni sínum óbrotgjörn
stoð í störfum hans og lífi. Hún
mun hafa verið rúmlega sextug að
aldri.
Fyrri sunnudagsnótt lézt hér á
sjúkrahúsinu Marinó Jónsson frá
Uppsölum, en til heimilis hér í
bæ. Hafði hann verið heilsuveili
síðustu árin. Hann var um fimm-
tugt.
Þá er nýlega látinn hér í bæ
Firðrik Pálsson, er lengi bjó að
Brekku í Kaupangssveit.
Fyrir nokkru síðan andaðist að
heimili sínu, Kambi í Eyjafirði,
Guðrún Sigurðardóttir, kona
Kristjáns Jósefssonar bónda þar.
eikslok
ur. Þjóðverjar hafa brotizt allt
vestur að Ermarsundi og náð þar
frönskum hafnarborgum á vald
sitt. Eru þeir þá komnir ískyggi-
lega nálægt Englandi.
Frá Noregi
er það helzt að frétta, að Banda-
menn hafa loks unnið Narvík að
fullu úr höndum Þjóðverja.
„Heklaa,
Samband norðlenzkra karlakóra,
heldur söngmót á Akureyri 8. og
9. júní næstk. Gert er ráð fyrir
þátttöku 7 karlakóra og er það
meira en nokkru sinni fyrr. Tveir
aðkomnir karlakórar kom fram á
söngpallinn að þessu sinni, sem
ekki hafa látið heyra hér til sín
áður, Karlakór Reykhverfinga,
söngstjóri Sigurjón Pétursson og
Karlakórinn „Heimir“, Skagafirði,
söngstjóri Jón Björnsson. Mun
marga fýsa að heyra hina nýju
kóra og sömuleiðis endurnýja
kynni sín af hinum kórunum, sem
að sjálfsögðu munu hafa tekið
framförum þessi tvö ár, sem liðin
eru frá síðasta söngmóti. Hefir
hinn ágæti söngkennari Sigurður
Birkis veitt sumum af þessum
kórum tilsögn á þessu tímabili.
Aðsókn var prýðileg að síðasta
söngmóti og er ástæða til að ætla
að hún verði ekki minni nú.
St. Ág. Kr.
Sveinn Bjðinsson
sendiherra kom til Reykjavíkur
með Dettifossi í síðustu viku.
Hafði hann orðið að fara króka-
leið frá Kaupmannahöfn, fyrst til
Ítalíu, síðan til New York og það-
an heim. Tók þetta ferðalag hann
fjórar vikur. Að öllu samanlögðu
lætur sendiherrann vel af líðan
íslendinga þeirra, sem dvelja á
Norðurlöndum.
Næsta sunnudag fara fram há-
tíðahöld sjómanna hér { bænum.
Hefjast þau kl. 10 f. h. með hóp-
göngu frá innri hafnarbryggjunni
um bæinn. Staðnæmzt verður að
Ráðhústorgi, og þar prédikar síra
Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup, en
kirkjukórinn syngur.
Kl. 2 e. h. hefst kappróður, og
að honum loknum fer fram
stakkasund. í róðrinum verður
keppt um verðlaunabikar Útgerð-
armannafélagsins, en í stakka-
sundinu um verðlaunagrip frá
Axel Kristjánssyni, konsúl.
Kl. 5 e. h. syngur Karlakór Ak-
ureyrar á íþróttavelli „Þórs“. Þar
fer líka fram knattspyrna milli
Sjómannafélagsins og Vélstjórafé-
lagsins um verðlaunabikar frá
Kristjáni Kristjánssyni forstjóra
B. S. A., og reipdráttur milli Skip-
stj órafélagsins, Sj ómannafélagsins
og Vélstjórafélagsins um verð-
launagrip frá Útgerðarfélagi K. E.
A. — Um kvöldið verður dansleik-
ur. Merki dagsins, og Sjómanna-
dagsblaðið, verða seld allan dag-
inn.
Ameríkuoestir
eru nýlega komnir til Reykjavík-
ur með Dettifossi. Eru það þeir
Ásmundur P. Jóhannsson og Árni
Eggertsson og konur þeirra. Eru
þau öll gestir Eimskipafélagsins.
Ennfremur kom með sama skipi
Gunnar B. Björnsson ritstjóri og
kona hans, og eru þau gestir Þjóð-
ræknisfélagsins.
Nokkru áður var kominn til
Rvíkur vestan um haf Sophonías
Þorkelsson verksmiðjueigandi í
Winnipeg. Er hann Svarfdælingur
og hefir dvalið í Ameríku í 42 ár.
Innflutningstolli á ísfiski hefir
nú verið aflétt í Englandi, nema
að því er snertir toll á heilagfiski.
Ekki nær heldur tollsafnámið til
síldar. Innflutningstollur þessi á
fiski í Englandi mun hafa numið
nálægt 10% af söluverði fisksins.
Úthlutun skömmtunarseðla fer
fram á skömmtunarskrifstofunni í
dag og á morgun, 30. og 31. þ. m.
Skemmtiför til Grímseyjar er á-
formuð næstk. sunnudag (sjá augl.
á öðrum stað hér í blaðinu). Sé
veður hagstætt, þykja slíkar ferð-
ir jafnan ánægjulegar.
Bœjakeppni í íþróttum milli
Siglufjarðar og Akureyrar hefst á
laugardagskvöldið kemur og
stendur yfir í þrjá daga. Keppt
verður í frjálsum íþróttum, sundi
og knattspyrnu.
Askorun
frd Fiskifélagi íslands til fiski-
manna og vélbátaeigenda.
Vegna ástands þess, sem skap-
ast hefir á Norðurlöndum, er nú
algerlega ókleift orðið að afla
nauðsynlegra varahluta í mótor-
vélar þær, sem eru frá þessum
iöndum og notaðar eru í íslenzk-
um fiskibátum, en áður var loku
fyrir það skotið, að varahlutar
fengjust hingað í þýzkar vélar.
Hvílík hætta bátaflotanum get-
ur stafað af þessu ástandi, sézt
bezt á því, að af hverju hundraði
mótorvéla í fiskibátum hér á
landi eru að tölu til 90 frá Norð-
urlöndum og Þýzkalandi, en 95 af
100 hvað hestaflatölu snertir, þar
eð nær eingöngu smæstu bátarnir
hafa vélar smíðaðar í Bandaríkj-
unum og Englandi.
Styrjöldin hefir ennfremur gert
allan aðdrátt á eldsneyti til mót-
orvéla mjög erfiðan og orsakað
hækkandi verðlag á því og er þó
óhætt að gera ráð fyrir enn meiri
hækkun, ef styrjöldin verður
langvinn.
Vélbátaeigendur og þeir, sem
með mótorvélar fara, verða svo
sem þeim er unnt, að koma í veg
fyrir, að þetta verði til verulegs
tjóns fyrir bátaútveginn, og skorar
Fiskifélag íslands því á þá:
1. Að keyra vélarnar gætilega og
hindra þannig óeðlilegt véla-
slit.
2. Að hirða vélarnar svo vel sem
frekast er unnt.
3. Að spara eldsneyti svo sem
hægt er.
Mun félagið góðfúslega veita
mönnum allar upplýsingar, er að
þessu lúta, og þá aðstoð, sem það
getur í té látið og að gagni má
koma.
Fiskifélag íslands.
I. O. O F. = 1225319 = II.
I. O. G. T. Fundur í st. ísaf. Fjk.
nr. 1 miðvikudaginn 5. júní kl.
8% síðd. Tilkynningar o. fl. Sagð-
ar sögur, draumar o. fl. Æ. T.
Áskriiendur
að Ijóðabók
Sigurðai frá Brún
vitji hennar til
Baldnro Eirikaaonar Kea.